Fréttablaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 8
Við vitum miklu meira en áður um hvað veldur vanlíðan. Sóley Tómas- dóttir, kynja- og fjölbreytileika- fræðingur Það er hægt – og eðlilegt að mínu mati – að segja „forsætis- ráðherrann er mjög snjöll“ en ekki „Katr- ín er snjöll forsætis- ráðherra“. Eiríkur Rögn- valdsson, pró- fessor emeritus í íslenskri mál- fræði Björn Þorláksson bth @frettabladid.is Hvenær segir maður maður og hvenær fólk? Eða ætti spurningin að vera: Hvenær segir fólk maður? Íslenskan byggir á karllægum stofni en krafa er um að hún láti af valdi sínu, þjóni öllum not- endum og útiloki engan. SAMFÉLAG „Nær öllu Sjálfstæðisfólki líst vel á ríkisstjórnina“. Þannig var fyrirsögn forsíðu- fréttar Fréttablaðsins 15. desember síðastliðinn. Fyrir nokkrum árum hefði fyrirsögnin án efa verið: „Nær öllum Sjálfstæðismönnum líst vel á ríkisstjórnina“. Hræringarnar miða að þeirri hugsun að jafna rétt manna á millum, fólks á millum, auka kyn- hlutleysi í íslenskri tungu. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, segir ýmsar sögulegar ástæður fyrir því að íslenskan sé karllægt tungumál. „Sem dæmi segjum við: Allir vel- komnir en ekki öll velkomin. Þetta má meðal annars rekja til indóevr- ópska tungumálsins þar sem ekki var til kvenkyn. Það var til eitthvað sem við getum kallað samkyn, for- vera karlkynsins. Síðan þróuðust kvenkynsmyndir,“ segir Eiríkur. Ýmis starfsheiti í íslenskunni enda á -maður. Flugmaður – sjó- maður. Það tengist að sögn Eiríks þeirri staðreynd að áður fyrr gegndu karlar fyrst og fremst viðkomandi störfum. Með öðrum orðum eru bæði málsögulegar og félagslegar aðstæður fyrir því að íslenskan er karllægt tungumál. Í kringum 1970 lögðu rauðsokkur hér á landi áherslu á að konur væru líka menn. Seinna, upp úr 1990, fóru sumar konur að leggja áherslu á sér- stöðu kvenna. Þær fóru fram á jafn- stöðu á móts við karla, vildu ekki ganga inn í karlaheiminn. Þá hefur mikil umræða orðið um kynsegin fólk og réttindi þess hóps. „Ég sé enga sérstaka hættu á að menningararfur tungumáls- ins okkar glatist þótt kröfur komi fram um aukið kynhlutleysi,“ segir Eiríkur. Snorri skrifaði um landsfólk Hann bendir á að sumir hafi hneykslast á orðum sem skotið hafi upp kollinum eins og „björgunar- fólk“ og „hestafólk“. „En þetta er ekki nýtt,“ segir hann. „Í Heims- kringlu talar Snorri Sturluson oftar um landsfólk en landsmenn. Ég sé ekki að það verði nein málspjöll þótt „maður“ falli út á sumum stöð- um í málnotkun og „fólk“ sé notað í staðinn.“ Enda tala fyrirsagnir fjölmiðlanna sínu máli. Þjóðin breytist smám saman úr mönnum í fólk. Enginn verði út undan Sóley Tómasdóttir, kynja- og fjöl- breytileikafræðingur, telur að eftir föngum eigi Íslendingar að reyna að temja sér að tala um fólk fremur en menn. Krafan um breytingar á íslenskri tungu snúist ekki endi- lega um að tungan verði kynhlut- laus, ekki fremur en að femínismi snúist um að við eigum öll að verða eins. Krafan byggi fremur á að við tölum til þess hóps sem um ræðir hverju sinni. Þannig hafi nýyrðið inngilding, þýðing á inclusion, rutt sér til rúms. „Við viljum vera „inklúsíf“ í um- ræðunni. Þá verðum við að gera ráð fyrir að fólki finnist að við séum að tala til þess,“ segir Sóley. Hún rifjar upp að þegar hún tók þátt í stjórnmálastarfi hafi enda- laust verið talað til hennar sem karls. „Jæja, strákar, hvað segiði? Eru allir með?“ Endalaust hafi verið talað um hópinn sem hún var í sem karlahóp. Það hafi ýtt undir þá hug- mynd að hún teldist ekki alvöru stjórnmálamanneskja. „Tungumálið er hluti af öllu hinu sem segir fólki hvort það tilheyri fólki eða ekki í samfélaginu.“ Sóley segir að við getum rætt hvort tungumálið eigi að vera heil- agt og óskert en íslensk tunga þróist af því að samfélagið þróist. „Við vitum miklu meira en áður um hvað veldur vanlíðan og jaðar- setningu. Eitt af því er karllægt tungumál. Og af því við vitum þetta, þá skiptir máli að við leggjum okkur fram um að laga það.“ Varðandi „menn“ og „fólk“ segir Sóley að ef manni sé skipt út fyrir fólk virðist sem útkoman verði misþjál. „Íþróttafólk“ þyki núorðið gott og gilt orð en önnur orð eins og þingfólk eða lögfólk eigi lengra í land. Skýringin gæti verið að sum þessara orða eigi sér karlsögulegri rætur en önnur. Eftir því sem konur verði meira áberandi í íþróttum sé auðveldara að tala um íþróttafólk. Erfiðara sé enn að tala um „lög- fólk“, sennilega vegna þess að ímynd stéttarinnar sé enn ansi karllæg í hugum fólks. „Við getum allt, þetta er ekki eins erfitt og f lókið og andstæðingar framfara vilja meina,“ segir Sóley. „Það er ótrúlega margt sem við höfum breytt í íslenskri tungu í tím- ans rás, helsta fyrirstaðan er íhalds- öf l, fólk sem þráast við og segir endalaust að konur séu líka menn. Ef við þyrftum ekki að eyða orkunni í að svara því endalaust gæfist meiri tími til jákvæðra umbreytinga.“ Ráðherrann er snjöll Ólíkar skoðanir eru meðal íslensku- fólks og máláhugamanna á hvort málfræðin eigi að taka mið af fornri tíð eða samtímanum. Eiríkur segir að í mæltu og skrifuðu máli sé nú meira hugað að merkingarlegu sam- ræmi á kostnað hins málfræðilega. Það finnist honum í góðu lagi. „En það skiptir máli hvernig setn- ingagerðin er. Það er hægt – og eðli- legt að mínu mati – að segja „forsæt- isráðherrann er mjög snjöll“ en ekki „Katrín er snjöll forsætisráðherra“.“ Auk karllægninnar eru dæmi um meiðandi orð sem nánast hefur kerfisbundið verið útrýmt, ekki síst í fjölmiðlum. „Kynvilla“ er eitt dæmi. Fyrir nokkrum árum varð umræða um hvort höfundi Reykja- víkurbréfs Morgunblaðsins væri stætt á að tala um „múlatta“. „Svona hræringar eru eðlilegar þegar alls kyns hópar sem áður voru undirokaðir eða faldir stíga fram og krefjast réttinda til jafns við aðra.“ Tungumál hvers tíma lýsi leynt eða ljóst einhvers konar innri valda- kerfum og viðhorfum. „Við sitjum uppi með gamlan orðaforða sem er í sjálfu sér gott, því hann viðheldur sögulegu samhengi málsins sem flestir telja æskilegt,“ segir Eiríkur. Íslenskan ekki í einkaeigu „En það sem skiptir líka máli er að tungumálið verður að þjóna mál- notendum á hverjum tíma. Ef mál- notendum finnst að tungumálið geri ekki ráð fyrir þeim, jaðarsetji eða útiloki hóp þeirra og bjóði ekki upp á að tala um þá nema með óvið- eigandi orðum, þá er það ekki gott. Það gengur ekki ef við erum svo upptekin af því að vernda tungu- málið sem menningararf að við gleymum að tungumálið þarf að þjóna málnotendum.“ Málnotendur þurfi að átta sig á að við eigum íslenskuna saman. „Enginn á einkarétt á íslensk- unni, hún þarf að þjóna okkur öllum.“ n Íslenska þjóðin að breytast úr mönnum í fólk Málnotendur þurfa að átta sig á að við eigum íslenskuna saman. Enginn á einkarétt á íslenskunni, segir Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emer- itus. Hræringar skekja tungu- málið og tengist það völdum og valdakerfum. Umburðarlyndi er sagt lykil- hugtak. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARISóley Tómasdóttir hefur upplifað hvernig tungumálinu var beitt til að sýna henni að hún væri ekki alvöru stjórnmálamanneskja. MYND/AÐSEND Úr fróðleiksbrunni Eiríks Í Heimskringlu talar Snorri oftar um landsfólk en landsmenn, og hann talar líka um bóndafólk, byggðarfólk, býjar fólk, bæjarfólk, fátækisfólk, fjölkynngisfólk, hernaðarfólk, illþýðisfólk og innan- landsfólk – að ógleymdu mannfólkinu sem byggir kringlu heimsins. Orðin iðnaðarfólk og sjófólk voru notuð á 19. öld – og svo mætti lengi telja. „Það er nákvæmlega ekkert að því að fólk sem svo kýs noti þessi orð, en öðrum er að sjálfsögðu frjálst að halda sig við hefðbundnari orð,“ segir Eiríkur. 8 Fréttir 14. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 14. janúar 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.