Morgunblaðið - 17.11.2021, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.11.2021, Qupperneq 3
Hreint ál úr íslenskri orku Umhverfisvænni og verðmætari afurð Ný framleiðslulína Á Grundartanga reisir Norðurál nýja fram- leiðslulínu þar sem framleiddar verða ál- stangir. Álstangirnar eru framleiddar fyrir kaupendur í Evrópu og verða að stórum hluta notaðar í framleiðslu rafbíla og annars há- tæknibúnaðar. Ekki er um að ræða aukningu á álframleiðslu, heldur verður álið unnið áfram og verðmeiri afurð búin til, en álstangirnar eru verðmætari en hleifarnir sem steyptir eru í núverandi steypuskála. Þegar framleiðslan hefst verður langstærstur hluti þess áls sem Norðurál framleiðir virðisaukandi vara, álstangir og álblöndur. Framkvæmdir eru hafnar og gert er ráð fyrir að nýja framleiðslulínan verði tekin í gagnið í byrjun árs 2024. Minna kolefnisfótspor Norðurál notar 100% endurnýjanlega raf- orku við alla framleiðslu, en hingað til hafa álhleifar Norðuráls verið bræddir í stangir í Evrópu, þar sem notuð er raforkameð stærra kolefnisspori. Engin aukalosun verður við framleiðslu álstanga í steypuskála Norður- áls og orkuþörf verður mun minni en ef þær væru steyptar erlendis. Græn fjármögnun Verkefnið er að fullu fjármagnað á Íslandi og vegna þess hve jákvæð umhverfisáhrifin eru uppfyllir það skilyrði fyrir grænni fjármögnun hjá Arion banka. Fjörutíu ný störf Um er að ræða fjárfestingaverkefni sem hleypur á um 120 milljónum dala, eða um 16 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir því að útflutningstekjur Norðuráls aukist um 3-4 milljarða króna á ári. Þá mun raforkunotkun Norðuráls aukast um 10 MW. Meðan á fram- kvæmdum stendur verða til um 80-90 bein störf og þá verða til um 40 varanleg störf þegar framleiðsla um nýja línu hefst. Í stuttu máli: • Kostnaður: 16 milljarðar króna • Störf við framkvæmdir: 80-90 í tvö ár • Fjöldi nýrra starfa eftir framkvæmdir: 40 • Aukning útflutningstekna: 3-4 milljarðar króna á ári • Aukin raforkunotkun: 10 MW • Bætt orkunýting: 40% Nánari upplýsingar á nordural.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.