Morgunblaðið - 24.11.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 24.11.2021, Síða 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T 94% SÍÐASTI SÉNS AÐ SJÁ ÞESSA STÓRMYND Í BÍÓ SÝND Á STÆRSTA TJALDI LANDSINS Í EGILSHÖLLINNI Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG KL. 20:00 Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali B róðirinn er fyrsta bókin af fjórum í bókaflokknum Álfheimar eftir Ármann Jakobsson. Hún stendur tæplega ein og sér og það er aug- ljóslega gert ráð fyrir því að lesand- inn haldi áfram og lesi hinar þrjár bækurnar, enda ævintýrið rétt að byrja þegar bókinni lýkur og lesand- inn er svolítið skilinn eftir í lausu lofti. Bókin segir frá Pétri sem er ný- fluttur heim frá París til að hefja nám í menntaskóla og fær að búa hjá gamalli frænku sinni. Hann kynnist fljótlega Soffíu og Konáli sem eru með honum í bekk og nokkru síðar tekst einnig vin- skapur með honum og hinni dularfullu Dag- nýju sem býr í sömu götu og hann. Hún er sannfærð um til- vist álfa og þótt Pétur efist í fyrstu þá bendir mjög margt til að Dagný hafi rétt fyrir sér. Til að fá svör við spurningum sínum verða þau að komast til Álfheima og þar kemur ýmislegt óvænt í ljós. Persónusköpunin í bókinni er þokkaleg framan af og lesandinn fyllist samkennd með Pétri sem átti erfiða æsku vegna eineltis, en gleðst jafnframt fyrir hans hönd þar sem hann eignast fljótt góða vini í menntaskólanum. Soffía, Konáll og Dagný eru öll sterkir og áhugaverðir karakterar og minna okkur á að fólk er alls konar og andstæður laðast oft hvor að annarri. Þegar kemur að öðrum persónum bókarinnar; Sæ- unni frænku og nágrönnunum, svo ég tali nú ekki um álfana, þá fatast Ármanni flugið og þær verða hálf- tilgerðarlegar, jafnvel kjánalegar. Eins og bókin lofar góðu í byrjun og söguþráðurinn byggist ágætlega upp, þá varð fléttan yfir í Álfheima töluverð vonbrigði. Í þessari fyrstu bók nær hann allavega ekki að skapa þennan ævintýraheim sem þarf til að fanga lesandann og fylla hann óstjórnlegri þörf til að halda áfram að lesa og komast að örlögum sögu- persónanna. Ég átta mig heldur ekki alveg á því hver markhópur bókarinnar er. Hún er eiginlega of þung fyrir 10 til 14 ára börn og unglinga, meðal ann- ars hvað viðkemur málfari og orða- notkun. Samt er ólíklegt að sagan sem slík höfði til eldri hóps, þrátt fyrir að sögupersónurnar séu á fyrsta ári í framhaldsskóla. Álfahugmyndin er augljóslega út- pæld og eflaust liggur mikil rann- sóknarvinna þar að baki, en það nær því miður ekki að skila sér í áhuga- verðu ævintýri. Lesandi í lausu lofti Morgunblaðið/Hari Ármann Jakobsson „Ævintýrið [er] rétt að byrja þegar bókinni lýkur og lesandinn er svolítið skilinn eftir í lausu lofti,“ segir rýnir um söguna. Ungmennabók Álfheimar – Bróðirinn bbbnn Eftir Ármann Jakobsson. Angústúra 2021, Innbundin, 205 bls. SÓLRÚN LILJA RAGNARSDÓTTIR BÆKUR Einn af tónlistargagnrýnendum dagblaðsins The Guardian fer fögrum orðum um tónleika Daða Freys sem haldnir voru í Trinity Center í Bristol um helgina. Segir í fyrirsögn að eurovision-stjarnan Daði hafi boðið upp á „fágaðan kjánaskap“ á tónleikum þar sem hann blandaði saman poppi og leikrænum tilburðum. Segir réttilega í fjögurra stjarna gagnrýninni að Daði hafi slegið í gegn með eurovision-lagi sínu og Gagnamagnsins, „Think About Things“, og hópurinn heill- að alla með danssporum sínum og framkomu. Á tónleikunum hafi Daði leikið sér að diskói, poppi og fáguðum lagakrækjum, klæddur í gríðarstóran og hvítan stutt- ermabol. Þá hafi hann líka slegið á létta strengi og sagt mjög marga brandara og þá oft á eigin kostnað. „Fágaður kjánaskapur“ í Daða Morgunblaðið/Eggert Fjör Daði Freyr og Gagnamagnið í Söngvakeppninni á sviði í fyrra. Hið þekkta bandaríska ljóðskáld og þýðandi Robert Bly er látinn, 94 ára að aldri. Hann sendi á langri starfsævi frá sér fjölda vinsælla ljóðabóka, stundum í samstarfi við önnur skáld, og þótti hafa tekið þátt í að endurnýja bandaríska ljóð- list á seinni hluta 20. aldar en ljóð- heiminn sótti hann gjarnan í nátt- úruna og líf fólks í dreifbýli. Hann ritstýrði líka bókmenntatímaritum og var öflugur þýðandi, einkum norrænna ljóða og skáldsagna en foreldrar hans voru bændur í Minnesota, innflytjendur frá Nor- egi. Meðal skálda sem Bly kynnti bandarískum lesendum má nefna Tomas Tranströmer og Olav H. Hauge en einnig þýddi hann til að mynda Sult eftir Knut Hamsun. Þekktasta bók Roberts Blys, og jafnframt sú umdeildasta, er ekki ljóðabók heldur Iron John – A Book About Men (1990) þar sem hann fjallaði um þá skoðun sína að karl- menn í heimalandi hans hefðu í seinni tíð orðið mjúkir og kven- legir. Bókin var í 62 vikur á met- sölulista The New York Times. Hann sendi einig frá sér greinasöfn þar sem hann fjallaði um bók- menntir en einnig samfélagsleg málefni en meðan á Víetnamstríð- inu stóð stofnaði Bly samtök rithöf- unda sem börðust gegn því. Bly hafði oft viðkomu á Íslandi og hélt til að mynda námskeið í skáldskap í Vesturfarasetrinu á Hofsósi árið 2002. Skáldið og þýðandinn Robert Bly allur Skáld Robert Bly naut mikillar virðingar í heimi ljóðsins og skrifaði yfir 50 bækur. Bandaríski leik- arinn Kevin Spacey var í fyrradag dæmd- ur til þess greiða 30 milljónir doll- ara, jafnvirði um fjögurra millj- arða króna, í skaðabætur fyrir brot á samningi við framleiðslufyrirtæki þáttanna House of Cards. Komst dómstóll að þeirri niðurstöðu að með kynferðis- brotum sínum hefði Spacey brotið gegn ákvæði um fagmannlega hegðun, að því er fram kemur í frétt á vef The Guardian. Spacey fór með burðarhlutverk í þáttunum og var rekinn eftir að upp komst um brot hans gagnvart nokkrum starfsmönnum við þættina en alls lék hann í fimm þáttaröðum og var einn af meðframleiðendum þátt- anna að auki. Spacey gert að greiða 30 milljónir fyrir samningsbrot Kevin Spacey

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.