Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021
_ Sex nýliðar eru í 35 manna hópi
sem Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari karla í handknattleik
tilkynnti í gær fyrir Evrópumótið sem
fram fer í Ungverjalandi og Slóvakíu í
janúar. Nýliðarnir eru Einar Þorsteinn
Ólafsson úr Val, Bjarni Ófeigur Valdi-
marsson úr Skövde, Elvar Ásgeirsson
úr Nancy, Óskar Ólafsson úr Dramm-
en, Andri Már Rúnarsson úr Stuttgart
og Hafþór Vignisson úr Stjörnunni.
_ Lögmenn knattspyrnumannanna
Arons Einars Gunnarssonar og Egg-
erts Gunnþórs Jónssonar sendu frá
sér yfirlýsingu í gær, í kjölfar þess að
fram kom að þeir hefðu báðir farið í
skýrslutöku vegna meints kynferðis-
brots sem hefði átt sér stað í Kaup-
mannahöfn árið 2010. Í yfirlýsingunni
kemur fram að þeir hafi þegar lýst yfir
sakleysi sínu, loksins fengið að segja
formlega frá sinni hlið, hafni því að
hafa brotið af sér og reikni með því að
málið verði fellt niður.
_ Heimir Örn Árnason er kominn í
þjálfarateymi karlaliðs KA í handknatt-
leik og verður þar við hlið þeirra Jón-
atans Inga Magnússonar og Sverres
Jakobsens út þetta keppnistímabili.
Heimir lék lengi með KA og er með
mikla reynslu sem leikmaður og þjálf-
ari, en hann hefur auk þess verið einn
af fremstu handknattleiksdómurum
landsins undanfarin ár.
_ Guðjón Valur Sigurðsson, fyrrver-
andi landsliðsfyrirliði í handknattleik,
hefur framlengt samning sinn sem
þjálfari þýska liðsins Gummersbach til
ársins 2025. Guðjón er á sínu öðru
tímabili með liðið sem er með fjögurra
stiga forystu á toppi þýsku B-
deildarinnar og hefur unnið tólf af
fyrstu fjórtán leikjum sínum á þessu
keppnistímabili.
_ Orri Hrafn Kjartansson, hinn 19 ára
gamli miðjumaður úr Fylki, gekk í gær
til liðs við knattspyrnulið Vals og
samdi við félagið til
fjögurra ára. Orri var
langbesti leikmaður
Fylkis á síðasta
tímabili og var
jafnframt
besti ungi
leik-
maður
úrvals-
deild-
arinnar samkvæmt
einkunnagjöf Morg-
unblaðsins. Hann
hefur leikið 25 leiki
með Fylki í úrvals-
deildinni og
skorað fimm
mörk.
Eitt
ogannað
„Ég er með mín markmið sem ég
á ennþá eftir að ná og eitt af þeim
er að standa mig vel á Ólympíu-
leikunum,“ sagði Anton.
„Ef ég hef ennþá gaman af sund-
inu eftir leikana í París þá veit
maður aldrei en kannski er líka
kominn tími til þess að setja eggin
sín ekki öll í sömu körfuna og snúa
sér að einhverju öðru. Í dag er
sundið samt það skemmtilegasta
sem ég geri og á meðan ég hef
gaman af því sem ég er að gera er
ég ekki á þeim buxunum að
hætta.“
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Eins og staðan er núna er stefnan
sett á Ólympíuleikana í París 2024
og svo sjáum við til með fram-
haldið,“ sagði Anton Sveinn Mckee,
margfaldur Íslandsmeistari í sundi
og þrefaldur ólympíufari, í Dag-
málum, frétta- og menningarlífs-
þætti Morgunblaðsins.
Anton Sveinn, sem er 27 ára
gamall, hefur verið fremsti sund-
maður landsins undanfarin ár en
hann var einungis 18 ára þegar
hann fór á sína fyrstu Ólympíuleika
í London 2012. Anton Sveinn ætlaði
sér stóra hluti á Ólympíuleikunum
2021 í Tókýó en í desember 2020
missti hann föður sinn og hafði það
áhrif á frammistöðu hans og und-
irbúning fyrir leikana í Japan.
Sjáum til eftir Ólympíuleikana
Ljósmynd/Simone Castrovillari
1 Anton Sveinn hefur verið fremsti
sundmaður landsins undanfarin ár.
Ég var mjög sáttur og stoltur
auðvitað eftir að ég skrifaði undir
þriggja ára samning við félagið og
það sýndi mér svart á hvítu að for-
ráðamenn félagsins hafa bæði trú á
mér og því sem ég hef verið að
gera. Miðað við það hversu mikið
þeir hafa stutt við bakið á mér þá er
það mitt mat að þeir líti á mig sem
framtíðarmarkvörð félagsins.“
Tveir íslenskir þjálfarar eiga
stóran þátt í velgengni markvarð-
arins unga í dag.
„Ég byrjaði í FH þar sem ég
skaraði aldrei neitt sérstaklega
fram úr. Til að orða hlutina á sem
einfaldastan hátt þá var ég aldrei
einhver yfirburðamaður í yngri
flokkunum og langt frá því að vera
bestur. Ég var heldur aldrei al-
mennilega ákveðinn með fótboltann
fyrr en ég varð fjórtán ára og þá fór
ég fyrst að taka þetta alvarlega. Ég
gekk til liðs við HK og Arnar Halls-
son, þáverandi þjálfari hjá HK,
hjálpaði mér mjög mikið.
Sömuleiðis Hjörvar Hafliðason
sem þá var markannsþjálfari þarna.
Ég gat ekki gripið bolta þegar ég
byrjaði að æfa hjá Hjörvari en við
tókum einn hlut fyrir í einu, sama
hversu langan tíma það tók. Eftir að
Hjörvar hafði svo skólað mig til
komst ég að hjá unglingaakademí-
unni hjá Gautaborg og þaðan varð
ekki aftur snúið.“
Þakklátur foreldrum sínum
Það var fyrir hálfgerða slysni
sem Adam Ingi komst að hjá Gauta-
borg á sínum tíma.
„Ég var staddur í fjölskyldufríi í
Svíþjóð árið 2019 og ég setti mig í
samband við Hjálmar Jónsson sem
þjálfaði U19-ára lið Gautaborgar.
Við ætluðum að dvelja í Svíþjóð í
tvær vikur og ég vildi því ekki
missa af tveggja vikna æfinga-
tímabili.
Ég ætlaði fyrst og fremst að nýta
tímann til æfinga og ég fékk að
mæta á æfingu hjá þeim. Eftir að
ég mætti á mínu fyrstu æfingu
gerðust hlutirnir mjög hratt og áður
en ég vissi af var ég búinn að skrifa
undir samning við félagið. Ég bjóst
alls ekki við því enda var markmiðið
mitt bara að mæta á æfingu, sparka
í bolta í eina til tvær vikur og snúa
svo aftur heim til Íslands.“
Foreldrar hans, Iðunn Kjartans-
dóttir og Benedikt Gunnar Ívars-
son, hafa alla tíð staðið þétt við bak-
ið á Adam Inga.
„Fjölskyldan flutti út með mér á
sínum tíma sem var algjörlega frá-
bært. Foreldrar mínir voru ekki
tilbúin að senda ungan pjakk einan
út í alheiminn á þessum tímapunkti
og þau hafa alla tíð stutt mjög vel
við bakið á mér þegar kemur að fót-
boltanum. Maður fær góðan töflu-
fund eftir hvern einasta leik hjá
pabba og gott klapp á bakið eftir öll
mistök frá mömmu.
Foreldrar mínir fórnuðu miklu til
þess að koma með mér út en þau
eru bæði komin með góða vinnu í
Svíþjóð núna og systir mín hún
Hanna Karen Benediktsdóttir er
byrjuð í skóla hérna líka þannig að
okkur fjölskyldunni gengur vel í
Svíþjóð.“
Góð ákvörðun á sínum tíma
Þrátt fyrir að vera á meðal efni-
legustu markmanna landsins í dag
byrjaði hann ekki að æfa stöðuna
fyrr en hann var 14 ára gamall.
„Ég er fæddur í Grundarfirði og
þar byrjaði maður fyrst að leika sér
í fótbolta. Ég fór reglulega út með
frænda mínum og eldri strákarnir
voru duglegir að láta mann finna
fyrir sér á þeim tíma. Þeir gáfu líka
ekkert eftir þegar kom að því að
láta vaða á markið og maður þurfti
bara að gjöra svo vel og verja bolt-
ann.
Þrátt fyrir það þá ákvað ég í raun
ekki að verða markmaður fyrr en ég
var í 4. flokki. Ég spilaði mikið
vinstra megin á vellinum í yngri
flokkunum og mér var í raun bara
hent í þær stöður þar sem vantaði
leikmenn hverju sinni.
Ég mætti eitt sinn á æfingu með
eldri bróður mínum Viktori Helga
Benediktssyni og þar vantaði mark-
mann. Ég stóð mig vel á æfingunni
og ákvað að láta reyna á það hvort
ég gæti nú ekki bara orðið ágætis
markvörður. Það reyndist heldur
betur góð ákvörðun á sínum tíma.“
Adam Ingi á að baki fjóra leiki
fyrir yngri landslið Íslands.
„Ég hef ekki verið mikið í því að
setja mér einhver langtímamark-
mið. Ég hef lagt meiri áherslu á það
að taka einn dag fyrir í einu í þessu.
Þegar ég vakna á morgnana þá er
ég fyrst og fremst að hugsa um það
að standa mig eins vel og ég mögu-
lega get á æfingum með mínu fé-
lagsliði.
Við þurfum svo bara að bíða og
sjá hverju það mun skila mér en ég
vonast fyrst og fremst til þess að
vera klár í slaginn þegar bæði þjálf-
ararnir mínir hjá Gautaborg og ís-
lenska landsliðinu telja að ég sé
tilbúinn í þau verkefni sem fram
undan eru,“ bætti Adam Ingi við í
samtali við Morgunblaðið.
Gat ekki gripið bolta
þegar hann byrjaði
- Adam Ingi Benediktsson byrjaði að æfa mark þegar hann var fjórtán ára
Ljósmynd/IFK Göteborg
Markvörður Adam Ingi Benediktsson skrifaði undir þriggja ára samning
við Gautaborg eftir að hafa æft og spilað með U19-ára liði félagsins.
SVÍÞJÓÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Hlutirnir hafa gerst ansi hratt hjá
knattspyrnumarkverðinum unga
Adam Inga Benediktssyni en hann
lék sinn fyrsta leik fyrir Gautaborg
um síðustu helgi þegar liðið vann
öruggan 4:0-sigur gegn Östersund í
sænsku úrvalsdeildinni á Ullevi-
vellinum í Gautaborg.
Adam Ingi, sem er einungis 19
ára gamall, gekk til liðs við U19-ára
lið Gautaborgar frá HK sumarið
2019 en lék með FH í yngri flokk-
unum áður en hann gekk til liðs við
Kópavogsliðið árið 2017.
„Tilfinningin í þessum fyrsta leik
var ótrúleg satt best að segja,“
sagði Adam Ingi í samtali við
Morgunblaðið.
„Ég var búinn að sjá þetta augna-
blik fyrir mér í hausnum á mér en
svo þegar maður fær loksins að
upplifa það þá var þetta í raun ólýs-
anlegt. Það var líka skemmtilegur
bónus að halda markinu hreinu og
ég get þakkað varnarmönnum
Gautaborgar fyrir það enda spiluðu
þeir eins og um stórleik í Meistara-
deildinni væri að ræða.
Ég fékk að vita það daginn fyrir
leik að ég myndi spila gegn Öster-
sund og ég var nokkuð rólegur í tíð-
inni fyrst eftir fréttirnar. Ég sá
bara fyrir mér að ég væri að fara
spila venjulegan fótboltaleik með 22
leikmönnum og einum bolta. Um
leið og ég steig inn á völlinn þá
breyttist það hins vegar hratt og ég
var mjög stressaður fyrstu tíu mín-
útur leiksins.
Ég fann það samt mjög fljótlega
að stuðningsmenn liðsins stóðu
mjög þétt við bakið á mér og þá ein-
hvern veginn minnkaði allt stress.
Þegar allt kemur til alls þá er þetta
bara fótbolti þegar dómarinn flaut-
ar til leiks og ég komst vel frá mínu.
Vonandi fæ ég fleiri tækifæri áður
en tímabilinu lýkur og ég á nú von á
því að stressið verði talsvert minna í
næsta leik,“ sagði Adam Ingi eftir
fraumraunina.
Skólaður til af Hjörvari Hafliða
Markvörðurinn er orðinn hluti af
aðalliðshóp Gautaborgar eftir að
hafa æft og spilað með U19-ára lið-
inu undanfarin tvö tímabil en hann
skrifaði undir þriggja ára samning
við sænska félagið á dögunum.
„Ég er búinn að vera að æfa með
aðalliðinu á tímabilinu og hef í raun
verið mikið í kringum aðalliðið alveg
síðan í janúar. Þjálfarateymið hefur
passað vel upp á mig og þeir pöss-
uðu sérstaklega vel upp á það að ég
væri klár í slaginn áður en ég steig
inn á völlinn um síðustu helgi.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Ljónagryfjan: Njarðvík – Vestri......... 18.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR............ 19.15
Origo-höllin: Valur – Þór Þ.................. 20.15
Meistaravellir: KR – Keflavík ............. 20.15
1. deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Skallagrímur................ 18
Ice Lagoon-höllin: Sindri – Haukar.... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – FH ........................ 18
Austurberg: ÍR – Stjarnan U................... 18
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ísafjörður: Hörður – Afturelding U ........ 18
Austurberg: ÍR – Kórdrengir ............. 20.15
Í KVÖLD!