Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórnmála- menn eiga mislukku- legar vikur í stjórnmálum eins og þekkt er. Þá getur stundum munað nokkru hvernig á þeim er tekið af þeim öflum sem ein- hverju ráða umfram aðra um hugsanlega þróun umræð- unnar í landinu. Í aðdraganda kosninga í Bandaríkjunum árið 2016 tókst með miklu afli og illvið- ráðanlegri bíræfni að stimpla það inn að eitt mikilvægasta gagn í þjóðfélagsumræðuna væri „óvænt skýrsla“ sem fyrrverandi allháttsettur maður í njósnakerfi Breta hefði að eigin frumkvæði haft mest með að gera og nánast alla umsjón með. Sú átti að sýna tvennt: Náið samstarf Donalds Trumps frambjóð- anda við Pútín forseta Rúss- lands um framboð þess fyrr- nefnda og að varpa vafasömu ljósi á forsetaframbjóðanda repúblikana. Þessum „óvæntu og mikilvægu gögn- um“ tókst að halda á lofti lungann úr kosningabarátt- unni og tóku ólíklegustu fjöl- miðlar nær og fjær virkan þátt í þeim leik og nánast allt kjörtímabilið sem fór í hönd! Þó þurfti ekki lengi að sökkva sér niður í skýrslugarminn til að sjá að margt þar virtist vera á mjög hæpnum grund- velli byggt. Þessi atgangur var býsna óvífin hönnun at- burðarásar sem „fínir og virt- ir fjölmiðlar“ ekki aðeins lögðu nafn sitt að nokkru við, heldur tóku mánuðum og misserum saman þátt í að halda á lofti. Demókratar reistu svo á delluplagginu kröfur um að forsetinn yrði sviptur embætti sínu. Þrátt fyrir þetta og eðlileg- ar efasemdir margra um að Donald Trump væri endilega æskilegasta forsetaefnið fyr- ir Bandaríkin, sigraði hann naumlega og stóð af sér tvær tilraunir til að bola honum frá. En áfram var rússagald- urinn þó notaður vegna þess að hrópað var í fjölmiðlum og á torgum að „Trump stal sigrinum með hjálp Rússa“. Þær fullyrðingar voru svo notaðar sem réttlæting fyrir því að tugir þingmanna demókrata mættu ekki við innsetningu nýs forseta. Það var sem sagt ekkert nýtt þeg- ar stuðningsmenn Trumps höfðu sömu full- yrðingar uppi vegna vafasamrar framgöngu við kosningahald með vísun í „Covid- fárið 2020“ sem önnur ríki ver- aldar þurftu ekki til að slá af öryggiskröfum til að halda utan um mikilvæg- ustu kosningar í hverju landi. Hin mikla fjölmiðlafjöld sem sló skjaldborg um Joe Biden gerði það þó varla vegna aðdáunar á honum heldur fremur fjandskapar og fyr- irlitningar á Trump, sem fjarri því var að farið væri leynt með allt hans kjör- tímabil. Hluti af þeim veruleika var að þegja blákalt um sláandi upplýsingar og reyndar hrikalegar um að sonur Bidens hafði með atbeina hans sankað að sér fúlgum fjár sem „starfsmaður fyrir- tækja“ í Úkraínu og Kína en enginn treysti sér þó til að færa fram rök fyrir sem bentu til að sonurinn hefði getu eða þekkingu til slíkra starfa. Yfirgengilegar mynd- ir sem sýndu umgengni Hunters Bidens við eiturlyf og gleðikonur voru taldar falsaðar eins lengi og fært þótti, því næst að þær væru ekki algjörlega öruggar og loks, löngu síðar, sagðar ber- sýnilega sýna það sem sagt væri en væru nú orðnar „gamlar fréttir!“ Og þótt þær bættust vissulega við alvar- legar ásakanir um stórlega misnotkun á stöðu og högum til að auðgast stórlega á að- stöðu varaforsetans þá væri það mál enn ekki fullrann- sakað. Engu af þessu er nú lengur neitað og hefur meðvirknin og misnotkunin auðvitað skaðað álit allra þessara fjöl- miðla stórlega og til lengri tíma og er það óneitanlega jafn dapurlegt og það var óþarft, ekki bara fyrir þá heldur fyrir Bandaríkin. Enda hefur þetta strax sín áhrif. Fjarfundur forseta Kína og forseta Bandaríkj- anna í vikunni undirstrikaði það. Fyrrnefndi forsetinn talaði eins og sá sem valdið hefur og hikaði ekki við að tala niður til hins. Hversu lengi geta Banda- ríkin afborið sífellt vaxandi veikleika af því tagi? Vandinn er að hann veiklar allt sem undir er. Forseti Kína taldi óþarft að hitta Joe Biden persónulega. Fjarfundurinn átti að bæta úr því. Hann gerði það ekki} Verður sífellt þungbærara O ft er sagt að embættismenn ráði öllu og pólitískir fulltrúar hafi engin áhrif. Það er dálítið merki- legt því oft er líka talað um hvernig ráðherra ræður öllu. Hvort tveggja getur ekki verið satt á sama tíma. Annaðhvort erum við undir hælnum á ráðherra eða embættismönnum, ekki satt? Áður en ég svara þeirri spurningu neitandi finnst mér merkilegt að benda á í því sam- hengi að aldrei er talað um að Alþingi ráði neinu. Þrátt fyrir að við búum í þingbundnu lýðræði. Það er nefnilega þannig að sam- kvæmt stjórnarskrá á það að vera þingið sem ræður. Það er þingið sem setur stefnuna, samþykkir fjárlög og passar upp á að fram- kvæmdarvaldið fari eftir lögum og reglum. En aftur að spurningunni sem ég svaraði neitandi. Hvort tveggja er nefnilega satt. Við erum bæði með ráðherraræði og embættismannakerfi. Við eigum hins vegar bara að hafa annað þeirra og það er ekki ráð- herraræðið. Við eigum að hafa faglega stjórnsýslu sem sinnir skyldum sínum samkvæmt lögum og reglum og passar upp á réttindi borgaranna á hlutlausan hátt. Við eigum að hafa þingræði sem snýst um pólitíska stefnu- mörkun. Við eigum ekki að hafa ráðherraræði. Eins og er þá er kerfið einfaldlega rangt stillt. Þingið eftirlætur öll sín völd til ráðherra í skjóli meirihluta þings. Sami meirihluti kemur í veg fyrir eðlilegt eftirlit með störfum framkvæmdarvaldsins til þess að verja sinn ráð- herra, en kemur á sama tíma í veg fyrir eftirlit þingsins með störfum embættismannakerf- isins. Ráðherra á hins vegar að vera fulltrúi þingsins innan faglegrar stjórnsýslu. Ráðherra mætir ekki í ráðuneytin til þess að „ráða“ öllu, þótt nafnið beri það með sér. Starf ráðherra er að fylgja stefnumörkun þingsins eftir og vera svo til svara opinberlega um það hvernig fagleg stjórnsýsla kemur þeirri stefnu í gagnið. Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvernig kerfið á að virka og hvernig það er ekki farið eftir því. Það er til dæmis augljóst að núverandi og verðandi ríkisstjórn er alveg sama um þingræðið, sérstaklega eftirlitið gagn- vart framkvæmdarvaldinu. Ástæðan fyrir því er augljós, það er til þess að verja „sinn“ ráð- herra. Ef ráðherra væri hins vegar fulltrúi þingsins gagnvart faglegri stjórnsýslu en ekki alltaf í vörn vegna eigin geðþótta, þá væri staðan önnur. Í staðinn verður faglega stjórnsýslan bara stjórnsýsla, en ekki fagleg. Því það þarf engin faglegheit til þess að fara eftir geðþóttaákvörðunum ráðherra. Afleiðingin er ógagnsæ fjármálaáætlun og fjárlög þar sem enginn veit í rauninni hvernig er verið að fara með almannafé. Vand- inn er flokkspólitíska ráðherraræðispólitíkin sem við bú- um við og enn og aftur lítur út fyrir að við þurfum að þola ráðherraræði í enn fleiri ráðuneytum, enn eitt kjör- tímabilið. Björn Leví Gunnarsson Pistill Embættismannakerfið sem ræður öllu Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is N eyðarástand kom upp í al- þjóðlegu geimstöðinni, ISS, í fyrradag, þegar viðvörun barst um að ský af braki og geimrusli á spor- braut um jörðu myndi fara hættu- lega nærri stöðinni. Neyddust geim- fararnir um borð til að búa sig undir að yfirgefa stöðina, en á endanum fór skýið fram hjá án þess að valda skaða. Nú eru fjórir Bandaríkja- menn, einn Þjóðverji og tveir Rúss- ar um borð í geimstöðinni. Bandaríkjamenn hófu þegar í stað rannsókn á atvikinu og beindust böndin fljótlega að mögulegri tilraun Rússa með eldflaugavopn sem bein- ast að gervihnöttum. Munu um 1.500 mismunandi smáhlutir sem hægt var að rekja frá jörðu niðri hafa myndast við sprenginguna. Varnarmálaráðuneyti Rússa viðurkenndi í gær að það hefði skot- ið niður gamlan sovéskan njósna- hnött við prófanir á eldflaugum sín- um. Hafnaði ráðuneytið því hins vegar að hætta hefði skapast við til- raunina, þar sem brakið sem mynd- ast hefði gæti ekki valdið skaða á geimstöðinni, geimfarinu eða öðrum aðgerðum í geimnum, einfaldlega vegna staðsetningar þess á spor- brautinni. Þá sagði rússneska geim- ferðastofnunin Roscosmos í sér- stakri yfirlýsingu vegna málsins að öryggi geimfaranna í geimstöðinni væri alltaf í fyrirrúmi og gerði að öðru leyti lítið úr atvikinu. Fordæmdu bæði Bandaríkja- menn og Frakkar tilraunina, þar sem brak gervihnattarins hefði get- að valdið stórskaða og jafnvel mann- tjóni á geimstöðinni. Bill Nelson, forstjóri bandarísku geimferðastofn- unarinnar NASA, sagði í fyrrakvöld að hann væri „bálreiður“ vegna til- raunarinnar. Sagði Nelson það nánast óhugs- andi í ljósi hinnar löngu og glæstu geimferðasögu Rússlands að landið gæti teflt í voða ekki aðeins banda- rískum og alþjóðlegum geimförum um borð í geimstöðinni, heldur einn- ig þeirra eigin geimförum, sem og þeim kínversku sem nú eru um borð í kínversku geimstöðinni. Óttast vígbúnaðarkapphlaup Tilraun Rússa markaði einungis fjórða skiptið þar sem eldflaug skot- ið frá jörðu náði að hæfa gervihnött á sporbraut um jörðu. Hefur til- raunin ýtt undir áhyggjur af að í hönd fari nýtt vígbúnaðarkapphlaup í geimnum, þrátt fyrir yfirlýsingar stórveldanna um að geimurinn eigi að vera vopnlaust svæði. Jens Stoltenberg, fram- kvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins, fordæmdi tilraunina og sagði hana hafa verið háskaleik gagnvart geimstöðvunum tveimur sem nú eru á sporbraut um jörðu. Þá sagði hann tilraunina sýna að Rúss- ar væru að þróa vopn sem gætu ráð- ist að mikilvægum innviðum sem treysta á gervitungl, eins og sam- skipti, leiðarstýringu og viðvör- unarkerfi gegn eldflaugaskotum. Hætta á keðjuverkun eykst Tilraunin og eftirmálar hennar hafa hins vegar einnig beint sjónum manna að öðrum möguleika sem geimeðlisfræðingurinn Don J. Kess- ler vakti fyrst máls á árið 1978. Kessler varaði þá við því að mögulegt væri að brak á sporbraut um jörðu yrði svo mikið, að það gæti leitt af sér keðjuverkun, þar sem brak úr gervihnetti, sem ferðast á 7 kílómetra hraða á sekúndu, rekst á aðra gervihnetti eða hluti í geimnum og splundrar þeim, sem aftur myndi stórauka líkurnar á því að aðrir hlut- ir á svonefndri „lág-jarðar spor- braut“, sem nær frá 200 til 2.000 km frá jörðu yrðu fyrir braki. Á því svæði eru til dæmis Hubble-sjónaukinn, báðar geim- stöðvar, sem og flestir þeir gervi- hnettir sem settir hafa verið á spor- braut um jörðu. Í kvikmyndinni Gravity frá 2013 voru áhrif „Kess- ler-heilkennisins“ svonefnda sýnd í mjög ýktri mynd, en þar varð keðju- verkunin til þess að breyta nær öll- um hlutum á þessu svæði í duftið eitt á örskömmum tíma. Þess má raunar geta að í myndinni hefst keðjuverk- unin óvart eftir að Rússar eyða gömlum njósnahnetti eftir tilraun með eldflaugar. En þó að myndin hafi líklega fært mjög í stílinn hversu hröð slík þróun yrði, gæti Kessler-heilkennið haft það í för með sér að illmögulegt yrði fyrir mannkynið að viðhalda gervihnöttum sínum í þessu nær- umhverfi jarðarinnar, og um leið hindrað mannaðar geimferðir. Það er að minnsta kosti um- hugsunarefni, að nú þegar eru rúm- lega 4.000 gervihnettir á sporbraut um jörðu, en að auki eru um 19.000 smáhlutir eða brak sem sjást á rat- sjám. Í ljósi þess að líklegt er að fjöldi bæði gervihnatta og geimbraks muni aukast gríðarlega á næstu ár- um hafa geimvísindamenn þegar leitt hugann að því hvaða lausna sé hægt að grípa til til þess að „hreinsa“ nærumhverfi okkar í geimnum. Ein þeirra sem þar hefur verið nefnd er svokallaður „geislakústur“, þar sem leysigeisla yrði beitt til þess að ýta brakinu til þannig að það hrapi til jarðar og brenni upp í and- rúmsloftinu. Enn er þó nokkuð í land áður en slík tækni kemst í gagnið. Brak í geimnum eyk- ur líkur á árekstrum Teikning/NASA Geimrusl Hver punktur á þessari teikningu frá 2019 táknar hlut á spor- braut um jörðu sem NASA er að fylgjast með, en 95% þeirra eru brak.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.