Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Björgvin Kristbjörn, bróðir minn kæri, er horfinn á vit eilífð- ar – svo langt síðan ég hef séð þig, elsku Böggi. Sem betur fer Björgvin K. Björgvinsson ✝ Björgvin fædd- ist á Fáskrúðs- firði 7. nóvember 1945. Hann lést 2. október 2021. Kjör- foreldrar hans voru afi hans og amma, Björgvin Þorsteins- son og Oddný Sveinsdóttir. Björgvin var jarðsettur í Púertó Ríkó. gátum við alltaf tal- að saman í síma en búið var að eyði- leggja bæði póst- og tölvusamband. Hvað veður nú um húsið þitt fagra og fjallið þitt? Fæ ég aldrei að sjá það nema í rómantískri hugsýn? Bróðir minn var einn af þeim Íslend- ingum sem hurfu af landi brott, settist að í fjarlægu landi, fyrst í New York í 20 ár, vann þar hjá Flugleiðum, síðan í 27 ár í Pú- ertó Ríkó. Saman fór ég með þeim Bögga og Sigrúnu konu hans í ferð um Púertó Ríkó. Böggi var rómantískur ævin- týramaður – hér var staðurinn! Hér vildi hann verða listmálari og hingað flutti hann. Sigrún flutti til Íslands þegar hún frétti um veikindi móður sinnar. Böggi beið eftir að hún kæmi til baka og Sigrún beið eftir að Böggi kæmi til Íslands. Þannig flosnaði hjónabandið upp. Böggi giftist aftur nunnu úr nálægu klaustri. Nilda, síðari kona hans, erfði stóra landareign og þar reisti bróðir minn draumahúsið sitt, einn og sjálfur. Ætlaði að fylla húsið af málverkum og tónlist og heilla þangað ferðamenn og landa sína. Böggi var einstakur frístundamálari. Málverkin hans voru mjög falleg og á hljóðfæri spilaði hann þótt hann hefði aldr- ei lært nótur. Smíðaverkstæði setti hann upp og smíðaði inn- réttingar í hótel á ströndinni og íslensku rokkarnir hans voru mjög vinsælir. Í fjallinu bak við húsið ræktaði hann vínvið og kaffi. Böggi skilur eftir sig tvær dætur, Huldu og Lindu, og þrjá myndarlega syni þeirra. Í endurminningunni lifna myndir frá æskuárunum á Fá- skrúðsfirði. Þar ólumst við upp saman. Þeir eltu mig tveir, bróð- ir minn og frændi Björgvin Bald- ursson. Þeir voru á líkum aldri og miklir vinir. Með þá fór ég upp í fjall og niður í fjöru. „Þarna fer Obba með litla og stóra,“ sögðu þorpsbúar. Falleg- ar og dýrmætar myndir, elsku Böggi. Þakka þér fyrir tímann okkar saman. Samúðarkveðjur til Lindu og Huldu og afadrengjanna. Oddný Sv. Björgvinsdóttir (Obba frá Ási). ✝ Jón Grímsson fæddist á Ísa- firði 21. sept- ember 1954. Hann lést á heimili dótt- ur sinnar í Seattle í Bandaríkjunum 10. október 2021. Foreldrar hans voru hjónin Grím- ur Jónsson, loft- skeytamaður og flugumsjónarmað- ur á Ísafirði, f. 6.6. 1927, d. 16.5. 1999, og Jó- hanna Bárðardóttir húsmóðir, f. 16.5. 1924 í Bolungarvík, d. 22.1. 2004. Jón var fjórði í röð sjö barna þeirra hjóna. Systkini Jóns eru Rúnar Þröstur, f. 15.6. 1949, Sig- urður, f. 20.3. 1951, stúlka, f. 27.9. 1952, d. 30.9. 1952, Sig- rún, f. 13.11. 1955, Ása, f. 12.6. 1957, og Bárður Jón, f. 18.12. 1958. Jón kvæntist Lindu Ann Grímsson 15. júlí 1980, þau skildu árið 2010. Dætur þeirra eru Jóhanna Jenie Jónsdóttir McCarthy, f. 8.9. 1981, og Leah Katrín Jóns- dóttir, f. 2.6. 1983. Jóhanna er gift Brannon McCarthy, f. 2.8. 1981, börn þeirra eru Lilja Breeze, f. 6.8. 2012, Johnny David, f. 30.4. 2014, Ari Thomas, f. 12.5. 2016, Bodi Tyler, f. 22.4. 2018, og Freja Spring, f 23.4. 2020. Börn Leuh eru Jon Ri- ver og Sunneva Maple, f. 30.10. 2021. Jón byrjaði ungur að vinna ýmis störf á Ísafirði, m.a. við skipasmíðar, vörubílaakstur, trésmíðar og málningarvinnu. Jón starfaði árið 1972 við virkjunarframkvæmdir í Mjólká og árið 1974 sem vörubílstjóri á Tatra-trukkum í Sigölduvirkjun. Ári síðar réð hann sig á togarann Pál Pálsson og starfaði þar sem netamaður og bátsmaður. Jón var formaður Sjó- mannafélags Ís- firðinga frá 1976 til 1978. Jón var mikill ævintýramaður og byrjaði ungur að ferðast um heiminn. Hann ferðaðist til Ísr- aels þar sem hann starfaði um tíma á samyrkjubúi. Jón keypti segl- skútuna Bonný ásamt æsku- vinum sínum frá Ísafirði á Suður-Englandi árið 1976 og sigldu þeir henni til Íslands og víðar. Jón fluttist búferl- um til Bandaríkjanna árið 1979, þar sem hann starfaði fyrstu árin sem sjómaður á fiskiskipum í San Francisco. Hann fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Seattle í Washington árið 1986, þar sem hann hóf störf sem útgerðarmaður og skipstjóri á eigin skipi. Jón rak útgerðina til ársins 1999 í samstarfi við félaga sinn en þeir stunduðu fiskveiðar við Alaska. Fljótlega eftir að Jón seldi útgerð sína hóf hann störf hjá Porter const- ructions. Jón hafði umsjón með byggingarframkvæmdum og starfaði víða um Bandarík- in á vegum fyrirtækisins. Eft- ir nokkurra ára hlé frá sjó- mennsku keypti Jón sér seglbátinn og snekkjuna Kvöldúlf, sem hann sigldi meðal annars til Bresku Kól- umbíu í Kanada til að njóta náttúrufegurðarinnar með vinum og fjölskyldu. Hann lét siglingar ekki duga heldur keypti sér flugvél sem hann flaug á um víðáttur Banda- ríkjanna, bæði vegna starfs síns og sér til skemmtunar. Jón starfaði og bjó lengst af í Seattle. Bálför Jóns fór fram í New Tacoma Crematory 21. október 2021. Uppeldisvinur minn og sálu- félagi, Jón Grímsson, lést á heimili dóttur sinnar í Seattle sunnudaginn 10. október sl. Hann var fæddur 21. september 1954. Nonni átti tvær dætur, Jó- hönnu og Leu, og sex barna- börn. Líf mitt hefði orðið innihalds- minna ef leiðir okkar Nonna hefðu ekki legið saman. Alltaf að basla við að verða ríkir og meðal annars sem unglingar af útgerð sem ekki gekk og af hagkvæm- isástæðum var rekin í nágrenni við slippinn hans Eggerts á Torfnesi. Gott að fá lánuð verk- færi á kvöldin, sem alltaf var skilað, en fór ekki vel í eigand- ann, sem sá bestu leiðina til leysa málið að ráða Nonna í vinnu. Nonni var alltaf ham- hleypa til verka og eins og venjulega var hann búinn að eignast alla karlana sem bestu vini, Kitta Gau, Óla, Simba og Hávarð, fyrir nú utan Eggert sjálfan sem sá ekki sólina fyrir Nonna. Nítján ára gamlir fórum við á Kibbuts Sharmir í Ísrael og dvöldum þar í um hálft ár við að tína ávexti og vinna á bómull- arakri. Aftur héldum við á sömu mið 1974 eftir að hafa ekið frá Þýskalandi til Aþenu og þaðan til Ísraels. Næsta ævintýri okk- ar voru kaup á skútu í Bretlandi árið 1976 sem við sigldum síðan heim til Ísafjarðar. Nonni fór þá á togara þar sem hann vann sig hratt upp og var fljótur að til- einka sér störfin um borð. Ekki nóg með það heldur var hann orðinn formaður í sjómannfélag- inu. Þá gerist það árið 1979 að vinstri menn komast til valda, hann flýr land og sest að í San Francisco á vesturströnd BNA. Þar vann hann við sjómennsku af miklum dugnaði og harð- drægni, vann meðal annars við stórhættulegar og erfiðar krabbaveiðar við Alaska. Hann gerði út togara í San Francisco sem sökk í slæmu veðri. Góður vinur hans fórst með honum sem Nonni tók mjög nærri sér. Eftir þetta flutti hann til Seattle þar sem hann keypti togara og gerði út næstu árin. Þegar því lauk réð hann sig í byggingarvinnu sem hann stundaði til dauðadags. Nonni átti flugvél um tíma og síðar keypti hann sér 20 metra mót- orsiglara, sem hann skýrði Kveldúlf. Það gustaði ávallt af Nonna og stundum erfitt að komast að við samræður. Hann var hrókur alls fagnaðar, sópaði að sér fólki og ekki laust við að maður öfundaði hann af þeim eiginleika. En allir hafa sinn djöful að draga. Nonni átti slæman fé- lagskap við Bakkus um tíma en sleit þeim vinskap einn daginn. Dóttir hans Johanna og Brandon eiga fimm börn sem heita öll íslenskum nöfnum, Lilja, Jón, Ari Tómas, Boði og Freyja. Nonna var mikið í mun að þau fengju öll íslenskt vega- bréf og kom ófáar ferðirnar heim til Íslands með fjölskyld- una vegna þessa. Hann naut afahlutverksins í botn og fékk það margendurgoldið frá litlu Íslendingunum sínum sem öll dáðu afa sinn. Ekki var hægt að heyra á mæli Nonna að hann hefði búið í BNA í rúm 40 ár. Sem ungir menn og fóstbræð- ur lofuðum við hvor öðrum að skýra fyrsta soninn í höfuðið á hvor öðrum, ég stóð við mitt og á minn Nonna, en vinur minn komst undan með því að eiga tvær dætur. Það er skarð fyrir skildi að missa Nonna. Við Stína vottum fjölskyldu hans dýpstu samúð. Gunnar Þórðarson. Jón Grímsson Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Kynning á vinnslutillögu á aðalskipulagi 2020-2032 Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að skipulagstillaga Aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagstillagan samanstendur af forsenduhefti og umhverfisskýrslu, greinargerð, skipulagsuppdrætti fyrir þéttbýlin Krossland og Melahverfi og sveitarfélagsuppdrætti. Vegna Covid takmarkana verður ekki um einn íbúa- fund að ræða en kynning verður á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hvalfjardarsveit.is auk þess sem opið hús verður í stjórnsýsluhúsinu, Innrimel 3, Melahverfi, þar sem tillagan er til sýnis. Opið hús verður fimmtudaginn 25. nóvember nk., föstudag- inn 26. nóvember nk. og mánudaginn 29. nóvember nk., frá kl. 15:00-18:00 alla dagana. Þar gefst íbúum færi á að hitta skipulags- og umhverfisfulltrúa sveitarfélagsins og formann umhverfis-, skipulags- og náttúruverndarnefndar auk þess sem skipulags- ráðgjafi frá Eflu verður á staðnum mánudaginn 29. nóvember nk. Fylgja skal gildandi takmörkunum varðandi Covid-19, s.s. með grímunotkun og fjölda gesta hverju sinni. Skipulagsgögn eru aðgengileg á heimasíðu sveitar- félagsins, www.hvalfjardarsveit.is Kynningarmyndband á vinnslutillögunni með leiðbeiningum og skýringum mun birtast á heima- síðu sveitarfélagsins mánudaginn 22. nóvember nk. og glærukynning þann 24. nóvember nk. Aðalskipulagið er enn á vinnslustigi, en nú gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir áður en tillagan fer í formlegt auglýsingaferli. Frestur til að skila inn ábendingum og athuga- semdum rennur út mánudaginn 6. desember nk. og skal þeim skilað skriflega á netfangið adalskipulag@hvalfjardarsveit.is eða með bréfpósti stílað á Boga Kristinsson Magnusen skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranesi. Bogi Kristinsson Magnusen Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar Félagsstarf eldri borgara Félagsstarf eldri borgara Vantar þig fagmann? FINNA.is Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Heitt á könn- unni, notalegt morgunspjall kl. 10. Söngstund með Helgu Gunnars kl. 13.45. Bókaspjall kl. 15, rithöfundurinn Halldór Svavarsson kemur og les upp úr bók sinni Strand Jamestown. Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja Kyrrðar og fyrirbænarstund hvern miðvikudag kl. 12. Hádegisverður gegn vægu verði í safnaðarheimii kirkjunnar kl. 12.30- 13. Opið hús fullorðinsstarfs kl. 13-15.30. Boðið er upp á létta leikfimi og ýmislegt annað á þessum samverustundum. Nánari upplýsingar á heimasíðu kirkjunnar www. arbaejarkirkja.is Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Félagsráðsfundur kl. 11. Bónus- bíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Leikfimi Qi-gong kl. 10.30. Handavinnustofa opin frá kl. 13-15. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Breiðholtskirkja Félagsstarf eldri borgara ,,Maður er manns gaman" er kl. 13:15. Byrjum stundina kl. 12 með kyrrðar- og fyrirbænastund og eftir hana er súpa og brauð. Í lok eldri borgara starfinu er svo kaffi og meðlæti. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Opið hús á í dag miðvikudag frá kl. 13-16, kaffið á sínum stað, spil og handavinna. Við gætum að sóttvörnum og eigum gott samfélag saman. Hlökkum til að sjá ykkur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9.45-10. Ljóðahópur Soffíu kl. 10-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Heimaleikfimi á RUV kl. 13-13.10. Kapl- ar og spil kl. 13.30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Skák í Jónshúsi kl. 10.30. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Brids og tvímenningur í Jónshúsi kl. 12.30–15.30. Stólajóga kl. 11 í Kirkjuhvoli. Gler kl. 13 í Smiðju Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15 / 15.40 og 16.20. Zumba Gold kl. 16.30. Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 10 til 11.15 botsía, opinn tími. Kl. 12-14.30 postulínsmálun á verkstæði. Kl. 13-15 bingó í aðalsal. Kl. 16-18 námskeið, Nafnlausi leikhópurinn. Gullsmári 13 Myndlist kl. 9. Botsía kl.10. Postulínsmálun kl. 13. Kvennabrids kl. 13. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli kl. 9-11. Ganga með Evu kl. 10-11, allir velkomnir. Útskurður með leið- beinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið. Hraunsel Billjard kl. 8 -16. Stóla-jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinna, opin vinnu- stofa kl. 13-16. Brids kl. 13. Styttri ganga kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu kl. 9 í Borgum, þátttöku- skráning. Leikfimi kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópar kl. 10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll, mismunandi styrkleikar og kaffispjall á eftir. Keila í Egilshöll kl. 10, allir velkomnir. Félagsfundur Korpúlfa sem vera átti í dag fellur niður vegna fjöldatakmarkana, en opið fyrir kaffi- veitingar kl. 14.30-15.30 í dag og Qi-gong með Þóru kl. 16.30. veitingar kl. 14.30-15.30 í dag og Qi-gong með Þóru kl. 16.30. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun í handavinnu- stofu 2. hæðar kl. 9-12. Bókband er í smiðju 1. hæðar kl. 9-12:30 og aftur kl. 13-16:30. Þá verður píla í setustofu kl. 10.30-11. Myndlist verður í handavinnustofu 2. hæðar kl. 13-16. Að endingu er dans og söngur með Vitatorgsbandinu kl. 14-15. Hlökkum til að sjá ykkur á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Leir á Skólabraut kl. 9. Botsía á Skólabraut kl. 10. Billjard í Selinu kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Á morgun, fimmtudag, verður jólahlaðborð í Kríunesi. Farið með rútu frá Skólabraut kl. 18.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.