Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Jólabíó: Office
christmas party kl.13:30 - Kaffi og smákökur - Nánari upplýsingar í
síma 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9- 16.
Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Kaffispjall og piparkökur
kl. 11. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á
könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411-2600.
Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10:00. Skák í Jónshúsi kl. 10:30. Gönguhópur fer frá
Smiðju kl. 13:00.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik-
fimi kl. 9:45. Framhaldssaga kl. 10:30. Handavinnuhópur 13:00-16:00.
Bridge kl. 13:00. Styttri ganga ef veður leyfir kl. 13:30. Hádegismatur
kl. 11:30-12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9:45. Gönguhópur Korpúlfa leggur af
stað kl. 10 frá Borgum og gengið inni í Egilshöll á sama tíma. Kaffi-
spjall í Borgum. Keila í Egilshöll kl. 10:00. Hádegisverður kl. 11:30 til
12:30 og kaffimeðlæti frá 14:15 til 15:30. Þóra Halldórsdóttir verður
með Qigong í Borgum kl. 16:30 í dag endurgjaldslaust og jólastemm-
ing. Vonumst til að sjá sem flesta. Sóttvarnir í hávegum hafðar.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun í handavinnu-
stofu 2. hæðar milli kl. 9-12. Bókband er í smiðju 1. hæðar milli kl. 9-
12:30, og eftir hádegi kl. 13-16:30. Kl. 12:45 verður jólamyndasýning í
setustofu. Myndlist verður í handavinnustofu 2. hæðar milli kl. 13-16.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Seltjarnarnes Kaffikrókur á skólabraut frá kl. 9.00 til 11.30. alla virka
daga. Félags og tómstundastarf eldri bæjarbúa er komið í jólafrí fram
yfir áramót. Byrjum aftur miðvikudaginn 5. janúar. Óskum ykkur
öllum gleðilegrar hátíðar, árs og friðar og þökkum samveru og
samstarf á liðnum árum.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
Trúlofunar og giftingarhringar
fyrir jól
Tökum enn við pöntunum og afgreið-
um fyrir jól. Hagstætt verð. Kíkið á
úrvalið á -www.erna.is-
ERNA
Skipholti 3. s. 552 0775
Bílar
Nýr Ford Transit Custom Edition
Trend sendibíll
Sjálfskiptur. 8” skjár í mælaborði
með bakkmyndavél. Dráttarkrókur.
Metalic lakk. Sumar- og vetrardekk.
Það er 8 mánaða bið eftir svona bíl
en við eigum þennan til afhendingar
strax. Nú er að vera snöggur !
Verð: 5.350.000 án vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
með
morgun-
"&$#!%
Ég minnist með
trega vinkonu
minnar, Sigrúnar
Hlöðversdóttur,
sem hefur kvatt
okkur allt of snemma.
Ég kynntist Sigrúnu fyrst
Sigrún
Hlöðversdóttir
✝
Sigrún Hlöð-
versdóttir
fæddist 7. október
1962. Hún lést 15.
desember 2021. Út-
förin fór fram 21.
desember 2021.
þegar þau Árni
réðu mig í sumar-
vinnu á Bíldsfell
sumarið eftir ferm-
inguna mína. Þá
var ég fjórtán ára
unglingur en Sig-
rún tuttugu og eins
árs að feta sín
fyrstu spor sem
húsmóðir á sveita-
heimili, með Ásu
Valdísi árs gamla.
Þau bjuggu þá hjá Friðmey í
gamla bænum á Bíldsfelli, en
voru að byggja sér hús ásamt
því að reka búið, svo verkefnin
voru ærin. Þetta var ljúf dvöl og
úr varð að ég var hjá þeim líka
sumarið eftir, þá í nýja húsinu.
Á þessum tíma fannst mér
hún ótrúlega fullorðin en við
hlógum stundum að því seinna
hve ung hún í rauninni var og
aldursmunurinn lítill á okkur.
Þau Árni reyndust mér vel og
hinar ýmsu uppákomur í sveit-
inni endalaus tilefni til að hafa
gaman af. Það voru ekki vanda-
málin í kringum Sigrúnu, alltaf
létt og kát, þó að vissulega væri
alveg skap í minni konu.
Kynni okkar endurnýjuðust
svo mörgum árum seinna þegar
hún kom að syngja hjá mér í
Jórukórnum. Þar áttum við
saman ótal góðar stundir í æf-
ingabúðum og ferðalögum og
kemur ferðin til Austurríkis og
Þýskalands sérstaklega upp í
hugann.
Það var alltaf gaman að koma
við hjá þeim Árna á Bíldsfelli
þótt það væri allt of stopult.
Mér til mikillar ánægju var það
þó hve oft tilviljanirnar leiddu
okkur saman á síðustu árum.
Fyrir nokkrum árum áttum við,
fyrir tilviljun, gott kvöld saman
í útilegu í Stykkishólmi og á síð-
ustu árum hef ég reglulega ver-
ið að rekast á þau hjónin hér og
þar og alltaf jafn gaman að hitta
þau.
Ég veit að missirinn er mikill
fyrir Árna og fjölskylduna
hennar og eiga þau alla mína
samúð.
Helena Káradóttir.
✝
Gestheiður
Þuríður Þor-
geirsdóttir, ávallt
kölluð Dedda, fædd-
ist í Hafnarfirði 27.
febrúar 1931. Hún
lést á Sólvangi í
Hafnarfirði 23. nóv-
ember 2021.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Þor-
geir Sigurðsson, f.
1902, d. 1972, og
Katrín Markúsdóttir, f. 1900, d.
1967. Systkini Deddu voru Mark-
ús Benjamín, f. 1924, d. 1984, Jó-
hanna Sigríður, f. 1954, d. 2000,
Bára og Heiðrún Harpa. Gestur
átti einnig Jón Ólaf og Evu Rán.
Gestur kvæntist eftirlifandi eig-
inkonu sinni Oddnýju Guð-
mundsdóttur 2005. Esther, f. 24.
febrúar 1952, maki Sigurður
Bergsteinsson. Börn þeirra eru
Kristín Berta, Alda Hrund og
Bergsteinn.
Dedda giftist Jóni Gíslasyni, f.
8. ágúst 1932, d. 23. apríl 2017,
27. september 1959. Börn þeirra
eru Gísli Vagn, f. 23. maí 1959,
maki Bryndís Garðarsdóttir.
Börn þeirra eru Dagný Björk og
Arnar Freyr. Óskírður Jónsson, f
16. maí 1966, d. 17. maí 1966.
Dedda átti 24 langömmubörn
og sex langalangömmubörn.
Auk húsmóðurstarfsins starf-
aði Dedda lengstum við versl-
unarstörf og umönnunarstörf.
Útförin fór fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Sveinfríður Alda, f.
1929, d. 1989, Ingi-
björg Kristín, f.
1935, og Edda Kol-
brún, f. 1942, d.
2020.
Dedda giftist
Kristni Steindórs-
syni 1950. Þau
skildu. Börn þeirra:
Katrín, f. 11. sept-
ember 1948, maki
Hans Ankjær, Gest-
ur, f. 26. júlí 1959, d. 10. mars
2018. Gestur kvæntist Þuríði
Jónsdóttur. Þau skildu. Börn
þeirra eru Ágúst Þór, Hjördís
Þann 23. nóvember sl. kvaddi
mamma þessa jarðvist, orðin
tæplega 91 árs. Hún hafði átt þá
ósk að fá að ljúka sinni ævi sem
næst sínum fæðingarstað í
Hafnarfirði. Þá ósk fékk hún
uppfyllta því hún bjó á Sólvangi
síðustu misserin, með útsýni yfir
Lækinn og sinn fæðingarstað á
horni Öldugötu og Lækjargötu.
Mamma var dóttir Þorgeirs
Sigurðssonar sjómanns og Katr-
ínar Markúsdóttur. Hún var ein
sex systkina. Æskuárin við
Lækinn og á Austurgötunni
voru henni ætíð minnisstæð og
ánægjuleg. Á barnsaldri kynnt-
ist hún bestu vinkonu sinni,
henni Gerði. Þeirra vinskapur
hélst allt til enda og aldrei bar
skugga á hann.
Margar minningar koma upp
í hugann nú þegar mamma hef-
ur kvatt. Alltaf fékk ég að taka
þátt í jólabakstrinum og var ég
sérlegur yfirsmakkari á hinum
ýmsum deigtegundum. Snemma
var manni kennt að strauja allan
þvott og pressa buxur. Grunn-
atriði í eldamennsku skyldi mað-
ur einnig kunna. Allt þetta kæmi
til með að gagnast manni seinna
meir. Grunnspor í samkvæmis-
dönsum kenndi mamma mér
heima í litlu stofunni í Goðatúni
en þar bjuggum við lengstum
meðan ég bjó í foreldrahúsum.
Fyrir allt þetta er ég óendan-
lega þakklátur.
Sú ritningargrein sem
mamma valdi sér fyrir fermingu
sína var henni leiðarljós allt
hennar líf og fór hún eftir henni.
„Dæmið eigi og þér munuð ei
dæmdir verða.“ Á þetta lagði
hún ríka áherslu í uppeldi okkar
systkina sem og orðheldni og
sannsögli.
Á æskuárum mínum tíðkaðist
það að sauma föt á fjölskylduna.
Mamma ver einkar handlagin og
galdraði fallegar flíkur úr litlu.
Hún prjónaði, heklaði og saum-
aði út. Allt var vandað og fúsk
kunni hún ekki við.
Mamma minntist oft á það við
mig að það hefði verið hennar
gæfa að kynnast pabba, Jóni
Gíslasyni. Hann hefði komið eins
og ljós inn í hennar líf og hálf-
systkina minna. Þau giftu sig á
skírnardegi mínum, 27. septem-
ber 1959, vestur á Mýrum í
Dýrafirði en þaðan var pabbi. Á
Mýrum byggðu þau sér sinn
sælureit, Stekk, og dvöldu þar
langdvölum. Dýrafjörðurinn
varð mömmu afar kær og þá
ekki síður fólkið í sveitinni og
vildi hún dvelja þar sem mest.
Mér finnst þessi vísa sem pabbi
orti til mömmu segja meira en
mörg orð um þeirra hug til
hvort annars því þetta var gagn-
kvæmt.
Af því ég ber ást til þín
er hér lítil baga.
Njóttu yndis elskan mín
alla þína daga.
(Jón Gíslason)
Ég vil færa starfsfólki á deild-
inni Hvaleyri á Sólvangi mínar
innilegustu þakkir fyrir góða
umönnun og viðmót við mömmu
og okkur ættingjana. Sólvangur
var vinnustaður mömmu í mörg
ár og þar vildi hún fá að ljúka
hringnum svo notuð séu hennar
orð.
Mamma var södd lífdaga þeg-
ar hún lagði upp í sína síðustu
ferð. Hún var sátt við Guð og
menn. Að vera með henni við
upphaf ferðar var friðsælt. Góða
ferð mamma mín á þeirri veg-
ferð sem þú nú hefur lagt út á.
Megi hinn hæsti fylgja þér á
þeirri leið.
Gísli Vagn.
Síðustu vikur hafa verið hálf-
gerð þoka. Elsku ömmu minni
hrakaði hratt og fór til sum-
arlandsins þann 23. nóvember.
Þetta var það sem hún vildi
og hennar vegna er ég glöð. Ég
er þakklát fyrir að hafa verið
flutt aftur til Íslands og hafi get-
að verið hjá henni hennar síð-
ustu daga.
Ég gæti skrifað heila bók um
hana ömmu mína. Með hverju
árinu sem líður kemst ég að
meiru og meiru um ömmu og
hvaða konu hún hafði að geyma.
Ég fékk að hafa ömmu hjá
mér í 36 ár. Hún fékk að kynn-
ast börnunum mínum og manni
og bara tveimur dögum áður en
henni hrakaði sátum við krakk-
arnir hjá henni og spjölluðum,
hlógum og borðuðum ís.
Ég mun aldrei geta þakkað
henni allan stuðninginn sem hún
hefur veitt mér í gegnum tíðina.
Núna síðast að opna heimilið sitt
og leyfa mér og fjölskyldunni að
búa í íbúðinni hennar á meðan
við klárum að byggja drauma-
húsið okkar.
Hún kenndi mér margt eins
og t.d. að prjóna þó að ég muni
aldrei öðlast hennar þolinmæði í
að rekja upp heilu peysurnar af
því að það kom í ljós villa í byrj-
uninni (sem enginn sá nema
hún). Fyrirgefðu amma, ef villan
er of lítil eða illsjáanleg þá mun
hún fá að standa.
Ég mun sakna þess að þræta
við hana um hvernig á að skilja
prjóna- eða hekluppskrift rétt
og komast svo að því mörgum
mínútum seinna að við vorum í
raun að skilja hana eins. Við
vorum bara of óþolinmóðar til að
hlusta og reyna að skilja hvor
aðra. Þetta endaði yfirleitt þann-
ig að við hlógum okkur mátt-
lausar og héldum svo áfram með
verkið.
Ég mun sakna þess að finna
hversu vænt henni þótti um mig.
Ég get sagt að mér þykir ekkert
minna vænt um hana.
Ég á hafsjó af góðum minn-
ingum sem munu ylja mér en
gera mig leiða núna því við get-
um ekki búið til fleiri.
Að hún hafi nennt að dröslast
með söngóða, talóða og athygl-
issjúka mig vestur í Dýrafjörð á
hverju sumri og eyða því með
mér þar sýnir hversu sterk hún
var. Ætli ég hefði ekki sent
sjálfa mig heim með næstu
rútu?
Ég mun aldrei borða ís aftur
án þess að hugsa til ömmu, ég
mun aldrei fara vestur án þess
að hugsa um hana. Ég mun aldr-
ei pirra mig yfir illskiljanlegri
handavinnuuppskrift án þess að
hugsa til hennar og aldrei hugsa
um annað en hana þegar ég sé
falskar tennur. Ég mun aldrei
gleyma þegar hún var að bölva
yfir að geta ekki bitið í sundur
þráð og uppgötvaði síðan að hún
hefði gleymt að setja í sig tenn-
urnar … það sem við hlógum.
Takk fyrir allt elsku amma.
Ég hlakka til að hitta þig einn
daginn í sumarlandinu … en
ekki alveg strax.
Þín
Dagný Björk.
Andlát Gestheiðar mágkonu
minnar kom mér dálítið á óvart
því við Edda konan mín heim-
sóttum hana á Sólvangi 23. okt.
sl. Þá lét hún vel af sér, var
ánægð með aðstæður og atlæti
þarna og var hress að sjá. En
enginn veit hvenær kallið kem-
ur.
Það eru nú meira en 60 ár
síðan Jón bróðir minn og Gest-
heiður hófu sambúð. Allan þann
tíma höfum við Mýrafólk kallað
hana Deddu. Jón og Dedda
eignuðust soninn Gísla Vagn 23.
maí 1959 og komu með hann
vestur að Mýrum þá um sum-
arið. Mun Guðrún móðir mín
hafa hvatt þau til að gifta sig
fyrr en seinna. Þau tóku þeim
tilmælum vel og voru gefin sam-
an 27. september þá um haustið.
Eftir það komu þau vestur nær
hvert vor og Jón aðstoðaði við
gæslu æðarvarpsins og margt
fleira. Þau reistu sér sumarbú-
stað á Innri-Stekk í landi Mýra
á níunda áratug seinustu aldar
og stækkuðu hann svo síðar.
Þar dvöldu þau hvert vor á
varptíma og þegar Jón lét af
störfum vegna aldurs dvöldu
þau í bústaðnum sumarlangt
meðan heilsa leyfði. Þaðan vökt-
uðu þau varpið á vorin og var
það mikill léttir heimafólki. Gísli
Vagn sonur þeirra fór snemma
að gefa gaum að refum og þegar
hann eignaðist Bryndísi konu
sína fór hún einnig að verða tíð-
ur gestur á Stekknum og enn
síðar börn þeirra, Dagný Björk
og Arnar Freyr. Allt þetta fólk
hefur lagt góðan skerf til varp-
gæslunnar.
Frá Stekk sér vel yfir varp-
landið á Mýramel. Þar er mikil
fuglaveröld á vorin, því auk æð-
arfuglsins verpir þar fjöldi fugla
af öðrum tegundum, og nokkrar
hafa þar viðkomu en fara síðar á
aðrar varpstöðvar. Í þessar
krásir sækja svo vargfuglar, ref-
ir og minkar. Það er því í mörg
horn að líta hjá varpgæslufólki.
En það er líka margt sem gleð-
ur augu og eyru á björtum vor-
nóttum. Sól fer ekki af tindum
Vestfirsku Alpanna handan við
Dýrafjörðinn og þegar hún kem-
ur upp yfir Mýramelinn fer allt
á hreyfingu eftir mikla kyrrð
um lágnættið. Fuglar taka að
syngja uns úr verður fjölradda
kliður. Þar hefur lómurinn jafn-
an hæst. Um fimmleytið kemur
krummi svífandi niður yfir varp-
ið og hugar að morgunverði.
Mávar og svartbakar koma um
svipað leyti og vilja hafa sitt.
Tófan er á heimleið ef hún
sleppur lifandi frá gæslumönn-
um. Kannski er það svona sjón-
arspil sem laðar fólk til varp-
gæslu ár eftir ár.
Dedda undi hag sínum vel á
Stekknum og henni þótti vænt
um staðinn. Það var gott og
gaman að koma í heimsókn til
hennar. Öll samskipti við
Stekkjarfólkið hafa verið lífsfyll-
ing og gleðivaki heimafólki á
Mýrum. Að leiðarlokum þökkum
við Deddu gefandi samfylgd og
vottum afkomendum og öðru
venslafólki innilega samúð.
Valdimar H. Gíslason og
fjölskylda Mýrum.
Gestheiður Þuríður
Þorgeirsdóttir
Elsku stjúpi er
frá okkur tekinn,
allt of snemma
finnst mér. Það er
þó ekki svo að við viljum hafa ást-
vini okkar til eilífðar, en við yljum
okkur við minningarnar og ég á
þær margar um þig. Man svo vel
þegar þú áttir Oldsmobilinn fall-
ega rauða og ég fékk að fara með
þér í bíltúr. Þú sagðir að vegur-
inn væri svo holóttur svo ég
Guðjón Már
Jónsson
✝
Guðjón Már
Jónsson fædd-
ist 19. maí 1936.
Hann lést 10. des-
ember 2021.
Útför hans fór
fram 20. desember
2021.
spurði þig af hverju
ég fyndi ekki fyrir
því og þá varstu
fljótur að svara „það
er vegna þess að ég
er sá eini sem er á bíl
með fluggír“ og svo
hlóstu.
Elsku stjúpi
minn, ég vildi svo
gjarnan geta komið
og kvatt þig en
vegna aðstæðna
gengur það ekki upp núna, ég í
Danmörku og þú í Eyjum, svo ég
kveð þig hérna og þakka þér fyrir
allt og allt.
Minningin um þig verður ávallt
í hjarta geymd en aldrei gleymd.
Þín dóttir,
Anna Fanney.