Morgunblaðið - 17.11.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Jóladagatölin eru komin!
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Pólskir landamæraverðir beittu tára-
gasi og vatnsfallbyssum á hóp flótta-
manna sem reyndu að ryðja sér braut
yfir landamærin milli Póllands og
Hvíta-Rússlands í gærmorgun.
Áætlað er að um 4.000 flóttamenn
séu nú í búðum á landamærunum við
illar aðstæður, en Evrópusambandið
og pólsk stjórnvöld saka Alexander
Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rúss-
lands, um að hafa flutt þá þangað frá
Mið-Austurlöndum, mögulega með
aðstoð Rússa, gagngert til þess að
valda misklíð innan Evrópusam-
bandsins.
Bæði Lúkasjenkó og rússnesk
stjórnvöld hafa vísað þeirri gagnrýni
á bug, en þau sökuðu þess í stað Evr-
ópusambandið og Pólverja um að
hafa ýft upp ástandið með harkaleg-
um viðbrögðum landamæravarðanna
gegn flóttafólkinu í gær.
Varnarmálaráðuneyti Póllands
sagði í yfirlýsingu á Twitter-síðu sinni
að flóttamennirnir hefðu ráðist að
landamæravörðum og kastað grjóti
að þeim, á sama tíma og þeir reyndu
að rífa niður girðingar og koma sér
yfir landamærin. Sögðu pólsk stjórn-
völd að áhlaup flóttamannanna hefði
verið að undirlagi Hvít-Rússa.
Þrír Pólverjar, þar af einn lög-
reglumaður, einn landamæravörður
og einn hermaður særðust í skærun-
um. Var lögreglumaðurinn sagður al-
varlega særður, og var óttast að hann
hefði hlotið höfuðkúpubrot. 15.000
pólskir hermenn eru nú við landa-
mærin auk nokkur hundruð landa-
mæravarða og lögreglumanna.
„Algjörlega óásættanlegt“
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands, fordæmdi í gær aðfarir
Pólverja gegn flóttafólkinu og sagði
að það væri algjörlega óásættanleg
hegðun að skjóta táragasi að flótta-
fólkinu í áttina að Hvíta-Rússlandi.
Þá sakaði Anatoly Glaz, talsmaður
hvítrússneska utanríkisráðuneytis-
ins, Pólverja um að hafa viljandi hellt
olíu á eldinn með aðgerðum sínum.
„Markmið Pólverja er algjörlega
skiljanlegt,“ sagði Glaz, „þeir þurfa að
æsa upp ástandið enn meira til að
hindra að hægt sé að leysa úr stöð-
unni.“ Sagði Glaz jafnframt að hegð-
un Pólverja hefði verið „bein ögrun“.
Alexander Lúkasjenkó, forseti
Hvíta-Rússlands, sagði hins vegar í
gær að hann vildi forðast frekari
árekstra á landamærunum. „Aðalat-
riðið er að verja land okkar og þjóð og
leyfa ekki skærur,“ sagði Lúkasjenkó
á ríkisstjórnarfundi.
Hann ræddi ástandið símleiðis á
mánudaginn við Angelu Merkel
Þýskalandskanslara. Var það fyrsta
símtalið sem Lúkasjenkó á við leið-
toga vestræns ríkis eftir að hann lét
berja niður mótmæli gegn stjórn
sinni í fyrra.
Sagði Lúkasjenkó að hann og Mer-
kel hefðu verið sammála um þörfina á
því að draga úr spennunni á landa-
mærunum, en ósammála um hvernig
flóttafólkið hefði komist til Hvíta-
Rússlands.
Flytja 200 manns til Bagdad
Sendiráð Íraks í Moskvu staðfesti í
gær að Írakar myndu sækja 200
flóttamenn og fljúga með þá heim til
Íraks á morgun, fimmtudag.
Þá hafa flugfélög í Tyrklandi, Sýr-
landi og Hvíta-Rússlandi bannað eða
heft ferðalög fólks frá Sýrlandi, Írak,
Jemen og Afganistan til Hvíta-Rúss-
lands, en með því er vonast til þess að
hægt verði að hefta flóttamanna-
strauminn að landamærunum.
AFP
Skærur Lögreglumaður sést hér beina piparúða að flóttamanni í gær.
Beittu táragasi á flóttamenn
- Pólverjar segja áhlaupið hafa verið að undirlagi Hvít-Rússa - Lögreglumaður
sagður illa særður eftir grjótkast - Lavrov fordæmir aðgerðir Pólverja harðlega
Joe Biden Bandaríkjaforseti og Xi
Jinping, forseti Kína, vöruðu hvor
annan við að skipta sér um of af mál-
efnum Taívan á fjarleiðtogafundi sín-
um í fyrrinótt.
Fundurinn stóð yfir í þrjár og hálfa
klukkustund, en honum var ætlað að
færa samskipti Bandaríkjanna og
Kína í betri farveg og minnka líkur á
átökum milli ríkjanna. Snert var á
ýmsum deiluefnum ríkjanna, en mál-
efni Taívan, sem Kínverjar segja að
tilheyri sér, voru ofarlega á baugi.
Kínverskir ríkisfjölmiðlar sögðu
eftir fundinn að Xi hefði varað Biden
við því að ýta undir sjálfstæðisvonir
eyjunnar, og sagt það vera „leik að
eldi“, en Xi hefur heitið því að sam-
eina eyjuna aftur við meginland Kína.
Í frásögn Hvíta hússins af fund-
inum sagði hins vegar að Biden hefði
á móti varað Xi við einhliða aðgerðum
sem myndu breyta núverandi stöðu
mála eða grafa undan friði og stöðug-
leika við Taívan-sund. Bandaríkja-
menn viðurkenna ekki fullveldi eyj-
unnar, en segjast standa vörð um rétt
hennar til sjálfsvarnar.
Biden og Xi lögðu báðir áherslu á
að ríkin tvö yrðu að vinna saman til að
ná tökum á ýmsum vandamálum, þar
á meðal heimsfaraldrinum og lofts-
lagsmálum.
Tókust
á um
Taívan
- Xi varar Biden við
að „leika sér að eldi“
AFP
Fjarfundur Biden og Xi ræddu sam-
an á fjarfundi í fyrrakvöld.
Að minnsta kosti þrír létust og
rúmlega þrjátíu til viðbótar særð-
ust í gær eftir tvær sjálfsvígsárásir
í Kampala, höfuðborg Úganda.
Sagði lögreglan að uppreisnarhóp-
urinn ADF, eða „bandalag lýðræð-
islegra afla“, bæri ábyrgðina.
Hópurinn hefur haft aðsetur í
Austur-Kongó og ráðist þaðan
nokkrum sinnum á Úganda, en
bandarísk stjórnvöld segja ADF
hafa tengsl við hryðjuverka-
samtökin Ríki íslams.
Tveir af sjálfsvígssprengjumönn-
unum voru dulbúnir sem leigubíl-
stjórar á mótorhjólum, en þeir eru
algeng sjón í Kampala. Sprengdu
þeir sig í loft upp við innganginn að
þinghúsi landsins og myrtu um leið
gangandi vegfaranda. Sá þriðji
réðst að aðallögreglustöð borg-
arinnar og féllu tveir í sprenging-
unni þar.
Fjórði árásarmaðurinn var stöðv-
aður, en óttast er að mannfallstölur
muni hækka á næstu dögum.
ÚGANDA
AFP
Úganda Sprengingin við þinghúsið í
Kampala kveikti í nálægum bílum.
Þrír fallnir eftir
sjálfsvígsárásir