Morgunblaðið - 17.11.2021, Side 8

Morgunblaðið - 17.11.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Ekki væri fyllilega nákvæmt að halda því fram að enginn teldi að fyrirhuguð borgarlína yrði til þess að notkun almenningsvagna myndi aukast. Í könnun sem Strætó lét gera kemur fram að 1,3% svar- enda telja að með tilkomu borgar- línu myndu þeir ferðast oftar með strætó. Þess vegna verður að fara varlega í að fullyrða að enginn hafi trú á borgarlínuhugmyndinni, en það má vel halda því fram að nánast enginn hafi trú á henni. - - - Fyrir verkefni sem hefur verið lengi í undirbúningi og á sam- kvæmt áætlunum að kosta tugi milljarða hið minnsta og líklega vel á annað hundrað milljarða, þá má það teljast fremur rýr afrakstur að 1,3% telji verkefnið til bóta fyrir sig. - - - Hin 98,7% telja að allir þessir milljarðar muni ekkert gagnast þeim. (Ætli orðið sóun eigi við í þessu tilfelli?) - - - Mun fleiri, eða 30%, telja að fjölgun ferða yrði til að þeir nýttu sér oftar þjónustu almenn- ingsvagna. Þann vanda, og annan sem að almenningsvögnum snýr, má leysa með mun lægri fjárhæðum en ætlaðar eru í borgarlínuna, enda þarf ekki annað en bæta við vögn- um. - - - Nú þegar fyrrnefnd könnun liggur fyrir hlýtur Strætó að leggja til við borgaryfirvöld og aðra sem að borgarlínuverkefninu koma að það verði stöðvað og leitað annarra, ódýrari og markvissari leiða til að bæta almennings- samgöngur. Ekki engin trú á borgarlínu STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Litlar fréttir hafa borist af loðnuveiði frá því að fyrstu íslensku skipin byrjuðu loðnuleit um síð- ustu helgi. Á Halanum hefur þó orðið vart við loðnutorfur og fréttir frá togaraskipstjórum herma að fiskur sem veiddist væri fullur af loðnu. Heimasíða Síldarvinnslunnar í Neskaupstað ræddi í gærmorgun við Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki NK, en skipið var þá djúpt vest- ur á Hala. Börkur hefur leitað loðnu ásamt Bjarna Ólafssyni AK síðustu daga. „Við erum búnir að leita á Kolbeinseyjarhryggnum, norðan við Strandagrunn og Þverálshorn og erum núna djúpt vestur á Halanum. Það er fyrst núna sem við sjáum loðnutorfur en þá bregður svo við að það er leiðindaveður. Hérna er bölvuð bræla, 25-28 metr- ar og sjórinn mínus ein gráða. Það á hins vegar að lægja í kvöld og þá verður einhver friður í sólar- hring eða svo samkvæmt spá. Togarafréttir greina frá því að vart verði við meira líf á svæðinu hérna og fiskur sem fæst er fullur af loðnu,“ sagði Hjörv- ar í gær. Skipum mun eflaust fjölga á loðnumiðunum næstu daga, en þau hafa flest verið að veiðum á ís- lenskri sumargotssíld vestur af landinu undanfar- ið. Einhver þeirra fara á kolmunna áður en þau halda til loðnuveiða. aij@mbl.is Vart við loðnutorfur á Halanum - Fiskurinn fullur af loðnu - Bölvuð bræla Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Nýtt skip Börkur NK á síldveiðum í haust. Einar Pálmar Elíasson, byggingameistari og iðnrekandi á Selfossi, lést sl. mánudag, 86 ára að aldri. Einar fæddist í Vestmannaeyjum 20. júlí 1935, sonur hjónanna Guðfinnu Einarsdóttur og Þórðar Elíasar Sigfússonar verkalýðsleiðtoga. Einar vann ýmis störf í Vestmanna- eyjum á yngri árum og um tvítugsaldurinn nokkur sumur við end- urbyggingu Héraðs- skólans að Laugarvatni. Hann settist að á Selfossi árið 1959 og hóf þá nám í húsasmíði hjá Kaupfélagi Árnesinga. Einar varð meðal helstu frum- kvöðla í atvinnulífi og flugmálum á Selfossi. Hann hóf eigin bygginga- starfsemi árið 1964 og byggði tugi íbúðarhúsa á Selfossi og þar í kring á næstu árum. Stofnaði árið 1968 fyrir- tækið Steypuiðjuna og var rekstur þess á sínum tíma nokkuð umfangs- mikill. Áratug síðar stofnaði Einar fyrirtækið Set. Í dag stýra synir hans rekstri Sets sem er meðal helstu og stærri iðnfyrirtækja landsins, fram- leiðandi á foreinangruðum fjar- varmarörum og slíkum vörum. Árið 1973 hóf Einar flugnám hjá Flugskóla Helga Jónssonar í Reykjavík og varð frumkvöðull að stofnun Flugklúbbs Selfoss og gerð Selfossflugvallar árið 1974. Einar hélt einkaflugmannsrétt- indum sínum fram á síðari ár og fór á einka- flugvél sinni vítt og breitt um landið. Þá var Einar mikill áhuga- maður um byggingar og skipulagsmál og setti um tíma mark sitt á þá umræðu á Selfossi. Einnig var hann virkur félagi í Rótarýklúbbi Selfoss. Einar vann á síðustu tveimur ára- tugum að því að koma upp safni muna sem meðal annars tengjast flugsögunni, ekki síst starfsemi her- flugvallarins sem Bretar starfræktu í Kaldaðarnesi í Flóa í seinni heims- styrjöldinni. Fyrrverandi eiginkona Einars er Sigríður Bergsteinsdóttir frá Laug- arvatni. Þau Einar og Sigríður eign- uðust fjögur börn, þau Bergstein, Guðfinnu Elínu sem er látin, Örn og Sigrúnu. Afkomendurnir eru þrjátíu alls. Andlát Einar Elíasson, iðnrekandi á Selfossi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.