Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 32

Morgunblaðið - 22.12.2021, Side 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 2021 F immta ljóðabók Bubba Morthens nefnist Orð, ekkert nema orð og gefur titillinn hugmynd um þá hógværð sem einkennir verkið. Ljóðabókin er orðasafn sem þykist ekki vera meira en það er, safn orða. Þeim er þó vissulega raðað saman af kostgæfni, vand- að er til verka og hugmyndirnar sem settar eru fram eru oft for- vitnilegar. Verkið skiptist í þrjá nokkuð ólíka hluta. Það hefst á safni sterkra ljóða sem fjalla um ólík æviskeið, um mannleg sambönd, ástina, fegurðina og ljót- leikann. Þessi ljóð eru einlæg og tær og sýna vel þann hæfileika Bubba að snerta við manni án þess að vera með eitthvert óþarfa prjál. Ljóðið „Hjartað“ er gott dæmi um þetta. Hjartað skáldið sem lýgur aldrei meðan höfuð okkar reisa endalausa múra loka ljósið úti fótatak sem kveikir von en fjarlægist jafnóðum hjartað sem höfuð þitt vill ekki kannast við. (7) Við tekur síðan kafli sem ber tit- ilinn „Nokkrar bláar nótur“ og hef- ur að geyma minningarorð á ljóð- formi um tónlistarfólk sem fallið hefur frá. Ljóðin eru tólf og meðal þeirra sem Bubbi minnist eru Gunn- ar Jökull Hákonarson trommuleik- ari, tónskáldið Jón Múli og söngv- ararnir Elly Vilhjálms og Rúnar Júlíusson. Um Guðrúnu Á. Símonar skrifar hann meðal annars: risi meðal risa of stór of skrýtin í landi þar sem boð og bönn réðu ríkjum nú syngur hún einhvers staðar á stjörnu með kattargleraugu og hárkollu úr draumum vetrarbrautarinnar Þessi ljóð eru persónuleg en þó þannig að þeir sem þekkja til tón- listarfólksins munu finna í þeim kunnuglegan streng. Sumar lýsing- arnar eru hráar og Bubbi er ekkert að skafa af hlutunum, en hann sýnir þó þá virðingu sem hann ber fyrir þessum kollegum sínum. Aðdáunin fær að skína í gegn og skáldinu tekst vel að fanga músíkina og tíð- arandann sem fylgdi þessu fólki sem hann yrkir um og heiðrar. Þriðji hlutinn er tilraunakennd- astur og mörg ljóðin forvitnileg. Þar flæða áfram prósaljóð sem snerta á ýmsum ólíkum viðfangsefnum. Þau skrif Bubba sem hafa að geyma beitta ádeilu eru jafnan sterk og það á við nokkur ljóðanna, en þau sem upphefja vissa nostalgíu og fegurð eru líka nokkuð sannfærandi. Fyrri verk Bubba þar sem hann hefur tekið fyrir eitthvert málefni sem hann brennur fyrir eru ívið bet- ur heppnuð, vegna þess að þau eru hnitmiðaðri og beinskeyttari. Þegar hann í þessu nýja ljóðasafni skellir fram grófum lýsingum á ljótleika, sem minna á fyrri ljóðabækur hans, kippist lesandinn við og þær línur verða áhrifamiklar þar sem þær eru faldar milli sakleysislegra ljóða. Ég saknaði þess svolítið að sjá ekki meira af þessari hlið á ljóðskáldinu Bubba en hin einlæga útgáfa af hon- um er auðvitað afar viðkunnanleg og á sinn hátt heillandi. Þetta nýjasta verk Bubba, Orð, ekkert nema orð, stendur alveg fyr- ir sínu, það einkennist af einlægni og hógværð en hefur þó einnig að geyma minnisstæðar myndir, flottar lýsingar og ýmsar spennandi hug- myndir. Einlæg og minnisstæð orð frá hógværum Bubba Ljóð Orð, ekkert nema orð bbbmn Eftir Bubba Morthens. Mál og menning, 2021. Kilja, 64 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ljóðskáld Nýjasta ljóðabók Bubba, Orð, ekkert nema orð, skiptist í þrjá ólíka hluta og gagnrýnandi segir það einkennast „af einlægni og hógværð“. AF BÓKUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Hann trúir á fjöllin, tign þeirra, kraft og hreinleik, og hann boðar þjóð sinni fagnaðarerindi um þau, með slíkum þrótti, að hann talar eins og sá sem vald hefur.“ Þannig er afstöðu hins fjölhæfa listamanns og náttúruunn- anda Guðmundar Einarssonar frá Miðdal (1895-1963) til fjalla lýst í lok hinnar rómuðu bókar hans, Fjallamenn, sem kom út rétt eftir heimsstyrjöldina seinni, 1946. Guð- mundur var maður ekki einhamur, kom víða við í listsköpun og hönnun en hafði samt tíma til að vera lang- dvölum á fjöllum og ögraði sér löngum á erfiðum ferðalögum sem leiddu hann iðulega upp á hæstu tinda. Sem dæmi um það hvernig fjöllin drógu hann til sín, þá kom Guðmundur aðeins einu sinni heim til Íslands þau fimm ár sem hann var við nám og störf í Þýskalandi fyrir um öld síðan, og þá dvaldi hann í fimm vikur samfleytt á Kili, aleinn í tjaldi. Guðmundur frá Miðdal var einn stofnenda félagsins Fjalla- manna árið 1939 en það stóð fyrir námskeiðum í skíðamennsku og klifurtækni í klettum og jökulís, ferðum um jökla og hálendi og byggingu fjallaskála. Og á stríðs- árunum réðst Guðmundur í að skrifa samnefnda bók, Fjallamenn, sem endurspeglar svo fallega þessi áhugamál hans, ferðaþrána og upp- lifanir í tilkomumikilli náttúru. Fal- lega bók sem er fyrir löngu orðin klassísk og sannkallð viðmið þegar fjallað er um hálendi Íslands og upplifanir í náttúru landsins. Gengið að gosi og laxaveisla Þótt oft hafi mátt finna eintök af frumútgáfu Fjallamanna Guð- mundar á fornsölum, þá er ánægju- legt að sjá að Salka forlag hefur nú endurútgefið verkið með myndar- legum hætti og hefur Ragnar Helgi Ólafsson hannað bókina, trúr útliti hinnar fyrri en þó með vissum nú- tímalegum breytingum. Eins og Ari Trausti sonur Guð- mundar greinir frá í inngangi nýju útgáfunnar notaði Guðmundur lausan tíma í nokkur ár í að skrifa bókina, „að nokkru leyti upp úr minnisbókum, og safnaði ljós- myndum til hennar. Hann hafði teiknað tússmyndir og upphafsstafi kafla, væntanlega til þess að hafa bókina sem myndarlegasta og fjöl- breytilegasta að gerð og með per- sónulegu handbragði.“ Bókin er nær 400 síður og þar af eru um eitt hundrað ljósmyndir sem dreifast um verkið. Það er breyting frá fyrri útgáfu þar sem ljósmyndir eru í tveimur sérstökum köflum á húðaðan pappír. Margar myndanna eru glæsilegar, vel tekn- ar og sýna fólk á ferð í tilkomu- mikilli náttúru. Sýnilega hefur þurft að skanna myndirnar inn úr eldri útgáfunni, frummyndirnar hafa þá ekki verið aðgengilegar, og eru myndgæðin því lakari í nýju bókinni og skuggafletir eiga til að lokast. En ljósmyndirnar eru engu að síður afar mikilvægur þáttur verksins, eins og fjölmargar æting- ar Guðmundar af viðkomustöðum og fyrrnefndar tússteikningar. Og viðkomustaðirnir eru margir og eins og slyngustu ferða- sagnahöfundar geta svo vel gert, þá hrífur sögumaðurinn okkur lesend- urna með sér. Í fyrri hluta bókar um Ísland; til að mynda á slóðir úti- legumanna á hálendinu og á Vatna- jökul að upplifa ógnarkrafta Gríms- vatnagoss, og svo eru hér frásagnir af einstakri laxveiði listamannsins – þessi lesandi hefur oft notið þess að lesa frásögn hans af 37 löxum sem hann veiddi á einum degi í Soginu og vógu að meðaltali um 18 pund. Í seinni hluta bókar leiðir Guð- mundur okkur meðal annars á slóð- ir væringja og um Alpana, sem er einnig gaman að upplifa, en áður en hann flutti heim árið 1926 lagðist hann í sjö mánaða flakk um löndin suður við Miðjarðarhaf. Viðburðaríkir dagar Guðmundur frá Miðdal skrifaði þróttmikinn, myndríkan og fal- legan stíl. Og hann brýnir landa sína til dáða, hvetur þá til að halda til fjalla, skíða og ganga. Hann upp- lifir skýrar andstæður náttúru og borgarlífs: „Þegar kemur af fjöll- um, sést bezt, hve margt bæjarfólk er hvítt og veiklulegt, og maður horfir undrandi á meiningarlaust ranglið á Austurstræti,“ skrifar hann á einum stað. Og þá „minnist ég þess, hve vistlegt er í tjaldinu uppi við jökulbrúnirnar, þegar sest er að einfaldri máltíð eftir erfiðan, en viðburðaríkan dag“. (48) Fjallamenn er heldur betur viðburðarík, innblásin og ævin- týrarík frásögn – klassísk og falleg ferðabók. Teikning/Guðmundur Einarsson Á jökli Teikning Guðmundar við upphaf kaflans Eldgos við Grímsvötn sýnir hvar ísveggur er hlaðinn um tjaldið á jöklinum. Gosmökkinn ber við himin. Fagnaðarerindi um fjöll og ferðir Sú nýja Fjallamenn er hér í nýjum umbúnaði á þeirri gömlu frá 1946. Ljósmynd/Guðmundur Einarsson Jökulganga Við ísborgir Tindfjalla- jökuls í einni ferð Fjallamanna. 110 Ve

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.