Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Uppbygging jarðhitavirkjunar í
Krýsuvík er augljósasti kosturinn til
að mæta fyrirséðum skorti á heitu
vatni á höfuðborgarsvæðinu að mati
Orra Björnssonar,
formanns starfs-
hóps á vegum
Hafnarfjarðar-
bæjar um framtíð-
arnýtingu Krýsu-
víkursvæðisins.
Hópurinn skilaði
nýverið af sér
skýrslu í fimm lið-
um um möguleika
á nýtingu á svæð-
inu.
„Við erum búin að vera að horfa á
heildarmyndina og aðalatriðið er
möguleikinn á að virkja þarna heitt
vatn,“ segir Orri. Í skýrslu hópsins
segir að rannsaka þurfi hagkvæmni
uppbyggingar virkjunarsvæðis með
það í huga að kanna arðsemi allt að
100 MW raforkuvers og allt að 300
MWth fyrir heitavatnsvirkjun. Lögð
er áhersla á að ekki verði farið í frek-
ari vinnu við virkjun nema að und-
angenginni ítarlegri kynningu á já-
kvæðum og neikvæðum áhrifum
virkjunar fyrir bæjarbúa.
Lengi hefur verið á teikniborðinu
að virkja í Krýsuvík. HS Orka hefur
rannsóknarleyfi á orkunýtingarmögu-
leikum þar. Forstjóri fyrirtækisins,
Tómas Már Sigurðsson, sagði einmitt
í viðtali við Morgunblaðið fyrir
skemmstu að horft væri til Krýsuvík-
ur sem næsta nýtingarsvæðis og lýsti
svæðinu sem mikilli auðlind.
„Næsta skref er að ganga frá nýt-
ingarsamningi. Hafnarfjarðarbær og
HS Orka þurfa að komast að sam-
komulagi um það hversu mikið HS
Orka vill borga,“ segir Orri.
Starfshópurinn leggur einnig
áherslu á byggð verði upp betri að-
staða fyrir ferðamenn, til að mynda
við Krýsuvíkurbjarg. Laga þurfi veg
og bílastæði og byggja útsýnispall svo
gestir geti virt fyrir sér stórbrotið út-
sýnið og landslag við bjargbrúnina.
Tækifæri þurfi að vera til að koma
upp veitingarekstri við útsýnispallinn.
Sama gildir um Seltún sem er sagt
einn af mest sóttu ferðamannastöðum
á suðvesturhorninu. Hafnarfjarðar-
bær þurfi að skipuleggja svæðið svo
hægt sé að byggja þar upp öflugan
ferðamannastað og mögulega að bjóða
reksturinn út. Jafnframt þurfi að gera
umhverfið við Krýsuvíkurþorpið
snyrtilegra og hlúa að kirkjunni og
Húsi málarans. Auka megi nýtingu al-
mennings á svæðinu og skapa mannlíf
með því að leigja út ræktunarreiti að
evrópskri fyrirmynd. Þá eru viðraðar
hugmyndir um skógrækt og upp-
græðslu sem myndu gagnast til að
kolefnisjafna sveitarfélagið Hafn-
arfjörð.
„Krýsuvík hefur orðið vinsælli með
árunum sem ferðamannasvæði. Að-
staðan er ekki góð eins og hún er núna
og þessar hugmyndir snúast um að
koma upp almennilegri aðstöðu til að
ferðamenn geti notið svæðisins betur.
Covid hefur sett strik í reikninginn
varðandi uppbyggingu en stefnan er
að það fari eitthvað í gang þarna sem
fyrst. Það er allt opið enn þá en bær-
inn ætti alla vega að geta mætt eft-
irspurn ef einhverjir vilja ráðast í upp-
byggingu,“ segir Orri.
- Starfshópur Hafnarfjarðarbæjar leggur áherslu á uppbyggingu jarðhitavirkjunar í Krýsuvík
- Vilja bæta aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum - Ræktunarreitir að evrópskri fyrirmynd
Miklir möguleikar á Krýsuvíkursvæðinu
Morgunblaðið/Eyþór
Krýsuvík Mikill fjöldi ferðamanna fer um svæðið en bæta þarf aðstöðu.
Orri
Björnsson
Sara Dögg Svan-
hildardóttir, bæj-
arfulltrúi í
Garðabæ, sækist
eftir því að leiða
lista Viðreisnar í
bænum í kom-
andi sveitar-
stjórnarkosn-
ingum. Hún
hefur leitt
Garðabæjarlist-
ann á þessu kjörtímabili og verið
þar fulltrúi Viðreisnar í samstarfi
nokkurra flokka. Garðabæjarlist-
inn verður þó áfram í framboði.
Í yfirlýsingu fer Sara Dögg yfir
nokkur þau mál sem hún hafi barist
fyrir í Garðabæ. Hægt sé að gera
gagn sem bæjarfulltrúi þótt í minni-
hluta sé. Hún vilji sjá Garðabæ í
fremstu röð samfélaga þar sem vel-
sæld allra sé forgangsmál.
Sara Dögg vill leiða
Viðreisn í Garðabæ
Sara Dögg
Svanhildardóttir
„Ástæðan fyrir
því að ég kveð
mér hljóðs hér í
dag er sú að póst-
hólfið mitt er
yfirfullt af póst-
um frá fátækum
Íslendingum, ör-
yrkjum sem
hrópa á aðstoð
fyrir jólin,“ sagði
Jódís Skúladóttir,
þingmaður VG, í jómfrúræðu sinni á
Alþingi í gær í umræðu um störf
þingsins. Hún sagði að ef hún gæti
hjálpað hverju og einu myndi hún
gera það en hún hefði ekki tök á því.
Enn fremur sagðist hún þekkja fá-
tækt á eigin skinni.
„Elsti sonur minn, sem ég eign-
aðist þegar ég var 14 ára gömul, var
langveikt barn. Barnaspítalinn er í
Reykjavík. Ég er þolandi kynferðis-
ofbeldis. Hjálpin er í Reykjavík. Ég
er lögfræðingur að mennt. Ég þurfti
að sækja mína menntun til Reykja-
víkur,“ sagði Jódís jafnframt.
Hún tók fram að allir landsmenn
væru hluti af samfélaginu „en við
sem erum af landsbyggðinni búum
alltaf við skertan kost. Hér hefur
verið talað um að fólk standi í röðum
eftir jólamat. Víða á landsbyggðinni
eru engar raðir af því að þar er eng-
in hjálp.“ jonpetur@mbl.is
Fátækir
hrópa eft-
ir aðstoð
Jódís
Skúladóttir
- Fólk úti á landi býr
við skertan kost
Willum Þór Þórsson heilbrigðis-
ráðherra hefur ákveðið að fela
Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) að
fella brott ákvæði úr samningi SÍ
og sjálfstætt starfandi talmeina-
fræðinga um tveggja ára starfs-
reynslu sem skilyrði fyrir greiðslu-
þátttöku Sjúkratrygginga.
Starfshópur vinnur nú að grein-
ingu á þjónustu talmeinafræðinga
og hvernig henni verði best hagað
til framtíðar með hliðsjón af lögum
um samþættingu þjónustu í þágu
farsældar barna, segir í tilkynn-
ingu. Viðræður SÍ og talmeinafræð-
inga um nýjan samning eiga að
hefjast eftir áramót.
Skilyrði um starfs-
reynslu tekið út
Listaverkið Kærleikur hefur fengið verðugan sess í
nýju húsi Kvennaathvarfsins þar sem eru íbúðir fyrir
konur og börn þeirra sem dvalist hafa í athvarfinu.
Söfnunarátakið Á allra vörum var helgað byggingu
hússins árið 2017 og meðal gjafa sem bárust við það til-
efni, auk 80 milljóna króna sem söfnuðust, var lista-
verkið Kærleikur eftir Ingunni Benediktsdóttur gler-
listakonu. Hjónin Brynjar Harðarson og Guðrún
Árnadóttir gáfu verkið og þau afhentu það formlega á
dögunum.
Ljósmynd/Á allra vörum
Kærleikur í húsi Kvennaathvarfsins