Morgunblaðið - 17.11.2021, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 2021
FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta verk fæddist eiginlega alveg
óvart,“ segir Lovísa Ósk Gunnars-
dóttir um dansverk sitt When the
Bleeding Stops sem hún frumsýnir á
Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld
á RDF. Aðeins verða sýndar tvær
sýningar, þ.e. kl. 19 og 21.
Spurð um tilurð verksins rifjar
Lovísa upp að þegar hún var að
verða fertug fyrir þremur árum hafi
hún haldið á tímabili að hún væri að
byrja á breytingaskeiðinu og þá
runnið upp fyrir henni að hún vissi
lítið sem ekkert um það. „Þegar ég
síðan komst að því að ég væri ekki
komin á breytingaskeiðið einsetti ég
mér að rannsaka það og undirbúa
betur þannig að það kæmi mér ekki
svona á óvart þegar að því kemur. Þá
byrjaði ég að lesa mér til og tala við
konur. Á þessum tíma var ég í al-
þjóðlegu meistaranámi í sviðslistum
við LHÍ og allt í einu var lokaverk-
efnið mitt farið að fjalla um breyt-
ingaskeiðið,“ segir Lovísa sem í upp-
hafi sköpunarferlisins setti inn
auglýsingu í facebook-hóp sem heitir
Breytingaskeiðið þar sem hún óskaði
eftir konum á aldrinum 45-65 ára
sem að væru til í að taka þátt í verk-
efninu. „Ég bað þær um að dansa
sóló heima í stofu eftir ákveðinni
uppskrift, taka sig upp og senda mér.
Fyrr en varði var pósthólfið mitt fullt
af ókunnugum miðaldra konum að
dansa heima í stofu,“ segir Lovísa og
rifjar upp að hún hafi á þessum tíma
sjálf verið að glíma við meiðsli sem
hafi líka sett mark sitt á verkið.
„Ég hef dansað síðan ég man eftir
mér,“ segir Lovísa, sem dansaði í 16
ár fyrir Íslenska dansflokkinn. „Fyr-
ir um þremur árum slasaði ég mig og
þá varð ég, í fyrsta skiptið á ævinni,
að hætta að dansa. Ég byggði mig
aftur upp og náði bata meðal annars
með því að dansa sóló dagsins á
hverjum degi heima í stofu. Mér datt
í hug að nota þessa aðferð til að bjóða
miðaldra konum inn í verkið á mjúk-
an hátt, enda varð ég mér mjög með-
vituð um tilfinnanlegan skort á mið-
aldra kvenlíkömum á danssviðinu
hérlendis þegar ég fór að rannsaka
þennan aldurshóp,“ segir Lovísa sem
sjálf kemur fram á sviðinu ásamt níu
öðrum dönsurum auk allra þeirra
sem dansa í ótal myndbands-
upptökum. „Í verkinu er áhorfendum
boðið inn í heim, fullan af næmni,
skömm, samkennd og húmor. Verkið
flytur okkur eitt augnablik inn á
heimili kvennanna, kafar djúpt í hina
marglaga reynslu og upplifun tengda
breytingaskeiðinu og býður okkur að
hlæja, gráta og fagna með þessum
konum.“
Ögra viðteknum venjum
Spurð nánar um skortinn á mið-
aldra kvenlíkömum á danssviðinu
bendir Lovísa á að þegar hún var
yngri hafi henni fundist algjörlega
eðlilegt að hún myndi hætta að dansa
þegar hún yrði fertug. „Hins vegar
er danslistin og dansformið að breyt-
ast og reynsla dansarans er sífellt
meira metin. Mín kynslóð er svolítið
að ögra viðteknum venjum. Að sjálf-
sögðu getur verið erfitt fyrir eldri
líkama að framkvæma sömu akróba-
tík og áður. En ef listin á að endur-
spegla lífið er skrýtið að danslistin
endurspegli það bara til fertugs.“
Spurð hvort hún sé búin að jafna
sig alveg af meiðslunum svarar
Lovísa því játandi og bendir á að hún
sé alla vega farin að dansa aftur.
„Meiðslin hafa samt haft þau áhrif að
ég passa mig betur og býð líkam-
anum ekki upp á hvað sem er,“ segir
Lovísa og tekur fram að sér hafi þótt
mjög erfitt að geta ekki dansað um
tíma. „Dansinn er svo stór hluti af
mínum kjarna og ég vissi hreinlega
ekki hver ég var þegar þessi hluti var
tekinn í burtu,“ segir Lovísa og tekur
fram að dansinn hafi hjálpað henni að
ná bata. „Ég nýtti dansagann til að
ná fullum bata og gerði allar æfingar
samviskusamlega á hverjum degi.“
Ekki er hægt að sleppa Lovísu án
þess að forvitnast hvers hún hafi orð-
ið vísari í rannsóknum sínum á breyt-
ingaskeiðinu. „Það sem mér fannst
skemmtilegast að komast að er að sú
nálgun að breytingaskeiðið sé eins og
skammarlegur sjúkdómur sem við
tölum ekki um er mjög vestræn nálg-
un. Í öðrum menningarheimum er
breytingaskeiðinu fagnað og konur
öðlast frelsi og virðingu í samfélaginu
þegar þær fara á breytingaskeiðið.
Mér fannst það mjög hressandi. Þær
konur sem tóku þátt í verkefninu
áttu það sameiginlegt að vera þrosk-
aðar, reynslumiklar og magnaðar
konur sem veittu mér mikinn inn-
blástur.“
Spurð hvort hún hyggist sýna
verkið oftar og víðar segist Lovísa
ekki útiloka neitt. „Við erum alla
vega á leið í víking með verkið, því
við munum sýna það í Noregi í febr-
úar og munum þá bjóða þarlendum
konum að taka þátt,“ segir Lovísa og
tekur fram að hún sé einnig að skoða
þann möguleika að sýna verkið í
Bandaríkjunum. En hvað er svo fram
undan hjá Lovísu? „Ég fór beint í
annað meistaranám um leið á ég
kláraði hitt,“ segir Lovísa sem lýkur
meistaranámi í verkefnastjórnun við
HR í vor. „Svo vonandi mun þessi
bræðingur leiða mig á einhverjar
spennandi slóðir.“
„Á spennandi slóðir“
- When the Bleeding Stops eftir Lovísu Ósk Gunnarsdóttur er opnunarverk
Reykjavík Dance Festival - Sýnt tvisvar á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld
Dansandi heima í stofu „Fyrr en varði var pósthólfið mitt fullt af ókunnugum miðaldra konum að dansa heima í
stofu,“ segir Lovísa Ósk Gunnarsdóttir danshöfundur sem notar hluta af þeim upptökum í nýjasta dansverki sínu.
Hvað nú? er yfirskrift danshátíðar
Reykjavík Dance Festival sem hefst
í dag og stendur til laugardags. Á
þeim tíma verður meðal annars
boðið upp á sýningar, spjall og
gönguferðir. Tvö verk eru sýnd í
kvöld, miðvikudag. Þetta eru verkin
When the Bleeding Stops, sem
fjallað er um hér að ofan, og Pan-
flutes and Paperwork sem Ingrid
Berger Myhre og Lasse Passage
sýna í Tjarnarbíoí kl. 21.
Paula Diogo sýnir Terra Nullius í
Tjarnarbíói á morgun, fimmtudag
milli kl. 14 og 19, föstudag milli kl.
14 og 19 og laugardag milli kl. 12 og
17 í Tjarnarbíói. Sýningin er ein-
staklingsganga um ófyrirfram-
ákveðna leið, sem tekur um klukku-
stund.
Á morgun kl. 20 verður í Tjarnar-
bíói boðið upp á Stefnumót í sam-
starfi við Lista án landamæra. Verk-
efnið felur í sér að þrjú pör fatlaðs
og ófatlaðs sviðslistafólks vinna
saman að nýjum verkum. Lista-
mennirnir sýna afrakstur sam-
starfsins, en gefa einnig innsýn í
sköpunarferlið, uppgötvanir og
áskoranir, í beinu samtali við áhorf-
endur. Sýnendur eru Ásgeir Helgi
Magnússon og Starína (Ólafur
Helgi Móberg), Ásrún Magnúsdóttir
og Rebekka Sveinbjörnsdóttir og
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir. Á föstu-
dag sýnir Michikazu Matsune verk-
ið Dance, if you want to enter my
country! í Tjarnarbíó kl. 19 og 21.
DJ Ívar Pétur verður með Baby
Rave á Kex Hosteli á laugardag kl.
14. Sama dag kl. 17 verður í Kúlu
Þjóðleikhússins boðið upp á tómt
rými sem er vettvangur tilrauna
fyrir upprennandi sviðslistamenn í
Reykjavík. Klukkan 20 um kvöldið
frumsýnir Sveinbjörg Þórhallsdóttir
verk sitt Rof í Tjarnarbíói.
Nánari upplýsingar um hátíðina
má lesa á vefnum: reykjavikdance-
festival.com. Þar kemur líka fram
hvaða verkum hátíðarinnar hefur
verið frestað vegna núgildandi
samkomutakmarkana.
Sýningar, spjall, gönguferðir
og fleira næstu fjóra daga
HÁTÍÐIN REYKJAVÍK DANCE FESTIVAL HEFST Í DAG
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
Dansverk Myndefni fyrir sýninguna Rof.
Rithöfundurinn Wilbur Smith er
allur, 88 ára að aldri. Hann lést á
heimili sínu í Suður-Afríku og
spannaði ferill hans marga áratugi
og bækurnar sem gefnar voru út
eftir hann voru 49 talsins. Smith
var metsöluhöfundur og skrifaði
ævintýrabækur þar sem sögusviðið
var jafnan hitabeltiseyja eða frum-
skógar Afríku eða þá Egyptaland
hið forna, og seinni heimsstyrjöldin
hefur einnig komið við sögu.
Bækur Smiths seldust vel víða
um lönd og kom fyrsta bók hans,
When the Lion Feeds, út árið 1964
og segir af ungum manni sem elst
upp á nautgripabúi í Suður-Afríku.
Náði sú bók mestölu og gat af sér
15 framhaldsbækur.
Smith fæddist í Sambíu árið 1933
og var af breskum ættum. Hann var
mikill veiðimaður og talsmaður
dýraverndar.
Wilbur Smith lát-
inn, 88 ára að aldri
Látinn Wilbur Smith naut vinsælda.
Frumsýningu á
tónleikhúsverki
Fabúlu, þ.e.
Margrétar
Kristínar Sig-
urðardóttur,
DAY 3578, hef-
ur verið frestað
um óákveðinn
tíma vegna
fjölgunar smita
og hertra sótt-
varna. Sýna átti verkið í Gamla
bíói en það er tónleikhúsverk
byggt á tónsmíðum Fabúlu Mal-
oru og segir af fyrrverandi stór-
stjörnu sem hvarf af sjónarsviðinu
á hátindi frægðar sinnar. Stjarna
þessi hefur lokað sig inni í 3.578
daga, hvar hún endurtekur sama
leikinn alla daga, eins og því er
lýst í tilkynningu.
Frumsýningu DAY
3578 frestað
Margrét Kristín
Sigurðardóttir