Morgunblaðið - 17.11.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021
Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík
Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is
DAGMÁL
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Verkefnin í Reykjavík blasa við, seg-
ir Eyþór Arnalds í viðtali við Dag-
mál í dag, þar eru húsnæðismál,
samgöngumál og skólamál efst á
blaði sem fyrr, þar sem núverandi
meirihluti hafi gert illt verra á kjör-
tímabilinu, sem lýkur næsta vor.
Eyþór er gestur Dagmála Morg-
unblaðsins, netstreymi, sem er opið
öllum áskrifendum blaðsins.
Húsnæðismálin brýn
Þétting byggðar í Reykjavík er
nauðsynleg, segir Eyþór, en hún ein
og sér dugar ekki til og verður að
eiga sér stað með skynsamlegum og
hagkvæmum hætti. Hann minnir á
að þéttingarreitir séu dýrir, þar
þurfi að kaupa byggingar til þess að
rífa þær og uppbygging einatt örð-
ugri og dýrari. Meðan ekki sé einnig
boðið upp á hagkvæmara húsnæði í
nýjum hverfum, eins og t.d. Keldna-
landi, sé hætt við því að fólk yfirgefi
borgina og leiti til nágrannasveitar-
félaganna, eins og gerst hafi á
undanförnum árum.
Samgöngur í ólestri
Hvað samgöngurnar áhræri dugi
ekki að bíða eftir borgarlínunni og
láta annað sitja á hakanum á meðan.
Þar þurfi einnig að beita skyn-
samlegri nálgun en gert hafi verið,
en þar geti tækni eins og ljósastýr-
ing bætt ástandið mikið. „Svo er það
Sundabraut, sem ríkið er tilbúið í og
er klárlega sjálfbær framkvæmd.
Hún er ekki inni á aðalskipulagi,
sem verið var að samþykkja út úr
borgarstjórn.“ Eyþór minnir á að
bæta þurfi almenningssamgöngur
verulega, burtséð frá borgarlínunni,
um það hafi verið rætt, en ekki efnt
af hálfu meirihlutans í borginni.
Liggur á að breyta
Eyþór segir að þessi verkefni
verði ekki auðveld úrlausnar, en þau
séu afar brýn. Nýs meirihluta bíði að
taka stórar ákvarðanir á fyrstu 100
dögunum og nota kjörtímabilið svo
til þess að hrinda þeim í fram-
kvæmd. Borgarbúar þekki vanda-
málin af eigin raun hvað varðar sam-
göngur og húsnæðismál, en Eyþór
bendir á að að það hafi myndast mun
meiri og breiðari samstaða en áður.
„Okkar málflutningur á miklu
breiðari hljómgrunn. Það sem við
tölum um hefur verið staðfest af
Seðlabankanum, verkalýðshreyf-
ingin hefur bent á þetta með hús-
næðismálin, Samtök iðnaðarins á
húsnæðismál og samgöngumál.
Þannig að það er miklu meiri sam-
staða um það. Breytinga er þörf í
Reykjavík.“
Raunhæfar væntingar
Eyþór kveðst hafa raunhæfar
væntingar um árangur í kosningum.
Hann telur að Sjálfstæðisflokkurinn
verði aftur stærsti flokkur í Reykja-
vík, en hann sé tæplega að fara að ná
meirihluta í borginni einn síns liðs.
Hann hefur hins vegar vonir um að
borgaraleg og hófsöm öfl sæki frek-
ar í sig veðrið og nefnir Framsókn
sérstaklega til sögunnar.
„Það eru gríðarlega margir óá-
kveðnir og flokkshollustan er minni
en áður. Þannig að ég held að næsta
vor muni fólk á endanum ekki horfa
til einhverra kennisetninga. Það
mun spyrja hvort umferðin sé betri
en hún var fyrir fjórum árum, hvort
auðveldara sé fyrir ungt fólk að
eignast íbúð en fyrir fjórum árum,
er leikskólapláss fyrir öll börn eins
og lofað var og svo framvegis,“ segir
Eyþór.
„Ég held að þegar menn horfa á
þessi stóru mál, þá sjái þeir að nú-
verandi stefna hefur siglt í strand og
að við þurfum bara að komast af stað
aftur og inn í framtíðina.“
Breytinga er þörf í Reykjavík
- Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur, í viðtali í Dagmálum í dag
- Húsnæðismál, samgöngur og skólamál stóru málin - Stefna Samfylkingarinnar hefur siglt í strand
Morgunblaðið/Hallur
Reykjavík Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, ræðir næstu kosningar í Dagmálum í dag.