Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 25

Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ @CliffordMovie CliffordMovie.com #CliffordMovie ÞVÍ MEIRA SEM ÞÚ ELSKAR HANN ÞVÍ STÆRRI VERÐUR HANN. KEMUR Í BÍÓ MEÐ ÍSLENSKU TALI 10. DESEMBER 94% Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali SÝNDMEÐ ÍSLENSKU, ENSKU OG PÓLSKU TALI JÓLAMYND D agur B. Eggertsson borgarstjóri er höfundur bókarinnar Nýja Reykja- vík – umbreytingar í ungri borg. Bókin kemur út nokkrum mánuðum fyrir sveitarstjórnarkosn- ingar, áður en framboðslistar eru ákveðnir. Bókin er innbundin í stóru broti, prentuð á þungan myndapappír, ríkulega skreytt litmyndum. Hún skiptist í 28 kafla auk inngangs, eft- irmála og sex bls. myndaskrár, alls 352 síður. Því miður skortir heimildaskrá og nafnaskrá. Hér verður lit- ið til þess sem segir um stjórn- mál í bókinni án þess að víkja að persónulegum ónotum höf- undar. Verulegur hluti textans snýst um uppvaxtarár Dags og einkalíf. Dagur segist hafa „slysast“ í fram- boð til borgarstjórnar á R-listanum árið 2002 án þess að vera í nokkrum stjórnmálaflokki. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri handvaldi hann. Strax á fyrstu síðu lýsir hann hug sínum til Sjálfstæðisflokksins. Hann hafi ekki fengið vinnu við sorp- hirðu áður en hann ætlaði í MH um áramótin og þess vegna farið strax um haustið í MR. Þá segir: „Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki litið á borgina sem sína eigin, valdakerfi sem var notað sem úthlut- unarmiðstöð fyrir störf og lóðir og allra handa verkefni handa flokks- mönnum hefði ég líklega farið í MH og orðið leikari eða veðurfræðingur.“ Þetta ólundarstef í garð Sjálf- stæðisflokksins birtist hvarvetna. „Ég ætla að segja þessa sögu í fyrstu persónu með mínum orðum og frá eigin sjónarhorni. Þetta á ekki að vera þurr fræðitexti þótt hann eigi að vera sannur. Með persónulegri frá- sögn vil ég veita innsýn sem erfitt væri að gera á annan hátt.“ (7) Tilvitnuðu orðin bera með sér að það vakir ekki fyrir höfundi að fara vísvitandi með rangt mál. Margt af því sem sagt er orkar þó tvímælis. Sumt er rangt. Allt hnígur til þeirrar áttar að hlutur sögumanns sé sem bestur. „Ég naut stuðnings allra borgar- fulltrúa Reykjavíkurlistans til að taka við [sem borgarstjóri af Þórólfi Árna- syni]. Það varð ekki. Steinunn Valdís Óskarsdóttir varð þriðji borgarstjór- inn á kjörtímabilinu [2002 til 2006].“ (s. 21). Þórólfur tók við þegar Ingi- björg Sólrún naut ekki lengur trausts annarra flokka í R-listanum. Dagur varð fyrir miklum von- brigðum vegna upplausnar R-listans og íhugaði fráhvarf frá stjórnmálum í sumarlok 2005. Ingibjörg Sólrún var þá formaður Samfylkingarinnar og talaði um fyrir Degi. Hún fékk hann til að ganga í flokkinn til sín og fara í „rosalegt“ prófkjör þar sem hann sigraði. Hann hefur síðan leitt Sam- fylkinguna í borgarstjórn. Að hann var varaformaður Samfylking- arinnar frá vori 2009 fram á ár 2013, á stjórnarárum Jóhönnu Sigurð- ardóttur, fellur utan garðs í frásögn hans. Þegar Dagur ræðir áherslur sínar í borgarmálum kemur ekkert á óvart: lokun Reykjavíkurflugvallar, miðborgin og göngugötur, horn í síðu einkabílsins og borgarlína, þétting byggðar í stað útþenslu. Fjármál og rekstur eru ekki í brennidepli nema hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem hann sakar sjálf- stæðismenn um að hafa gert næst- um gjaldþrota. Hann skautar yfir vandræðamál á borð við braggamálið, „umgjörð og ferlar voru alls ekki í nægjanlega föstum skorðum á skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar til að takast á við svo áhættusamt verkefni sem endurgerð gamalla húsa óneit- anlega er“. (103) Í annan stað ber hann ofurlof á þessa skrifstofu og forstjóra hennar. Þegar bragga- málið var mest á döfinni haustið 2018 var fjölmiðlum bent á arkitekt á einkarekinni stofu sem tók höggið. Hluta umræðutímans um bragg- ann var Dagur frá vegna veikinda. Fjárhæðir gáfu að hans mati ekki til- efni til allra þessara frétta. Afsakar hann sig með því að kostnaðaráætl- anir hafi ekki heldur staðist við smíði ráðhússins um 30 árum áður! Dagur hefur átt í útistöðum við Samtök iðnaðarins vegna svonefndra innviðargjalda sem eru falin í samn- ingum við verktaka undir heitinu „samningsmarkmið“. Þar er að finna kvaðir um sölu á íbúðum til Félags- bústaða, listskreytingar í almanna- rými og stundum fjárfestingu í leik- skólum eða öðru. Í bókinni leggur hann ríka áherslu á að verja þessar kvaðir. Pólitískur vilji borgarstjóra virðist ráða miklu um efni þeirra eftir því hvar byggt er í borgarlandinu eða í hvaða tilgangi. Hann leitast á mörg- um blaðsíðum við að snúa vörn í sókn í umræðunum um húsnæðismál þar sem málstaður hans á undir högg að sækja. Sjálfstæðisflokkurinn er skot- spónn eða bjargvættur eftir því sem hentar hverju sinni. Degi er í nöp við Kringluna og Korputorg. Vegna torgsins getur hann ekki skammað Sjálfstæðisflokkinn. Þegar Þórólfur Árnason var borgarstjóri kvaddi hann sér hljóðs í borgarstjórn til að boða gleðileg stór- tíðindi, áhuga fjárfesta á stórverslun þar sem nú er Korputorg. Um Kringluna segir Dagur að með henni hafi Sjálfstæðisflokkurinn vegið markvisst að miðborginni. Því hafi „nánast [verið] fylgt eftir með hand- afli og eftir pólitískum leiðum“ að verslunarhús reis þar sem Kringlan er nú. (133) Þetta segir hann í hneykslunartón en stærir sig af að hafa komið Alvogen og CCP á svæði vísindagarða í Vatnsmýrinni. Dagur kallar umsamdar álögur á verktaka „uppbyggingarsamninga“ og telur sig hafa unnið pólitíska slag- inn um þá þegar Sjálfstæðisflokk- urinn „óskaði eftir samningum til að þróa mætti reitinn í kringum höfuð- stöðvar flokksins, Valhöll við Háa- leitisbraut“. Þetta geri Sjálfstæð- isflokkurinn hvað sem liði „relli í borgarfulltrúum flokksins“. (229) Ef ekki væri borgarstjóri sem þarna talaði þætti þetta marklítið. Orðin lýsa andrúmsloftinu sem Dag- ur skapar í borgarstjórn Reykjavík- ur. Annars staðar kvartar hann und- an að menn séu að álasa sér fyrir að Sundabraut hafi ekki verið lögð, nærtækara sé að líta til gjaldþrots seðlabankans og „hvarfs“ símapen- inganna(!). (313) Borgarlínan hvílir þungt á Degi en hann telur hana greinilega komna fyrir vind og segir: „Ég valdi að taka aldrei undir raddir sem vildu eigna mér Borgarlínuna eða samgöngu- sáttmálann. Mér leiðist pólitískt mont …“ (296) Undir lok bókarinnar og lesturs alls sem þar er sagt koma þessi orð lesanda í opna skjöldu. Hvergi er dregin fjöður yfir ágæti sögumanns og hverju hann hefur áorkað. Bókar- heitið Nýja Reykjavík er í anda upp- ljómunar. Spámaðurinn talar ekki um gömlu Jerúsalem heldur nýju Jerúsalem sem stígur niður af himni frá Guði, segir í Opinberunarbókinni. Af bók Dags má ráða að miklu hafi verið áorkað, enn sé þó verk að vinna. Spurningin er hvort bókin sé loka- punktur eða upphaf að nýju dags- verki. Reykjavík í augum borgarstjóra Morgunblaðið/Eggert Borgarstjórinn Hvergi er dregin fjöður yfir ágæti sögumanns og hverju hann hefur áorkað, segir um bók Dags. Borgarmál Nýja Reykjavík, umbreytingar í ungri borg Eftir Dag B. Eggertsson. Veröld, 2021.Innbundin, myndskreytt, 352 bls. BJÖRN BJARNASON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.