Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 35

Morgunblaðið - 13.11.2021, Page 35
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Segja má að hið ótrúlega hafi orðið að veruleika er tilkynnt var um endurkomu ABBA. Fyrst komu þau saman vegna Mamma Mia!-kvikmyndarinnar, svo byrjuðu að koma fréttir af einslags mannlíkis-tónleikum („avatar“) og svo var loks sagt af tveimur nýjum lögum. Og á endanum var tilkynnt um það sem hér verð- ur tekið til kost- anna, nýtt verk eður hljómplata frá ABBA sem kallast Voyage. Fyrsta hljóðvers- plata hennar frá því að The Visitors kom út 1981. Ég gæti talað endalaust um að- dragandann að þessu en þessi pistill á ekki að vera fréttapistill. Ég gæti líka talað afar lengi um goðsöguna í kring- um ABBA – næstmerkustu poppsveit allra tíma – en þetta er ekki slík út- tekt heldur. Nei, þetta er fyrst og fremst hugsað sem nokkurs konar plötudómur, hvar við dýfum okkur í plötuna, þau tíu lög sem hér eru á borð borin. Dómar hafa verið misjafnir. Auð- vitað var alltaf borin von að platan gæti staðið undir þeim vonum og væntingum sem til hennar voru gerð- ar. Án þess að ég átti mig almenni- lega á því hversu djúpt það ristir allt saman. Ég hef skynjað þetta mest sem almenna gleði yfir því að þetta fólk sé yfirleitt komið saman aftur og sé að gera „eitthvað“. Tónlistin Hin fjögur fræknu kannski að einhverju leyti aukaatriði. Fyrstu tvö lögin sem við fengum eru ágæt. „I Still Have Faith In You“ er epísk ballaða og svona 1983-fílingur í gangi. Að einhverju leyti rökrétt framhald af því efni sem sveitin var að gera í enda ferilsins en samt ekki. Söngleikjastemning, Elaine Paige svífur yfir vötnum og ég hugsa um Chess. Ekkert Visitors-þunglyndi, enginn nýrómantískur broddur. „Don’t Shut Me Down“ kom út á sama tíma sem einslags b-hlið en prýðir líka stóru plötuna. Fjörugra en tómlegra um leið, fannst mér á sínum tíma, en það hefur vaxið, eins og mörg ABBA-lög gera einatt. Þriðja lagið er svo hið skelfilega „Just A Notion“. Gamalt lag sem komst ekki inn á einhverja ABBA- plötuna, skiljanlega. Platan öll er dálítið svona. Ójöfn – eins og allar þessar ABBA-plötur! Ég var einhvern tíma búinn að sann- færa mig um að The Visitors væri heildstæðasta verk ABBA en þar eru samt hundar. Hér höfum við t.d. lagið „When You Danced With Me“, írsk stemma sem minnir mig smá á „The Piper“. Kauðslegt lag, eins og jólalag- ið „Little Things“ sem er bara ekki nægilega jólalegt. Uppáhaldslagið mitt eins og er myndi vera „Keep An Eye On Dan“, dulítið móðins byrjun og uppbyggingin dulúðug. Svei mér þá ef raddir strákanna heyrast ekki lágt. Og svo endað á smekklegri vís- un í „SOS“. Endatónarnir eru upp- hafstónar þess mikla smells. Eðlilega veit mannskapurinn hvað hann er að gera, það er búið að reikna þetta allt saman upp í topp (þetta eru Svíar!) og ég myndi aldrei segja að þessi plata skyggi eitthvað á magnað orðspor ABBA. Megi þetta ferðalag því vara sem lengst. Ég sagði í einhverju fjasbókar- spjallinu að þessi plata væri svona „6/10“ í mínum huga og á vissan hátt er eins og ekkert hafi breyst. Smá hallærislegt og var það ekki alltaf megineigindi ABBA? Að vera ekki kúl, dulítið skver, og þar með massa- kúl!? » Að einhverju leyti rökrétt framhald af því efni sem sveitin var að gera í enda ferilsins en samt ekki. Voyage er ný hljóð- versplata eftir sænska ABBA-flokkinn, sú fyrsta í fjörutíu ár. Meistaraverk? Eða betur heima setið en af stað farið? Skoðum þetta mál. Stórsveit Enginn átti von á endur- komu ABBA en hér eru þau! MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 2021 Tónverk eftir Önnu Þorvalds- dóttur tónskáld hefur verið til- nefnt til virtra verðlauna í Bret- landi. Verk hennar, Catamorphosis, er tilnefnt til Ivors Academy- tónskáldaverð- launanna í flokki „viðamikilla tón- verka“ en verðlaunin þykja einhver þau merkustu sem veitt eru fyrir klassísk og djasstónverk í Bretlandi en tilkynnt verður um úrslitin við athöfn í British Museum 8. desem- ber. Catamorphosis var frumflutt í janúar síðastliðnum af Berlínarfíl- harmóníunni undir stjórn Kirills Petrenkos. Verkið var pantað sam- eiginlega af hljómsveitinni í Berlín og New York-fílharmóníunni, Sin- fóníuhljómsveit Íslands og Sinfón- íuhljómsveitinni í Birmingham. Anna Þorvaldsdóttir Catamorphosis Önnu tilnefnt Íslandslag og furðufiskar – Glerverk og foto- grafik er yfir- skrift sýningar sem Pía Rakel Sverrisdóttir opnar í Listhúsi Ófeigs, Skóla- vörðustíg 5, í dag, laugardag, kl. 14. Pía Rakel fæddist í Skotlandi árið 1953. Þeg- ar hún var ung flutti hún til Íslands og bjó hér þar til hún lauk stúdents- prófi. Þá nam hún við Konunglega arkitektúrskólann í Kaupmanna- höfn og við Danska hönnunarskól- ann þar sem ferill hennar sem gler- listamaður hófst. Verk Píu Rakelar hafa verið sýnd víða og vinnur hún glerverk iðulega út frá rými bygg- inga. Hún er búsett á Amager en á sér annað heimili á Siglufirði. Í tilkynningu segir að heiti sýn- ingarinnar vísi til þess að Siglu- fjörður og Tröllaskagi voru æsku- stöðvar hennar en verkin eru úr „plangleri og ljósmyndum með sandblásnum grafíkmynstrum“. Pía Rakel sýnir verk sín hjá Ófeigi Eitt myndverka Píu Rakelar. Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ NÝJASTA MARVEL STÓRMYNDIN ER KOMIN Í BÍÓ GEMMA CHAN RICHARD MADDEN KUMAIL NANJIANI LIA McHUGH BRIAN TYREE HENRY LAUREN RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.