Morgunblaðið - 17.11.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 17.11.2021, Qupperneq 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021 STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 20% afsláttur af þvotti og straujun á rúmfötum Tilboðið gildir 8.-20. nóvember „OG HVERSU LENGI HEFUR ÞÚ VERIÐ AÐ KLJÁST VIÐ ÞESSA MINNIMÁTTARKENND?“ „ÞETTA ER ÞAÐ SEM NÝJUSTU TÖLUR HERMA: RÓMVERJAR 2168 OG KARÞAGÓMENN 1804.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það þegar knús er betra en verkjalyf. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann FOR!KLANK! DJÖ! GLOMPA! HALTU ÞIG FRÁ KATTASANDINUM MÍNUM! SKYTTURNAR SEGJA AÐ ÞAÐ HJÁLPI ÞEIM EKKI AÐÆFA SIG BARA Á SKOTMARKI SEM STENDUR KYRRT! ÉG SKIL. HALTU Á ÞESSU OG DANSAÐU SVOLÍTIÐ! Í síðustu viku sendi Sigmundur Benediktsson þennan póst til Vísnahorns: „Alveg blöskrar mér hvernig þjóðin hagar sér í Covid- fárinu, hópast á knæpur eins og enginn sé morgundagurinn, þótt pestin sé í veldisvexti. Skynsemi virðist vannýtt auðlind“: Glöð þó treinið fagnaðsfull furðu greinum alið. Mun það reynast glópagull gæfu meinum falið. Vegferð spillist, glatast grið, grotnar snilli skýið, enda hyllið alfarið ævifylliríið. Greind ei nýtir gæfusýn, greitt þó bíti sukkið. Ævin þrýtur eins og vín út í flýti drukkið! Hallmundur Kristinsson yrkir á Boðnarmiði: Augljóst má telja að aldrei ég þyrði að yrkja kvæði um nekt, vegna þess að ég óttast það yrði eitthvað kynferðislegt. Magnús Halldórsson yrkir: Það sagði Rögnvaldur roskinn, í raun hefði fyrst komið þroskinn, kona hans fríkkað og kynlífið víkkað. þegar kotroskin kyssti hún froskinn. Jón Gissurarson skrifaði á sunnudag: „Nú er hér hláka (hita- stigið 5 gráður), vindur blæs af suð- vestri (8 m sek.). Stormurinn fór hæst í 23 m sek. í þessari hrinu. Loftvogin hefur heldur stigið síðan í morgun, hún stóð kl. 7.30 í 978,1 hPa, en var núna kl. 12 í 983,9 hPa. Samkvæmt veðurspá eru umhleyp- ingar fram undan. Og vetrartíðin kemur.“ Vetrartíð að borði ber brestur í klakaþili. Loftvogin þó lyftir sér Lítið eitt í bili. Halldór Guðlaugsson svarar: Loftvogin stundum stígur stormana lægir þá eða hún aftur sígur illt er um slíkt að spá. Guðmundur Hagalín bætir við: Þegar frostið fellur á fer þá um mig hrollur. Fölleit hélan, fjöllin grá, frýs hver drullupollur Höskuldur Búi Jónsson kvað: Himnafeður hlaða í harða kalda bakka, ákaft senda gegnum gný, gráa éljaklakka. Halldór Blöndal (halldorblondal@simnet.is) Vísnahorn Enn af pestinni og vannýtt auðlind Fanný Margrét, f. 6.6. 1983, sjúkra- liði. Maki er Eiríkur Gísli Johans- son, f. 20.6. 1983, matreiðslumeist- ari, giftust 26.6. 2010 og búsett á Ísafirði. Dætur þeirra eru Guðrún María, f. 21.8. 2012, og Margrét Obba, f. 27.11. 2016; 2) Sindri Gunnar, f. 2.4. 1987, bílasmiður og bílamálari, en hann á og rekur Bíla- smiðju SGB ehf. á Ísafirði. Sam- býliskona er Linda Ólafsdóttir, f. 5.1. 1993. Börn hans eru Rakel Ósk, f. 16.1. 2014, og Ágúst Freyr, f. 23.10. 2017. Barnsmóðir er Þórunn Ingibjörg Ólafsdóttir. Að auki gengur hann í föðurstað dóttur Þórunnar, Sigurbjörgu Ólöfu, f. 26.7. 2012; 3) Aldís Þórunn, f. 23.2. 1993, sjúkraliði, ferðamálafræð- ingur, viðburðastýra og sauðfjár- bóndi á Stóru-Reykjum í Hraun- gerðishreppi. Sambýlismaður er Geir Gíslason, f. 18.10. 1988, bóndi og húsasmíðameistari. Sonur þeirra er Hermann Gísli, f. 17.2. 2021; 4) Hólmfríður María, f. 26.10. 1995, ritstjóri, bókmenntafræðingur og pistlahöfundur. Sambýlismaður er Stefán Ingvar Vigfússon, f. 20.5. 1993, pistlahöfundur, grínisti og meðlimur uppistandshópsins VHS. Systkini Helgu, samfeðra, eru: Margrét, f. 1.2. 1952, skólaliði í Hveragerði; Harpa, f. 1.12. 1967, lögfræðingur í Reykjavík; Gígja, f. 5.12. 1968, matráður í Svíþjóð; Birkir, f. 20.6. 1971, húsasmiður í Mosfellsbæ. Foreldrar Helgu voru Guðný Margrét Gunnarsdóttir, f. 13.4. 1927, d. 15.10. 2016, bóndi í Bakk- árholti í Ölfusi, og Kristján Hólm Jónsson, f. 18.11. 1922, d. 22.7. 2016, sérleyfishafi í Hveragerði. Helga Guðný Kristjánsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Hraunshjáleigu Eyjólfur Eyjólfsson bóndi í Hraunshjáleigu í Ölfusi Helga Eyjólfsdóttir húsfreyja í Borgarkoti og Bakkárholti Gunnar Þorleifsson bóndi í Borgarkoti á Skeiðum, síðar í Bakkárholti Guðný Margrét Gunnarsdóttir bóndi í Bakkárholti í Ölfusi Margrét Sigurðardóttir húsfreyja á Bæ í Lóni Þorleifur Sigurðsson bóndi á Bæ í Lóni Hólmfríður Benjamínsdóttir húsfreyja á Saurhóli Kristján Benjamínsson bóndi á Saurhóli í Saurbæ, Dal. Margrét Kristjánsdóttir húsfreyja á Yxnalæk, áður í Arakoti og Brúnavallakoti Jón Helgason bóndi á Yxnalæk í Ölfusi, áður í Arakoti og Brúnavallakoti á Skeiðum Sólveig Magnúsdóttir húsfreyja í Stóru-Sandvík Helgi Helgason bóndi í Stóru-Sandvík í Flóa Ætt Helgu Guðnýjar Kristjánsdóttur Kristján Hólm Jónsson sérleyfishafi í Hveragerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.