Morgunblaðið - 17.11.2021, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021
_ Knattspyrnumaðurinn Sindri Snær
Magnússon er genginn til liðs við
Keflavík. Sindri, sem er 29 ára gamall,
skrifaði undir tveggja ára samning við
Keflvíkinga. Hann hefur leikið með ÍA á
Akranesi frá árinu 2019 en hann þekk-
ir vel til í Keflavík eftir að hafa leikið
með liðinu tímabilin 2014 og 2015.
Alls á hann að baki 143 leiki í efstu
deild með ÍA, ÍBV, Keflavík og Breiða-
blik en hann er uppalinn hjá ÍR í Breið-
holti.
_ Isabella Ósk Sigurðardóttir, leik-
maður Breiðabliks í körfuknattleik
kvenna, er ekki enn byrjuð að æfa á ný
vegna meiðsla sem hún varð fyrir í
fyrsta leik tímabilsins gegn Fjölni í úr-
valsdeild kvenna, Subway-deildinni.
Isabella Ósk sneri sig á ökkla í leiknum
og leiddi myndataka síðar í ljós að það
hafði flísast úr beini í ökklanum er hún
sneri sig. Fer hún í nánari skoðun í dag
og kemur þá í ljós hvenær hún muni
geta hafið æfingar að nýju. Breiðablik
er með 2 stig í sjöunda og næstneðsta
sæti úrvalsdeildarinnar eftir fyrstu sex
leiki sína.
_ Óttar Bjarni Guðmundsson er
genginn til liðs við uppeldisfélag sitt
Leikni úr Reykjavík. Óttar Bjarni, sem
er 31 árs gamall, kemur til félagsins
frá ÍA þar sem hann hefur leikið frá
árinu 2019. Alls á hann að baki 92 leiki
í efstu deild með ÍA, Stjörnunni og
Leikni. Leiknismenn, sem voru nýliðar
í efstu deild á síðustu leiktíð, höfnuðu
í áttunda sæti deildarinnar með 22
stig.
_ Hin bandaríska Micaela Kelly er
gengin til liðs við kvennalið Breiða-
bliks í körfuknattleik. Kelly er ætlað að
fylla skarð Chelsey Shumpert sem var
látin fara frá liðinu á dögunum. Kelly
er væntanleg til landsins á morgun og
verður hún orðin lögleg með liðinu
þegar Breiðablik tekur á móti Fjölni á
sunnudaginn kemur í úrvalsdeildinni,
Subway-deildinni, í Smáranum.
_ Samband enskra neðrideildaliða í
knattspyrnu, EFL, hefur tilkynnt að B-
deildarliðið Derby County muni missa
níu stig til viðbótar við þau tólf sem
voru dregin af liðinu í haust eftir að
það fór í greiðslustöðvun. Derby getur
svo misst þrjú stig til viðbótar uppfylli
það ekki viss skilyrði sem tengjast
samkomulagi milli sambandsins og fé-
lagsins. Báðar ákvarðanir eru endan-
legar og getur Derby því ekki áfrýjað
stigamissinum. Því blasir fall niður í C-
deildina við Derby, sem er eftir úr-
skurð gærdagsins með -3 stig á botni
B-deildarinnar, 18 stigum frá öruggu
sæti.
_ James Milner, Jordan Henderson
og Sadio Mané tóku allir þátt í æfingu
enska knattspyrnufélagsins Liverpool
í gær. Mané tók virkan þátt í æfing-
unni en þeir Henderson og Milner
æfðu með sjúkraþjálfara liðsins.
Liverpool tekur á móti Arsenal í
stórleik ensku úrvals-
deildarinnar á laug-
ardaginn kemur en
margir leikmenn
Liverpool eru að
glíma við
meiðsli þessa
dagana og
ber hæst
þá Andy
Robert-
son, Joe Gomez,
Naby Keita og
Curtis Jones.
Eitt
ogannað
Birgir Már Birgisson skoraði sjö
mörk fyrir FH þegar liðið vann
öruggan 33:26-sigur gegn Stjörn-
unni í úrvalsdeild karla í hand-
knattleik, Olísdeildinni, í TM-
höllinni í Garðabæ í áttundu um-
ferð deildarinnar í gær. FH-ingar
voru sterkari aðilinn allan tímann
og leiddu með fjórum mörkum í
hálfleik, 15:11. FH jafnar Val að
stigum í öðru sæti deildarinnar en
bæði lið eru með 11 stig en Valur á
leik til góða á FH. Stjarnan er hins
vegar í fimmta sætinu með 10 stig
líkt og ÍBV og Afturelding.
Hafnfirðingar í
þriðja sætið
Morgunblaðið/Eggert
Mark Birgir Már Birgisson var ill-
viðráðanlegur í Garðabænum í gær.
Ásta Björt Júlíusdóttir fór á kostum
fyrir Hauka þegar liðið vann 30:27-
sigur gegn HK í úrvalsdeild kvenna
í handknattleik, Olísdeildinni, í
Kórnum í Kópavogi í áttundu um-
ferð deildarinnar í gær. Jafnræði
var með liðunum til að byrja með en
Haukar sigu fram úr um miðjan
fyrri hálfleikinn og leiddu 17:11 í
hálfleik. Haukar eru með 9 stig í
fjórða sæti deildarinnar, tveimur
stigum minna en Íslandsmeistarar
KA/Þórs, en HK er í fimmta sætinu
með 7 stig, þremur stigum meira en
Stjarnan.
Morgunblaðið/Eggert
Skot Birta Lind Jóhannsdóttitr
skoraði fimm mörk í Kórnum.
Skoraði tíu
mörk í Kórnum
U21
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Íslenska U21-árs landsliðið í knatt-
spyrnu karla mátti þola tap með
minnsta mun, 0:1, gegn Grikklandi
þegar liðin mættust í Trípóli þar í landi
í D-riðli undankeppni EM 2023 í gær.
Í lokuðum fyrri hálfleik, þar sem
sterkur varnarleikur var í algleymingi
hjá báðum liðum, komust heimamenn
yfir á 36. mínútu með marki úr víta-
spyrnu. Hún var dæmd eftir að Finnur
Tómas Pálmason braut á Ioannis Bo-
tos innan vítateigs og Ioannis Michai-
lidis skoraði af öryggi úr spyrnunni.
Strax í upphafi síðari hálfleiks virt-
ist hagur íslenska liðsins ætla að
vænkast þar sem Georgios Kanello-
poulos fékk sitt annað gula spjald og
þar með rautt. Ísland lék því einum
fleiri í hálfleiknum en sem fyrr gekk
erfiðlega að brjóta þéttan varnarmúr
Grikkja á bak aftur. Eftir góða sókn
Íslands á 69. mínútu var hins vegar
brotið á Hákoni Arnari Haraldssyni
innan vítateigs og vítaspyrna dæmd.
Brynjólfur Willumsson tók hana en
föst ristarspyrna hans hafnaði í utan-
verðri stönginni. Í uppbótartíma fór
svo dauðafæri Kristals Mána Ingason-
ar forgörðum og því ljóst að heilladís-
irnar ferðuðust ekki með til Grikk-
lands.
Eftir tapið fara vonir Íslands um
að komast á EM annað skiptið í röð
hverfandi. Þrátt fyrir prýðis frammi-
stöðu liðsins í gær virðast Grikkir að-
eins lengra á veg komnir í sínum leik.
Þó saknar íslenska liðið þeirra
mörgu leikmanna, samtals níu, sem
eru enn gjaldgengir í aldurs-
flokknum en tóku þess í stað þátt í
síðasta A-landsliðsverkefni. Til
samanburðar eru aðeins tveir leik-
menn í aldursflokknum í A-landsliði
Grikkja. Ísland er nú sjö stigum á
eftir Grikklandi í D-riðlinum og því
ærið verkefni sem bíður ætli íslenska
liðið sér að ná öðru sætinu af því
gríska og tryggja þannig umspils-
sæti.
Erfið staða íslenska liðs-
ins eftir tap í Grikklandi
AFP
Fyrirliði Brynjólfur Andersen Willumsson, til vinstri, brenndi af vítaspyrnu fyrir íslenska liðið í stöðunni 0:0 í síðari
hálfleik en íslenska liðið er í fjórða sæti D-riðils með 7 stig eftir fimm leiki, sjö stigum minna en Grikkland.
- Hverfandi vonir um að taka þátt í lokakeppni EM 2023 í Georgíu og Rúmeníu
UNDANKEPPNI HM
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Holland tryggði sér sæti í loka-
keppni heimsmeistaramóts karla í
knattspyrnu sem fram fer í Katar á
næsta ári eftir 2:0-sigur gegn Noregi
í G-riðli undankeppni HM í Rotter-
dam í gær.
Það voru þeir Steven Bergwin og
Memphis Depay sem skoruðu mörk
hollenska liðsins í leiknum en þau
komu bæði í síðari hálfleik.
Hollendingar enduðu í efsta sæti
riðilsins með 23 stig en Tyrkir end-
uðu í öðru sætinu og fara í umspil
um laust sæti á HM eftir 2:1-sigur
gegn Svartfjallalandi í Podgorica.
Norðmenn sitja hins vegar eftir með
sárt ennið og þurfa að gera sér
þriðja sæti riðilsins að góðu.
Þá tryggði Úkraína sér annað
sæti D-riðils með 2:0-sigri gegn
Bosníu í Zenica þar sem þeir Oleks-
andr Zinchenko og Artem Dovbyk
skoruðu mörk Úkraínu.
Frakkar, sem unnu 2:0-sigur gegn
Finnlandi í Helsinki, höfðu fyrir leik
gærdagsins tryggt sér efsta sæti D-
riðils.
Í E-riðli endaði Wales í öðru sæti
riðilsins og er komið áfram í um-
spilið en liðið gerði 1:1-jafntefli gegn
Belgíu í Cardiff þar sem Kieffer
Moore skoraði mark Wales.
Tékkland, sem vann 2:0-sigur
gegn Eistlandi í Vín, endar í þriðja
sæti E-riðils en fer þrátt fyrir það
áfram í umspilið í gegnum Þjóða-
deild UEFA.
Þrettán sæti á HM
Evrópa fær þrettán sæti af 32
sætum á heimsmeistaramótinu í
Katar sem fram fer dagana 21. nóv-
ember til 18. desember.
Serbía, Spánn, Sviss, Frakkland,
Belgía, Danmörk, Holland, Króatía,
England og Þýskaland hafa öll
tryggt sér farseðilinn til Katar með
sigri í sínum riðlum.
Það verða því Portúgal, Svíþjóð,
Ítalía, Úkraína, Wales, Skotland,
Tyrkland, Rússland, Pólland og
Norður-Makedónía sem verða í pott-
inum þegar dregið verður í umspilið
fyrir HM í höfuðstöðvum FIFA í
Zürich í Sviss hinn 26. nóvember
ásamt Tékkland og Austurríki sem
fara í umspilið eftir góðan árangur í
Þjóðadeildinni.
Liðunum tólf í umspilinu verður
skipt í þrjá flokka sem innihalda
fjögur lið hvert. Liðin mætast í und-
anúrslitum umspilsins og svo úrslita-
leik þar sem sigurvegarinn tryggir
sér sæti á HM en alls fara þrjár
Evrópuþjóðir áfram í gegnum um-
spilið.
Undanúrslit umspilsins fara fram
fimmtudaginn 24. mars 2022 og úr-
slitin þriðjudaginn 29. mars 2022.
Tólf þjóðir berjast um þrjú sæti
AFP
Gleði Hollendingar fögnuðu HM-sætinu vel og innilega í Rotterdam í gær.
- Holland tryggði sér sæti á HM en Norðmenn sitja eftir með sárt ennið