Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 3
Hreint ál úr íslenskri orku
Umhverfisvænni
og verðmætari afurð
Ný framleiðslulína
Á Grundartanga reisir Norðurál nýja fram-
leiðslulínu þar sem framleiddar verða ál-
stangir. Álstangirnar eru framleiddar fyrir
kaupendur í Evrópu og verða að stórum hluta
notaðar í framleiðslu rafbíla og annars há-
tæknibúnaðar.
Ekki er um að ræða aukningu á álframleiðslu,
heldur verður álið unnið áfram og verðmeiri
afurð búin til, en álstangirnar eru verðmætari
en hleifarnir sem steyptir eru í núverandi
steypuskála. Þegar framleiðslan hefst verður
langstærstur hluti þess áls sem Norðurál
framleiðir virðisaukandi vara, álstangir og
álblöndur.
Framkvæmdir eru hafnar og gert er ráð fyrir
að nýja framleiðslulínan verði tekin í gagnið í
byrjun árs 2024.
Minna kolefnisfótspor
Norðurál notar 100% endurnýjanlega raf-
orku við alla framleiðslu, en hingað til hafa
álhleifar Norðuráls verið bræddir í stangir í
Evrópu, þar sem notuð er raforkameð stærra
kolefnisspori. Engin aukalosun verður við
framleiðslu álstanga í steypuskála Norður-
áls og orkuþörf verður mun minni en ef þær
væru steyptar erlendis.
Græn fjármögnun
Verkefnið er að fullu fjármagnað á Íslandi og
vegna þess hve jákvæð umhverfisáhrifin eru
uppfyllir það skilyrði fyrir grænni fjármögnun
hjá Arion banka.
Fjörutíu ný störf
Um er að ræða fjárfestingaverkefni sem
hleypur á um 120 milljónum dala, eða um
16 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir því að
útflutningstekjur Norðuráls aukist um 3-4
milljarða króna á ári. Þá mun raforkunotkun
Norðuráls aukast um 10 MW. Meðan á fram-
kvæmdum stendur verða til um 80-90 bein
störf og þá verða til um 40 varanleg störf
þegar framleiðsla um nýja línu hefst.
Í stuttu máli:
• Kostnaður: 16 milljarðar króna
• Störf við framkvæmdir: 80-90 í tvö ár
• Fjöldi nýrra starfa eftir framkvæmdir: 40
• Aukning útflutningstekna:
3-4 milljarðar króna á ári
• Aukin raforkunotkun: 10 MW
• Bætt orkunýting: 40%
Nánari upplýsingar á nordural.is