Morgunblaðið - 03.12.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 03.12.2021, Qupperneq 11
Femarelle Rejuvenate við upphaf hormónabreytinga er náttúruleg lausn og er virkni þess staðfest með klínískum rannsóknum. Femarelle Rejuvenate Hentar konum sem eru að upplifa fyrstu einkenni hormónabreytinga og áður en óregla kemst á blæðingar. „Ég tók U-beygju í lífinu, svitinn er horfinn, ég sef miklu betur og næ meiri og betri hvíld þannig að dagurinn á eftir verður allt annar.“ Dídí Ásgeirs Breytingaskeiðið (tíðahvörf) er eitthvað sem engin kona sleppur við. Einkenna fer þó oft að gæta allt að 10 árum áður en eiginleg tíðahvörf hefjast. Einkennin geta verið afar mismunandi og þó svo að sumar konur sleppi nokkuð vel og finni lítið fyrir breytingunum eru samt sem áður ákveðin einkenni sem margar hverjar finna fyrir. Einkenni eftir þrítugt Það eru mörg dæmi þess að konur fari að finna fyrir einkennum sem tengjast breyttri hormónastarfsemi upp úr þrítugu, og stundum fyrr. Þessi einkenni tengjast minnkandi framleiðslu estrogens og geta m.a. verið: • Fyrirtíðaspenna • Óreglulegar blæðingar • Hitakóf & nætursviti • Svefntruflanir • Skapsveiflur • Minni orka, þreyta og slen • Pirringur • Aukinn hjartsláttur • Minni kynlöngun Það er orðið sífellt algengara að konur þjáist á einhvern hátt vegna ójafnvægis í hormónaframleiðslu. Heilbrigt líferni getur spilað stórt hlutverk í að draga úr einkennum en oftar en ekki þarf meira til. „Líf mitt breyttist“ Dídí Ásgeirs starfaði í apóteki þegar hún kynntist fyrst Femarelle. Hún hafði þetta að segja: „48 ára og í blóma lífsins taldi ég mig alls ekki vera komna á þann stað að vera byrjuð á breytingaskeiðinu. Ég svaf illa, vaknaði mörgum sinnum á nóttu og gat engan veginn sofið þar sem ég kófsvitnaði og bæði sæng og koddi rennblautt. Ég var sem sagt í bullandi afneitun. Einn góðan veðurdag fékk ég samt nóg og ákvað að kaupa mér einn pakka af þessari snilldarvöru og hugsaði, „ég hef engu að tapa“. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en ég tók tvær töflur á dag og þegar ég var búin með tvö spjöld úr pakkanum breyttist líf mitt, þvílíkur munur! Ég tók U beygju í lífinu, svitinn er horfinn, ég sef miklu betur og næ meiri og betri hvíld þannig að dagurinn á eftir er allt annar. Þær konur sem kannast við þessi einkenni ættu ekki að hika við að prófa Femarelle. Femarelle Rejuvenate er klárlega málið.“ Femarelle rejuvenate Fjölmargir kvensjúkdómalæknar mæla með Femarelle sem fyrstu meðferð við tíðahvörfum þar sem Femarelle er hormónalaus lausn við einkennum. Femarelle Rejuvenate hentar konum sem eru að upplifa fyrstu einkenni hormónabreytinga og áður en óregla kemst á blæðingar. En það inniheldur einkaleyfisvarið efnasamband, DT56a, sem unnið er úr óerfðabreyttu soya. Inniheldur einnig hörfræ, B2 og B7 vítamín fyrir eðlileg efnaskipti, aukna orku og viðhald húðar, slímhúðar og hárs. Femarelle vörurnar fást í tveimur öðrum tegundum, Recharge og Unstoppable, fyrir mismunandi stig tíðahvarfa.Rechargehentarfyrirkonur sem eru komnar á breytingaskeiðið og blæðingar óreglulegar eða hættar. Unstoppable hentar fyrir konur sem eru komnar yfir breytingarskeið en vilja viðhalda kraftmiklum lífsstíl og vernda beinin þegar árin færast yfir. Femarelle fæst í öllum stórmörkuðum, apótekum og heilsuverslunum Dídí Ásgeirs starfaði í apóteki þegar hún kynntist fyrst Femarelle. Lífið tók U-beygju til hins betra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.