Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 2. D E S E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 300. tölublað . 109. árgangur .
jolamjolk.is
dagar til jóla
2
Ketkrókur
kemur í kvöld
SÖGUR UM ÁSTIR
SEM FINNAST
OG TAPAST
MIKIL UPP-
BYGGING Í
HAFNARFIRÐI
ÞÓRIR NÁÐI
UNDRAVERÐ-
UM ÁRANGRI
VIÐSKIPTAMOGGINN SÁTTUR EFTIR SIGUR Á HM 30ÓSKILAMUNIR 33
Afganistan, þaðan til Georgíu, svo til
Stokkhólms og loks til Keflavíkur.
Var hann í hópi 22 flóttamanna frá
Afganistan sem fá hér vernd.
Khairullah var að vonum feginn
að komast heim en ferðin var honum
erfið, enda þekkti barnið ekki pabba
sinn og grét mikið.
„Þetta var erfitt, sonur minn
þurfti að fara frá tengdamóður minni
sem hafði hugsað um hann allan tím-
ann. Ég var sem ókunnugur maður í
hans augum og hann grét mikið. Það
var sársaukafullt fyrir mig að horfa
upp á. En ég er yfir mig glaður að fá
son minn aftur,“ segir Khairullah,
sem vill þakka íslenskum stjórnvöld-
um og öllum þeim sem hafa aðstoðað
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Það var tilfinningaþrungin stund
þegar Arsalan litli komst heim til Ís-
lands eftir að hafa verið aðskilinn frá
foreldrum sínum í rúma fjóra mán-
uði. Hjónin Khairullah Yosufi og
Zeba Sultani flúðu frá Afganistan í
ágústlok en neyddust til að skilja hinn
þá tveggja mánaða Arsalan eftir í
Afganistan en barnið lenti í andnauð í
öngþveitinu á flugvellinum í Kabúl.
Þekkti ekki pabba sinn
Khairullah fór til móts við barn-
ið og flaug til Georgíu en þá hafði
Arsalan flogið frá Kabúl til Mazar í
þau í gegnum allt ferlið og ferðalag-
ið.
„Ég er mjög hamingjusöm“
Arsalan litli svaf vært í burðar-
rúmi eftir heimkomuna og kippti sér
ekki upp við atgang fjölmiðla. Hann
vaknaði ekki fyrr en komið var út í
bíl og sá þá mömmu sína í fyrsta sinn
síðan daginn örlagaríka þegar þau
urðu viðskila í ringulreiðinni. Zeba
fór í gegnum allan tilfinningaskalann
þegar hún sá son sinn fyrst sofandi og
tár féllu. En í bílnum var hún farin að
brosa breitt.
„Ég get varla lýst tilfinningum
mínum en ég er mjög hamingjusöm.
Ég fékk að sjá son minn aftur eftir
Morgunblaðið/Ásdís
Sameinuð Zeba hitti son sinn loks aftur í gær þegar hann lenti á Keflavíkurvelli ásamt hópi flóttamanna frá Afganistan. Hann svaf vært þar til í bílinn var
komið og brosti þá framan í mömmu sína. Faðir hans Khairullah speglast í bílrúðunni, alsæll að fá son sinn til sín. Nú er fjölskyldan komin í öruggt skjól.
„Tilfinningin er ólýsanleg“
Gleði hjá flóttafólki frá Afganistan sem endurheimti son sinn í gær
- Arsalan litli kominn til foreldra sinna - Gleði og tár á flugvellinum í gær
fjóra og hálfan mánuð. Tilfinningin
er ólýsanleg. Ég vil þakka öllum sem
hjálpuðu okkur.“
Það opnaðist gluggi
Linda Rós Alfreðsdóttir, sér-
fræðingur í málefnum flóttamanna
hjá félagsmálaráðuneytinu, tók á
móti hópnum í Keflavík, ásamt starfs-
mönnum Rauða krossins og Fjöl-
menningarsetursins.
„Það er örugglega mikill léttir
fyrir fólkið að komast til Íslands en
svo eru líka blendnar tilfinningar því
nánir vinir og ættingjar sitja eftir,“
segir Linda og segir það hafa verið
mikla vinnu að koma þessum síðasta
hópi Afgana heim.
_ Kristján Ra.
Kristjánsson, sem
rekur Göta Lejon-
leikhúsið í Stokk-
hólmi hefur þró-
að og sett upp
söngleik um ævi
Edith Piaf en
aðalleikkonur
verksins eru
mæðgurnar Mel-
ana Ernman og Beata Thunberg.
Melana er móðir aðgerðasinnans
Gretu Thunberg.
Hefur sýningin hlotið góða dóma
og rétturinn að henni seldur til Nor-
egs. Kristján er með mörg járn í eld-
inum í Svíþjóð og þeim fjölgar einn-
ig hér á landi. »ViðskiptaMogginn
Setur upp söngleik
með móður Thunberg
Kristján Ra.
Kristjánsson
_ Verðbólga nú í desember mælist
5,1% og hefur ekki verið hærri frá
því um mitt ár 2012. Í nóvember
mældist hún 4,8%. Sem fyrr er það
fasteignamarkaðurinn sem knýr
hækkanir umfram annað en aðal-
hagfræðingur Íslandsbanka segir
þó að margt bendi til þess að meiri
ró hafi færst yfir markaðinn í des-
ember en undanfarin misseri.
Hækkun á húsnæðislið vísitölunnar
hafi ekki verið jafn lág síðan í febr-
úar. Mjólkurvörur hækka talsvert í
verði milli mánaða og þá hækkuðu
flugfargjöld um ríflega 10% frá
nóvembermánuði. Löng hefð er fyr-
ir því að verð á þeim markaði
hækki í desember þegar námsmenn
og aðrir Íslendingar sem búa er-
lendis leggja leið sína heim til ná-
kominna yfir hátíðirnar.
»ViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Hari
Bólga Matur og drykkjarvörur hækka.
Verðbólgan ekki
meiri í níu ár
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Óvissa sem fylgir Ómíkron-afbrigð-
inu er á meðal áhrifaþátta í sótt-
varnaaðgerðum en af þeim 11.000
sem greinst hafa með Ómíkron-af-
brigðið í Danmörku hafa 0,7% þurft
á spítalainnlögn að halda. Innlagnat-
íðni er 1,5% vegna annarra afbrigða,
að því er fram kemur í minnisblaði
sóttvarnalæknis.
Embætti landlæknis gat ekki veitt
upplýsingar um innlagnatíðni hér á
landi vegna afbrigðisins en Runólfur
Pálsson, framkvæmdastjóri með-
ferðarsviðs Landspítala, segir að
slíkt muni líklega skýrast á næstu
dögum, þar sem smitum er nýlega
farið að fjölga hratt.
„Það má segja að þessi bylgja í
Danmörku sé kannski tveimur vik-
um á undan okkur. Það er ekki farið
að reyna á þetta enn þá en það er lík-
legt að það muni gerast á næstu dög-
um,“ segir hann. Staðan sé þung á
spítalanum nú þegar þar sem margir
leiti þangað vegna annarra veikinda.
„Það geta liðið nokkrir dagar frá
því fólk sem greinist með smit fær
vaxandi einkenni og kemur til okk-
ar,“ segir hann.
Takmarkanir hertar á miðnætti
Sóttvarnalæknir lagði til að 20
manns mættu koma saman og féllst
ríkisstjórnin á það ásamt fleiri tak-
mörkunum, sem taka gildi á mið-
nætti. Ríkisstjórnin ákvað þetta með
hliðsjón af fjölgun smita og óvissu
sem fylgir Ómíkron-afbrigðinu, sem
sóttvarnalæknir fjallar ítarlega um í
minnisblaði sínu en þar segir að
þrátt fyrir að fyrstu tölur bendi til
vægari einkenna vegna afbrigðisins
sé ekki hægt að fullyrða um hvort
það valdi alvarlegri eða vægari veik-
indum.
Rannsóknir síðustu vikna hafa
sýnt fram á að smithæfni Ómíkron-
afbriðgisins er í það minnsta helm-
ingi meiri en smithæfni Delta-af-
brigðisins, að því er fram kemur í
minnisblaði sóttvarnalæknis. Í Dan-
mörku höfðu um 80% þeirra sem
greindust með Ómíkron-afbrigðið
fengið tvær bólusetningar, um 10%
fengið þrjár og voru 10% óbólusettir.
Óvissa en innlagnatíðni lægri
- Sóttvarnalæknir greinir frá lægri innlagnatíðni vegna Ómíkron-afbrigðis í Dan-
mörku - Tekið mið af óvissu og fjölda smita - 20 manna fjöldatakmörk taka gildi
MTuttugu manna … »4 & 14