Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021
Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur
saman, sýnir stuðning og samhug
eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
JÓLASÖFNUN
Söfnum í jólasjóðinn hjá
Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt
okkur lið er bent á
bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Jólasöfnun
Guð blessi ykkur öll
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Inga Þóra Pálsdóttir
ingathora@mbl.is
Að sögn verslunarmanna munu
landsmenn fá kósí jólapakka í ár.
Kerti og kósíföt hafa notið sérstakra
vinsælda, huggulegheitin allsráð-
andi.
Kringlan hefur iðað af lífi síðustu
vikur. Framkvæmdastjóri hennar
segir árið í ár vera á pari við jólin
2019.
„Jólaverslunin hefur verið mjög
góð. Hún er meiri en í fyrra og ef ég
miða við árið 2019 þá virðist hún
fram til þessa vera á pari við 2019.
Aðsóknin er nokkuð jöfn yfir daginn
og álagið dreifist vel,“ segir Sigurjón
Örn Þórsson, framkvæmdastjóri
Kringlunnar, við Morgunblaðið.
Sigurjón finnur mikið fyrir því að
landsmenn vilji hafa notalegt heima
hjá sér. „Við finnum mikið fyrir því
að þessi kósí stemning er talsvert
ráðandi hjá okkur og jogginggallinn
er þar áberandi en svo er gjafavaran
auðvitað alltaf vinsæl.“
„Þetta eru peysujólin miklu“
Blaðamaður Morgunblaðsins
heyrði í nokkrum verslunarstjórum
og spurði þá út í vinsælustu jólagjaf-
irnar í ár.
Í Herragarðinum hafa peysur
selst eins og heitar lummur. „Þetta
eru peysujólin miklu,“ segir Jón
Víðir Þorsteinsson, verslunarstjóri
Herrragarðsins í Smáralind. Póló-
peysurnar hafa verið einstaklega
vinsælar og segir Jón þær nánast
uppseldar. Í Epal hefur selst mest af
hlýlegum vörum að sögn Kjartans
Páls Eyjólfssonar, framkvæmda-
stjóra. Helst eru það kerti, sæng-
urföt og LED-ljós. Að sögn Fjólu
Heiðarsdóttur, verslunarstjóra
BAST, eru ilmstangir vinsælastar
hjá þeim í ár. Þá hefur sömuleiðis
selst vel af ilmkertum, kokteil-
hristurum og uppvöskunarsettum. Í
Snúrunni hafa kertastjakar og kerti
verið vinsælasta gjöfin segir Sigríð-
ur Kjerúlf, verslunarstjóri Snúr-
unnar í Ármúla.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jólaverslun Annríki var í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í gær þar sem fólk var að skoða og velja jólagjafir.
Kósí jólapakkar þetta árið
- Fólk flykkist í Kringluna - Pólópeysur og kerti vinsæl
Kórónuveirufaraldurinn er farinn að
taka sinn toll í framhaldsskólunum,
að sögn Guðjóns Hreins Hauksson-
ar, formanns Félags framhalds-
skólakennara. „Faraldurinn stuðlar
ekki að heilbrigðu námsumhverfi og
við náum ekki sömu markmiðum og
áður. Áhrif faraldursins eru að verða
nemendum og kennurum erfið, bæði
námslega og and-
lega,“ segir Guð-
jón. Truflanir á
staðkennslu, álag
og skortur á fé-
lagslegum
tengslum hafa
haft neikvæð
áhrif.
„Það vantar
áþreifanleg gögn
þessu til sönnun-
ar og enn byggist
þetta mest á tilfinningu kennara,“
segir Guðjón. Þessi tilfinning er
nokkuð útbreidd. Hann segir að um
þetta leyti í fyrra og síðasta vor hafi
verið skoðaðar tölur um brottfall úr
námi og lokaeinkunnir í áföngum.
Þau gögn gáfu ekki tilefni til sér-
stakra ályktana.
„Nú erum við komin með nemend-
ur sem hafa verið meira en helming
framhaldsskólagöngu sinnar í Cov-
id-19-ástandi. Það hefur varað frá
því í mars 2020 eða í eitt og hálft ár.
Vorönn og haustönn 2020 og vorönn
og haustönn 2021 voru allar undir
miklum áhrifum af faraldrinum.
Megnið af framhaldsskólagöngu
nemenda sem hófu nám haustið 2019
hefur verið litað af Covid,“ segir
Guðjón. Þau sem byrjuðu í fram-
haldsskóla í haust áttu ekki heldur
eðlilega skólagöngu í 10. bekk.
„Við höfum gert okkar besta til að
halda uppi eðlilegu skólastarfi eins
og hægt er, en það er orðið verulega
erfitt að halda dampi. Því hefur verið
haldið fram að við séum að halda í
horfinu, en ég held að það sé ekki
raunhæft. Þetta er farið að segja til
sín í andlegri heilsu kennara og ég
hef áhyggjur af mínu félagsfólki. Ég
óttast að við munum sjá aukna tíðni
kulnunar kennara í starfi.“
Guðjón segir að áhrif faraldursins
séu áberandi í meirihluta framhalds-
skóla, þeim sem byggja á stað-
kennslu og því að nemendur og
kennarar hittist. „Skóli byggist mik-
ið á því að hittast í samfélagi, þrosk-
ast saman, rekast á og takast á í hóp-
verkefnum augliti til auglitis. Á
þessum árum hittir fólk jafnvel lífs-
förunautinn! Þetta er gríðarlega
mikilvægt æviskeið. Félagslegt um-
hverfi skólanna er bókstaflega í
hættu vegna faraldursins,“ segir
Guðjón. Hann segir að upphaf næstu
annar líti hreint ekki vel út miðað við
þær takmarkanir sem nú taka gildi.
gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Faraldurinn Þessir nemar í MR
voru með grímu í skólanum.
Áhrif faraldursins
eru orðin erfið
- Framhaldsskólakennarar að bugast
Guðjón Hreinn
Hauksson
Rebekka Líf Ingadóttir
Karítas Ríkharðsdóttir
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis,
greindist í gær smitaður af Covid-19.
Birgir er annar þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins til þess að greinast
með Covid-19
undanfarna daga
og sá áttundi á Al-
þingi sem er smit-
aður sem stendur.
Auk þess hafa
fjórir starfsmenn
þingflokka
greinst með kór-
ónuveiruna.
Líneik Anna
Sævarsdóttir,
annar varaforseti
Alþingis og þingmaður Framsóknar-
flokksins, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gær vera bjartsýn á að
þingið nái að klára helstu mál fyrir
þinglok. „Það gengur allt, það
kannski gengur eitthvað aðeins hæg-
ar en ég sé ekki annað en að það klár-
ist allt sem þarf að klára fyrir ára-
mót,“ sagði Líneik. Hún segist gera
ráð fyrir að allir þingmenn verði
skimaðir daglega en segist ekki hafa
orðið vör við það að þingmenn séu
smeykir að mæta til starfa vegna
smitanna sem greinst hafa á Alþingi.
Líneik segist þó halda að allir þing-
menn og annað starfsfólk Alþingis
fari varlega og segir engan hafa verið
útsettan fyrir smiti í þingstörfum síð-
an fyrir helgi.
„Það eru fjáraukinn og fjárlögin
sem er verið að gera áherslu á að
klára aðra umræðuna um núna, eða
það er verið að leggja áherslu á að
klára fjáraukann í dag og aðra um-
ræðuna um fjárlögin fyrir jól,“ sagði
Líneik í gærkvöldi. „Svo eru einhver
mál sem þarf að klára þá milli jóla og
nýárs, þriðja umræðan um fjárlögin
og svo einhver önnur mál.“
Óli Björn Kárason, þingflokksfor-
maður Sjálfstæðisflokksins, greindist
með Covid-19 á mánudag og vara-
maður hans, Arnar Þór Jónsson, tók
sæti í hans stað á Alþingi í gær í
fyrsta sinn og undirritaði að því til-
efni drengskaparheit við stjórnar-
skránna.
Óli Björn sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær vona að allt
gengi vel á Alþingi þrátt fyrir stöð-
una. „Það auðvitað skiptir verulega
miklu máli. Það eru mál sem verður
að afgreiða og undan því verður ekki
vikist. Það mun reyna á þingmenn og
ekki síst sem nú koma nýir til verka
að afgreiða málin í sæmilegri sátt og
samstöðu, þó að jafnvel kunni að vera
ágreiningur í einstaka málum.“
Vilhjálmur Árnason, varaformaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins, var
sjálfur að klára sóttkví þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum í gær og
mun hann því taka við stjórn þing-
flokksins í fjarveru Óla Björns. Vil-
hjálmur segir að smit innan hópsins
hafi ekki sett starf þingflokksins á
hliðina þar sem Óli Björn hafi þegar
verið í sóttkví þegar hann greindist.
Allir þingmenn skim-
aðir á hverjum degi
Morgunblaðið/Eggert
Covid-19 Alls hafa átta greinst smitaðir af kórónuveirunni á Alþingi en auk
þeirra smita hafa fjórir starfsmenn þingflokka greinst smitaðir.
- Forseti Alþingis með kórónuveiruna og sjö aðrir þingmenn
Líneik Anna
Sævarsdóttir