Fréttablaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 12
Við höfum lagt upp með
að fagna því sem við
höfum þá, og það sem við
höfum nóg af á þessum
tíma er myrkrið.
Í Borgarbyggð hefur myrkrinu
verið fagnað undanfarin ár sem
tækifæri til að eiga í raunveru-
legum samskiptum við annað
fólk.
arnartomas@frettabladid.is
Föstudagurinn dimmi er tiltölulega ung
hefð sem verður í heiðri höfð í Borgar-
byggð í sjötta skipti í dag. Um er að ræða
hátíð sem hefst árlega á föstudegi fyrir
bóndadag og lagt er upp með að gefa raf-
tækjunum hvíld og njóta myrkursins.
„Við hugsuðum með okkur að það
væri skemmtilegt að hafa eitthvað á
þeim árstíma sem er venjulega talinn
frekar leiðinlegur,“ segir Eva Hlín
Alfreðsdóttir sem er verkefnastjóri
hátíðarinnar ásamt Heiði Hörn Hjart-
ardóttur. „Við höfum lagt upp með að
fagna því sem við höfum þá, og það
sem við höfum nóg af á þessum tíma er
myrkrið.“
Eva Hlín segir að í upphafi hafi verið
pælingar um að hafa snjókastalakeppni
en það sé þó ekki einu sinni hægt að
ganga að snjónum sem vísum. „Við
göngum þó alltaf að myrkrinu sem
vísu,“ segir hún. „Þess vegna reynum við
að létta undir á þessum tíma og fagna
óhefðbundinni samveru.“
Vasaljósalýstur tröllasnáði
Til þessa hefur hver hátíð einkennst af
einhvers konar þema sem dregur inn-
blástur í þjóðlegar rætur. Í ár eru það
tröllin sem hljóta að teljast viðeigandi,
verandi myrkraverur. Nokkrir liðir hafa
þó alltaf verið fastir, þar á meðal vasa-
ljósagangan í gegnum Bjargsskóg.
„Þá búum við til leið í gegnum skóg-
inn sem liggur á landi Heiðar Harnar
að Bjargi,“ segir Eva Hlín. „Þá getur fjöl-
skyldan komið saman með vasaljós og
gengið leiðina í gegnum skóginn sem er
vörðuð af endurskinsmerkjum.“
Undanfarin ár hafa Eva Hlín og Heið-
ur Hörn tekið á móti leikskólahópum í
skóginum með tilheyrandi kakóuppá-
hellingum, kökum og sögustundum,
en vegna samkomutakmarkana gengur
það ekki eftir í ár. Þær hafa þó ekki dáið
ráðalausar heldur hafa þær sent efni til
leikskólanna, til dæmis upptökur frá
Hjörleifi sagnamanni og efni til glugga-
skreytinga.
„Í ár er svo lítill Tröllasnáði falinn inni
í skóginum og fólk er hvatt til að koma
og finna hann og taka mynd af sér með
honum,“ segir Eva Hlín. „Við höfum svo
smá vinning til að hvetja fólk til að vera
með.“
Rafmagnið fær hvíld
Eins og komið hefur fram var hátíðin
upphaf lega hugsuð sem eins konar
áskorun til fólks um að hvíla rafmagns-
drifin samskipti og eiga í raunverulegum
samskiptum hvert við annað. Aðstæður
í faraldrinum hafa þó aðeins breytt þar
til.
„Við gerum okkur grein fyrir því
á hvaða tímum við lifum. Við erum
búnar að láta aðeins undan og erum til
að mynda komnar með myllumerki,“
segir Eva Hlín og hlær. „Samt leggjum
við áfram áherslu á þetta. Þegar það
voru hundrað ár liðin frá því að rafmagn
var tengt á Borgarnes vorum við til að
mynda með rafmagnslausan sólarhring
þar sem við spurðum okkur hvað við
gætum gert án þess.“
Eva Hlín segir að þótt að rafmagns-
drifin samskipti séu nánast óhjákvæmi-
leg í dag hvetji þær fólk til að stunda
raunveruleg samskipti í myrkrinu. „Það
er ákveðin auðlind í myrkrinu,“ segir
hún.
Föstudagurinn dimmi fékk á dög-
unum samstarfssamning við Borgar-
byggð og segja Eva Hlín og Heiður Hörn
það sýna að hátíðin hafi skotið rótum í
byggðinni.
„Við erum voða montnar af að vera
taldar þarna með,“ segir Eva Hlín. „Það
er mikilvægt að við í Borgarbyggð
höldum sögunum okkar á lofti fyrir
komandi kynslóðir. Við búum á einum
söguríkasta stað Íslands – hérna gerðust
Íslendingasögurnar. Það er mikilvægt að
miðla þessum arfi.“
Nánari upplýsingar um Föstudaginn
dimma er að finna á Facebook-síðu
hátíðarinnar. n
Auðurinn í myrkrinu
Þann 4. september 1972 tilkynnti Tom
Parker, umboðsmaður Elvis Presley,
að kóngurinn, eins og Presley var
iðulega kallaður, myndi halda tón-
leika í beinni útsendingu frá Hawaii
sem sýndir yrðu á sjónvarpsstöðinni
NBC. Hugmyndina að tónleikunum
fékk Parker nokkrum mánuðum fyrr
þegar hann sá beina útsendingu frá
heimsókn Richard Nixon, þáverandi
Bandaríkjaforseta, til Kína.
Mikið var lagt upp úr því að gera
tónleikana hina glæsilegustu og var
ekkert sparað til, hvorki þegar kom
að sviðsmynd né búningum. Fram-
leiðandi tónleikanna var þó ekki
ánægður með frammistöðu Presleys á
nýyfirstöðnum tónleikum og upplýsti
kónginn um að hann yrði að létta sig
fyrir tónleikana. Presley var ánægður
með hreinskilnina og léttist um ellefu
kíló á einum mánuði með auknum
karateæfingum, breyttu mataræði og
megrunartöflum.
Tónleikarnir fóru svo fram þann
14. janúar klukkan 12.30 að staðartíma
sem var kjörtími til að ná sem mestri
útbreiðslu á heimsvísu. Eins og við
mátti búast var áhorf gríðarlegt og
voru áætlaðar áhorfstölur á heimsvísu
um 1,3 milljarðar. Þeir brutu einnig
blað sem fyrstu alþjóðlegu tónleikarn-
ir sem sýndir voru í beinni útsendingu
í gegnum gervihnött. n
Þetta gerðist: 14. janúar 1973
Kóngurinn sprengir áhorfsmet á Hawaii
1918 Læknafélag Íslands stofnað.
1954 Marilyn Monroe giftist Joe DiMaggio.
1970 Klaus Rifbjerg hlýtur Bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs, fyrstur Dana.
1976 Fyrsti Íslendingurinn hlaut Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs, Ólafur Jóhann Sigurðsson.
1978 Johnny Rotten hættir í hljómsveitinni Sex Pistols.
2008 20 létust í árás Ísraelshers á Gasaströndina.
2013 Fyrsta rammaáætlun fyrir Ísland er samþykkt á
Alþingi.
Merkisatburðir
Þema hátíðarinnar í ár eru tröllin sem búa í myrkrinu. MYND/AÐSEND
Vegfarendur í Bjargsskógi gætu komið
auga á lítinn tröllasnáða.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Péturs Jónssonar
vörubílstjóra á Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Grænuhlíðar og Skógarhlíðar á Hjúkrunarheimilinu Hlíð
fyrir kærleiksríka og góða umönnun.
Helga Eyjólfsdóttir
G. Ómar Pétursson
Jón Pétursson
og fjölskyldur.
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
Steingrímur S. Jónsson
rafmagnsverkfræðingur,
andaðist miðvikudagskvöldið
12. janúar.
Jón Hilmar Stefánsson Elísabet Bjarnadóttir
Bjarni Hilmar Jónsson
Stefán Hrafn Jónsson
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Sigfússon
síðast til heimilis að
Funalind 15, Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Lundi, Hellu,
síðastliðinn miðvikudag.
Margrét Bjarnadóttir Sævar Óskarsson
Sigfús Bjarnason Ástrós Sverrisdóttir
Halla Rut Bjarnadóttir Agnar Örn Jónsson
Brynja Rós Bjarnadóttir Guðmundur Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg dóttir mín, móðir og amma,
Hrafnhildur Björnsdóttir
(Bartels)
lést á líknardeild Landspítalans
31. desember 2021.
Erla Ólafsdóttir, börn og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Inga Guðlaug Tryggvadóttir
Eikarlundi 23, Akureyri,
lést fimmtudaginn 6. janúar á Beykihlíð,
Akureyri. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 21. janúar kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast Ingu er bent á Krabbameinsfélagið.
Þökkum starfsfólki Beykihlíðar fyrir kærleiksríka umönnun.
Gestir þurfa að framvísa hraðprófi ekki eldra en 48 klst.
Athöfninni verður streymt á Facebook-síðunni
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar.
Friðfinnur Steindór Pálsson
Ólafur Tryggvi Friðfinnsson Ásta Sólveig Albertsdóttir
Herdís Anna Friðfinnsdóttir Jóhann Oddgeirsson
Erna Rún Friðfinnsdóttir Kristinn Hólm Ásmundsson
ömmu- og langömmubörn.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 14. janúar 2022 FÖSTUDAGUR