Fréttablaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 2
Aðeins 45 prósent af
skurðstofurýmum eru í
notkun vegna þess að
starfsfólk er sinna
Covid-sjúklingum.
Már Kristjánsson, yfirlæknir smit-
sjúkdómadeildar Landspítalans
Úlfur og Elín í Gerðarsafni
Kíktu í heimsókn
og gerðu góð kaup!
7.-15. janúar
Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
10-50%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
AF VÖLDUM VÖRUM
adalheidur@frettabladld.is
DÓMSMÁL Lögmaðurinn Sigrún
Jóhannsdóttir, sem er fyrrverandi
réttargæslumaður brotaþola svo
kallaðs meðhöndlara, reyndi að
koma sér undan vitnaskyldu í
nauðgunarmáli gegn meðhöndlar
anum sem flutt var í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Lögmaðurinn er á
vitnalista hins ákærða en verjandi
hans hefur áður lýst því að hann
telji lögmanninn sjálfan hafa aug
lýst eftir brotaþolum til að kæra
meðhöndlarann.
Bar lögmaðurinn þau boð til
dómara í gær að hún hefði ekki tíma
til að bera vitni. Eftir að dómarinn
ítrekaði vitnaskylduna féllst lög
maðurinn á að gefa símaskýrslu í
dag.
Um tíu vitni gáfu skýrslu í gær
auk ákærða og brotaþola. Fleiri
vitni gefa skýrslu í dag. Mun Frétta
blaðið fjalla nánar um málið á
fretta bladid. is.
Málið sem nú er f lutt í héraðs
dómi varðar fimmtu ákæruna um
nauðgun á hendur meðhöndlar
anum Jóhannesi Tryggva Svein
björnssyni. Hann hefur þegar verið
sakfelldur fyrir að nauðga fjórum
konum. ■
Brýndi vitnaskylduna fyrir lögmanni
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir sak-
sóknari og Steinbergur Finnbogason
verjandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
kristinnpall@frettabladid.is
HANDBOLTI Strákarnir okkar hefja
leik á Evrópumótinu í handbolta í
kvöld þegar Ísland mætir Portúgal
í stærstu handboltahöll Evrópu.
Leikurinn hefst klukkan 19.30 og
fer fram í Búdapest.
Þetta er annað stórmótið í röð
sem Ísland hefur leik gegn Portúgal
og þriðja stórmótið í röð sem liðin
mætast.
Íslenska liðið er í sterkum riðli
þar sem öll lið geta strítt hvert öðru
og mega Strákarnir okkar því varla
við því að misstíga sig í kvöld gegn
Portúgal. Það er því Íslandi í hag að
liðið sé fullskipað og engin smit að
angra leikmannahópinn. ■
Landsliðið byrjar
strax á lykilleik
Frá landsliðsæfingu í gær. MYND/HSÍ
Ísland er í riðli með
Portúgal, Hollandi og
Ungverjalandi.
Búist er við að ríkisstjórnin
samþykki hertar aðgerðir til
að hefta útbreiðslu kóróna
veirufaraldursins, með vísan
í nýtt minnisblað sóttvarna
læknis. Framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins segir
stjórnvöld verða að auka
styrki til fyrirtækja.
gar@frettabladid.is
kristinnpall@frettabladid.is
COVID-19 „Ég einfaldlega fullyrði að
það verður þungt hljóð í atvinnu
lífinu ef það á að fara að herða enn
frekar,“ segir Halldór Benjamín Þor
bergsson, framkvæmdastjóri Sam
taka atvinnulífsins, um líklegar
breytingar á sóttvarnaaðgerðum.
Ríkisstjórnin ræðir í dag nýja
tillögu Þórólfs Guðnasonar sótt
varnalæknis um aðgerðir til að
hefta útbreiðslu kórónaveitusmita.
Meðferðis á fundinn hefur Willum
Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
nýtt minnisblað frá Þórólfi, aðeins
þremur dögum eftir að ríkisstjórnin
samþykkti óbreyttar aðgerðir til
mánaðamóta. Kom þá fram að regl
ur yrðu hertar enn frekar ef þróun
faraldursins yrði ekki snúið.
Aðspurður hvort Landspítalinn
hafi óskað eftir því að gripið verði
til hertra aðgerða segir Már Krist
jánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma
deildar, að það sé ekki spítalans að
ákveða.
„Spítalinn sem slíkur hefur enga
skoðun á því hvort það verði hertar
aðgerðir eða ekki þó að sumir starfs
menn hafi sagt sitt sjónarmið. Við
höfum bent á það hvernig verk
efnastaðan okkar er þessa dagana.
Við erum í miklum önnum við að
sinna bæði Covidsjúklingum og
brýnustu verkefnum. Þegar spurt
er út í okkar sjónarmið bendum
við á þetta orsakasamhengi á milli
hlutanna. Eitt sjónarmið er að skella
öllu í lás, en það er ekki eina sjónar
miðið,“ segir Már.
„Það verða ákveðnar hliðranir á
öðrum verkefnum vegna þessa verk
efnis. Það eru hlutir sem er verið að
ýta á undan sér og fresta til þess að
sinna brýnustu verkefnum og Covid.
Aðeins 45 prósent af skurðstofu
rýmum eru í notkun vegna þess að
starfsfólk er að sinna Covidsjúkl
ingum, sem er ein af birtingarmynd
um stöðunnar sem við vinnum við.“
Þótt hvorki sóttvarnalæknir né
heilbrigðisráðherra hafi gefið upp í
gær hvað felst í nýja minnisblaðinu
má fastlega reikna með að sótt
varnareglur verði hertar. Það gæti
meðal annars falið í sér þrengri
samkomutakmarkanir en tuttugu
manna og að ýmsum fyrirtækjum,
til dæmis líkamsræktarstöðvum og
hárgreiðslustofum, yrði gert að loka
tímabundið.
Halldór Benjamín segir þegar
vera þungt hljóðið hjá fyrirtækjum
landsins vegna sóttvarnaaðgerða.
„Stjórnvöld verða að styðja betur
við atvinnulífið og útvíkka lokunar
styrki og önnur fjárhagsleg úrræði.
Við megum engan tíma missa
og eðlileg krafa að stuðningsúr
ræði fyrir atvinnulífið séu kynnt
samhliða ef til stendur að herða
sóttvarnareglur enn frekar,“ segir
hann. Það hafi legið fyrir milli jóla
og nýárs að starfsemi margra fyrir
tækja var við það lamast.
„Brugðist var við því með því að
breyta reglum um sóttkví þannig að
einstaklingar sem eru þríbólusettir
gátu farið í smitgát í stað þess að fara
í sóttkví. Það auðvitað léttir róður
inn umtalsvert en það breytir því
ekki að allt samfélagið, og atvinnu
lífið þar með talið, er undirlagt um
þessar mundir,“ segir framkvæmda
stjóri Samtaka atvinnulífsins. ■
Þungt hljóð í atvinnulífinu
vegna sóttvarnaaðgerða
Ríkisstjórnin kemur saman fyrir hádegi í dag og ræðir þá nýtt minnisblað
sóttvarnalæknis. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Systkinin Elín Hansdóttir og Úlfur Hansson voru í óðaönn að setja upp sýningu í Gerðarsafni í gærkvöldi þegar ljósmyndara bar að garði. Sýningin er hluti af ljós-
myndahátíð í Reykjavík sem nú stendur yfir og verður opnuð í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 Fréttir 14. janúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ