Morgunblaðið - 03.12.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 2021
„EITTHVAÐ FLEIRA? KAFFI, EFTIRRÉTT,
RÁÐLEGGINGAR UM ÁSTARSAMBÖND?“
„ÉG HÉLT AÐ ÞETTA VÆRI BARA EINN
HUNDUR Í GÆLUDÝRABÚÐINNI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leggja saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
JÓN ÁRDAL , ÞÚ
ERT DJÚPVITUR
MAÐUR
HÚN LÆTUR MIG SMAKKA
KARTÖFLUFLÖGUR TIL AÐ KANNA
HVORT ÞÆR ERU GAMLAR
ÉG SKIPTI
LÍSU MIKLU
MÁLI
HÚN LEITAR STÖÐUGT
RÁÐA HJÁ MÉR
EN VIÐÆTLUM AÐ VELJA
OKKUR ALLT!
TAKK!
GREIFINN KEMUR VON BRÁÐAR. ÞIÐ MEGIÐ KOMA
INNOG TYLLA YKKUR EF ÞIÐ VELJIÐ AÐ BÍÐA!
ÞÚ + ÉG =
greinar og bókakafla um rann-
sóknir sínar. Árið 2011 var Bjarna
veitt viðurkenning Líffræðifélags
Íslands fyrir gott upphaf á starfs-
ferli. Bjarni hefur setið í ýmsum
nefndum og ráðum tengdum sér-
fræðiþekkingu og störfum sínum.
Bjarni hefur sinnt fjölmörgum
áhugamálum. Hann gekk í Hjálpar-
sveit skáta í Kópavogi árið 1994 og
eftir að hann flutti norður hefur
hann starfað með Björgunarsveit-
inni Gretti á Hofsósi. Bjarni hefur í
um 20 ár verið í svæðisstjórn björg-
unarsveita í Skagafirði og um nokk-
urn tíma setið í Landsstjórn björg-
unarsveita. Bjarni hefur tekið þátt í
ýmsum verkefnum tengdum þróun
björgunarsveitarmála, sérstaklega
aðgerða- og leitarmála. Hann hefur
t.d. stundað rannsóknir í leitarfræði
og starfað með aðgerðastjórn al-
mannavarna á Norðurlandi vestra.
Árið 2007 stofnaði Bjarni Bjór-
setur Íslands á Hólum. Bjórsetrið
er áhugamannafélag um bjórmenn-
ingu og rekur bæði bar og brugghús
á Hólum, þar sem Bjarni sér um
bruggun. „Bjórsetrið hefur staðið
fyrir ýmiskonar viðburðum og
fræðslu tengdri bjór og bjórgerð og
ber þar hæst mánaðarlangt bjór-
gerðarnámskeið sumarið 2021 og
árlega bjórhátíð, sem því miður hef-
ur fallið niður síðustu tvö ár.“
Fjölskylda
Systkini Bjarna eru Freydís
Kristjánsdóttir, f. 16.2. 1965, mynd-
listarmaður í Hafnarfirði; Ólafur Þ.
Kristjánsson, f. 19.1. 1966, verktaki
í Hafnarfirði; Jóhanna Kristjáns-
dóttir, f. 19.1. 1966, d. 14.1. 1973.
Foreldrar Bjarna: Sigríður
Bjarnadóttir, f. 3.7. 1945, lengst af
starfsmaður í íþróttahúsi Víðistaða-
skóla, búsett í Hafnarfirði, og Krist-
ján Bersi Ólafsson, f. 2.1. 1938, d.
5.5. 2013, skólameistari Flensborg-
arskólans í Hafnarfirði.
Bjarni Kristófer
Kristjánsson
Ragnhildur Jensdóttir
húsfreyja í Króki í Selárdal
Gísli Árnason
bóndi í Króki í Selárdal,
Ketildölum í Arnarfirði
Ragnhildur G. Gísladóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Ólafur Þ. Kristjánsson
skólastjóri Flensborgarskólans í Hafnarfirði
Kristján Bersi Ólafsson
skólameistari Flensborgarskólans
í Hafnarfirði
Bessabe Halldórsdóttir
bóndi á Kirkjubóli í Bjarnardal
Kristján Guðjón Guðmundsson
bóndi á Kirkjubóli í Bjarnardal, Önundarfirði
Sigríður Ólafía Gísladóttir
húsfreyja á Hóli í Bakkadal
Finnbogi Jónsson
bóndi á Hóli í Bakkadal,
Ketildölum í Arnarfirði
Ragnhildur G. Finnbogadóttir
húsfreyja í Fremri-Hvestu
Bjarni S. Kristófersson
bóndi í Fremri-Hvestu, Ketildölum í Arnarfirði
Ingibjörg Halldóra
Gestsdóttir
húsfreyja í Fremri-
Hvestu og Reykjavík
Kristófer Kristófersson
bóndi í Fremri-Hvestu, seinna sjómaður í Reykjavík
Ætt Bjarna K. Kristjánssonar
Sigríður Bjarnadóttir
fv. starfsmaður í Íþróttahúsi
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
Ég fékk góðan póst: „Gestur
Guðfinnsson hét maður sem
las prófarkir á Alþýðublaðinu og
var laglega hagorður. Hann var
mikill ferðafélagsmaður og orti um
náttúruna. Hann setti sumt í Al-
þýðublaðið og hét þá Lómur. Esjan
fékk sinn skammt, þar á meðal
þetta ástarljóð:
Mikið lifandis ósköp er Esjan ljót,
að aftan jafnt sem að framan.
Að skakklappast þar um skriður og
grjót
er skelfing leiðinlegt gaman.
Um Esjuna margt hef ég misjafnt spurt.
Mjög er hún kaunum hlaðin.
Það ætti að flytja fjallið á burt
og fá sér annað í staðinn.
Jón Ingvar Jónsson orti þessar
tvær fyrir nokkrum árum:
Stjórnin hefur höfuð tvö,
hún er völt á stóli.
Þetta ljóð frá A til Ö
orti ég á hjóli.
Ort í blíðunni:
Fagnar degi foldar skart
og fer á stjá í einum rykk.
Æðislega er Esjan smart
en Akrafjallið dáldið sikk.“
Guðrún B. lét þessa athugasemd
fylgja lausn sinni á vísnagátunni,
sem birt verður á morgun: „Þegar
ég gúglaði lausnarorðið fann ég
annan Gest en Gest Pálsson, það er
að segja Gest Guðfinnsson. Sá var
nefndur Lómur og orti talsvert um
veðurlag. Í einni bóka hans, Hundr-
að skopkvæði, er ljóðið Áttavit-
anámskeið og lokaerindið kannski
viðeigandi núna:
Á námskeiðinu er gestkvæmt
… og glímt við stórt og smátt
og gott er að sem flestir láti sjá sig,
þar læra menn í raun og veru
… að reikna út stefnu og átt.
Og ríkisstjórnin hefur látið skrá sig.
Mjólkurfernan fer upp í 176
krónur. Anton Helgi Jónsson yrkir í
Boðnarmjöð:
Af vonbrigðum víbrar allt hverfið
því verðbólgan reynist svo erfið.
En langi nú fólk
í lítra af mjólk
það lofsyngur raðgreiðslukerfið.
Davíð Hjálmar Haraldsson sendir
„Síðbúnar hugleiðingar um kon-
ungleg málefni“:
Ættarskömm síns eðla kyns
Andrew þykir Bretaprins.
Hann er kolsvört kartnögl á
kóngafólksins stórutá.
Ármann Þorgrímsson segir þetta
„umhugsunarefni“:
Sjálfsvorkunn ef særir þig
sorgir á þig leita
kannski að horfa í kring um sig
kynni ýmsu að breyta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Misjafnt ort um Esjuna
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is