Morgunblaðið - 24.11.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 24.11.2021, Síða 28
Fyrstu tónleikar vetrarins í röðinni Klassík í Vatnsmýr- inni fara fram í Norræna húsinu í kvöld kl. 20 og bera yfirskriftina Brúnaljós þín blíðu. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja sönglög fyrir rödd og gítar eftir tón- skáldin Schubert, Brahms og Kaldalóns. Tónleikarnir eru haldnir af FÍT, klassískri deild FÍH, í samvinnu við Norræna húsið í Reykjavík og eru styrktir af tónlistarsjóði og borgarsjóði. Sönglög fyrir rödd og gítar eftir Schubert, Brahms og Kaldalóns Júlíus Freyr hefur starfað með og fyrir Leikfélag Keflavíkur í áratugi og var aðeins 18 ára þegar hann samdi fyrsta söngleik sinn, „Er til- gangur?“ Þá var hann í hljómsveit- inni Pandora, sem gerði tónlistina í verkinu. „Það var mikið að gerast á þessum tíma og þessi fyrsti söng- leikur minn var mikið afrek.“ Kórónuveirufaraldurinn hefur sett stórt strik í reikninginn hjá Júlíusi Frey og félögum í Deep Jimi and the Zep Creams. Hann segir að hefði ekkert í skorist væru félagarnir búnir að fara til útlanda til þess að taka upp plötu og fylgja henni eftir, og að því leyti sé staðan frekar erfið um þessar mundir. „En ég er alltaf með gítarinn að búa til músík,“ bendir hann á og vísar meðal annars til þess að hann hafi gefið út nokkur lög undir lista- mannsnafninu Julius & Julia á liðnu ári, þótt það hafi ekki farið hátt. „Ég er svo sem ekki fyrir það að trana mér fram,“ segir hann hógvær, en getur þess í framhjáhaldi að þeir bræður komi reglulega fram og spili lög föður síns. Auk þess hafi Bjart- mar og Bergrisarnir sent frá sér tvö lög á liðnu ári og séu að vinna að plötu. „Ef lög eru bara gefin út á raf- rænu formi er hætta á að þau verði ekki til eftir 20 ár og því þarf að gefa þau út í föstu formi.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Júlíus Freyr Guðmundsson er nýr handhafi Súlunnar, menningar- verðlauna Reykjanesbæjar. „Þetta er ágætisviðurkenning á því sem ég hef verið að gera,“ segir Júlíus Freyr, sem hefur lagt mikið af mörkum til tónlistar og leiklistar í bænum og eru verðlaunin, sem hann fékk afhent um helgina, viðurkenning á því starfi. Hljómsveitin Deep Jimi and the Zep Creams vakti mikla athygli fyrir um þremur áratugum, þegar hún gerði plötusamning við East West, dótturfyrirtæki Warner Brothers í Bandaríkjunum. Hún er enn á fullu skriði og gefur ekkert eftir. „Við er- um að vinna að nýrri plötu,“ segir Júlíus Freyr, sem vinnur annars við eigið hugbúnaðarfyrirtæki og sinnir listinni til hliðar við dagvinnuna. Hann er auk þess í bandinu Berg- risunum og hefur enn fremur gefið út efni undir nafninu Gálan. „Listin hef- ur alltaf skipað stóran sess í mínu lífi og gerir það áfram,“ leggur hann áherslu á. Með marga bolta á lofti Guðmundur Rúnar Júlíusson og María Baldursdóttir, foreldrar Júl- íusar Freys, voru þekkt á tónlistar- sviðinu og hann hefur ekki síður getið sér gott orð á þeim vettvangi, hvort sem er í hljómsveitum, upptökum og hljóðritunum fyrir sig og aðra eða tengdum verkefnum eins og tónlist- arverkefnum vegna söngleikja, revía og leikrita. Bræðurnir Júlíus Freyr og Baldur ásamt móður þeirra og fjölskyldum reka hljóðverið Geim- stein og fyrir rúmum áratug opnuðu þau Rokkheima, safn um Rúnar heit- inn. „Eftir að Hljómahöllin varð til höf- um við ekki vakið sérstaklega athygli á Rokkheimum en safnið er samt á sínum stað og Geimsteinn er síðan safn út af fyrir sig.“ Áhuginn hefur drifið Júlíus Frey áfram og hann segir árangur Deep Jimi and the Zep Creams með því eft- irminnilegra á löngum ferli. „Við komumst á samning við stórfyrirtæki þegar við vorum rétt tvítugir og það var ákveðið afrek hjá ungum mönn- um að flytja út og upplifa drauminn.“ Plötuútgáfa mikilvæg - Júlíus Freyr Guðmundsson er nýr handhafi Súlunnar - Mörg verkefni í gangi og alltaf með gítarinn til taks Ljósmynd/Víkurfréttir Stolt hjón Júlíus Freyr Guðmundsson og Guðný Kristjánsdóttir eftir út- nefninguna. Verðlaunagripurinn er eftir Elísabetu Ásberg. ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 328. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Breytt eignarhald hjá enska knattspyrnufélaginu New- castle United vakti mikið umtal á dögunum enda yfir- völd í Sádi-Arabíu hinir nýju eigendur félagsins. Tíminn á eftir að leiða í ljós hversu miklum fjármunum verður velt inn í rekstur félagsins en eigendur geta verið stór- tækir á leikmannamarkaðnum ef þeir kæra sig um. »23 Eigendur Newcastle í litríkan hóp ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.