Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is Kveikjan að fyrri grein höfundar um svokallað peninga- þvætti er herkvaðning frá hinu háa Alþingi til endurskoðenda um að þeir njósni um og segi til jafnvel smæstu við- skiptavina sinna af smæsta tilefni. Það skal vera á grundvelli laga sem eru moðsuða, samanber óskiljanlega skilgreiningu á peningaþvætti. Lagasetningin missir alfarið marks þar sem sjálft inntak laganna stenst ekki skoðun. Getur það verið tilfellið að Ísland hafi beygt sig í duftið fyrir einhvers lags alþjóðlegu fyrirbæri og skilið almenning eftir á vergangi í laga- legu tilliti varðandi svokallað pen- ingaþvætti? Er réttarkerfið að sperra stél til að sýna fyrirbærinu hvers það er megnugt? Nú berast í bunkum „leiðbeiningar“ frá eftirlitsstofnunum til að endurmennta end- urskoðendur. Það er að vísu svo að grunn- menntun endurskoð- enda felst meðal ann- ars í því að koma upp um hvers konar alvar- lega sviksemi í starf- semi fyrirtækja. Eftir- litsiðnaðurinn virðist hins vegar vera í einhvers lags vímu vegna ný- fengins tískuhlutverks sem eftirlit- inu er fengið en oftlega eru skiln- ingarvit sljóvguð í þessu ástandi. Opinberi eftirlitsiðnaðurinn mun hafa nokkrar áhyggjur af að fáar til- kynningar berist frá endurskoðend- um um meint peningaþvætti við- skiptavinanna. Sú skýring að það sé næsta lítið um peningaþvætti þykir væntanlega ekki boðleg. Það fer enda heldur ekki saman við allar þær ákærur sem koma frá saksókn- urum um peningaþvætti. Það liggur í undruninni að ólíklegasta skýring- in sé að raunverulegt peningaþvætti skuli ekki vera ekki daglegt vanda- mál á borði endurskoðenda. Auðvit- að er í leiðinni látið að því liggja að endurskoðendur séu að aðstoða við peningaþvætti. Þessi sami eftirlitsiðnaður virðist ekki hafa minnstu meðvitund um skavankana á lögum um peninga- þvætti. Eftirlitið þykist þó vera fært um að uppfræða fáfróða endurskoð- endur um alls kyns athæfi sem þeir eiga að kjafta frá. Endurskoðendum ber samkvæmt þessu að selja við- skiptavini sína undir ólög. Endurskoðendaráð Endurskoðendaráð framfylgir lögum um peningaþvætti af nokk- urri hörku. Sá sem reynir að fram- fylgja núgildandi lögum um pen- ingaþvætti sem fjalla ekki um peningaþvætti er hins vegar illa átt- aður. Að mati endurskoðendaráðs er enginn einstaklingur eða félag svo lítið að þar megi ekki finna peninga- þvætti og framkvæmdin er gagn- stæð lögunum sjálfum og almennri skilgreiningu á peningaþvætti, sbr. 5. gr. l. 140/2018: Eftirlitsaðilar geta veitt undan- þágu frá skyldu til að framkvæma áhættumat sé sýnt fram á að tiltekin starfsemi eða viðskipti séu þess eðl- is að áhættuþættir eru skýrir og þekktir og viðeigandi ráðstafanir til að draga úr þekktri áhættu fyrir hendi. En engar undanþágur eru í boði endurskoðendaráðs. Það er útlátaf- rekt fyrir hvert þjóðfélag að láta borgarana njósna hver um annan og fyrirmæli endurskoðendaráðs eru að ALLIR viðskiptavinir endur- skoðenda skuli áhættumetnir ár- lega. Óþarfur þjóðfélagslegur kostn- aður sem af hlýst virðist hér algert aukaatriði. Í ljósi reynslunnar er kominn tími til að lögmenn verði alfarið útilok- aðir frá ráðinu enda kastar fyrst tólfunum þegar umræddir lögmenn virðast ekki alls kostar læsir á lög og þá alls ekki endurskoðunar- fræðin. En þessum lögmönnum fer sem öðrum sem standa ekki föstum fótum í fræðunum að þeir beita valdi sínu óhóflega í vanmætti sínum. Sérstakur saksóknari Sérstökum saksóknara er eins farið og þaðan kemur nú skæðadrífa upplýsinga sem varla eru marktæk- ar á þessum lagagrunni sem reynd- ar er ekki fyrir hendi. Ríkjandi ástand skal nú vera eins og í löndum þar sem helmingur þegnanna njósn- ar um hinn helminginn. Ríkisskattstjóri Í lögum um ársreikninga má finna dæmi um lítinn skilning varð- andi reikningsskil, nánar hugtakið glögg mynd í svohljóðandi texta: Í stað ársreiknings skv. 1. mgr. er örfélögum heimilt að semja rekstr- aryfirlit og efnahagsyfirlit, byggð á skattframtali félagsins. Teljast slík rekstraryfirlit og efnahagsyfirlit gefa glögga mynd af afkomu og efnahag félagsins í skilningi 20. tölul. 2. gr. Þessi lagagrein opinberar al- mennt skilningsleysi á reiknings- haldi og endurskoðun. Almennar upplýsingar úr framtölum félaga mega samkvæmt þessu vera sá grunnur að ársreikningaskrá gefi álit, án fyrirvara, þess efnis að þessi útdráttur gefi glögga mynd af ein- hverju óendurskoðuðu fyrirbrigði. Samkvæmt lögum er þó ljóst að endurskoðendur einir geta eftir at- vikum tjáð álit sitt, ekki fullyrt eins og ívitnaður lagatextinn gerir, að ársreikningar gefi glögga mynd, sbr. 16. gr. L 94/2019, að lokinni endurskoðun. Það hlýtur að leiða til þess að sóttar verði bætur í ríkissjóð standi hin glögga mynd ársreikningaskrár ekki undir nafni. En ríkisskattstjóra líður sýnilega vel með sína glöggu mynd. Lokaorð Einu hryðjuverkasamtökin sem undirritaður hefur upplifað og ótt- ast sem slík er hinn opinberi eft- irlitsiðnaður með eilífum hótunum um sektir eða sviptingu. Það þýðir svo sem ekki að spyrja, en hvar er fagfélag löggiltra endurskoðenda með sína skylduaðild til skamms tíma? Fjórtándi jólasveinninn, Peninga- þvættir, er greinilega kominn til byggða. Eftir Jón Þ. Hilmarsson » Lagasetningin missir alfarið marks þar sem sjálft inntak laganna stenst ekki skoðun. Jón Þ. Hilmarsson Höfundur er endurskoðandi. jon@vsk.is Peningaþvætti – eftirlitsiðnaðurinn Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.