Morgunblaðið - 24.11.2021, Síða 14
14 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021
Ríkisstjórn Austur-
ríkis setti á dögunum
útgöngubann á óbólu-
setta íbúa landsins í tíu
daga. Máttu óbólusett-
ir, um tuttugu prósent
landsmanna, aðeins
yfirgefa íbúð sína í
brýnum tilvikum.
Í framhaldi af því
ákvað Schallenberg
kanslari, í samráði við
leiðtoga sambandsríkja landsins, að
bæta um betur og innleiða skyldu-
bólusetningu við Covid frá febrúar
2022.
Nú í vikunni tók svo Söder, for-
sætisráðherra sambandslandsins
Bayern í Þýskalandi, af skarið og
tjáði sig með þeim hætti að það væri
ekki nema ein framtíðarlausn; bólu-
setning allra, sem kallaði greinilega á
bólusetningarskyldu. Forsætisráð-
herra sambandsríkisins Baden-
Württemberg, líka í Þýskalandi,
Kretschmann, sem reyndar er Græn-
ingi, hinn er Kristilegur demókrati,
tók í sama streng.
Menn eru í vaxandi mæli að fá sig
fullsadda á alls konar mótþróa við
bólusetningu svo og alls kyns mála-
miðlunum um reglur, fram og til
baka, sem svo, þegar upp er staðið,
skila ekki endanlegum lausnum.
Meira að segja Kári Stefánsson, hér í
okkar ágæta landi, orðaði skyldu-
bólusetningu allra landsmanna í sjón-
varpsþætti á dögunum. Með sínu sér-
staka orðbragði sagði hann að það
væri „drullusokksháttur“ að láta ekki
bólusetja sig.
Allt þetta tal gengur auðvitað út á
að það liggur fyrir, að óbólusettir eru
þeir sem næra veiruna, halda henni
gangandi og valda því að sjúkrahús
og gjörgæsludeildir eru að fyllast eða
orðin full. Hlutfallslega eru innlagnir
óbólusettra hér allt að sjö sinnum
fleiri en þeirra sem bólusettir eru,
auk þess sem óbólusettir smitast
frekar og smita aðra meira en bólu-
settir.
Í viðtali í vikunni sagði forstjóri
Biontech, sem þróaði Biontech-
Pfizer-bóluefnið sem Pfizer fram-
leiðir og dreifir, að hann sæi enga
aðra varanlega lausn en að allir létu
bólusetja sig, fyrst
þrisvar og síðan árlega.
Það væri að hans mati
eina leiðin til að Evr-
ópubúar gætu snúið til
baka til fyrra lífs.
Þessi þróun og raun-
staða virðist hafa farið
fram hjá stjórnvöldum
hér. Alla vega er af-
staða þeirra og að-
ferðafræði önnur en hjá
öðrum stjórnvöldum í
Evrópu. Í stað málefna-
legrar nálgunar þar
sem farið væri í nauðsynlegt mann-
greinarálit og mönnum skipt upp í
áhættuhópa eins og nú gerist alls
staðar erlendis eru stjórnvöld hér
enn einu sinni að skerða frelsi allra
landsmanna og þjarma illilega að
ýmsum atvinnurekstri. Forsætisráð-
herra talaði fjálglega um það að við
værum svo frjálslynd þjóð að tak-
markanir á ákveðna hópa myndu
ekki henta okkar þjóðfélagi. Ætli
frelsishyggja sé minni hjá öðrum
Norðurlanda- og Evrópuþjóðum en
hér?
Ekki fannst mér innlegg heilbrigð-
isráðherra gæfulegra. Hún taldi af
og frá að þegnum landsins yrði skipt
upp í hópa, greinilega án þess að
skilja að óbólusettir hafa nú þegar
greint sig frá miklum meirihluta
þjóðarinnar með því að þráast við að
láta bólusetja sig. Óbólusettir hafa
því sjálfir klofið þjóðina og þar með
tekið sér frelsi til að leggja kvaðir og
íþyngjandi takmarkanir á alla aðra;
mannlíf og atvinnulíf.
Það blasir við að ef þessar um-
framinnlagnir óbólusettra – nú sex til
sjö sinnum fleiri en þeirra bólusettu –
hefðu ekki komið til hefði ekki þurft
að innleiða nýjar athafna- og sam-
komutakmarkanir fyrir alla. Það
frelsi sem hefur ríkt síðustu vikur og
mánuði hefði þá getað gilt áfram nú í
aðdraganda jóla og nýárs.
Auðvitað er frelsi einstaklingsins
mikilvægt og er ég mikill talsmaður
þess, ekki síst þegar um eigin líkama
er að ræða, en öll mál, líka frelsið,
verða að hafa sín mörk. Ef óbólusett-
ir, um tíu prósent landsmanna, hafa
með veikindum sínum og umfram-
innlagnarþörfum ráðið úrslitum um
það, að nú var aftur verið að skella á
takmörkunum fyrir alla, þá tel ég það
óhæfu og yfirkeyrt frelsi litlum
minnihlutahópi til handa.
Í minni gömlu heimaborg, Ham-
borg, hefur nú um skeið gilt sú regla
að þeir sem eru bólusettir eða hafa
hlotið bata af pestinni geta „farið um
allt og gert allt“, en óbólusettir verða
að sæta vaxandi takmörkunum. Svip-
uð þróun á sér stað víða um Evrópu
og víðast hvar stefnir í bólusetningar-
skyldu. Þetta á líka í vaxandi mæli við
á vinnustöðum. Enn geta óbólusettir
tryggt sína stöðu með daglegum nei-
kvæðum prófum en þolinmæði vinnu-
veitenda með það fyrirkomulag er að
þverra. Víða gildir nú sú regla að ef
óbólusettir veikjast af Covid verði
veikindadagar ekki greiddir. Sums
staðar vofir uppsögn yfir ef menn láta
ekki bólusetja sig. Umburðarlyndið
gagnvart óbólusettum starfsmönnum
í heilbrigðis- og öldrunarþjónustu er
líka víða komið á lokastig en eins og
allir vita ber þetta fólk ábyrgð á lífi,
limum og velferð þeirra sem veikastir
eru fyrir og minnst þola. Auðvitað
vantar alls staðar starfsmenn í heil-
brigðiskerfinu, en stjórnvöld víða
meta það svo að hættan af óbólusettu
starfsfólki vegi þyngra en skaðinn af
því að missa það.
Nýlega var gerð athugun á því í
Þýskalandi hverjir það væru sem
streittust gegn bólusetningu. Niður-
staðan var að í Vestur-Þýskalandi
væru það mest harðsvíraðir vinstri-
menn, en í Austur-Þýskalandi hægri-
öfgamenn. Svona virðast skautin oft
mætast í pólitík og lífsviðhorfum.
Hvað sem þessu líður væri ekki
hægt að túlka bólusetningarskyldu
sem frelsisskerðingu því afgerandi
inntak slíks stjórnsýsluskrefs væri
einmitt að tryggja frelsi sem flestra,
eða allra.
Bólusetningarskylda er
trygging frelsisins
Eftir Ole Anton
Bieltvedt
» Óbólusettir eru þeir
sem helst næra
veiruna, halda henni
gangandi og valda því
að sjúkrahús og gjör-
gæsludeildir eru að fyll-
ast.
Ole Anton Bieltvedt
Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu-
maður og stjórnmálarýnir.
Borgarstjóri, Dag-
ur B. Eggertsson, var
gestur Egils Helga-
sonar í „Silfrinu“ á
Rúv, sunnudaginn 21.
nóvember sl. og fór
þar mikinn. Hann
hrósaði sjálfum sér
mjög í viðtalinu og
samherjum sínum í
flugvallarmálinu úr
Sjálfstæðisflokki,
þeim Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
og Gísla Marteini Baldurssyni.
Það voru einkum þrír ein-
staklingar sem borgarstjóri „vand-
aði ekki kveðjurnar“ svo notað þé
orðalag spyrilsins, Egils Helgason-
ar. Ekki kom á óvart að ég væri
einn þessara einstaklinga, enda
var ég sá borgarstjóri á þessari
öld sem barðist einarðlegast fyrir
áframhaldi Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýri. Vilhjálmi Þ. Vilhjálms-
syni kenndi hann um skammlíft
meirihlutasamstarf mitt við Sjálf-
stæðisflokkinn, þó að nær væri að
benda þar á Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur og félaga hennar úr
hópi flugvallarandstæðinga í Sjálf-
stæðisflokknum. Hanna Birna og
félagar komu Vilhjálmi Þ. frá sem
oddvita borgarstjórnarflokks Sjálf-
stæðisflokksins í júní 2008 og mér
frá sem borgarstjóra tveim mán-
uðum síðar.
Einstaklega rætin aðför
Dags að Sigmundi Davíð
Athyglisvert er hve illa borgar-
stjórinn núverandi talaði um Sig-
mund Davíð Gunnlaugsson, for-
mann Miðflokksins og fv. forsætis-
ráðherra. Dagur sakaði hann um
stefnuleysi og tækifærismennsku
og að hann hefði á sínum tíma ver-
ið meiri andstæðingur flugvallarins
en Gísli Marteinn, að sögn Gísla
Marteins, þegar þeir unnu saman í
Kastljósinu. Athyglisvert er að
bera saman frábæra fjár-
málastjórn Sigmundar Davíðs sem
forsætisráðherra og hvernig hann
hjálpaði heimilinum í
landinu í sinni for-
sætisráðherratíð við
fjármálaóstjórnina hjá
núverandi borgar-
stjóra. Mikil óráðsía
og spilling ríkir nú í
stjórn borgarinnar.
Það er líka þörf á því,
að bera fjármálastjórn
okkar Vilhjálms í
borgarstjóratíð okkar
saman við fjármála-
óstjórn Dags Eggerts-
sonar. Dagur hefur margfaldað
kostnað við rekstur borgar-
stjóraskrifstofunnar frá tíð okkar
Vilhjálms og stundað hreina óráð-
síu í fjármálum borgarinnar með
útþenslu á borgarbákninu á flest-
um sviðum. Til viðbótar kemur
gríðarleg lántaka og skuldaaukn-
ing. Miklir fjármunir fara í að
hindra umferðarflæði um götur
borgarinnar og í gæluverkefni á
borð við braggann fræga. Mér
finnst það sérkennilegt að ekki
hafi verið höfðað mál gegn Degi
fyrir margar sakir, en hann höfð-
aði sem formaður borgarráðs mál
gegn mér fyrir engar sakir fjórum
árum eftir að ég var borgarstjóri,
þar sem ég var sakaður um fjár-
drátt.
Gefum Degi reisupassann
Núverandi borgarstjóri finnur
hins vegar ekkert að hjá sjálfum
sér en talar í sífellu um borgarlínu,
þéttingu byggðar og flugvöllinn í
Vatnsmýri, sem hann hefur tekið
ástríðufullu hatri við. Milljarða-
sóun, spilling og skemmdarverk
Dags í borgarstjóraembættinu
gera það bráðnauðsynlegt að kjós-
endur gefi honum reisupassann í
næstu borgarstjórnarkosningum.
Borgarstjóri kast-
ar steinum úr gler-
húsi í „Silfrinu“
Eftir Ólaf F.
Magnússon
Ólafur F. Magnússon
»Mikil óráðsía og
spilling ríkir nú í
stjórn borgarinnar.
Höfundur er læknir og
fv. borgarstjóri.
Fyrir nokkru birtist
hér í blaðinu grein eft-
ir mig sem bar yfir-
skriftina „Bylur hátt í
tómri tunnu“ en ein-
hverra hluta vegna
vantaði helminginn,
niðurlagið, á greinina,
og veit ég ekki hvers
vegna en dettur í hug
t.d. illviðráðanlegar or-
sakir, misskilningur
eða bara mannleg mistök eins og
alltaf eiga sér stað. En hvað um
það, greinin var um heldur óvænta
úrsögn góðs kunningja, Birgis Þór-
arinssonar, úr Miðflokki og inn-
göngu hans í Sjálfstæðisflokkinn.
Birgir fékk vægast sagt óvægna út-
reið og skítkast frá mikið til sínum
fyrrverandi flokkssystkinum, sem
jafnvel stóðu fyrir undirskriftum
með ósk um að hann yrði sviptur
þinghelgi, svo það gekk ekki lítið á.
Auðvitað var þetta þungt högg fyrir
Miðflokkinn, ekki síst vegna þess að
Birgir var annar þeirra sem náðu
kjöri ásamt formanni flokksins, Sig-
mundi Davíð, sem kjörnir þing-
menn, þrátt fyrir þá
arfaslökustu kosninga-
baráttu sem ég hef
orðið vitni að og er
orðinn gamall og hef
staðið í margri kosn-
ingabaráttunni en allt-
af á hliðarlínunni.
Þá kem ég að þætti
aðalritstjóra Torgs,
Sigmundar Ernis Rún-
arssonar, sem fór mik-
inn í þessu máli og
vantaði í fyrrnefnda
grein. Um þetta leyti
skrifaði SE leiðara í Fréttablaðið
sem bar yfirskriftina „Einbeitt
ósvífni“ og innihaldið eftir því þar
sem hann sakar Birgi m.a. um að
hafa logið sig inn á löggjafar-
samkunduna. SE bætti um betur
því í fréttaþætti á Hringbraut
skömmu áður fannst honum við-
mælendur sínir, er fjallað var um
mál Birgis, ekki hafa nógu stór orð
uppi um framkomu hans og lagði
þeim þá gjarnan orð í munn við
hæfi að honum fannst. Stuttu
seinna bauð SE svo Sigmundi Davíð
til viðtals í þætti sínum, með sinni
ótrúlegu framkomu með hand-
leggjaslætti og fingraleikfimi, og
þegar honum fannst SDG ekki hafa
uppi nógu stór orð um framkomu
Birgis bætti hann um betur og
spurði hvort þetta væri ekki sví-
virðileg framkoma! Ekki veit ég
hvað Sigmundi Erni gekk til með
ótrúlegri framkomu sinni gagnvart
Birgi og ætla ekki einu sinni að
geta mér til um það, en eitt er víst,
að hann sló hinum Akureyringnum
á RÚV, Stefáni Eiríkssyni, al-
gjörlega við og er þá mikið sagt.
Eigum við Akureyringar að vera
hreyknir af okkar mönnum í fjöl-
miðlabransanum? Það er spurn-
ingin. En eitt veit ég með vissu að
lokum að Birgir Þórarinsson er bú-
inn að vera ræðukóngur Alþingis í
þrjú skipti í röð og hefur aldrei
mætt drukkinn í ræðustól Alþingis.
Enn um úrsögn
Birgis úr Miðflokki
Eftir Hjörleif
Hallgríms » Birgir fékk vægast
sagt óvægna útreið
og skítkast frá mikið til
sínum fyrrverandi
flokkssystkinum.
Hjörleifur Hallgríms
Höfundur er eldri borgari
á Akureyri.
Ég er búinn að fara á tvenna tón-
leika í Hörpu sl. hálfan mánuð og
þá kemur í ljós að hljóðkerfið í hús-
inu er vanstillt, of mikill hávaði í
hljómsveit miðað við söngvara. Ég
miða við tónleika sem ég hef farið á
í Háskólabíói með Baggalút og tón-
leika sem ég hef farið á í London
og víða í Evrópu og aldrei orðið var
við svona vanstillingu. Fjölskyldan
var öll með höfuðverk að loknum
tónleikunum í Hörpu. Þetta er sett
fram í þeirri von að þetta verði lag-
að, að fólki þurfi ekki að líða illa
vegna hávaða. Ekkert er sett út á
tónlistarfólkið sjálft, einungis hljóð-
blöndun.
Ó.E.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Vanstilling á hljóðkerfi í Hörpu
Morgunblaðið/Ómar