Morgunblaðið - 24.11.2021, Qupperneq 28
Fyrstu tónleikar vetrarins í röðinni Klassík í Vatnsmýr-
inni fara fram í Norræna húsinu í kvöld kl. 20 og bera
yfirskriftina Brúnaljós þín blíðu. Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui
gítarleikari flytja sönglög fyrir rödd og gítar eftir tón-
skáldin Schubert, Brahms og Kaldalóns.
Tónleikarnir eru haldnir af FÍT, klassískri deild FÍH, í
samvinnu við Norræna húsið í Reykjavík og eru styrktir
af tónlistarsjóði og borgarsjóði.
Sönglög fyrir rödd og gítar eftir
Schubert, Brahms og Kaldalóns
Júlíus Freyr hefur starfað með og
fyrir Leikfélag Keflavíkur í áratugi
og var aðeins 18 ára þegar hann
samdi fyrsta söngleik sinn, „Er til-
gangur?“ Þá var hann í hljómsveit-
inni Pandora, sem gerði tónlistina í
verkinu. „Það var mikið að gerast á
þessum tíma og þessi fyrsti söng-
leikur minn var mikið afrek.“
Kórónuveirufaraldurinn hefur sett
stórt strik í reikninginn hjá Júlíusi
Frey og félögum í Deep Jimi and the
Zep Creams. Hann segir að hefði
ekkert í skorist væru félagarnir búnir
að fara til útlanda til þess að taka upp
plötu og fylgja henni eftir, og að því
leyti sé staðan frekar erfið um þessar
mundir. „En ég er alltaf með gítarinn
að búa til músík,“ bendir hann á og
vísar meðal annars til þess að hann
hafi gefið út nokkur lög undir lista-
mannsnafninu Julius & Julia á liðnu
ári, þótt það hafi ekki farið hátt. „Ég
er svo sem ekki fyrir það að trana
mér fram,“ segir hann hógvær, en
getur þess í framhjáhaldi að þeir
bræður komi reglulega fram og spili
lög föður síns. Auk þess hafi Bjart-
mar og Bergrisarnir sent frá sér tvö
lög á liðnu ári og séu að vinna að
plötu. „Ef lög eru bara gefin út á raf-
rænu formi er hætta á að þau verði
ekki til eftir 20 ár og því þarf að gefa
þau út í föstu formi.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Júlíus Freyr Guðmundsson er nýr
handhafi Súlunnar, menningar-
verðlauna Reykjanesbæjar. „Þetta er
ágætisviðurkenning á því sem ég hef
verið að gera,“ segir Júlíus Freyr,
sem hefur lagt mikið af mörkum til
tónlistar og leiklistar í bænum og eru
verðlaunin, sem hann fékk afhent um
helgina, viðurkenning á því starfi.
Hljómsveitin Deep Jimi and the
Zep Creams vakti mikla athygli fyrir
um þremur áratugum, þegar hún
gerði plötusamning við East West,
dótturfyrirtæki Warner Brothers í
Bandaríkjunum. Hún er enn á fullu
skriði og gefur ekkert eftir. „Við er-
um að vinna að nýrri plötu,“ segir
Júlíus Freyr, sem vinnur annars við
eigið hugbúnaðarfyrirtæki og sinnir
listinni til hliðar við dagvinnuna.
Hann er auk þess í bandinu Berg-
risunum og hefur enn fremur gefið út
efni undir nafninu Gálan. „Listin hef-
ur alltaf skipað stóran sess í mínu lífi
og gerir það áfram,“ leggur hann
áherslu á.
Með marga bolta á lofti
Guðmundur Rúnar Júlíusson og
María Baldursdóttir, foreldrar Júl-
íusar Freys, voru þekkt á tónlistar-
sviðinu og hann hefur ekki síður getið
sér gott orð á þeim vettvangi, hvort
sem er í hljómsveitum, upptökum og
hljóðritunum fyrir sig og aðra eða
tengdum verkefnum eins og tónlist-
arverkefnum vegna söngleikja, revía
og leikrita. Bræðurnir Júlíus Freyr
og Baldur ásamt móður þeirra og
fjölskyldum reka hljóðverið Geim-
stein og fyrir rúmum áratug opnuðu
þau Rokkheima, safn um Rúnar heit-
inn.
„Eftir að Hljómahöllin varð til höf-
um við ekki vakið sérstaklega athygli
á Rokkheimum en safnið er samt á
sínum stað og Geimsteinn er síðan
safn út af fyrir sig.“
Áhuginn hefur drifið Júlíus Frey
áfram og hann segir árangur Deep
Jimi and the Zep Creams með því eft-
irminnilegra á löngum ferli. „Við
komumst á samning við stórfyrirtæki
þegar við vorum rétt tvítugir og það
var ákveðið afrek hjá ungum mönn-
um að flytja út og upplifa drauminn.“
Plötuútgáfa mikilvæg
- Júlíus Freyr Guðmundsson er nýr handhafi Súlunnar
- Mörg verkefni í gangi og alltaf með gítarinn til taks
Ljósmynd/Víkurfréttir
Stolt hjón Júlíus Freyr Guðmundsson og Guðný Kristjánsdóttir eftir út-
nefninguna. Verðlaunagripurinn er eftir Elísabetu Ásberg.
ÁR
1921-2021
Í Y
KKA
R ÞJÓNUSTU
10% afsláttur fyrir
67 ára og eldri
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 328. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Breytt eignarhald hjá enska knattspyrnufélaginu New-
castle United vakti mikið umtal á dögunum enda yfir-
völd í Sádi-Arabíu hinir nýju eigendur félagsins. Tíminn
á eftir að leiða í ljós hversu miklum fjármunum verður
velt inn í rekstur félagsins en eigendur geta verið stór-
tækir á leikmannamarkaðnum ef þeir kæra sig um. »23
Eigendur Newcastle í litríkan hóp
ÍÞRÓTTIR MENNING