Fréttablaðið - 14.01.2022, Blaðsíða 25
kolbrunb@frettabladid.is
Sunnudaginn 16. janúar klukkan
14 verður Katrín Elvarsdóttir með
listamannsspjall um verk sín og
sýninguna Söngfugla í Hafnarborg.
Sá dagur er jafnframt síðasti sýn-
ingardagur sýningarinnar.
Á sýningunni má sjá ný verk eftir
listakonuna frá því að hún heim-
sótti eyna Kúbu. Þar gekk hún um
götur Havana með myndavélina að
vopni en hún tók sérstaklega eftir
því að margir eyjarbúar halda söng-
fugla í búrum á heimilum sínum.
Katrín hefur haldið fjölda einka-
sýninga hérlendis og erlendis.
Þá hafa verk hennar verið sýnd á
samsýningum víða. Fjórar bækur
hafa áður verið gefnar út með ljós-
myndum Katrínar og verður bókin
Songbirds, sem kemur út samhliða
sýningu hennar í Hafnarborg, sú
fimmta. ■
Listamannaspjall
Katrínar í Hafnarborg
Ljósmyndir
Katrínar eru frá
Kúbu.
MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Í tilefni af nýútkominni bók Úlfars
Bragasonar, Reykjaholt Revisited:
Representing Snorri in Sturla
Þórðarson’s Íslendinga saga, verður
haldinn fyrirlestur í Auðarsal í
Veröld – húsi Vigdísar á morgun,
laugardaginn 15. janúar klukkan 14.
Bókin fjallar um mynd þá sem
Íslendinga saga Sturlu Þórðarsonar
dregur upp af Snorra Sturlusyni, um
viðhorf og aðferðir sagnaritarans
og textasamfélag hans. Í bókinni
er lýsingin á Snorra og fjölskyldu
hans í Reykholti greind og skýrð út
frá frásagnarfræði verksins og ætlun
höfundar með verkinu. Greiningin
byggir á viðamikilli og frumlegri
rannsókn og er unnin út frá ýmsum
fræðikenningum sem mjög eru á
oddinum þessa stundina: svo sem
minnisrannsóknum, frásagnar-
fræðum og tilfinningafræðum.
Kynnir er Þórunn Sigurðardóttir
rannsóknar prófessor. Strey mt
verður frá fyrirlestrinum. ■
Fyrirlestur Úlfars
Úlfar Bragason. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÖSTUDAGUR 14. janúar 2022 Menning 17FRÉTTABLAÐIÐ