Morgunblaðið - 15.12.2021, Side 28
Kvartett söngkonunnar Rebekku Blöndal kemur fram á
tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Flóa í Hörpu í kvöld,
miðvikudagskvöld, og hefjast þeir kl. 20. Efnisskrá
tónleikanna verður tileinkuð söngkonunni Ellu Fitzger-
ald og gítarleikaranum Joe Pass en þau komu á sínum
tíma fram saman á nokkrum plötum sem innihéldu
klassíska djass-standarda á borð við Lush life og One
note samba. Kvartettinn skipa, ásamt Rebekku, Ásgeir
Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matthíasson á bassa og
Erik Qvick á trommur.
Kvartett Rebekku Blöndal hyllir
Ellu Fitzgerald og Joe Pass
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Englandsmeistarar Manchester City settu upp sýningu
þegar Leeds United kom í heimsókn í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu karla í gærkvöldi. Skoraði City
sjö mörk gegn engu marki Leeds.
Á sama tíma vann Aston Villa sinn fjórða sigur í
fyrstu sex deildarleikjunum undir stjórn Stevens Gerr-
ards þegar það vann góðan 2:0-útisigur á botnliði Nor-
wich City. »23
Englandsmeistararnir skoruðu sjö
ÍÞRÓTTIR MENNING
til 1887, í öðru frá 1887 til
1902 og í því þriðja frá
1902 til 1954. Þau segja
merkilega sögu. Böðvar
minnir á að möguleikar
landsmanna til fram-
færslu hafi verið af skorn-
um skammti hérlendis.
Íslendingar hafi flutt út í
óvissuna, ekki vitað hvað biði þeirra
handan hafsins og allt hafi verið nýtt
fyrir þeim. „Þeir kunnu ekki einu
sinni að nota skóflu, en náðu reyndar
undrafljótt tökum á því sem þeir
tóku sér fyrir hendur.“ Tónninn í
bréfunum hafi gjarnan endur-
speglað beiskju yfir því að hafa orðið
að fara frá Íslandi og bréfin beri oft
með sér heimþrá og söknuð. Í bréf-
unum í þriðja bindinu kveði við ann-
an og jákvæðari tón eftir því sem á
líði tímabilið. „Þá hefur fólk fest ræt-
ur og hafa ber í huga að eftir því sem
íslenska samfélagið vestanhafs varð
fjölmennara var auðveldara fyrir
frumbyggja að hasla sér völl. Frum-
byggjarnir voru mállausir á enska
tungu og lentu í vandræðum. Marg-
ar konur unnu hjá enskum fjöl-
skyldum og lærðu oft málið á undan
íslensku körlunum.“
Hjónin Böðvar og Eva Rode búa
skammt fyrir utan Kaupmannahöfn
og tóku þátt í að flytja Jólaoratoríu
Bachs í byrjun mánaðarins.
„Ég hef verið í kórum frá 1978,
fyrst á Akureyri, síðan í Noregi og
svo hérna, en Eva spilar á fiðlu.“
Kórinn og hljómsveitin hafi verið
með tvenna tónleika og þeir verði
ekki fleiri fyrir jól.
Böðvar segist ekki ætla að búa
fleiri bréf til prentunar og kasti bolt-
anum til annarra. „Vafalaust eru
mörg bréf eftir og ef einhver vill
gefa þau út er það gleðilegt og gott.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mál og menning hefur gefið út bók-
ina Bréf Vestur-Íslendinga III, sem
Böðvar Guðmundsson bjó til prent-
unar. Í formála fyrstu bókarinnar
segir Böðvar að hann hafi tekið með
sér 40 kg af ljósrituðum bréfum í
handfarangri heim til Danmerkur,
þar sem hann hefur búið síðan 1987,
og nú segist hann vera kominn niður
úr staflanum. „Það er gott til þess að
vita að þetta safn mitt sé loks komið
út,“ segir hann. „Það ber fyrst og
fremst að þakka framgöngu Svavars
Gestssonar, þáverandi formanns
heiðursráðs Þjóðræknisfélags Ís-
lendinga. Hann og Ólafur Davíðsson
gengust fyrir söfnun peninga til að
borga kostnað útgáfunnar.“ Böðvar
lýsir jafnframt ánægju með að
Bókaútgáfan Sæmundur hafi gefið
út 2. útgáfu af Sögum úr Síðunni
sem hafi fyrst komið út 2007.
Mikill efniviður
Langafi Böðvars flutti til Vestur-
heims og börn hans héldu bréfa-
sambandi við Guðmund Böðvarsson,
föður hans. Böðvar kynnti sér bréfin
ásamt öðrum bréfum og notaði efnið
í skáldsögurnar Híbýli vindanna og
Lífsins tré. Í kjölfarið fór hann að
huga að útgáfu ís-
lenskra Ameríkubréfa.
Hann naut aðstoðar
héraðsskjalavarða víða
um land og byrjaði að
vinna úr fyrrnefndum
ljósritum 1997. „Mér
fannst að úrval þessara
bréfa þyrfti að koma út,“
segir hann og vísar til
sambærilegrar útgáfu
víða. Meðal annars hafi
komið út sjö binda útgáfa
í Noregi og myndarleg útgáfa í
Þýskalandi. Og sömu sögu sé að
segja frá Danmörku og Svíþjóð. „Ég
gerði mér ekki grein fyrir hvað þetta
er mikið magn,“ heldur hann áfram
og bendir á að Heimir Pálsson hafi
gefið út öll bréf frá Jóni frá Mýri í
Bárðardal í bókinni Leitinni að land-
inu góða, sem kom út 2006. „Svo það
er bara eitt bréf frá honum í Bréfum
Vestur-Íslendinga, en Jón frá Mýri í
Bárðardal var einn mikilvirkasti
bréfritari vestanhafs.
Í fyrsta bindinu eru bréf frá 1873
Síðustu bréf Böðvars
- Böðvar Guðmundsson kominn niður úr 40 kg staflanum
Rithöfundur Böðvar Guðmundsson hefur kastað boltanum frá sér.