Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021
BRAUÐBOX í jólapakkann
Lítið verð 11.900,-
Stórt verð 15.900,-
Björn Bjarnason getur í pistli
sínum greina Harðar Arnar-
sonar hér í blaðinu og Tryggva
Felixsonar í vefsíðu
Kjarnans. Hörður
forstjóri Lands-
virkjunar undir-
striki í sinni grein
að „vaxandi orku-
þörf samfélagsins
sé staðreynd og
fjarri öllum raun-
veruleika að ætla sér að mæta
aukinni orkuþörf með því að
treysta á að einhverjir stórnot-
endur orku loki og hverfi úr við-
skiptum“.
- - -
Tryggvi, formaður Land-
verndar, „boðar allt annað en
forstjóri Landsvirkjunar. Formað-
urinn mælir gegn þeirri víðtæku
sátt sem ríkti hér áratugum saman
að þjóðinni yrði til gagns og hags-
bóta að nýta, af fullu tilliti til nátt-
úrunnar, endurnýjanlega orku-
gjafa í þágu verðmætasköpunar og
aukinnar hagsældar.
- - -
Þetta var meira að segja áður
en umræður hófust af fullum
þunga um gildi þessara orkugjafa í
þágu alþjóðlegra skuldbindinga í
loftslagsmálum.“
- - -
Björn segir að ekki eigi að
banna Landvernd að viðra
sínar skoðanir sínar frekar en and-
stæðingum bólusetninga að halda
fast í rétt sinn: Á hinn bóginn
verður að búa þannig um hnúta að
hvorugur minnihlutahópurinn taki
völdin í sínar hendur og standi
gegn þróun samfélagsins sem
meirihlutinn telur æskilegasta.
- - -
Landvernd á ekki að ráða ferð-
inni í orkumálum frekar [en]
óbólusettir í veirumálum. Það er
hlutverk kjörinna fulltrúa þjóð-
arinnar að sjá til þess að svo sé
ekki.“
Björn Bjarnason
Tjá sig fast, en
virða niðurstöður
STAKSTEINAR
Við slipptöku varðskipsins Þórs nýlega hjá Vél-
smiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði uppgötv-
aðist vatnsleki í nokkrum strokkum beggja aðal-
véla skipsins. Þessar upplýsingar fékk Morgun-
blaðið hjá Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa
Landhelgisgæslunnar.
Hann segir að í kjölfarið hafi verið ákveðið að
yfirfara vélarnar og standsetja, en Þór er 10 ára
gamalt skip. Viðeigandi varahlutir hafa verið
pantaðir að utan.
Um hefðbundið viðhald sé að ræða og ekki þurfi
að fá sérfræðinga að utan til að vinna verkið.
Kostnaður við umrætt viðhald er áætlaður 15-20
milljónir króna. Landhelgisgæslan gerir ráð fyrir
að skipið fari til eftirlitsstarfa 12. janúar næst-
komandi samkvæmt siglingaáætlun.
Upphaflega var gert ráð fyrir því að Þór færi til
eftirlitsstarfa fyrr í þessum mánuði en af því gat
ekki orðið vegna bilunarinnar. Freyja, hið nýja
varðskip Íslendinga, hefur því verið eitt á mið-
unum við landið undanfarnar vikur og þurft að
leysa margvísleg verkefni. Meðal annars að draga
Þór frá Hafnarfirði til Reykjavíkur um síðustu
helgi, þar sem viðgerðin fer nú fram.
Varðskipið Freyja er samkvæmt áætlun út-
kallsskip stofnunarinnar yfir jól og áramót.
Freyja er nú í Siglufirði en áhöfnin er tilbúin ef til
útkalls kemur. sisi@mbl.is
Bilun fannst í aðalvélum Þórs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varðskipin Þór er bilaður þessa stundina en
Freyja er útkallsskip Gæslunnar yfir hátíðirnar.
Hlutdeild Ameríku í útflutningi á
sjávarafurðum frá Íslandi fór í rúm
4% á árinu 2011. Frá þeim tíma hef-
ur útflutningur til Ameríku nánast
stöðugt verið á uppleið. Fyrstu 10
mánuði þessa árs var Ameríka með
tæp 13% af verðmæti útfluttra sjáv-
arafurða, það hæsta frá 2002. Um
97% af verðmætum íslenskra sjáv-
arafurða sem flutt eru til Ameríku
fara til Bandaríkjanna og Kanada,
að því er fram kemur í fréttabréfi
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Bandaríkin eru nú þriðja stærsta
viðskiptaland Íslendinga með sjáv-
arafurðir miðað við verðmæti,
þriðja árið í röð. Árið 2011 voru
þau í 12. sæti. Á þessari öld hefur
útflutningur til Kanada aldrei verið
meiri en í ár. Kanada er 11. stærsta
viðskiptaland Íslendinga með
sjávarafurðir í ár, en fyrir áratug
var það í 27. sæti.
Aukið rými í flugvélum
Þorskurinn er fyrirferðarmestur
í útflutningi til Ameríku, svo ýsan
og þar ræður ferskleiki ríkjum í
báðum tilvikum. Aukinn áhugi
Bandaríkjamanna á Íslandi hefur
leitt til þess að mikið rými hefur
skapast í fraktflugi.
Útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða til Ameríku var komið í rúma
30 milljarða króna fyrstu 10 mán-
uði ársins, sem er um 19% aukning
frá sama tímabili í fyrra í krónum
talið. Sé leiðrétt fyrir gengi krón-
unnar gagnvart dollar er aukningin
talsvert meiri, eða 28%. aij@mbl.is
Sókn með sjávar-
afurðir vestur um haf
Vægi Ameríku í útflutningi sjávarafurða*
Fyrstu 10 mánuðir hvers árs, 2002 til 2021, % af heildarverðmæti
15%
10%
5%
0%
Heimild: SFS/
Hagstofa Íslands
'02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21
13,3%
12,6%
11,3%
11,7%
10,7%
9,7%
5,8%
5,8%
4,1%
6.8%
9.0%
10.4%
*Bandaríkin, Kanada
og önnur Ameríkulönd
E X P O R T
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/