Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 6
Holdastuðull og stofnbreytingar rjúpu 2006 til 2020 18 15 12 9 6 3 0 -3 -6 -9 -12 1,8 1,6 1,4 1,2 1,0 0,8 0,6 0,4 Holdastuðull (g) Stofnbreytingar 2006 2008 2010 2012 2014 2016 2018 2020 Heimild: Náttúrufræði- stofnun Íslands Holdastuðull Stofnbreytingar Holdafar rjúpna í haust var með því besta sem sést hefur fyrir unga fugla og það besta hjá fullorðnum fuglum, samanborið við fyrri ár. Ólafur Karl Nielsen, vistfræðingur og rjúpnasérfræðingur Náttúru- fræðistofnunar, telur að þetta geti verið vísbending um að uppsveifla rjúpnastofnsins sé að hefjast. „Fuglarnir fara í góðum holdum inn í veturinn, bæði fullorðnar rjúp- ur og ungfuglarnir sem verða uppi- staðan í næsta árgangi,“ segir Ólaf- ur. Hann segir að Náttúrufræði- stofnun eigi mælingar á ýmsum lýðfræðilegum þáttum rjúpunnar, svo sem afföllum, stofnbreytingum og stofnvísitölum, sem hægt sé að bera saman við tímaröðina fyrir holdafar fuglanna. „Samsvörun á milli raðanna er ekki fullkomin en það er leitni í átt. Þannig virðist vera hliðrun á stofnvísitölu og holdastuðli þannig að stuðullinn er hæstur þegar stofninn er í upp- sveiflu. Samanburður á hlutfalls- legum stofnbreytingum á milli ára og holdastuðlinum, allavega fyrir fyrstu ár þessara rannsókna, benti til að þessar tvær raðir breyttust í takt en síðustu ár hafa raðirnar ver- ið úr fasa við þessa mynd. Allavega sjáum við miklar breytingar í holda- fari fuglanna á milli ára og mjög lík- lega hafa þessar breytingar áhrif á lýðfræði rjúpunnar,“ segir Ólafur. Ekki er alveg ljóst hvers vegna rjúpan, bæði fullorðnir fuglar og ungfuglar, kom jafn vel út úr sumr- inu og haustinu og nú. Holda- stuðullinn sýnir að rjúpan hefur haft það gott. Þar vegur þyngst tímabilið frá júlí og fram í sept- ember. Mögulega ræður hér að ein- hverju leyti sú einmunablíða sem ríkti á Norðausturlandi á þessum tíma. Rjúpan hefur yfirleitt nóg að bíta en fæðan getur verið misjafnlega góð eða auðmelt á milli ára. „Rannsókn okkar á heilbrigði rjúpunnar, en þar var gögnum safn- að í byrjun október á hverju ári frá 2006 til 2018, sýndi að meltingar- vegur rjúpnanna tók miklum breyt- ingum á milli ára. Það var talið end- urspegla meltanleika fæðunnar. Tormeltari fæða kallar á lengri meltingarveg en auðmelt fæða. Þeg- ar holdastuðullinn var mældur nú í byrjun nóvember var lengd melting- arvegar fuglanna ekki mæld enda þarf þá að fara innan í fuglana.“ Ólafur segir að það hafi komið fram í tengslum við veiðiráðgjöf Náttúrufræðistofnunar fyrr á þessu ári að væntanlega nái sveifla rjúpnastofnsins botni næsta vor eða þar næsta. „Gott líkamlegt ástand fuglanna nú getur bent til þess að umskipti sveiflunnar séu yfirvof- andi,“ segir Ólafur. Hann segir að stofnbreytingar rjúpunnar séu al- mennt á þann hátt að lágmarkið geti varað í tvö til þrjú ár. Topparnir eru hins vegar hvassir og hefst sam- dráttur stofnsins strax ári eftir að toppi er náð. gudni@mbl.is Uppsveifla að hefjast? - Rjúpan vel í holdum fyrir veturinn 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Sindrastóll Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001) Sindrastóllinn er bólstraður með íslenskri lambagæru. Verð frá: 229.000 kr. Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Alls greindust 194 með kórónu- veirusmit í fyrradag, þar af voru 100 í sóttkví við greiningu. Auk þess greindust tíu smit á landamær- unum. Reiknað er með að Lyfjastofnun Evrópu gefi leyfi til bólusetningar 5- 11 ára barna með bóluefni Pfizer fyrir næstu mánaðamót, jafnvel í lok þessarar viku. Þetta kom fram á blaðamannafundi 18. nóvember sl. Niðurstöður tveggja hópa í tvíblindri rann- sókn voru lagðar til grundvallar þegar Lyfjastofn- un Bandaríkj- anna (FDA) veitti leyfi til bólusetn- inga 5-11 ára barna með bólu- efni frá Pfizer 1. nóvember sl., að sögn Ingileifar Jónsdóttur, prófess- ors í ónæmisfræði við Háskóla Ís- lands. Í öðrum hópnum var skoðuð vernd gegn Covid-19, ónæmissvar og öryggisatriði. Notaðar voru niðurstöður fyrir hinn rannsóknar- hópinn varðandi öryggi bólusetning- arinnar. Ekki var búið að birta nið- urstöður mælinga á ónæmissvari og vernd í þeim hluta rannsóknarinnar. Rannsókn á öryggi Pfizer- bóluefnisins hjá 5-11 ára börnum byggist á 4.600 þátttakendum (3.100 bólusettum og 1.538 sem fengu lyf- leysu). Engar alvarlegar aukaverk- anir komu fram hjá neinum þátttak- anda. Ingileif sagði að sambærileg gögn hefðu verið lögð fyrir sérfræði- nefndir Lyfjastofnunar Evrópu. „Við byggjum okkar leyfisveit- ingar á ákvörðunum Lyfjastofnunar Evrópu og erum með fólk sem situr í matsnefndinni og tekur þátt í mat- inu,“ sagði Ingileif. Lyfjastofnun hér hefur venjulega gefið samdægurs út eins leyfi og Lyfjastofnun Evrópu. Kanada, Ísrael og fleiri ríki hafa einnig gefið leyfi fyrir bólusetn- ingum 5-11 ára barna og byggja þau væntanlega á sömu gögnum. Aðrir bóluefnaframleiðendur en Pfizer hafa einnig gert rannsóknir og munu niðurstöður þeirra fylgja umsóknum um leyfi til að nota bólu- efni þeirra við bólusetningar 5-11 ára barna. Umsóknirnar eru mis- jafnlega langt á veg komnar. Ingileif segir að gögn sem lögð eru fyrir Lyfjastofnun Bandaríkj- anna séu öllum opin minnst viku fyr- ir fundinn þar sem þau eru tekin til afgreiðslu. Það eru bæði gögn frá lyfjaframleiðendum og eins skýrsla matsnefndar Lyfjastofnunarinnar. Lyfjastofnun Evrópu birtir gögnin um leið og hún birtir ákvörðun sína í málinu. Oftast er um sömu gögn að ræða og í Bandaríkjunum. Umfangsmiklar rannsóknir „Almenna reglan er að rannsóknir á bóluefnum, sem liggja til grund- vallar leyfisveitingu, eru gerðar í mörgum löndum og byggjast á þátt- töku tuga þúsunda manna. Fyrsta stóra rannsókn AstraZeneca á bólu- efni gegn Covid-19 fyrir fullorðna var t.d. gerð samtímis í Bretlandi, Brasilíu og Suður-Afríku og náði til um 32 þúsund manns,“ sagði Ingi- leif. Rannsóknin á 5-11 ára börnum sem fengu tvo skammta af Pfizer- bóluefninu með þriggja vikna milli- bili var gerð í Bandaríkjunum, Finn- landi, Póllandi og Spáni. Hún segir að lyfjafyrirtækin fjög- ur, sem við höfum fengið bóluefni frá, hafi í febrúar sl. lagt fram áætl- anir um hvernig þau ætluðu að rannsaka bólusetningar barna. Lyfjastofnun Bandaríkjanna og Lyfjastofnun Evrópu birtu þessar áætlanir á heimasíðum sínum. Börnin (5-11 ára) fá þriðjungs- skammt af bóluefni Pfizer miðað við fullorðna. Börn 12-15 ára fá sama skammt og fullorðnir. Þetta gildir bæði austan hafs og vestan. Miðað er við tvær bólusetningar með þriggja vikna millibili. Ingileif segir að ónæmissvar og verndandi mótefni hjá 5-11 ára börnum eftir bólusetningu séu sam- bærileg við það sem sést hjá 16-25 ára bólusettum. Vernd gegn PCR- staðfestum sjúkdómi eða einkennum var 90,9% samkvæmt rannsóknum sem lagðar voru til grundvallar leyf- isveitingunni fyrir bólusetningu 5-11 ára í Bandaríkjunum. gudni@mbl.is Stutt í að leyft verði að bólusetja 5-11 ára - Reiknað með samþykki Lyfjastofnunar Evrópu fljótlega 200 175 150 125 100 75 50 25 0 H ei m ild :c ov id .is kl .1 3. 00 íg æ r 204 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring Fjöldi innanlands- smita frá 12. júlí 175 eru í skimunarsóttkví1.735 erumeð virkt smit og í einangrun 2.089 einstaklingar eru í sóttkví 24 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu júlí ágúst september október nóvember Staðfest smit 7 daga meðaltal Ingileif Jónsdóttir Skráð samskipti við heilsugæslu- stöðvar landsins voru tæplega 2,6 milljónir á seinasta ári sem samsvar- ar sjö samskiptum á hvern íbúa. Er þar um að ræða viðtöl eða komur á heilsugæslustöðvar, vitjanir, símtöl og rafræn samskipti. Á árinu á und- an voru samskiptin samtals 2,2 millj- ónir eða sex á hvern íbúa. Þetta kem- ur fram í umfjöllun í Talnabrunni landlæknisembættisins um starf- semi heilsugæslustöðva. Áhrif kórónuveirufaraldursins voru mikil á starfsemi heilsugæslu- stöðva á seinasta ári. Um 309 þúsund einstaklingar nýttu sér þjónustu heilsugæslunnar í fyrra eða ríflega 84% allra landsmanna. Er það svipað hlutfall og árið áður. Alls áttu liðlega 223 þúsund einstaklingar viðtal við lækni á heilsugæslustöðvum lands- ins í fyrra, eða um 61% allra íbúa. Komur á heilsugæslustöðvar eru skráðar sem viðtöl og kemur fram að samtals voru tæplega 900 þúsund viðtöl skráð á heilsugæslustöðvum á seinasta ári. Það jafngildir tæplega 2,5 viðtölum á hvern íbúa landsins, sem er þó nokkru minna en á undan- gengnum áratug þegar viðtöl voru á bilinu 2,7 til 2,9 á hvern íbúa. „Að- sókn að heilsugæslustöðvum er nokkuð breytileg eftir staðsetningu þeirra. Þannig voru komur á heilsu- gæslustöðvar fæstar á Vestfjörðum árið 2020, tæplega 2,3 á hvern íbúa, en flestar á Austurlandi, 3,4 á íbúa […],“ segir í umfjölluninni. Rafræn samskipti og símtöl Þegar samskipti íbúa við heilsu- gæsluna eru skoðuð eftir mánuðum sést vel hvílík áhrif faraldurinn hafði á starfsemina. Bent er á að heilt yfir fækkaði komum á heilsugæslustöðv- ar um 15% milli áranna 2019 og 2020 en mestur var samdrátturinn í apríl 2020 þegar um 50% samdráttur varð í komum frá sama mánuði árið áður. „Á hinn bóginn fjölgaði símtölum í heilsugæslunni um 35% árið 2020 miðað við fyrra ár og rafrænum sam- skiptum um ríflega 82%.“ 61% átti viðtal við heilsugæslulækni - 900 þúsund viðtöl skráð á heilsugæslu- stöðvum í fyrra Morgunblaðið/Hari Heilsugæsla Konur nýta þjón- ustuna í meiri mæli en karlar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.