Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 12
12 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Bandarísk stjórnvöld ætla að kaupa 500 milljón heimapróf og dreifa frítt til allra Bandaríkjamanna sem óska eftir slíku prófi frá og með næstu áramótum. Þá verða um 1.000 læknar á vegum Bandaríkjahers sendir til sjúkrahúsa vítt og breitt um Bandaríkin á næstu tveimur mánuðum. Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði í gærkvöldi þjóð sína í sjón- varpi og kallaði eftir því að fólk léti bólusetja sig með örvunarskömmt- um til þess að bregðast við Ómíkron- afbrigðinu, en sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, staðfesti í gær að afbrigðið væri nú ráðandi afbrigði kórónuveirufaraldursins í Banda- ríkjunum, þar sem 73,2% nýrra smita mætti rekja til þess. Aðgerðir Bandaríkjastjórnar eru einkum hugsaðar til þess að auka að- gengi fólks að kórónuveiruprófum, en erfitt hefur verið í mörgum ríkj- um Bandaríkjanna að nálgast heima- próf, og seljast þau oft dýru verði. Þá ætlar alríkisstjórnin að opna sér- stakar skimunarstöðvar á vissum stöðum, þar á meðal í New York- borg. Útbreiðsla Ómíkron-afbrigðisins í Bandaríkjunum hefur verið undra- skjót, en stjórnvöld í Ísrael tilkynntu í gær að þau hygðust banna komur ferðalanga frá Bandaríkjunum vegna þess. Ekki lokað fyrir jólin Biden kallaði einnig eftir því í ávarpi sínu að fólk gætti sín yfir jólahátíðina, en ekki verður gripið til samkomutakmarkana í Bandaríkj- unum yfir jólin. Boris Johnson, for- sætisráðherra Bretlands, útilokaði einnig í gærkvöldi að gripið yrði til frekari samkomutakmarkana í Eng- landi fyrir jól, þar sem enn þyrfti að meta fyrirliggjandi gögn um smit- tölur. Sagði Johnson þó að ríkisstjórnin myndi fylgjast náið með stöðunni, og að gripið yrði til harðra aðgerða strax eftir jól, ef aðstæður kölluðu á. Sérfræðingar ríkisstjórnarinnar hafa kallað eftir hörðum aðgerðum þegar í stað, en mikil andstaða er innan Íhaldsflokksins við slíkt. Nicola Sturgeon, forsætisráð- herra skosku heimastjórnarinnar, lýsti því yfir í gær að búið væri að fresta mannfögnuðum á gamlársdag í Edinborg vegna afbrigðisins, annað árið í röð, en tugþúsundir ferðalanga gera sér ferð til borgarinnar til þess að fylgjast með hátíðahöldunum á hverju ári. Þá hyggjast Skotar grípa til 500 manna samkomutakmarkana utan- dyra, og annaðhvort 100 manns standandi eða 200 í sætum á viðburð- um innandyra. Sagði Sturgeon að aðgerðirnar þýddu m.a. að leikir í skosku úrvalsdeildinni yrðu nú að fara fram að mestu án áhorfenda. Skotar eru ekki einir um að hafa sett takmarkanir á mannfagnaði um áramótin, þar sem Lundúnaborg til- kynnti á mánudaginn að hátíðahöld- um á Trafalgartorgi hefði verið af- lýst. Elísabet 2. Bretadrottning mun hafa ákveðið að aflýsa hefðbundnum jóla- og nýársfagnaði sínum, og mun hún dvelja í Windsor-höll yfir hátíð- arnar. Ríki og borgir á meginlandi Evr- ópu hafa einnig gripið til slíkra ráða, og er t.d. gert ráð fyrir að þýsk stjórnvöld muni setja harðar sam- komutakmarkanir fyrir áramótin og loka næturklúbbum. Þá hafa yfirvöld í Parísarborg frestað öllum hátíða- höldum. Aldrei fleiri smit í Danmörku Magnus Heunicke, heilbrigðis- ráðherra Danmerkur, greindi frá því í gær á twitter-síðu sinni, að Ómí- kron-afbrigðið væri nú ráðandi í Danmörku. Þá höfðu 13.558 ný til- felli greinst þar á undangengnum sólarhring, sem er hið mesta frá upp- hafi faraldursins í Danmörku. Að minnsta kosti 500 þeirra sem greind- ust með smit höfðu áður fengið Cov- id-19-sjúkdóminn. Einungis er um mánuður liðinn frá því að Ómíkron-afbrigðið greind- ist fyrst í Danmörku, en stjórnvöld þar ákváðu um helgina að loka kvik- myndahúsum, leikhúsum og tón- leikahöllum næstu fjórar vikurnar vegna fjölda smita. Þá hefur veit- ingahúsum verið gert að takmarka afgreiðslutíma sinn. Sérfræðingar hafa spáð því að Ómíkron-afbrigðið verði ráðandi af- brigði í öllum ríkjum Evrópusam- bandsins fljótlega eftir áramót. AFP Covid-19 Mikil mannmergð var á Times Square í New York í gær þar sem fólk beið þess að komast í skimun. Auka aðgengi að prófum - Bandaríkjastjórn kynnir aðgerðir vegna Ómíkron-afbrigðisins - Ekki gripið til samkomutakmarkana - Ómíkron nú ráðandi í Bandaríkjunum og Danmörku Danska þingið samþykkti í gær að svipta Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála, þing- sæti sínu. Støjberg, sem sagði af sér varaformennsku í Venstre fyrir ári, var í síðustu viku dæmd fyrir lands- dómi Danmerkur í 60 daga óskil- orðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið á réttindum innflytjenda með því að skilja að öll pör sem sóttu um hæli í landinu ef annað var undir 18 ára aldri, án þess að rann- sókn hefði farið fram á högum þeirra. Þá hafði hún einnig afvega- leitt þingið um aðdraganda þeirrar ákvörðunar. Þetta er í fyrsta sinn í 30 ár sem þingið sviptir þingmann sæti sínu. Greiddu 98 þingmenn atkvæði með tillögunni, en 18 þingmenn Danska þjóðarflokksins greiddu atkvæði á móti. Sögðu talsmenn flokksins að bæði Venstre og Jafnaðarmanna- flokkurinn bæru ábyrgð á málinu og hefðu stutt hina ólöglegu stefnu. DANMÖRK AFP Danmörk Inger Støjberg var dæmd í síðustu viku í 60 daga fangelsi. Støjberg svipt þing- sæti eftir landsdóm Þrír fangar voru hengdir í Japan í gærmorgun, og eru það fyrstu af- tökurnar í landinu frá 2019. Jap- önsk stjórnvöld sögðu í gær að dauðarefsing væri enn nauðsynleg til að refsa fyrir „grimmilega glæpi“. Um hundrað manns eru nú á dauðadeildum í japönskum fang- elsum, og voru flestir þeirra sak- felldir fyrir fjöldamorð. Landssamband lögmannafélaga í Japan mótmælti í gær aftökunum og hvatti forseti þeirra, Tadashi Ara, stjórnvöld til þess að afnema dauðarefsinguna og fresta öllum aftökum. JAPAN Dauðarefsingu beitt í fyrsta sinn í tvö ár Sindrastóll Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001) Sindrastóllinn er bólstraður með íslenskri lambagæru. Verð frá: 229.000 kr. Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Vladimír Pútín Rússlandsforseti varaði í gær vesturveldin við því að Rússar væru tilbúnir til að grípa til „hernaðarlegra aðgerða“ ef þau létu ekki af „augljóslega fjandsamlegri afstöðu“ sinni til Rússlands. Orð Pútíns féllu á fundi hans með embættismönnum í rússneska varn- armálaráðuneytinu, og sagði hann þar einnig að Rússar hefðu allan rétt á að bregðast hart við „óvinsamleg- um aðgerðum“. Pútín hefur sakað Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið um að ýta undir spennu á landamærum Rúss- lands og Úkraínu, en greint var frá því í síðasta mánuði að Rússar hefðu safnað saman miklu herliði við landamærin. Hafa Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra varað Rússa við því að innrás þeirra í Úkraínu myndi kalla á grafalvarlegar afleið- ingar í formi viðskiptaþvingana og annarra refsiaðgerða. Rússnesk stjórnvöld hafna því hins vegar að þau séu að leggja á ráðin um slíka innrás, en Rússar hafa sett fram kröfur um lagalega bindandi tryggingar um að Úkraína gangi aldrei til liðs við Atlantshafs- bandalagið, sem og að bandalagið hafi ekki herlið í þeim ríkjum sem gengið hafa til liðs við það frá lokum kalda stríðsins. Pútín sagði einnig í gær að Rússar hefðu þungar áhyggjur af banda- rískum stýriflaugum í Póllandi og Rúmeníu, og sagði að ef slíkar flaug- ar yrðu settar upp í Úkraínu gætu þær hæft Moskvu á um 7-10 mín- útum. Sagði Pútín þó að Rússar vildu forðast blóðsúthellingar og leysa deiluefnin með viðræðum. Þá sakaði Sergei Shoiku, varnar- málaráðherra Rússlands, Vestur- veldin um að leggja á ráðin um „ögr- anir“ í austurhluta Úkraínu, en þar eru enn skærur milli rússneskumæl- andi aðskilnaðarsinna og úkraínska stjórnarhersins. Rússar tilbúnir að svara fyrir sig - Varar við „óvinsamlegum aðgerðum“ AFP Spenna Pútín varaði vesturveldin við fjandsamlegum aðgerðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.