Morgunblaðið - 24.11.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021
Fyrir
líkama
og sál
L augarnar í Reykjaví k
w w wsýnumhvert öðru tillitssemi
Jón Magnússon lögmaður vekur
athygli á að forseti lýðveldisins
hafi í setningarræðu Alþingis sagt
að „frelsi til að sýkja aðra væri
vafasamur réttur“. Jón spyr og
svarar svo:
- - -
En hvaða réttur
er það? Hefur
einhver gefið ein-
hverjum þann rétt?
Eru einhvers staðar
lagaákvæði eða
önnur fyrirmæli
sem mæla fyrir um
það að fólk eigi
þann vafasama rétt?
- - -
Raunar alls ekki.
Samkvæmt ís-
lenskum rétti hefur
enginn rétt til að
sýkja aðra, það er bannað.
- - -
Það er beinlínis refsivert sbr.
175. gr. almennra hegningar-
laga sem mælir fyrir um refsingu,
fangelsi allt að þremur árum, fyrir
að valda því að næmur sjúkdómur
berist út meðal manna. Einnig
mætti vísa í sóttvarnalög.
- - -
Frelsi til að smita aðra er því
ekki fyrir hendi í íslensku
samfélagi.
- - -
Það á enginn þann rétt.
- - -
Það er beinlínis refsivert.“ Nið-
urstaða Jóns Magnússonar er
þessi:
- - -
Frelsi borgaranna er mikilvæg
undirstaða siðaðra samfélaga
og það er mikilvægt að æðstu
stjórnendur ríkja og alþjóðlegra
stofnana gæti þess að skilgreina
það með réttum hætti og gæta þess
að setja frelsið ekki í spennitreyju
valdsins.“
Guðni Th.
Jóhannesson
Spurt og svarað
STAKSTEINAR
Jón Magnússon
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Tillaga sem ber heitið Baugur
Bjólfs varð hlutskörpust í sam-
keppni um skipulag og hönnun
áfangastaðar við snjóflóðavarnar-
garðana í Bjólfi á Seyðisfirði. Mark-
mið samkeppninnar var að bæta að-
stæður og skapa aðdráttarafl á
svæði sem hefur mikil tækifæri til
þess að verða einn af fjölsóttustu
útsýnisstöðum Austurlands, segir
m.a. á heimasíðu Múlaþings sem
stóð fyrir keppninni.
Baugur Bjólfs er hringlaga út-
sýnispallur sem situr á Bæjarbrún.
Þaðan er einstakt útsýni yfir Seyð-
isfjörð, frá mynni fjarðarins, yfir
bæinn, fjallahringinn og suðvestur
inn í dalinn. Að ofanverðu gnæfa
tindar Bjólfs yfir, segir í lýsingu
með tillögunni. Leiðin að útsýnis-
pallinum um fjallveg er sögð hluti
af upplifuninni að heimsækja svæð-
ið. Í síðari áföngum er lagt til að á
leiðinni verði þrír áningarstaðir.
Vinningstillagan var unnin í
þverfaglegu samstarfi og eru aðal-
höfundar þær Ástríður Birna Árna-
dóttir og Stefanía Helga Pálmars-
dóttir frá Arkibygg Arkitektum.
Múlaþing fékk styrk til keppninnar
frá Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða. Stefnt er að því að semja um
áframhaldandi hönnun í samvinnu
við vinningshafa og að sótt verði
um styrk úr sjóðnum við framhald
verkefnisins. aij@mbl.is
Baugur Bjólfs verði
aðdráttarafl eystra
Tölvumynd/Arkibygg Arkitektar
Bæjarbrún Af útsýnisstaðnum er útsýni yfir fjallahringinn og Seyðisfjörð.
Mannanafnanefnd samþykkti nýver-
ið fimmtán nöfn en hafnaði fimm.
Alls voru samþykkt sjö kvenkyns-
eiginnöfn: Erykah, Ítalía, Lán,
Arún, Tereza, Lílú og Jasmine.
Nafnið Erykah var samþykkt sem
ritháttarmynd eiginnafnsins Erika.
Karlkynseiginnöfnin sem nefndin
samþykkti voru sex talsins: Arnþór,
Ullr, Leonardo, Gottlieb, Gunni og
Éljagrímur. Nafnið Ullr var sam-
þykkt sem ritháttarmynd eigin-
nafnsins Ullur.
Þá voru nöfnin Eldhamar og
Kaldakvísl samþykkt sem millinöfn
en Winter hafnað.
Nefndin hafnaði kvenkyns-
eiginnöfnunum Geitin og Frostsóla-
rún. Nöfnin voru bæði talin brjóta í
bága við íslenskt málkerfi.
Þá hafnaði nefndin sömuleiðis
karlkynseiginnöfnunum Linnet og
Heiðr. Hún taldi ekki heimild fyrir
því að nafnið Linnet yrði borið sem
eiginnafn þar sem það er skráð í
þjóðskrá sem ættarnafn. Nafnið
Heiðr var talið brjóta í bága við ís-
lenskt málkerfi sem og féllst nefndin
ekki á að það væri í samræmi við al-
mennar ritreglur íslensks máls að
rita eiginnafnið Heiðar án a, en í
rökstuðningi sem fylgdi umsókn um
nafnið er gert ráð fyrir að Heiðr sé
ritháttarmynd eiginnafnsins Heiðar.
Nú hægt að heita Ítalía, Lán og Ullr
- Fimmtán ný nöfn samþykkt - Nöfn-
unum Winter, Geitin og Linnet hafnað
Morgunblaðið/Eva Björk
Mannanafnanefnd Nefndin hefur
nú samþykkt fimmtán ný nöfn.