Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021 PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA PON er umboðsaðili Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tilkynnt var í gær hvaða níu bækur eru til- nefndar til Fjöruverðlaunanna – bókmennta- verðlauna kvenna (sís og trans) og trans, kyn- segin og intersex fólks á Íslandi í ár. Dóm- nefndir tilnefndu bækur í þremur flokkum, þ.e. fræðibækur og rit almenns eðlis, barna- og unglingabókmenntir og fagurbókmenntir. Fræðibækur og rit almenns eðlis Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru tilnefndar bækurnar: Kristín Þorkelsdóttir eftir Birnu Geirfinnsdóttur og Bryndísi Björg- vinsdóttur sem Angústúra gefur út; Kvár – hvað er að vera kynsegin? eftir Elísabetu Rún Þorsteinsdóttur sem Nóvember gefur út og Sigurður Þórarinsson – Mynd af manni eftir Sigrúnu Helgadóttur sem Náttúruminjasafn Íslands gefur út. Dómnefnd skipuðu Hafdís Erla Hafsteinsdóttir sagnfræðingur, Sigrún Birna Björnsdóttir framhaldsskólakennari og Sigrún Helga Lund tölfræðingur. Í umsögn dómnefndar um bókina Kristín Þorkelsdóttir segir: „Bókin er einstaklega fög- ur og vel hönnuð, allt frá uppsetningu mynda og texta til efnislegrar uppbyggingar. Hér er fjallað um lífshlaup og arfleifð eins okkar af- kastamestu listamanna með miklum sóma.“ Um Kvár – hvað er að vera kynsegin? segir: „Nýyrðið kvár er nafnorð í hvorugkyni og merkir ókyngreind manneskja. Bókinni, sem er sett upp í teiknimyndaform, tekst einstak- lega vel að fræða lesendur um kvár og um leið um fjölbreytileikann sem býr undir regnbog- anum.“ Um Sigurður Þórarinsson – Mynd af manni segir: „Höfundur fer með lesandann í heillandi ferðalag upp á jökla, í gegnum öskulög og inn í kvikuhólf í fylgd með vísindamanninum, söngvaskáldinu og náttúruverndarsinnanum Sigurði. Bókina prýðir aragrúi mynda sem gæða frásögnina lífi og dýpka skilning á efn- inu.“ Barna- og unglingabókmenntir Í flokki barna- og unglingabókmennta eru tilnefndar bækurnar: Ótemjur eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur sem Bjartur gefur út; Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggva- dóttur og Lindu Ólafsdóttur sem Iðunn gefur út og Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur sem Angústúra gefur út. Dóm- nefnd skipuðu Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor í íslensku, Brynja Helgu Baldursdóttir íslenskufræðingur og Hildur Ýr Ísberg, íslensku- og bókmenntafræðingur. Í umsögn dómnefndar um Ótemjur segir að þar sé „velferð barna og umgengni við náttúr- una í brennidepli. […] Glíman við ótemjurnar í sálarlífinu og í umhverfinu er upp á líf og dauða og því er ekki verra að njóta liðsinnis úr hulduheimum. Höfundur skapar úr þessu efni spennandi sögu með skemmtilegum per- sónum sem á brýnt erindi við lesendur.“ Um Reykjavík barnanna segir: „Bókin er ríkulega myndskreytt og er hver opna af- mörkuð innsýn í sögu borgarinnar. Höfundar draga fram fjölbreyttan fróðleik og gera skil á skemmtilegan hátt í góðu jafnvægi texta og mynda.“ Um Akam, ég og Annika segir: „Unglings- rödd sögumannsins er sannfærandi og aug- ljóst að höfundur hefur unnið þrekvirki í því að setja sig í spor nútímaunglingsins. Frá- sögnin er margþætt og allir endar eru leiddir saman í lokin. Þetta er fyndin, krefjandi og spennandi saga sem á erindi við ungmenni.“ Fagurbókmenntir Í flokki fagurbókmennta eru tilnefndar bækurnar: Merking eftir Fríðu Ísberg sem Mál og menning gefur út; Dyngja eftir Sig- rúnu Pálsdóttur sem JPV útgáfa gefur út og Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur sem Mál og menning gefur út. Dómnefnd skipuðu bók- menntafræðingarnir Dagný Kristjánsdóttir, Elín Björk Jóhannsdóttir og Júlía Margrét Sveinsdóttir. Í umsögn dómnefndar um Merkingu segir að bókin kallist „skýrt á við íslenskan samtíma þó að sagan sé vísindaskáldsaga sem gerist í framtíðinni. […] Sagan er frumleg og stíllinn nýskapandi og notkun tungumálsins einkar úthugsuð og áhrifarík og styður við heild- stæða persónusköpun verksins.“ Um Dyngju segir: „Dyngja er lágmælt saga með magnaðan undirtexta sem höfðar sterkt til réttlætiskenndar lesenda.“ Um Tanntöku segir: „Þessi ljóðabók á erindi við samtímann af því að málefnin sem hún snertir hljóta að verða lesanda hug- leikin. Þau ber að lesa oft því ný sýn fylgir hverjum lestri.“ Umsagnirnar má lesa í heild á mbl.is. Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundar Mikil ánægja ríkir meðal kvennanna sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna í ár. Níu bækur tilnefndar - Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi voru fyrst veitt árið 2007 - Þeim er ætlað að vekja athygli á og hampa bókum kvenna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.