Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 19

Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 Elsku Didda. Ein af bestu manneskjum sem ég hef fengið þann heiður að kynnast. Þetta hyldýpi sem þú skilur eftir þig er of stórt og ég er hræddur um að ég sé ekki nógu sterkur til að fylla það. Hún var mér svo mikið meira en bara móðir, hún var einn af bestu vinum mínum. Fékk mig til að hlæja þegar ég var við það að gráta og fékk mig til að gráta þegar ég vissi ekki að ég þyrfti þess. Hún var sú sem fékk mig til að brosa þegar hlutirnir virtust erfiðir en hún er ekki hérna til að hjálpa mér í gegnum það hyldýpi sem þessi missir skilur eftir sig. Innst inni veit ég að hluti af henni er enn með mér, með okk- ur öllum. Minningarnar sem við deildum eru langflestar góðar og þær slæmu virðast jafnvel nokk- uð góðar þessa dagana. Hún vildi að ég myndi sjá þetta sem nýja byrjun fyrir hana en ekki enda- lok, en það er ómögulegt að sitja hérna og sakna hennar ekki. Mér finnst eins og hjartað mitt hafi molnað í hundrað litla mola sem er svo erfitt að tína upp. Mér finnst allt svo margfalt erfiðara en það var, einfaldir hlutir erfiðir og þeir erfiðu nærri ómögulegir. Hægt og rólega set ég saman þessi brot, læri að lifa með sorg- inni og tárunum. „Hvað geri ég núna?“ er spurning sem ég hef spurt mig svo oft undanfarnar vikur, ég vona að ég finni svarið fljótlega. Svona góðhjörtuð, indæl og hlý manneskja átti svo mikið meira en þetta skilið. Hún setti alltaf aðra í forgang, sjaldan sjálfa sig. Hún var loksins byrjuð að lifa sínu lífi á sinn eigin máta þegar hún greindist með krabba- meinið sem tók hana frá okkur. Það er fátt sem ég hefði viljað sjá frekar en að hún hefði fengið tækifæri til að eignast lítil barna- börn, verða gömul, gráhærð og alveg hrikalega hrukkótt. Hún Sigrún Elín Birgisdóttir ✝ Sigrún Elín Birgisdóttir fæddist í Reykja- vík 3. október 1957. Hún lést 12. desember 2021. Hún var dóttir hjónanna Birgis Sigmundar Boga- sonar (d.) og Svan- hildar Ernu Jóns- dóttur (d.). Einkasonur henn- ar var Birgir Sveinn. Systkini Sigrúnar voru Kristján Einar, Jón Gauti (d), Sigríður Ósk, Bogi Örn og Albert. Útför er í kyrrþey. sagði mér alltaf hversu stolt hún væri af mér en ég sagði henni ekki nógu oft hversu stoltur ég var af henni, af því sem hún hefur gert fyrir mig, sjálfa sig og alla fjölskylduna. Ég sakna þín svo ótrúlega mikið, elsku mamma mín. Þinn sonur að eilífu, Birgir Sveinn Jakobsson. Það sést ekki til lands í því hyl- dýpi sem elsku hjartans stóra systir mín skilur eftir í hjarta mínu. Það sem kemur upp í hugann er góðsemin, kærleikurinn, skiln- ingurinn og stuðningurinn sem hún ávallt sýndi okkur yngri systkinum sínum. Hún var klett- urinn okkar. Svo ég tali nú ekki um kímnigáfuna en það var alltaf mikill hlátur í kringum elsku Diddu. Nú verðum við að finna flöt á því hvernig við högum samskipt- um okkar án hennar. Hún var allt- af sólin sem við dönsuðum í kring- um. Ég, Bói, Bogi og auðvitað augasteinninn hennar, Birgir Sveinn. Hver á að lesa yfir þessa minningargrein þegar ég hef hana ekki lengur til þess að líta yf- ir öxlina á mér? Bara þegar ég bað um hjálp. Ég vissi alltaf af henni en hún var aldrei að trana sér fram eða koma með óumbeðn- ar ráðleggingar. Það var líklegast mín deild. Að hafa átt svona yndislega stóru systur hefur verið mér mik- ilvægt alla mína ævi. Þegar ég var lítil og hún táningur, en það voru fjögur ár á milli okkar, þá heyrði ég einu sinni að mamma var að biðja hana um að leika við mig en hún nennti því ekki, eðlilega. Mamma talaði hana til og lék hún þá við mig af heilum hug. Ann- aðhvort í barbí, því við áttum sína dúkkuna hvor, eða þá að við þætt- umst vera fínar frúr á fínum veit- ingastað. Við breiddum hand- klæði á eldhúsborðið og lögðum á borð og skárum svo með hnífi og gaffli franskbrauð með Libby’s- tómatsósu og drukkum mjólk úr fínum glösum. Við töluðum líka saman eins og við værum full- orðnar konur, eða það sem við héldum að fullorðnar konur ræddu um sín á milli. Minningin er sú að hafa átt skemmtilega stund með ástkærri systur sem hafði einstakt lag á því að koma niður á plan lítillar stúlku sem dáði stóru systur sína og vildi gera allt eins og hún. Hún gerði allt af heilum hug. Skemmtilegri ferðafélaga er ekki hægt að hugsa sér. Stöðug gleði og hlátursköst yfir ein- hverju. Ekki að það hafi endilega gerst eitthvað stórkostlega fyndið en henni tókst alltaf að gera allt skemmtilegt. Einstakur eiginleiki sem ekki öllum er gefinn. Elsku hjartans stóra systir mín veiktist í vor og var sumarið erfitt fyrir hana en m.v. þær fréttir sem við fengum í lok ágúst héldum við að þetta væri eitthvað sem hún gæti sigrast á eða a.m.k. lifað með. En svo kom bakslag og varð þá ekki aftur snúið. Síðustu stundirnar með henni eru mér ómetanlegar og trúi ég því að hún hafi verið með mér og Angelunum tveimur þó að hún hafi verið með lokuð augun, því að hugurinn var alveg skýr. Elsku hjartans Didda mín, ég trúi því einlæglega að þú sért hjá fólki sem þykir hvað mest vænt um þig hinum megin, hvar svo sem það er. Ég veit að þú tekur eins og allt- af nýjum aðstæðum með opnum huga og hjarta. Mamma, pabbi og Nonni hafa örugglega tekið vel á móti þér. Ég sé mömmu fyrir mér þar sem hún er sýna þér nýtt um- hverfi og kenna þér á allt, enda nýkomin sjálf. Með þakklæti, ást, virðingu og ólýsanlegum söknuði kveð ég þig, mín elsku hjartans Didda. Þín litla systir, Sigríður Ósk. Það eru næstum 33 ár síðan ég kom inn í fjölskylduna og eignað- ist hana Sigrúnu sem mágkonu. Reyndar tók það svolítinn tíma að ég vissi að hún héti Sigrún en ekki Didda eins og hún var alltaf köll- uð. Svo margt sem ég hafði ekki hugmynd um en það kom mjög fljótt í ljós að ég hafði eignast ekki bara mágkonu heldur líka yndis- lega vinkonu sem gat frætt mig um svo margt. Hún talaði meðal annarra tungumála reiprennandi þýsku, hafði búið og starfað í Þýskalandi í nokkur ár. Þetta bjargaði t.d. fyrstu heimsókn for- eldra minna til Íslands þegar fjöl- skyldur okkar hittust í fyrsta skipti, einstakur hæfileiki sem Didda hafði að geta miðlað á milli fólks og gera stressandi aðstæður léttar og skemmtilegar. Seinna, eftir að við Kristján vorum flutt norður og Didda hafði eignast hann Bigga sinn, komu þau reglu- lega í heimsókn til okkar, fyrst á Blönduós og síðan í sveitina okk- ar. Þetta voru alltaf notalegir dag- ar, aldrei kvaðir eða tilætlunar- semi heldur bara afslöppuð og skemmtileg samvera. Árin sem hún vann og bjó á Skagaströnd gátum við notað til þess að hittast miklu oftar og gera margt saman. Didda var mjög næm á fólk og reyndar dýr líka sem hændust strax að henni og við fengum hana stundum til þess að passa hundana okkar, alltaf gaman fyrir þá þegar „Didda frænka“ var hjá þeim. Næmnin kom sérstaklega fram þegar hún lagði spil fyrir mann og las úr þeim, þetta var al- veg ótrúlegt hvað hún sá og fann og upp úr því spunnust oft mjög djúpar samræður og alltaf var hægt að treysta því að trúnaðar væri gætt. Síðustu árin fækkaði heimsóknum hennar, alltaf svo mikið að gera og alltaf svo þreytt. Svo kom skýringin í maí sl. að um alvarleg veikindi væri að ræða, erfitt að trúa því og ennþá erf- iðara núna að ímynda sér að við munum ekki aftur sitja saman í eldhúsinu við spil og spjall. En ég veit að hún Didda okkar verður alltaf nálæg og við sjáumst síðar. Þín Angela mágkona. Elsku Didda mín er dáin. Sig- rún Elín Birgisdóttir systurdóttir mín fæddist 3. október 1957 og var fyrsta barnabarn foreldra minna. Svanhildur systir eða Dedda eins og ég kallaði hana var mín fyrirmynd og kennari, ég var 9 ára þegar Didda fæddist og hef verið að rifja upp að ég fann aldrei fyrir afbrýðisemi í garð barnsins. Hún elsku elsta systir mín Svan- hildur hafði mig með í öllu, baða, skipta á og fékk að gera allt sem níu ára barn gat. Síðan fékk ég að taka þátt með systur minni þegar hún átti Bóa, Nonna og Lillu, en þá var það kannski ekki alveg jafn spennandi eins og þegar Didda fæddist. En ég var alltaf mikið inni á heimili þeirra ýmist að passa eða bara vera og reyna að hjálpa til því mikið var að gera með fjögur börn á fjórum árum. Við Didda vorum alla tíð góðar vinkonur. Hún átti það til þegar hún var orðin unglingur og ég bú- in að eiga börn að reka okkur Hauk út því vinkonurnar ætluðu að læra. Þær pössuðu fyrir mig nánast þegar ég bað og jafnvel oftar. Drengjunum mínum fannst alltaf mjög spennandi að fá Diddu í heimsókn, þolinmæði hennar óendanleg við þá. Hún fór utan í sendiráð að vinna og þegar hún kom heim þá kom hún austur á Hellu til okkar í heimsókn, sem okkur þótti mjög vænt um. Við fórum til hennar til London og áttum góðar stundir þar. Síðan fluttum við í bæinn og þá áttum við margar góðar stundir saman. Eftir að hún átti Birgi Svein kom hún gjarnan til okkar og var stráksi glaður með það. Æ, ef satt skal segja gæti ég haldið áfram en í stuttu máli var hún Didda mín yndisleg manneskja og mjög gott og gaman að vera nálægt henni. Ég er svo ánægð með að þegar hún flutti í Árskóga þá labbaði ég til hennar og áttum við góða stund saman. Hún var lasin en bjartsýn því hún hafði fengið góðar fréttir að meinið hefði minnkað, en svo kom áfallið. Elsku stelpan mín lést 12. desember. Blessuð sé minning þín, elsku Didda mín. Kveðja, Guðrún Kristín (Gunna Stína) og Haukur. Sæl nafna mín. Þannig ávörp- uðum við gjarnan hvor aðra. Nafna B og nafna Ó sögðum við til hátíðabrigða þegar Sigrún vin- kona mín fann út að við þyrftum að aðgreina okkur líkt og Spice Girls gerðu á sínum tíma. Minningar streyma fram með tárunum þegar ég hugsa til nöfnu minnar. Leiðir okkar lágu saman í guðfræðideildinni á seinni hluta níunda áratugar síðustu aldar. Sigrún Elín setti fljótt mark sitt á skrautlegan nemendahópinn. Hún var aðeins eldri en mörg okk- ar, heimsdama, með eldrautt naglalakk og búin að starfa í utan- ríkisþjónustunni um árabil. Það var lögð áhersla á það í náminu að varast spíritisma og hvers kyns hindurvitni. Sigrún Elín kom úr annarri átt og lét ekki hræða sig til að beygja frá sinni sannfær- ingu. Hún las í árur og spáði í spil en hafði enga þörf fyrir að fara í vörn eða sannfæra aðra um að hennar leið væri sú rétta. Íbúðin hennar í Árbænum varð fljótt samkomustaður okkar vina hennar í guðfræðideildinni. Þar voru bestu partíin og stóðu stund- um fram undir morgun. Þangað var líka gott koma og kíkja í kaffi og spjall um daginn og veginn. Gestrisni var henni eðlislæg. Meðal minnisstæðra lýsinga á heimsborgaranum Sigrúnu Elínu er ferð á vegum Félags guðfræði- nema til Svíþjóðar á fund með guðfræðinemum annarra Norður- landaþjóða. Bjórþyrstur sveitav- argurinn sem ekki komst í slíkar veigar í heimalandinu pantaði öl í stærstu mögulegu glösum. En heimsborgarinn pantaði lítinn bjór og espresso. Alltaf smart. Við hittumst í törnum. Stund- um mjög reglulega en svo gat liðið langur tími á milli. Okkar tími var í hádeginu og við fengum okkur gjarnan kínverskt og auðvitað kenndi hún mér að borða með prjónum. Oft vorum við tvær en stundum hóuðum við í vini og fé- laga úr guðfræðideildinni. Stolt hennar og stóra afrek var einkasonurinn Birgir Sveinn. Það kom alltaf sérstakt blik í augu hennar þegar hún talaði um hann, litla strákinn, sem heldur betur átti eftir að vaxa mömmu sinni yf- ir höfuð. Við ætluðum að hittast í hádeg- inu einhvern daginn í haust. Sá fundur verður að bíða. Ég kveð góða vinkonu með söknuði og þakklæti. Elsku Birgi Sveini, Sigríði Ósk, Boga Erni, Kristjáni Einari og fjölskyldunni allri votta ég inni- lega samúð. Blessuð elsku nafna mín. Hvíl í friði, minning þín lifir. Sigrún Margrétar Óskarsdóttir. Ætti ég hörpu hljómaþýða, hreina, mjúka gígjustrengi, til þín mundu lög mín líða, leita þín, er einn ég gengi. Viltu, þegar vorið blíða vefur rósir kvölddögginni, koma til mín, kvæði hlýða kveðja mig í hinsta sinni. Lífið allt má léttar falla, ljósið vaka í hugsun minni, ef ég má þig aðeins kalla yndið mitt í fjarlægðinni. Innsta þrá í óskahöllum á svo margt í skauti sínu. Ég vildi geta vafið öllum vorylnum að hjarta þínu. (Friðrik Hansen) Hún er farin í ferðina löngu, elsku besta vinkona mín hún Didda. Vinátta sem hefur staðið frá því við vorum sjö ára gamlar. Við hittumst fyrst í barnaskóla. Það er margs að minnast, margs að þakka og sakna. Allra stund- anna í Laufási. Hvað Birgir pabbi þinn var ólatur að keyra mig heim þegar ég var búin að vera hjá ykk- ur frá morgni til kvölds. Afmæl- isdaganna þar sem við enduðum á að fara í Háskólabíó til Boga afa þíns. Unglingsárin, alltaf var farið heim með Diddu eftir skóla. Þú að vinna sumarvinnu á Bifröst, ég þangað að heimsækja þig. Ótrúlega skemmtilegt að heim- sækja þig. Alveg sama hvar það var. Innanlands sem utan. Þrítugsafmælið þitt í London, þar sem þú bjóst vegna vinnu þinnar í sendiráðinu. Þá búin að vera í Bonn og au pair í París. Al- gjör heimsdama. Símtölin okkar sem stóðu oft í rúma tvo tíma oft með miklum hláturköstum. Við þurftum mikið að tala enda hægt að tala við þig um allt. Þú dæmdir aldrei, fannst nýja fleti á umræðunni, hægt að rökræða endalaust við þig. Skemmtilegri ferðafélagi er vandfundinn. Ferðirnar okkar til Kanarí, þær voru dásamlegar. Takk. Við sem ætluðum að gera svo margt og fara í margar fleiri ferð- ir saman. Vorum búnar að ráð- gera letiferð í hitann. Drekka saman rauðvín og reykja á elli- heimilinu. Að leiðarlokum vil ég þakka fyrir dásamlega vináttu, enda- lausan stuðning, hvatningu og það sem þú varst fjölskyldunni minni. Vona að þér líði vel á nýjum slóðum, elsku vinkona. Votta Birgi Sveini, Bóa og Angelu, Lillu, Boga og fjölskyldu mínar dýpstu samúð. Þín vinkona, Ásdís Gígja. Elsku Siggi frændi. Ég man þegar ég var lítil stelpa í Ólafsvík og þið fjölskyld- an á leiðinni í heimsókn frá Kefla- vík. Ég var auðvitað alltaf spennt að fá ættingja í heimsókn í „sveit- ina“ en þú varst ekki bara frændi þú varst uppáhalds. Í mínum aug- um varstu ofurhetja! Já ofur- hetja, því að það er svo sterkt í minningunni hjá mér að þegar þú komst vestur þá var rosa sport hjá mér þegar þú lyftir mér upp og ég gat séð yfir allt þakið á hús- inu mínu. Þú svona stór og sterk- ✝ Sigurjón Helgason fæddist 14. mars 1947. Hann lést 14. desember 2021. Sigurjón var jarðsunginn 21. desember 2021. ur og ég bara smá- stelpa. Eflaust hefur þú nú ekki lyft mér upp þar sem hæsti punktur þaks- ins var, en í minn- ingunni var það þannig og verður þannig. Þetta gerðir þú margoft þegar þú komst í heim- sókn. Mér fannst þú svo fyndinn, skemmtilegur og þú hafðir enda- lausa þolinmæði. Alltaf að fíflast í manni. Þegar dóttir mín hún Hólm- fríður Lea var lítil þá sótti hún alltaf í félagsskapinn þinn þegar þú komst í heimsókn til mömmu og pabba í Garðabæinn. Henni fannst ljúft að sitja í kjöltu þinni, alveg eins og mér þegar ég var lítil. Því þar var hlýr faðmur, góð nærvera og einstakur maður. Einnig er það minnisstætt þegar Elías eiginmaður minn kom á sitt fyrsta ættarmót og þú dróst hann upp á svið í alls konar fíflagang og tókst strax á móti honum með opnum örmum. Það var eins og þú hefðir alltaf þekkt hann. Samtölin okkar þegar við hitt- umst, skilaboðin okkar á Facebo- ok, símahrekkirnir mínir til þín er það sem ég mun alltaf eiga með þér og það þykir mér vænt um. Það tók á síðasta laugardag að heyra í þér þótt þú hafir ekki getað talað. En þá gat ég sagt þér hversu mikið mér þykir vænt um þig og þarna náði ég að kveðja þig. Og þarna kom aftur í ljós að þú ert ofurhetja … þrátt fyrir að geta ekki talað þá heyrði ég þig segja sömuleiðis Karen mín. Þessu símtali mun ég aldrei gleyma. Þið pabbi voruð nánir bræður. Samband ykkar var sérstakt og fékk ég að njóta góðs af því. Þú varst líka alltaf mikið uppáhald hjá henni mömmu. Missirinn er mikill … fyrir svo marga á svo margan hátt. Ég mun halda áfram að spila á nikk- una þína í Kjósinni hjá Sævari okkar og Guggu. Minning þín mun lifa, það er engin spurning. Ég votta Svandísi, strákunum þínum, tengdadætrum, Rikka og fjölskyldu, barnabörnum, systk- inum þínum og mökum mína dýpstu samúð. Góða ferð elsku frændi og skil- aðu faðmlagi til Sigrúnar. Þín frænka Karen. Sigurjón Helgason, þessi mikli meistari, er kominn í sumarland- ið. Það er nú margs að minnast frá því ég hóf störf hjá vélaleigu S. Helgasonar fyrir 30 árum. Þegar maður fer yfir þessi 30 ár sem við áttum samleið þá er svo margt sem upp kemur í hugann: Allar árshátíðirnar á Sögu, þorrablótin, jólahlaðborðin, og bara allar góðu stundirnar sem við áttum saman, hvort sem það var í leik eða starfi. Þú með gít- arinn og Sigrún að syngja með, það er ógleymanlegt. Alltaf fjör og gleði. Svo ekki sé minnst á ör- lætið við okkur starfsmennina þína, þessi stóri og mikli maður svo ljúfur og góðhjartaður. Nú ert þú með ermarnar uppbrettar, kominn til Sigrúnar og búið þið við Sumarlandsgötu 13. Það er svo sem ekki mikið meira hægt að segja annað en risastórt TAKK. Sigurður Ragnar (Siggi Ragnar), Magnea og fjölskylda. „Það er lítið hús út við lygnan straum, þar sem laglegt fljóð átti ljúfan draum.“ Þannig hófu þau Siggi og Sigrún sinn söng á fjöl- skyldumótum en við eigum öll góðar minningar frá þeim sam- verustundum. Siggi var hrókur alls fagnaðar og lagði mikið upp úr því að það væri gaman fyrir börnin að koma saman og til að það yrði stóð hann fyrir dagskrá fyrir þau sem öll tóku þátt í. Hon- um var líka kappsmál að það væri gæðastund á kvöldin og stóð fyrir sönghefti fyrir fjölskylduna og samdi texta sem var tileinkaður henni. Þetta fannst okkur ein- kenna Sigga okkar, ávallt um- hugað um að halda stórfjölskyld- unni saman og lagði mikið upp úr því með undirbúningi og tillögum að samverustundum. Sigga er sárt saknað af fjöl- skyldunni þar sem hann var gleðigjafi, bóngóður og dró ávallt fram það góða í öllum sem með honum voru. Siggi var einn af þessum mönnum sem eru ávallt tilbúnir að hjálpa öðrum. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku vinur, takk fyrir allt og allt. Fjölskyldan frá Eyrartúni, Guðrún Guðnadóttir Guðni, Árný, Pálína, Sæmundur, Guðbjörg og makar. Sigurjón Helgason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.