Morgunblaðið - 24.11.2021, Side 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021
Uppsetning Unnið er að því að setja upp skautasvell Nova á Ingólfstorgi. Hleypt verður á svellið um komandi helgi, enda ekki seinna vænna þar sem fyrsti sunnudagur í aðventu er nk. sunnudag.
Eggert
Loksins segja marg-
ir, – æ nú byrja upp-
hlaupin, nagið og
þrasið hugsa sjálfsagt
einhverjir. En óháð
því hvort almenningur
fagni eða ekki þá var
Alþingi sett í gær í
fyrsta skipti frá kosn-
ingum.
Aðstæður eru á
margan hátt óvenju-
legar. Tveir mánuðir eru frá kosn-
ingum. Þing hefur ekki komið sam-
an frá miðjum júní fyrir utan
dagpart í júlí til að lagfæra ágalla í
lögum er varðar listabókstaf stjórn-
málasamtaka. Við þingsetninguna
sat hluti þingmanna óviss um stöðu
sína þar sem beðið er eftir að kjör-
bréf þeirra verði annaðhvort stað-
fest eða gengið aftur að kjörborði í
Norðvesturkjördæmi. Óvissunni
verður vonandi eytt á morgun. Og
þrátt fyrir að ríkisstjórnarflokk-
arnir sitji fastir fyrir með aukinn
þingmeirihluta hafa þeir ekki enn
formlega myndað nýja ríkisstjórn.
Úr því verður bætt í komandi viku.
Yfir þingsetningunni var skuggi
Covid – takmarkanir, grímur og
hraðpróf. Fyrsta verk nýkjörins
þings er að taka ákvörðun um gildi
kjörbréfa. Sú ákvörðun verður tek-
in undir hótunum frá þeim sem
vilja þó ekkert meira
en tryggja sér sæti í
þingsalnum. Enginn
þingmaður getur látið
hótanir hafa áhrif á
efnislega afstöðu til
erfiðs máls. Ekki frek-
ar en ráðherrar sem
standa vörð um grunn
borgaralegra réttinda
og fá yfir sig svívirð-
ingar og dylgjur frá
embættismönnum. Þá
virðast réttar upplýs-
ingar ekki vera aðal-
atriðið.
Fáir náðugir dagar
Í pólitík er fátt öruggt en þó geta
ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar sem
kynnt verður í komandi viku, verið
nokkuð vissir um að þeir fá ekki
marga hveitibrauðsdaga, ef nokkra.
Ríkisstjórnarinnar bíða áskoranir,
sumar erfiðari en aðrar. Fjárlaga-
frumvarp og fjármálastefna, sem
byggja undir stöðugleika. Við-
spyrna gegn Covid, þar sem gætt
er að borgaralegum réttindum og
tryggður aukinn viðnámsþróttur
heilbrigðiskerfisins. Bætt sam-
keppnisstaða atvinnulífsins sem er
forsenda þess að hægt sé að bæta
lífskjör almennings í náinni framtíð.
Líkt og allar aðrar ríkisstjórnir
mun ný samsteypustjórn þriggja
ólíkra flokka standa frammi fyrir
háværum kröfum um aukin útgjöld
í flesta málaflokka. Það reynir því
fljótt á pólitísk bein stjórnarþing-
manna. Þeir verða að hafa burði til
að hafna því að öll vandamál sam-
félagsins verði leyst með auknum
ríkisútgjöldum en um leið viður-
kenna hið augljósa að víða þarf
aukið fjármagn, ekki síst í heil-
brigðiskerfið. Auknum framlögum
verður hins vegar að fylgja fast eft-
ir með ríkari kröfum til opinbers
rekstrar – um betri þjónustu og
aukna skilvirkni. Aukin útgjöld til
heilbrigðismála, verkefnatengd
fjármögnun mikilvægustu stofnana,
skila samfélaginu mestu ef það
tekst að nýta kosti einkaframtaks-
ins og tryggja samþættingu og
samvinnu sjálfstætt starfandi aðila
og hins opinbera í heilbrigðisþjón-
ustu. Hið sama á við víðar, ekki síst
í menntakerfinu.
Reynt á þolrifin
Ég veit að það mun oft reyna á
þolrifin í ríkisstjórnarsamstarfinu,
jafnvel meira en á síðasta kjör-
tímabili. Þá skiptir miklu að missa
ekki sjónar af markmiðunum –
gleyma ekki hugmyndafræðinni í
þeirri fullvissu að þolinmæði og út-
hald eru nauðsynleg til að vinna að
framgangi hugsjóna. Fyrir jafn
óþolinmóðan mann og þann er hér
skrifar verður því nauðsynlegt að
rifja upp niðurlag Moggagreinar 1.
júlí á síðasta ári: „Á stundum er
betra að stíga lítið skref (jafnvel
hænufet) í rétta átt en reyna að
komast á leiðarenda í „sjömílnas-
kóm“ en festast í djúpu skófari
tregðulögmálsins.“
Þegar ný ríkisstjórn tekur við
völdum verður málasamningur eða
stefnuyfirlýsing hennar kynnt op-
inberlega og forsætisráðherra
fylgir fast á eftir með stefnuræðu.
Sumt mun gleðja en annað ekki.
Það er eðlilegt þegar komist er að
sanngjarnri málamiðlun, þar sem
tekið er tillit til þingstyrks.
Stefnuyfirlýsingar ríkisstjórna
hafa verið misjafnar, jafnt að inni-
haldi og umfangi. Mér virðist sem
tilhneigingin á síðustu áratugum
hafi verið að lengja textann – yfir-
leitt á kostnað innihalds og skýr-
leika. Kannski ættum við í þessum
efnum, eins og svo mörgum öðrum,
að leita í kistur Ólafs Thors [1892-
1964], forsætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins.
Matthías Johannessen, skáld og
ritstjóri Morgunblaðsins í áratugi,
segir í ævisögu Ólafs að gaman-
semin, – þessi glitrandi glettni,
hafi verið eitt persónueinkenna
hans. Ólafur var óhræddur að feta
inn á nýjar brautir í stjórnmálum
– beita vinnubrögðum og aðferð-
um sem fáum hafði hugkvæmst
eða ekki haft pólitísk þrek til.
Þegar Ólafur gerði grein fyrir
stjórnarmyndunarviðræðum 1950,
hafði hann orð á hugmynd, sem
sameinaði húmor og hugvitssemi.
Hann lagði til að mynduð yrði
samstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks án mál-
efnasamnings. „Ég er nú eig-
inlega ekki eins fjarri því og sum-
ir aðrir, að þannig eigi
stjórnarmyndanir að vera (þ.e. án
málefnasamninga). Þessir eilífu
málefnasamningar, þar sem hver
flokksbjálfi og heimspekingur í
flokknum hleður upp metralöng-
um tillögum til þess að gera land-
ið stjórnlaust sem allra lengst og
þjóðinni sem mesta bölvun […]
eru ekki eftirsóknarverðir. Ég er
eiginlega með því að kveða þessa
karla í kútinn og mynda stjórnir
án langra málefnasamninga,“
sagði Ólafur á lokuðum fundi
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
15. mars 1950.
Eftir Óla Björn
Kárason » Stefnuyfirlýsingar
ríkisstjórna hafa
verið misjafnar. Til-
hneigingin síðustu
áratugi hefur verið að
lengja textann – oftast
á kostnað innihalds
og skýrleika.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
„… að kveða þessa karla í kútinn“