Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 22.12.2021, Síða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 60 ÁRA Gunnlaugur er Reykvík- ingur, ólst upp á Hverfisgötu og Njálsgötu en býr í Efstasundi. Hann er fasteignasali að mennt og vinnur hjá Heimili fasteignasölu. Hann sér- hæfir sig líka í fasteignaljósmyndun. Áhugamál hans eru eru ljósmyndun, fasteignasala og ferðalög, síðast á Tenerife. FJÖLSKYLDA Maki Gunnlaugs er Jóhanna Sveinsdóttir, f. 1967, kenn- ari í Hlíðaskóla. Börn Gunnlaugs eru Sólveig Helga, f. 1989, og Björn Ari, f. 1994. Foreldrar Gunnlaugs eru Helga Ágústsdóttir, f. 1934, hús- móðir, búsett í Reykjavík, og Björn T. Gunnlaugsson, f. 1926, d. 2012, húsgagnasmiður. Gunnlaugur Auðunn Björnsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú ert enn á báðum áttum en vinnufélagar þínir eru búnir að taka afstöðu og pressa þig stíft. Komdu þér þangað sem þú getur verið í friði. 20. apríl - 20. maí + Naut Vertu óhræddur við að segja hug þinn því þá munu aðrir taka mark á þér. Þú hefur þá dirfsku til að bera sem ætti að duga til að ljúka metnaðarfullu verkefni. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú ert á réttri leið en þarft þó að vera ákveðinn til að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig. Gleymdu þó ekki að vera til staðar og aðstoða vini þína sem á því þurfa að halda. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Ekki láta hlutina koma þér úr jafn- vægi í vinnunni í dag. Sýndu sjálfsöryggi og þá munu aðrir sjá þig í jákvæðu ljósi. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Skildu vinnuna eftir á sínum stað. Náðu aftur sambandi við þá sem þú hefur saknað. Efasemdir þínar og óöryggi gera þig tortrygginn í garð annarra. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Láttu allar illdeilur á vinnustað sem vind um eyru þjóta. Haltu ró og reyndu að vinna skipulega því þannig nýtist tíminn þér best. 23. sept. - 22. okt. k Vog Að gera það besta úr því sem þú hafð- ir var einhvern veginn auðveldara þegar þú áttir minna. Leggðu þig fram við vinnu þína í dag og þá muntu ná árangri á morgun. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Það er engin ástæða fyrir þig til þess að bera ábyrgð á öllum sem í kring- um þig eru. Gættu þess að falla ekki fyrir freistingum sem þú gætir iðrast síðar. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Dagurinn hentar sérlega vel til að gera ferðaáætlanir. Þér þykir svo mikið varið í fólk að þig langar til að slá því enda- lausa gullhamra. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Eitthvað vill ekki ganga upp hjá þér og þú kinokar þér við því að leita ástæðu þess. Bakslagið er aðeins tíma- bundið. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það kostar sitt að koma sér áleiðis. Hafðu þitt á hreinu og fáðu fyrir- skipanir skriflega ef með þarf. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Það er margt talað í kringum þig en þér finnst vanta að öllum þessum orðum fylgi einhverjar athafnir. þar sem Ásta bjó með fjölskyldunni til ársins 2010. „Það var frábært að búa á Manhattan. Við bjuggum á Upper West Side rétt við Central Park. Á þess- um árum eignuðumst við þriðja barnið okkar og nutum fjölskyldu- lífsins í þessu skemmti- lega og barnvæna hverfi með frábærum skólum, flottum söfn- um og leikvöllum fyrir krakka á hverju strái. Það var skemmtilegur hópur Íslendinga sem bjó í hverfinu en einnig áttum við marga góða bandaríska vini. Ég sakna enn margs frá þessari litríku borg sem maður finnur ekki annars staðar.“ Þegar Ásta kom heim réð hún sig sem verkefnastjóra hjá Actavis. Meðfram vinnu stundaði hún MBA- þaðan sem Ásta útskrifaðist með diplóma í stjórnun árið 2005. Eftir tvö skemmtileg ár í Boston lá leiðin til Manhattan í New York Á sta Sóllilja Guðmunds- dóttir fæddist á Fæð- ingarheimilinu í Reykjavík á vetrar- sólstöðum 22. desem- ber árið 1971. „Pabbi var nýútskrif- aður ljósmyndari og langaði að taka myndir af fæðingu frumburðarins. Á þeim tíma þótti alls ekki sjálfsagt að feður væru viðstaddir fæðingar og hvað þá að þeir skrásettu fæðinguna í bak og fyrir með margar mynda- vélar á lofti. Ljósmæðurnar voru ekki á því að leyfa þessa vitleysu en eftir smávegis stapp gaf yfirlæknir loks samþykki sitt. Ég er því ábyggi- lega með elstu Íslendingum sem eiga ljósmyndir af fæðingunni sinni.“ Ásta gekk í Vesturbæjarskóla og Hagaskóla. Þá lá leiðin í MR þaðan sem hún útskrifaðist árið 1991. Árið 1989 dvaldi hún sumarlangt í þýsku- skóla, Goethe Institut í Schwäbisch Hall í Þýskalandi. Veturinn eftir stúdentspróf var Ásta barnfóstra í Belluno í Dólómítunum á Ítalíu hjá ítölskum hjónum. „Mér þótti líffræðin skemmtileg- asta fagið í menntaskóla og fékk verðlaun úr minningarsjóði Þorvald- ar Thoroddsen fyrir hæstu einkunn í náttúrufræðum á stúdentsprófi. Eitthvað hafði minningarsjóðurinn rýrnað en verðlaunin voru 1.500 kr. sem dugðu akkúrat fyrir einum kok- teil á júbilantaballinu en heiðurinn var þeim mun meiri. Líffræðin heill- aði áfram og lá því beinast við að skrá mig í líffræðinám við HÍ eftir árið á Ítalíu. Veturinn 1995-1996 lá leiðin aftur til Ítalíu þegar við Kjartan, þá kær- astinn minn og núverandi eigin- maður, vorum í hópi fyrstu íslensku Erasmusnemanna og stunduðum nám í einn vetur í Háskólanum í Genúa.“ Eftir BS-próf árið 1996 hóf Ásta meistaranám í heilbrigðisvísindum hjá Ingileif Jónsdóttur á rannsókn- arstofu í ónæmisfræðum við Land- spítalann og útskrifaðist árið 1999. Eftir það starfaði Ásta sem verk- efnastjóri hjá Íslenskri erfðagrein- ingu til ársins 2003 þegar leiðin lá í Harvard-háskóla í Bandaríkjunum nám við Háskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan árið 2014. „Mig langaði að breyta til og takast á við nýjar áskoranir í kjölfar MBA- námsins.“ Ásta einhenti sér því í vinnu á sviði viðskiptaþróunar og fjárfestinga í sprotafyrirtækjum, hjá fyrirtæki þeirra hjóna Volta ehf. Meðal margra spennandi verkefna sem Ásta kom að á þessum tíma var uppbygging nýsköpunarfélagsins Laki Power ehf., fyrst sem stjórn- armaður og síðar sem stjórnar- formaður á árunum 2017-2021. Síðastliðin tvö ár hefur Ásta starf- að hjá Auðnu tæknitorgi sem fjár- mála- og viðskiptaþróunarstjóri. Til- gangur Auðnu tæknitorgs er að aðstoða vísindamenn við íslenska há- skóla að hagnýta rannsóknir og vís- indaniðurstöður sínar. „Í gegnum tíðina hef ég safnað mér marg- breytilegri reynslu í vísindum, ný- sköpun og atvinnurekstri sem gagnast mér vel í þessu starfi.“ Ásta hefur í gegnum tíðina verið mjög virk í félagsstörfum, setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka og frá 2011 hefur Ásta m.a. setið í stjórn Listaverkasafns Valtýs Péturssonar. Ásta er forfallin útivistarmann- eskja og miklar ekki fyrir sér að skipuleggja ferðalögin. „Meðal fjöl- margs skemmtilegs sem við gerðum í sumar var að ganga á Hvannadals- hnúk með frábærum hópi vina og einnig héldum við á Hornstrandir og nutum þar fjögurra daga í rjóma- blíðu. Þangað væri ég til í að fara aftur. Við höfum stundað skíði á vet- urna bæði á Íslandi og erlendis. Ég hef líka farið á gönguskíði og síðast- liðinn vetur sótti ég fjallaskíða- námskeið í Skíðadal og væri til í stunda fjallaskíði áfram. Við förum í laxveiði á sumrin og göngum til rjúpna á veturna.“ Ásta hefur líka áhuga á tónlist. „Í þónokkur ár höfum við hjónin þrætt tónlistarhátíðir erlendis ásamt góð- um vinahjónum okkar. Og svo syng ég í kvennakórnum Hrynjandi. Er ekki klassík að segjast hafa gaman af vinum sínum og ferðalög- um?“ spyr Ásta. „Skemmtilegasta sem ég veit er að bjóða vinum í Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, fjármála- og viðskiptaþróunarstjóri Auðnu – 50 ára Fjölskyldan Ásta, Valtýr, Ólafur, Kjartan og Elín við veiðar í Fljótaá 2020. Fagnar tímamótunum á Kosta Ríka Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afmælisbarnið Ásta á heimili sínu. Til hamingju með daginn Reykjavík Logi Egilsson fæddist 25. febrúar 2021 kl. 23.30 á Landspítal- anum við Hringbraut. Hann vó 3.580 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Kristín Georgsdóttir og Egill Gylfason. Nýr borgari Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Calia Pier Ítalskt, gegnlitað nautsleður Stakir sófar: 3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr. 2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr. 2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr. Tungusófi með rafmagni í sæti 615.000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.