Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ NÝJASTA MARVEL STÓRMYNDIN ER KOMIN Í BÍÓ GEMMA CHAN RICHARD MADDEN KUMAIL NANJIANI LIA McHUGH BRIAN TYREE HENRY LAUREN RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það er aldrei of mikið af bók- menntahátíðum!“ segir rithöfund- urinn Ragnar Jónasson glaðbeittur þegar hann er spurður um glæpa- sagnahátíðina Iceland Noir 2021 sem hófst í gær og stendur fram á laugardagskvöld. Þau Yrsa Sigurð- ardóttir hafa frá upphafi, árið 2013, verið skipuleggjendur hátíðarinnar. Boðið er upp á fjölbreytilega bók- menntaviðburði, á daginn í Vinnu- stofu Kjarvals við Austurstræti og á kvöldin í Iðnó. Og gestalistinn kem- ur eflaust út spennuhrolli á unn- endum glæpa- sagna en meðal erlendra gesta eru þekktir höf- undar á borð við Ian Rankin, Ant- hony Horowitz, Ann Cleeves, Shari Lapena, Sara Blædel, Emelie Schepp og A.J. Finn. Auk stjórnendanna Ragnars og Yrsu koma meðal ann- ars fram íslensku rithöfundarnir Óskar Guðmundsson, Eva Björg Ægisdóttir, Sólveig Pálsdóttir, Stef- án Máni, Jónína Leósdóttir, Kamilla Einarsdóttir og Lilja Sigurðar- dóttir. Og fleiri koma við sögu, þar á meðal mun Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra á fimmtudagskvöldið ræða við Ian Rankin í Iðnó og á föstudag ræðir forsetafrúin Eliza Reid við Anthony Horowitz. „Þessi hátíð nú hefur verið í undirbúningi í þrjú ár. Hún átti að vera í fyrra en að skiljanlegum ástæðum var ekki hægt að halda hana þá,“ segir Ragnar. „Hátíðin hefur venjulega verið á tveggja ára fresti en þar sem við höfðum nú þrjú ár þá náðum við í ansi marga góða gesti sem hafa beð- ið eftir að koma. Loksins komast þau hingað í þessari viku, eftir allt vesenið undanfarið.“ – Gestalistinn er tilkomumikill og líka af innlendum silkihúfum sem taka þátt og ræða til að mynda við þá erlendu. „Já, en það býr líka mikil vinna að baki. Við Yrsa höfum unnið að þessu í sjálfboðavinnu en síðustu tvö árin höfum við haft gott fólk með okkur, höfundana Evu Björgu Ægisdóttur og Óskar Guðmundsson. Við höfum staðið í þessu til að búa til góða stemningu og ýta undir bókmennta- áhuga. Og við erum mjög ánægð með gestahópinn. Ég veit að til dæmis hefur lengi verið reynt að fá Rankin hingað á bókmenntahátíð og loksins stekkur hann á þetta.“ Persónuleg sambönd –Að smala svona gestahóp saman hlýtur að byggja á vissan hátt á per- sónulegum samböndum ykkar Yrsu, þar sem hljótið hafa hafa kynnst höfundunum á hátíðum erlendis. „Þessir þekktari gestir eru svo til eingöngu að mæta vegna slíkra kynna,“ svarar Ragnar. „Við þekkj- um þetta fólk persónulega og plöt- um þau til að mæta. Svo eru aðrir höfundar sem hafa ýmist komið áð- ur eða vita af hátíðinni og sýndu áhuga á að koma núna. Við reynum að bjóða sem flestum sem biðja um að koma. Og hið rómaða íslenska að- dráttarafl er gott tromp að hafa við að búa til svona hátíð. Það er aldrei of mikið af bókmenntahátíðum!“ – Og íslenska trompið virkar al- veg þótt heimurinn í sögum flestra höfundanna sé myrkur og blóðugur? „Já já, það virkar alltaf vel,“ svar- ar hann og hlær. „Svo reynum við að blanda inn í dagskrána eins mörgum íslenskum höfundum og við getum. Ekki bara glæpasagnahöfundum, alls kyns höfundum sem eru að gera áhugaverða hluti og taka til dæmis þátt í pallborðsumræðum.“ – Þið bjóðið upp á fjölbreytilega viðburði, samtöl við höfunda, pall- borðsumræður, jafnvel ljóðalestur. „Við viljum hafa fjölbreytilega viðburði og líka óvenjulega. Við er- um já með ljóðakvöld þar sem flutt verða alls kyns ljóð og textar, ekki bara af glæpatagi. Svo er bíókvöld þar sem A.J. Finn segir frá Konunni við gluggann og kvikmyndin verður sýnd. Ólafur Darri stýrir þeirri dag- skrá. Svo eru frekar hefðbundin at- riði, eins og viðtöl á sviði. Í einu þeirra ræðir forsætisráðherra við Ian Rankin – það er annars varla neitt hefðbundið við það … Þá erum við líka með óformleg samtöl þar sem hægt er að fara um víðan völl; einn morguninn ætla ég til dæmis að spjalla þannig við Rankin og Horowitz. Ekkert endi- lega um bækur. Við gætum alveg eins spjallað um leikhús eða fótbolta, um það sem höfundarnir hafa áhuga á og fær áheyrendur til að kynnast þeim betur.“ Hátíð fyrir alla Þegar spurt er hvort erfitt hafi verið að hefja hátíðina í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða, segir Ragnar þær vitaskuld hafa haft áhrif. „Þær sjokkeruðu okkur aðeins en við sáum að sem betur fer var hægt að vinna út frá þeim og til dæmis skipta áheyrendasölunum í hólf. Sem betur fer, því eftir allan undir- búninginn hefði verið mjög slæmt að þurfa að fresta þessu með nokkurra daga fyrirvara.“ Hann segir að minni viðburðir verði í Vinnustofu Kjarvals en stærri viðburðir á kvöldin í Iðnó. „Á daginn verða óformlegri viðburðir og meira spjall þar sem auðveldara verður að hitta höfundana og ræða við þá. Einn liður í dagskránni er síðan árleg afhending Iceland Noir- verðlaunanna sem afhent eru fyrir bestu þýddu glæpasöguna en ég sit í dómnefndinni með Katrínu Jakobs- dóttur og Kolbrúnu Bergþórs- dóttur.“ – Hugsið þið hátíðina fyrir ástríðufyllstu unnendur glæpasagna hér eða breiðari hóp? „Þetta er einfaldlega hátíð fyrir alla sem hafa áhuga á bókum. Við reynum smám saman að víkka efnis- tökin, horfa ekki bara á glæpasögur. Erlendu höfundarnir eru samt glæpasagnahöfundar. Annars finnst mér nú að flestar skáldsögur séu glæpasögur í einhverjum skilningi, höfundar eru alltaf að fjalla um glæpi. Aðalatriðið er að hátíðin snýst um bækur og að hafa gaman af að hlusta á höfunda segja frá og lesa upp,“ segir Ragnar. Flestar sögur glæpasögur Ragnar Jónasson Anthonys Horowitz Yrsa Sigurðardóttir Anne Cleeves Eliza Reid Eva Björg Ægisdóttir Katrín Jakobsdóttir Óskar Guðmundsson Ian Rankin - Iceland Noir-glæpasagnahátíðin er hafin í Reykjavík - Mjög vinsælir höfundar á borð við Rankin, Horowitz, Cleeves og Blædel meðal gesta Tónleikum með tenórnum Andrea Bocelli sem áttu að fara fram 27. nóvember í Kórnum hefur verið frestað fram til 21. maí á næsta ári. Segir í tilkynningu vegna þessa að hertar hömlur sem stjórnvöld kynntu á föstudaginn var og gilda til 8. desember geri það að verkum að ómögulegt sé að halda tón- leikana. „Það hryggir okkur mjög að þurfa að tilkynna þetta aðeins tveimur vikum fyrir tónleikana,“ segir í tilkynningu frá skipuleggj- endum og að allir miðar gildi áfram á tónleikana 21. maí og miðahafar þurfi því ekkert að gera og hafi nú þegar verið látnir vita. Henti nýja dagsetningin ekki geti miðahafar fengið fulla endurgreiðslu en þurfi að hafa samband við miðasölu inn- an tveggja vikna með tölvupósti á info@tix.is. Tónleikum frestað til 21. maí 2022 Raddfagur Tenórinn Andrea Bocelli. Galleríið Berg Contemporary tekur þátt í listahátíðinni og -messunni Loop í Barcelona og sýnir þar verk eftir Doddu Maggý, einn þeirra myndlist- armanna sem eru á mála hjá galleríinu. Loop-hátíðin hófst í gær og lýkur á morgun og fer fram í einni þekktustu byggingu borgarinnar, La Pedrera sem Ant- oni Gaudi teiknaði og gengur einn- ig undir nafninu Casa Milá. Verkið eftir Doddu nefnist „I’m not here“ og er frá árinu 2009. Sýningin sem haldin er í tengsl- um við messuna hefst 19. nóvember og lýkur hinn 21. Verk Doddu sýnt á Loop í Barcelona Dodda Maggý

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.