Morgunblaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.12.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 100% Merino ullarnærföt fyrir dömur og herra Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is Tilvalin og nytsöm jólagjöf Þinn dagur, þín áskorun Oddur Þórðarson Logi Sigurðarson Veronika Steinunn Magnúsdóttir Ríkisstjórnin ákvað í gær að herða sóttvarnaaðgerðir fyrir jól til þess að sporna við útbreiðslu kórónuveir- unnar. „Við vitum líka út frá fyrstu gögnum að veikindi eru minni vegna þessa afbrigðis en um leið er mikil óvissa um nákvæma vörn bóluefna gagnvart þessu nýja afbrigði,“ sagði Katrín í samtali við mbl.is í gær. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra tók í sama streng og sagði í samtali við mbl.is að viðurkenna þyrfi óvissuna sem fylgi Ómíkron-af- brigðinu. „Tölurnar segja okkur að þessi faraldur er kominn á ferðina og í minnisblaðinu kemur fram að það sé í veldisvexti. Þess vegna leggur sótt- varnalæknir til að við beitum harðari takmörkunum,“ sagði hann. Katrín sagði þá að skiptar skoð- anir hafi verið innan ríkisstjórnar- innar um sóttvarnareglurnar en fyr- ir liggi að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fara svokallaða temprunarleið, sem snýst um að tempra fjölgun smita. „Ástæðan er sú að við erum með vísbendingar um hvert innlagnar- hlutfallið er, þ.e. þeirra sem veikjast alvarlega. Í þessu tilfelli af Ómík- ron,“ sagði hún en bætti við að Delta- afbrigðið væri enn í gangi og ljóst væri að hertari ráðstafanir þyrfti til þess að tempra fjölgun smita. Sóttvarnalæknir lagði þá til að lengja skólafríin en ríkisstjórnin tók þá stefnu að láta skólana halda sínu striki en ráðherrar myndu taka sam- talið við skólastjórnendur og meta stöðuna. Tuttugu mega nú koma saman í stað 50 en 200 mega koma saman á stærri viðburðum gegn notkun hrað- prófa. Reglurnar taka gildi á mið- nætti annað kvöld og munu gilda í þrjár vikur. Þó er hægt að sækja um undan- þágu frá reglunum og munu til að mynda Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens fara fram með óbreyttu sniði í Hörpu þar sem und- anþága fékkst frá stjórnvöldum. 500 manna sóttvarnahólf verða því notuð á tónleikunum, af því er Bubbi Mort- hens greindi frá í fréttatilkynningu í gær. Tuttugu manna sam- komutakmörk um jólin - Vita að veikindi eru minni vegna Ómíkron - Þó óvissa 50 Á öllum skólastigum miðast hámarksfjöldi barna/nemenda við 50 einstaklinga í rými Fjöldi innanlandssmita og innlagna á LSH með Covid-19 frá áramótum Hertar takmarkanir innanlands 200 175 150 125 100 75 50 25 0 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 206 286 12 24 32 Heimild: Stjórn- arráðið, LSH og covid.is 286 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring Almennar fjöldatakmarkanir: 20 manns, börn ekki undanskilin Almenn nándarregla verður 2 metrar en á veitingastöðum og á sitjandi viðburðum er nándar- regla 1 metri, börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin 22.00 Veitingahúsum og öðrum stöðum þar sem áfengisveitingar eru heimilar er óheimilt að hleypa inn nýjum við- skiptavinum eftir kl. 21.00 og allir gestir eiga að vera farnir hið síðasta kl. 22.00 200 Með notkun hraðprófa er heimilt að halda skipulagða viðburði fyrir allt að 200manns en 50 manns á sitjandi viðburð- um án hraðprófa Grímuskylda er í verslunum og almennt er skylt að nota grímu ef ekki er hægt að virða 2 metra regluna en börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin. 500 Verslanir og söfn mega taka á móti 50 manns að börnummeðtöldum og fyrir hverja 10 m² má bæta við fimm viðskiptavinum en þó að hámarki 500 manns 50% Sund- og bað- stöðum og líkams- ræktarstöðvum er heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda gesta Sviðslistir og sýningar Heimilt er að gera hlé á sýningum en áhorfendur skulu hvattir til að halda kyrru fyrir í sætum sínum. Áfengisveitingar eru óheimilar í tengslum við sýningar, hvort sem er fyrir, í hléi eða eftir 2.023 erumeð virkt smit og í einangrun 3.028 einstaklingar eru í sóttkví 12 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu, annar í öndunarvél Staðfest smit 7 daga meðaltal Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSHmeð staðfest Covid-19 smit 196 154 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðgerðir Katrín og Willum til- kynntu hertar aðgerðir í gær. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rótarý-hreyfingin á Íslandi er að hrinda af stað árvekniátaki gegn járnofhleðslu í blóði (hemo- chromatosis). Rótarý-klúbburinn Þinghóll í Kópavogi átti frumkvæðið að átakinu og annast er Sveinn Ósk- ar Sigurðsson verkefnastjóri fram- kvæmdina. Hann átti í gær fund með Ölmu D. Möller landlækni og afhenti henni nýjan fræðslubækling sem Rótarý-hreyfingin gefur út. „Við Alma erum bæði með þennan sjúkdóm og hún hefur gefið mér heimild til að geta þess,“ sagði Sveinn. Talið er að um eða yfir tvö þúsund Íslendingar hafi greinst með sjúkdóminn. Hann sagði að þessi sjúkdómur erfist og liggi í nokkrum ættum hér á landi. Þess vegna er mikilvægt að vekja athygli á honum. Sjúkdómurinn er nokkuð út- breiddur á Írlandi og er stundum kallaður „keltneska bölvunin“. Ein- kennin geta verið t.d. þreyta, slapp- leiki, liðverkir, þyngdartap, kvið- verkir eða breyting á húðlit. Þau eru oftast væg til að byrja með en járn- ofhleðsla getur mögulega valdið al- varlegum sjúkdómum sé hún ekki meðhöndluð. Meðferðin felst í því að tappa blóði af viðkomandi og þannig er hægt að koma í veg fyrir sjúkdóm og líffæraskemmdir. „Við mælum með því að fólk leiti fyrst til síns heimilislæknis og biðji hann að rannsaka hvort það sé með of mikið járn í blóðinu. Stundum er ekki þörf á meðferð en það er mis- jafnt á milli einstaklinga. Ég þurfti fyrst að fara á um þriggja mánaða fresti í aftöppun og ég þekki einn sem þurfti að fara vikulega. Það er fylgst með ástandi blóðsins í hvert skipti og meðhöndlunin miðuð við það. Greiningin á þessu er auðveld og meðhöndlunin mjög einföld,“ sagði Sveinn. Unnið hefur verið að verkefninu í um tvö ár. Skrifaður var fræðslu- bæklingur um járnofhleðslu og hafa sérfræðingar lesið hann yfir. Rót- arý-klúbbarnir munu dreifa bækl- ingnum í sínum umdæmum. Ljósmynd/Markús Örn Antonsson Járnfólk Sveinn Óskar Sigurðsson afhenti Ölmu D. Möller landlækni bækl- inga. Þau eiga það sameiginlegt að hafa greinst með járnofhleðslu í blóði. Margir vita ekki af járnofhleðslu blóðs - Rótarý-hreyfingin með árvekniátak Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 20 milljónum króna af sameig- inlegu ráðstöfunarfé sínu til end- urbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey. Kirkjan, sem brann til grunna 22. september síðastliðinn, var elsta bygging eyjarinnar en hún var byggð úr rekavið árið 1867. Gagngerar endurbætur fóru fram á kirkjunni árið 1956 og var hún þá endurvígð. Kirkjan var svo friðuð árið 1990. Áætlaður heild- arkostnaður við byggingu nýrrar kirkju er um 100 milljónir króna en tryggingabætur nema um 30 millj- ónum króna. Þá hefur sóknarnefnd Miðgarðakirkju staðið fyrir fjár- öflun þar sem þegar hafa safnast um 12 milljónir króna. Vonir standa til þess að framkvæmdir geti hafist næsta sumar og að ný kirkja verði tilbúin að utan í september þegar ár verður liðið frá brunanum, að því er fram kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Eins og fram hef- ur komið í Morgunblaðinu mun Hjörleifur Stefánsson arkitekt teikna nýju kirkjuna. Veita 20 milljónum til kirkjubyggingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.