Morgunblaðið - 17.11.2021, Page 1

Morgunblaðið - 17.11.2021, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. N Ó V E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 270. tölublað . 109. árgangur . FLUGUMFERÐ OG GISTING Á UPPLEIÐ SPENNU- ÞRUNGINN GESTALISTI ÁTTI EKKI VON Á AÐ SPILA SVONA MIKIÐ GLÆPASAGNAHÁTÍÐ 25 BERGLIND RÓS 22VIÐSKIPTAMOGGINN Eitt virtasta tónskáld Breta, ThomasAdès, stjórnar eigin píanókonsertmeðVíkingi Heiðari Ólafssyni í einleikshlutverkinu. VÍKINGUR OGADÈS 18 11 KL. 19.30 FIMMTUDAGUR Fáðu þér sæti á sinfonia.is Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Starfsfólki sem sinnir fjármálaeft- irliti fyrir hönd íslenska ríkisins hef- ur fjölgað í kjölfar þess að Fjár- málaeftirlitið var sameinað Seðlabanka Íslands í ársbyrjun 2020. Þetta kemur fram í svari Seðla- bankans við fyrirspurn Morgun- blaðsins sem lögð var fram í byrjun októbermánaðar. Í svarinu kemur fram að 120 stöðugildi séu helguð fjármálaeftir- liti á vettvangi bankans en í heildina eru stöðugildi við stofnunina 286,8. Frá sameiningunni hefur stöðugild- um fækkað um ríflega 15 en fjölgað á sama tíma um fjögur í fjármála- eftirliti. Eins og fram kemur í um- fjöllun í ViðskiptaMogganum í dag hefur nær samfelld fjölgun starfa í fjármálaeftirliti verið frá árinu 2008. Nemur fjölgunin frá þeim tíma til dagsins dag ríflega 64 og jafngildir það 115% fjölgun. Á sama tíma og starfsmönnum eftirlitsins hefur fjölgað síðustu ár hafa stjórnendur stærstu fjármála- fyrirtækja landsins unnið hörðum höndum að því að fækka starfsfólki og í stóru viðskiptabönkunum þrem- ur hefur fækkað um 28% í starfslið- inu frá árinu 2008. Fjármálaeftirlitið vex að umfangi ár frá ári - Á sama tíma skera bankarnir niður starfsmannafjöldann Morgunblaðið/Árni Sæberg Sameining Fjármálaeftirlitið var sameinað Seðlabankanum 2020. M »ViðskiptaMogginn Salt sjávarbrimið tættist í sundur á grýttum töngum Akra- ness undir blágrænum himni norðurskautsins í gær. Síðustu vikur og daga hefur gustað hraustlega um strendur landsins. Veðurstofan hefur varað við því að árdegis í dag ríði storm- ur yfir Suðausturland með vindhviðum allt að 40 metrum á sekúndu. Búist er við að veður fari kólnandi seinni hluta vik- unnar þó léttara verði yfir á Suður- og Vesturlandi. Vindátt verður breytileg, úrkoma með köflum í flestum landshlutum og hiti í kringum frostmark. Morgunblaðið/Árni Sæberg Viðvaranir og vindasamt víðs vegar um landið _ Degi íslenskrar tungu var fagnað með fjölbreyttum hætti víða í gær. Arnaldur Indriðason rithöfundur hlaut Verðlaun Jónasar Hallgríms- sonar. „Það gefur manni vísbend- ingu um að maður hafi verið að gera eitthvað rétt fyrir íslenska lesendur og íslenskar bókmenntir þótt maður hafi kannski ekki farið alveg hefð- bundna leið að því,“ sagði Arnaldur við Morgunblaðið. Vera Illugadóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, hlaut við sama tilefni sérstaka viðurkenn- ingu fyrir þátt sinn Í ljósi sögunnar. Lilja D. Alfreðsdóttir ráðherra af- henti verðlaunin. »6 Morgunblaðið/Unnur Karen Heiður Arnaldur, Lilja og Vera í gær. Arnaldur og Vera fengu verðlaun _ Það sem af er þessu ári hafa fjór- ar flöskur selst hér á landi af einu dýrasta og fágætasta koníaki sem völ er á í heiminum. Þetta staðfestir Birkir Ívar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Vínness, sem flytur vínið inn. Þar er á ferðinni svokallað Louis XIII koníak úr smiðju Remy Mart- in. Sala upp á fjórar flöskur væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að verðmiðinn á hverri þeirra er tæplega 450 þúsund krónur. Flöskurnar eru 700 ml og koma í fagurbúinni öskju og hver flaska er handgerð og einstök af þeim sök- um. Birkir Ívar segir að sex flöskur séu fluttar til landsins á ári hverju. Verðið á víninu hér á landi er af- ar samkeppnishæft á við það sem gerist erlendis. Í Englandi kostar flaskan 2.900 pund, jafnvirði ríf- lega 517 þúsund króna. »ViðskiptaMogginn Fjórar flöskur af Lúðvík þrettánda hafa selst á árinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.