Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Bækur NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir kl. 16 mánudaginn 29. nóvember SÉRBLAÐ Í blaðinu verður umfjöllun um nýjar bækur, rætt við rithöfunda og birtir kaflar úr fræðiritum og ævisögum. –– Meira fyrir lesendur fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 3. desember fyrir jólin 85 ÁRA Sigurður Egill Þorvalds- son lýtalæknir fæddist 24.11. 1936 í Reykjavík. „Að loknu 4. bekkjar prófi í Verzló bauð Jón Gíslason skólastjóri mér sumarstarf hjá skó- versluninni Hvannbergsbræðrum og þar hitti ég Jónu Þorleifsdóttur, sem einnig var í Verzló, og felldum við hugi saman og giftum okkur og eig- um þrjú börn: Ingibjörgu ensku- kennara í MH, Þorvald Egil raf- magnsverkfræðing og Sturlu Þór viðskiptafræðing í Osló. Eftir stúdentsprófið 1956 fór út- skriftarhópurinn í ferðalag til Evr- ópu og Sigurður heillaðist af Frakk- landi og var sumarlangt við vinnu á bóndabæ og fór síðan í frönskunám í París. „Ég lauk svo BA-prófi í frönsku 2019 frá Háskóla Íslands eftir starfslok.“ Á Íslandi fór Sigurður í læknisfræði og lauk læknaprófi 1964 og fékk skömmu síðar styrk til að fara til náms við Mayo Clinic í Rochester og lauk þar námi í almennum skurðlækningum 1970 og MS-prófi frá Uni- versity of Minnesota. „Síðan nam ég lýtalækningar við University of Michigan í Ann Arbor.“ Alls var hann 14 ár í Bandaríkjunum við nám og störf og síðustu 4 árin hjá Kaiser Permanente í San Diego í Kaliforníu. „Ég starfaði sem almennur skurðlæknir og lýtalæknir á Landakoti, Borgarspítala og síðan sameinuðum Landspítala og Borgarspítala, í hlutastarfi og rak skurðstofu og eigin stofu ásamt úrvalsmönnum við Læknastöðina í Glæsibæ og hætti þegar ég varð 77 ára.“ Sigurður hefur verið virkur í félagsmálum og verið m.a. formaður í Skurðlæknafélagi Íslands, Lýtalæknafélagi Íslands og Öldungadeild Læknafélags Íslands. Helsta áhugamál hans er skíðaferðir. „Valdimar Örnólfsson kom okkur nokkrum á skíði í Kerlingarfjöllum og við höfum haldið hópinn og þar urðu synir okkar, Þorvaldur og Sturla, skíðakenn- arar og deila nú áhuganum með fjölskyldum sínum. Svo hef ég dundað við það undanfarin ár að kynna mér líf og störf Alberts Thorvaldsens og sett saman nokkra fyrirlestra um hann og ætla að fagna 85 ára afmæli mínu í Kaupmannahöfn.“ Sigurður Egill Þorvaldsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Hjartað slær hraðar þegar þú hugsar um manneskju sem þú hittir fyrir stuttu. Leggðu áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í kringum þig eru. 20. apríl - 20. maí + Naut Þegar um sameiginleg mál er að ræða þýðir ekkert fyrir þig að ætla að stjórna öllu. Þér eru allir vegir færir. Teldu upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er sjálfsagður hlutur að að- stoða aðra, ef þig langar til þess. Einhver gerir óhóflegar kröfur til þín, láttu í þér heyra. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Losaðu þig við sektarkenndina út af því, sem liðið er. Notaðu kvöldið fyrir sjálfa/n þig. Reyndu að hafa áhrif þar sem þú veist að hlustað er á þig. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ástin nær fram bæði því besta og því versta í þér núna. Öll spjót beinast að þér, nú þarftu að standa fyrir máli þínu. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Láttu ekki eigin vangaveltur draga athygli þína um of frá verkefnum dagsins. Jákvætt viðhorf þitt til lífsins heillar þá sem eru í kringum þig. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú þarft að gæta þess að týna þér ekki í smáatriðunum í dag. Allt er breyt- ingum undirorpið. Þú hittir á snöggan blett á vini. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Einhver þér náinn virðist á suðupunkti. Forðaðu þér í tíma. Þér vefst tunga um tönn í kvöld. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú horfir til vina þinna sem eru að ganga í gegnum það sama og þú hefur reynt. Heilbrigð skoðanaskipti eru af hinu góða og sá er vinur sem til vamms segir. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þótt gott sé að vera umkringdur jábræðrum, er það fyrst og fremst jákvæð gagnrýni, sem kemur hlutunum á hreyf- ingu. Ekki hreyfa þig spönn frá rassi í kvöld. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Ástamál munu setja svip sinn á næsta mánuðinn hjá þér. Sláðu striki yfir löng liðinn atburð og horfðu til framtíðar. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Sá sem þú síst áttir von á skýtur nú upp kollinum og réttir fram sáttarhönd. Einhver horfir á þig með stjörnur í aug- unum. kennt námskeið í menningarfræði, bókmenntafræði, fjölmiðlafræði og fjölmiðlarétti. Þá hefur Elfa skrifað ýmsar fræðigreinar og haldið fyr- irlestra bæði hér á landi og erlendis. Einnig hefur hún stýrt umræðum á erlendum ráðstefnum og málþingum um málefni tengd fjölmiðlum og sam- félagsmiðlum. Þá var hún kosin for- maður stýrinefndar Evrópuráðsins um fjölmiðla og nýja miðla og gegndi þeirri formennsku árin 2016-2017. Elfa dvaldi með fjölskyldu sinni í Münster í Þýskalandi árin 2016-2017. „Maðurinn minn er prófessor við lagadeild HÍ og var í rannsóknarleyfi setja á laggirnar nýja nefnd innan stjórnsýslunnar“ segir Elfa. „Mennt- un mín og starfsreynsla gerði það að verkum að ég gat litið til þess hvernig slíkar stofnanir eru starfsræktar á Norðurlöndunum, sem var mjög mik- ilvægt, því lög hér á landi eru keimlík fjölmiðlalögum í hinum norrænu ríkj- unum. Við vorum reyndar síðasta rík- ið í Evrópu til að setja á laggirnar sjálfstæða fjölmiðlanefnd þannig að okkur var vel fagnað í norrænu og evrópsku samstarfi um fjölmiðlamál, þegar nefndin tók til starfa á Íslandi.“ Elfa hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands í rúm tuttugu ár og E lfa Ýr Gylfadóttir fædd- ist í Reykjavík 24. nóv- ember 1971 en ólst upp í Stokkhólmi til 11 ára aldurs. Hún gékk í Bergshamra-skólann og síðan í Há- teigsskóla þegar hún flutti til Íslands. „Það var mikil lífsreynsla að alast upp í Stokkhólmi á þessum árum og flytja síðan úr stórborginni til Reykjavíkur. Ég ólst upp í nokkuð hippalegu stúdendahverfi sem var ansi alþjóðlegt en Reykjavík var frek- ar einsleit borg á þeim tíma“. Á sumr- in dvaldist Elfa oft á Akureyri hjá afa sínum og ömmu í Helgamagrastræti. Móðir Elfu og tveir bræður búa enn þá í Stokkhólmi og lítur hún á borg- ina sem sína aðra heimaborg. Elfa varð stúdent frá Verzlunar- skóla Íslands árið 1991 og lauk síðan námi í bókmenntafræði við HÍ árið 1994. Elfa tók síðan diplóma í blaða- og fréttamennsku frá sama skóla áð- ur en hún fór í meistaranám í fjöl- miðlafræði við University of Kent í Canterbury sem hún lauk árið 1996. Þá var hún gestafræðimaður við Duke-háskóla í Norður-Karólínu vet- urinn 1996-1997 og lauk síðan annarri meistargráðu í fjölmiðla- og fjar- skiptafræðum frá Georgetown Uni- versity í Washington DC árið 2000. Árið 2004 var Elfa ráðin ritari nefndar menntamálaráðherra um ís- lenska fjölmiðla sem Karl Axelsson, nú hæstaréttardómari, var formaður í. Starfið markaði ákveðin tímamót því í kjölfarið hófst starfsferill hennar í stjórnsýslunni. Að loknum störfum fyrir nefndina hóf Elfa störf sem deildarstjóri fjölmiðlamála í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem hún vann m.a. að samningu frumvarps til laga um fjölmiðla, laga um Ríkisútvarpið og að fyrsta þjón- ustusamningi RÚV. Elfa dvaldi með fjölskyldu sinni í Stokkhólmi veturinn 2009-2010 og starfaði í fjölmiðladeild sænska menningarmálaráðuneytisins og í sænsku fjölmiðlastofnuninni í Stokkhólmi í norrænum starfs- mannaskiptum. Þegar fjölmiðlanefnd var svo kom- ið á fót með lögum árið 2011 var Elfa ráðin framkvæmdastjóri nefnd- arinnar þar sem hún starfar enn. „Það var afar mikilvæg reynsla að þennan vetur og börnin voru í þýsk- um skóla. Ég notaði jafnframt tæki- færið og sökkti mér í löggjöf og stefnumótun um fjölmiðla í Þýska- landi meðan á dvölinni stóð. Það er svo áhugavert hvernig fjölmiðlaum- hverfið var byggt upp í Þýskalandi eftir að fjölmiðlar höfðu verið misnot- aðir í pólitískum áróðurstilgangi á tímum þriðja ríkisins. Ég heimsótti einnig nokkur þeirra 14 fjölmiðlaeft- irlita sem starfrækt eru í sambands- ríkjum Þýskalands til að kynna mér hvernig starfsemi þeirra fer fram. Einnig notaði ég tækifærið og heim- sótti nokkra þýska fjölmiðla eins og Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar – 50 ára Vinkonurnar Í stað afmælisgjafa var ákveðið að hafa skemmtilega viðburði á afmælisdögum vinkvennanna. Mikilvægi fjölmiðla og æðruleysis Hjónin Ferðalag í Dimmuborgum. Fjölskyldan Elfa Ýr og Eyvindur með börn sín, Elísu Aðalheiði og Elías Muna á milli sín og hundurinn Nala. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.