Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.12.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021 Tilkynningar Auglýsing um skipulagsáform í Skútustaðahreppi Breyting á Aðalskipulagi Skútustaðhrepps 2011 – 2023 og deiliskipulag Skjólbrekku Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 27. október 2021 að auglýsa skv. 2. mgr. 41. gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Skjólbrekku og breyt- ingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011–2023. Breyting á aðalskipulagi felur í sér að 0,6 ha af land- búnaðarlandi við Skjólbrekku á Skútustöðum er skilgreint sem íbúðarbyggð sem nánar er útfærð í deiliskipulagi sem unnið er samhliða breytingu á aðalskipulagi. Deiliskipulag Skjólbrekku tekur yfir 12,6 ha svæði þar sem litið er til áhrifasvæðisins í heild og settir fram skilmálar um þróun svæðisins, fyrirhugaða íbúðaruppbyggingu og áhrifamat vegna framkvæmda. Deiliskipulag Bjarkar Sveitarstjórn Skútustaðahrepps samþykkti þann 24. nóvem- ber 2021 að auglýsa skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Bjarkar. Tillagan byggir á tillögu sem unnin var árið 2009 en tók ekki gildi. Í tillögunni eru tilgreindar núverandi byggingar og áform um bætta aðstöðu fyrir veitingasölu og aðstöðu ferðamanna, bygging- arreitur undir íbúðarhús og aðkoma að svæðinu lagfærð. Skipulagssvæðið er 4,24 ha að stærð. Tillöguuppdrættir og greinargerðir munu liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn, frá og með föstudeginum 3. desember 2021 með athuga- semdafresti til og með föstudeginum 14. janúar 2022. Þá eru upplýsingar einnig aðgengilegar á heimasíðu Skútu- staðahrepps undir flipanum skipulagsauglýsingar. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn og/eða í tölvupósti á netfangið: atli@skutustadahreppur.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögunar innan tilskilins frests teljast henni samþykkir. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður. Atli Steinn Sveinbjörnsson, skipulagsfulltrúi Skútustaðahrepps Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Zumba Gold 60+ kl. 10.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15 og Aflagranda 40 kl. 10.20. Aðventubingó kl. 13.30, spjaldið kostar 350 kr. Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi og yoga með Milan. Bingó kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími: 411 2600. Boðinn Pílukast kl. 10. Línudans fyrir byrjendur kl. 14.15. Línudans fyrir lengra komna kl. 15. Sundlaugin er opin kl. 13.30-16. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Myndlist með Margréti Z. kl. 9.30. Boccia í salnum kl. 10.30. Stólaleikfimi með Silju kl. 12.30 (hvetjum fólk að koma og prufa). Ættfræðigrúsk kl. 13.30. Allir velkomnir. Opið kaffihús kl. 14.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Dansleikfimi í Sjál. kl. 9.30 komin í jólafrí. Söngstund kl. 11.10 í Jónshúsi fellur niður. Félagsvist kl. 13 í Jónshúsi fellur niður vegna fjöldatakmarkana. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13-16. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9- 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-12. Útskurður kl. 9-12. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall kl. 8.30-10.30. Útvarpsleik- fimi kl. 9.45. Handavinna - opin vinnustofa frá kl. 10.30. Bridge kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 8.30 í Borgum. Pílukast í Borg- um kl. 9.30. Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópur Korpúlfa kl. 10 gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Bridgehópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og hannyrðahópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum og tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. Allir hjartanlega velkomnir og sóttvarnir í heiðrum hafðar. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag hittist föstudagshópur í handa- vinnustofu 2. hæðar kl. 10.30-11.30. Þá er opin handavinnustofa kl. 13- 16. Hallgrímur Helgason kemur og les upp úr bók sinni, Sextíu kíló af kjaftshöggum, kl. 12.30. Þá er bingó kl. 13.30-14.30 í matsal. Eftir það er vöfflukaffi, kl. 14.30. Seltjarnarnes Kaffikrókur alla morgna frá kl. 9. Syngjum inn jólin í söngstundinni í dag kl. 13. Allir velkomnir. Kr. 500.- Kaffi á eftir. Spilað í króknum kl. 13.30. Bækur Bækur Bækur úr bílskúrnum. Opin sölusíða á Facebook Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nýr 2022 Ford Transit 350 Trend Double Cab 7 manna með palli. Þessir bílar eru ófánlegir í dag en við eigum þennan til afhendingar strax! Verð: 5.300.000 án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Vantar þig fagmann? FINNA.is Smá- og raðauglýsingar Þá er elsku pabbi farinn í sína hinstu för, minningarnar hrannast upp hver af annarri. Sú fyrsta sem kemur upp er þegar við höldumst í hendur, ég er hægra megin, fjögurra ára gamall, við hlið hans. Mér verður litið upp, ég sé vangasvipinn, við erum að labba af Snæfellsásnum til Möggu frænku og Einars í Naustabúðinni, það er sumar, létt- skýjað, hægur norðanandvari, beinaverksmiðjan komin í sum- arfrí, rykið þyrlast upp þegar við fetum Skólabrautina, fuglarnir syngja, sólin hátt á lofti, lífið er ljúft, pabbi í köflótta jakkanum sínum, handabandið traust og öruggt. Við erum ósigrandi. Til- hugsunin um að pabbi sé farinn er í senn yfirþyrmandi og óraunveru- leg, þessi mikli orkubolti sem hann var alla sína tíð þrátt fyrir mörg óhöpp og slys sem stundum virtust elta hann uppi, þá var alltaf bara eitt í stöðunni; að halda áfram veginn sama hvað á dundi, uppgjöf var ekki til í hans orða- forða. Þegar ég var fimm ára, sumarið 1970, fékk ég að fara í fyrsta skipti með pabba á sjóinn, á gamla Hamri SH 224, sem var 50 tonna opinn eikarbátur, frá Rifi yfir nótt til Njarðvíkur þar sem Hamar fór í slipp. Ferðin tók átta tíma, ég var sjóveikur alla leiðina þó svo að veðrið hafi verið frekar gott og lá ég í skipstjórakojunni ælandi af og til í smurolíufötu sem var með botnfylli af sjó við hlið kojunnar, með aðstoð frá pabba þegar þess þurfti. Við vorum þrír sem sigldum yfir Faxaflóann þessa nótt, sá þriðji var vélstjór- inn og sómamaðurinn Kristján Þorkelsson eða bara Stjáni í Móabæ. Pabbi var mikill áhuga- maður um sjómennsku, það var fátt sem hann vissi ekki sem við- kom sjó og sjávarútvegi. Hann var farsæll skipstjóri, hamhleypa til allra verka, engin verkefni óyfir- stíganleg eða honum ósamboðin. Öllum líkaði vel að vera með hon- um sem skipstjóra það ég best veit. Pabbi var réttsýnn og sann- gjarn, hann átti gott með að setja sig í spor þeirra sem sátu hinum megin borðsins ef því var að skipta. Pabbi hafði mikla unun af lestri, hann las nánast allt sem hönd var á festandi enda marg- fróður um svo ótal margt og ein- staklega minnugur, sem kom sér vel í starfi hans sem skipstjóri, hann gat þulið upp mið, lengdar- og breiddar- og dýptartölur án mikillar fyrirhafnar. Þrátt fyrir bága heilsu síðustu 25 árin eða svo Reynir Benediktsson ✝ Reynir Bene- diktsson fædd- ist 5. janúar 1946. Hann lést 11. nóv- ember 2021. Útför Reynis fór fram 2. desember 2021. bar hann sig oftast vel og vildi ekki gera mikið úr því, við- kvæðið hjá honum var oft „það er ekkert að mér, ég hef það fínt“. Elsku pabbi, það á eftir að reynast mér erfitt að feta lífsins veg án þinnar nær- veru, að sættast við það að þú sért ekki lengur til staðar, fá ekki að sjá skútutattóið þitt einu sinni enn, fá ekki að heyra röddina þína eitt skiptið til, fá ekki að taka utan um þig aftur. Finna ekki aftur pabba- lyktina. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Rúnar Reynisson. Ég var 19 ára þegar ég hitti hann fyrst. Hæglátur, rólegur og vinnusamur maður sem alltaf setti aðra í fyrsta sætið. Maður sem alla tíð forðaðist sviðsljósið og tók aldrei heiðurinn fyrir sín dáðaverk en benti heldur á aðra. Ég tók strax eftir fallegu röddinni hans og hjartahlýjunni sem af honum skein. Ég á það víst til að dæma fólk af framkomu þess við dýr og þar var Reynir í sérflokki. Að sjá þennan fullorðna mann sýna kis- unum (og öllum öðrum lifandi ver- um) svo mikla ástúð og virðingu. Ég féll samstundis fyrir honum sem manneskju. Og hann óx aðeins í áliti eftir því sem leið á kynni okk- ar. Það leið ekki á löngu þar til Reynir varð afi míns fyrsta barns og síðar annars. Þvílík forréttindi. Hlutverkinu tók hann fagnandi og hvílíkur afi sem hann var. Hann gaf sig heill að börnunum, sinnti þeim af mikilli væntumþykju, óbil- andi þolinmæði, skilningi og áhuga. Hann varð besti vinur og fé- lagi barnanna og tók þátt í hinum ótrúlegustu uppátækjum. Dóttirin, sem frá fyrstu stundu var ákveðin og listræn, fékk að klæða hann upp sem prinsessu og taka þátt í heimatilbúnum leikritum. Svo ég tali nú ekki um áhrifin sem hann hafði á orkumikinn son minn sem ekki alltaf var tilbúinn að hlýða og hlusta. Hann róaðist alltaf um leið og afi talaði við hann; hlustaði, skildi og hlýddi. Enda vissi afi allt. Afi var mikill gleðigjafi og átti það stundum til að vera stríðinn, börnunum til ómældrar ánægju. Aldrei nokkurn tíma hef ég heyrt son minn hlæja eins innilega og þegar þeir tveir fundu upp á ein- hverjum grallaraskap saman. Það er ekki svo langt síðan þeir tveir fundu upp á því að skipta út upp- þvottaburstanum mínum fyrir annan vel ónýtan og svo veltust þeir um af hlátri þegar ég skildi hvorki upp né niður. Ég held að ekkert geti toppað þá tilfinningu sem það vekur í móðurhjartanu að heyra börnin hlæja frá sálinni eins og þau gerðu með afa. Afi var með öðrum orðum hreint út sagt ein- stakur – en átti þó tvífara í Hafn- arfirðinum. Við mættum þessum tvífara á rúntinum í Hafnarfirði fljótlega eftir að afi hætti að borða óhollt. Þá keyrði þessi tvífari oft um Hafnarfjörðinn með ís í hendi. Börnin héldu að þarna færi afi en ég hélt nú ekki, afi borðar jú ekki ís. Á þessari stundu finn ég fyrir svo miklu þakklæti. Það er mér sannur heiður að hafa fengið að verða Reyni samferða hluta úr lífsins vegferð og fyrir að hafa átt hann að fyrir bæði mig og börnin mín. Það er sannarlega ekki kom- ið að kveðjustund, því hann mun lifa áfram í minningunum, í hjört- um okkar og halda áfram að vera okkur hvatning til að vera betri manneskjur. Elfan dýpst að djúpi streymir, dynur minnst, því lygn hún er. Indælt hana ávallt dreymir, er til hafs hún flýtir sér. Sjálf hún speglar himin heiðan, veitir landi björg og bót, berst þó ávallt hafi mót. Lund þín virtist lík því vera, ljúf og djúp, en þó svo sterk; á því léztu eigi bera, er þú framdir dáðaverk. Friðsamt var þitt hreina hjarta, heilagt skein þar ljós guðs bjarta; dagsverk þarft þú hafðir hér, himinn bjó í sálu þér. (Friðrik Friðriksson) Sigríður Kr. Kristþórsdóttir. Einstakur maður hefur kvatt þessa jarðvist. Mín fyrstu kynni við hann voru er sonur hans og Hönnu kynntist dóttur minni fyrir meira en 20 árum og hóf búskap með henni. Þau gáfu þeim og okk- ur hjónum tvö yndisleg barna- börn. Það urðu okkar fyrstu afa- og ömmutitlar. Við hjónin náðum góðri tengingu við Reyni og Hönnu alla tíð. Ég er þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman. Reynir var traustur, rólyndur maður með góðan húmor. Umhyggjusemi allsráðandi og manni leið ætíð vel í hans návist. Hann var víðlesinn og fróður um menn og málefni. Talaði aldrei styggðaryrði um nokkurn mann. Hann hafði einstaklega gott lag á börnum og þau hændust að hon- um. Hann naut sín við leik með þeim. Ekki aðeins barnabörnum sínum, þau Hanna voru einnig „afi og amma“ barna Agnesar Þóru dóttur minnar. Reynir var einstaklega hjálp- samur og vildi allt fyrir aðra gera. Hann setti sjálfan sig aldrei í fyrsta sæti, fannst aðrir eiga það betur skilið en hann. Ég mun minnast Reynis með virðingu og hlýju. Elsku Hanna og aðrir ættingj- ar, megi minningin um góðan mann styrkja ykkur í sorginni. Ása Björk Þorsteinsdóttir. Elsku Bergþóra, það verður mikill tómleiki þegar þú ert búin að kveðja þetta líf en við vor- um búnar að þekkjast svo lengi og búnar að vera í svo nánum tengslum, sérstaklega fyrstu búskaparárin okkar Jonna. Þú Bergþóra Jónsdóttir ✝ Bergþóra Jóns- dóttir fæddist 28. júní 1929. Hún lést 18. nóvember 2021. Útförin fór fram 29. nóvember 2021. verður alltaf til í huga mínum og nú ertu farin til að hitta Óla okkar og Bryndísi sem fóru allt of snemma frá okkur. Takk fyrir alla rúmlegu þrjá áratugina sem við þekktumst og notalegu minning- arnar. Það var allt- af svo hlýlegt og heimilislegt að koma í Fjólu- götuna og búa í litlu sætu íbúð- inni meðan við vorum að byggja og brasa en þú vildir alltaf hjálpa til og hjálpa öllu fólkinu þínu og varst bara þannig, gefandi og góð og vildir hjálpa og styðja við fólkið þitt, það var þitt líf og yndi. Þegar ég hugsa til baka þá kemur svona ilmur af sunnudagslæri þegar við hittumst öll, amma Kristín, Kristinn, Edda og allir strákarnir okkar sem þú varst svo stolt af. Svo þegar við flutt- um suður þá komum við lengi vel reglulega norður um jólin og áttum notalegar stundir. Takk fyrir allt elsku amma Bebba, það var mikil og góð reynsla að kynnast þér og þú varst besta tengdamamma sem ég hefði getað átt. Bið að heilsa Óla og Bryndísi og að sjálf- sögðu ömmu Kristínu og knús- aðu þau frá mér. Kveðja, Ólöf Sæmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.