Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN reyndar fyrir að Torfi, sem sinnir járnsmíðum og öðru slíku jafnhliða búskap, ætti erindi norður á Strand- ir með öxul undir bátakerru. Þangað fór hann svo um verslunarmanna- helgina en hafði þá áður spurt vini á Ströndum um Olgu og hennar hagi. „Mér fannst ekki fráleitt að kanna hvort dæmið gengi upp og gagn- kvæmur áhugi yrði til staðar. Að- stæður okkar voru svipaðar; við á líku reki og eigum bæði dætur á sama aldri,“ segir Torfi. Dansað í Trékyllisvík Á laugardagskvöldi um verslunar- mannahelgina, 5. ágúst á því herrans ári 2013, var Olga skálavörður í gömlu fjárhúsunum á Valgeirs- stöðum þegar þar birtist maður sem sagðist heita Torfi Guðlaugsson og vildi bjóða henni á ball sem var þá um kvöldið í Trékyllisvík. „Ég var ekkert á leiðinni á ball og vissi ekkert hvaða maður þetta var, en úr því ég átti heimangengt þetta kvöld ákvað ég að þekkjast boðið. Hljómsveitin Blek og byttur spilaði, Diddú söng og ég dansaði við nokkra stráka, þar á meðal Torfa. Fór svo aftur í Ferðafélagshúsið, þar sem Torfi kom við daginn eftir og spurði hvort hann mætti fá símanúmerið mitt ef ég fengi sitt. Þá var ég líka búin að fá meðmæli nokkurra kór- félaga úr Söngfjelaginu, sem þarna voru næturgestir, um að Torfi væri vænn drengur. Sjálf gerði ég mér grein fyrir að hér væri kominn herramaður af gamla skólanum og góð manneskja,“ segir Olga. Ekki leið á löngu uns Torfi hringdi í Olgu og nú fór boltinn að rúlla. Í september fór hún í heimsókn í Borgarfjörð til Torfa og var honum þar til halds og trausts í smíðavinnu. Allt gekk vel og fljótlega var þeim tveimur orðið ljóst að ekki yrði aftur snúið. Ævintýrið á ábyrgð Moggans „Ef viðtalið og myndin af Olgu og Sædísi hefði ekki komið í Mogg- anum hefði þetta ævintýri aldrei átt sér stað. Ábyrgð þín í málinu er mik- il,“ bætir Torfi við og beinir – hlæj- andi – orðum sínum til blaðamanns. Olga og Sædís Myst fluttu í sum- arlok 2015 að Hvammi. Þar reka þau Torfi kúabú og jafnframt vinnur Olga við ferðaþjónustuna á Húsa- felli. Dóttir Olgu, þrettán ára, er í Grunnskóla Borgarfjarðar á Klepp- járnsreykjum. Hekla, dóttir Torfa, sem er fimmtán ára og býr í Garða- bæ, kemur í Hvamm aðra hverja helgi. Stúlkurnar ná vel saman og eru góðar vinkonur. „Ég ætlaði mér aldrei að flytja í sveit, en þetta er niðurstaðan. Ég er alsæl hér og núna í desember gekk ég í Kvenfélag Hvítársíðu sem er skemmtilegur félagsskapur,“ segir Olga. Hún er hamingjusöm kona Torfa í Hvammi sem sjálfur telur sig líka vera sannkallaðan lukkunnar pamfíl. Mynd í Mogga leiddi til hjónabands - Ótrúleg ástarsaga úr Árneshreppi á Ströndum - Torfi og Olga í Hvammi í Hvítársíðu í Borgarfirði - Bóndinn bauð skálaverðinum á ball sem var örlagaríkt - Smullu saman - Gift á Gilsbakka í gær Morgublaðið/Sigurður Bogi Gifting Sr. Geir Waage fyrrverandi prestur í Reykholti gaf saman þau Olgu Zoëga Jóhannsdóttir og Torfa Guð- laugsson, sem dró hring á fingur brúðarinnar. Athöfnin var mjög fámenn, en afar hátíðleg í öllu látleysi sínu. Borgarfjörður Mjög staðarlegt er að líta heim að Hvammi í Hvítársíðu, sem margoft hefur fengið viðurkenningu sem snyrtilegasta býlið í Borgarbyggð. SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á köldum vetrardegi mátti greina heita ást þegar þau Torfi Guð- laugsson og Olga Zoëga Jóhanns- dóttir, sem búa í Hvammi í Hvítár- síðu í Borgarfirði, voru í gær, á næstsíðasta degi árs, gefin saman í hjónaband við athöfn í Gilsbakka- kirkju þar í sveit. Séra Geir Waage, fv. sóknarprestur í Reykholti, ann- aðist athöfnina sem var látlaus og aðeins var allra nánasta fólk við- statt. Einnig þó blaðamaður Morgunblaðsins, af sérstökum ástæðum og frásagnarverðum. „Gæti verið áhugavert að kynnast henni“ „Ég var ekkert að leita að ástinni, sem hins vegar fann mig,“ segir hús- freyjan í Hvammi sposk á svip. Upp- haf málsins er að vorið 2013 réð Olga sig til starfa sem skálavörður í húsi Ferðafélags Íslands að Valgeirs- stöðum í Norðurfirði á Ströndum. Þær Olga og Sædís Myst, dóttir hennar, fóru norður í Árneshepp í júníbyrjun. Seinna í sama mánuði var sá sem þetta skrifar á Ströndum. Tók þá mynd og stutt viðtal við Olgu, sem sagði frá sér og sínu í samtali sem birtist í Morgunblaðinu 30. júní. Staðurinn grípur mig sterk- um tökum, var yfirskrift viðtalsins sem fylgdi mynd af mæðgunum með hús FÍ á Valgeirsstöðum í bak- grunni. Næst segir af Torfa í Hvammi sem las viðtalið við Olgu og fannst áhugavert. „Og mér þótti þetta myndarleg kona, sem ég hugsaði með mér að gæti verið gaman að kynnast,“ segir bóndinn í Borgar- firði. Þegar hér var komið sögu lá Fjölmiðlar endurspegla samfélag hvers tíma með frá- sögnum, pistlum, myndum og slíku. Á sumrin eru gjarnan birtar hér í Morgunblaðinu frásagnir af fólki sem er á ferðum upp til fjalla og út til nesja, sem hefur skemmtilegar sögur að segja. Spjallið við Olgu í Morg- unblaðinu í júnílok 2013 var einmitt í þeim stílnum. Nokkrum misserum eftir að greinin birtist barst svo blaðamanni til eyrna að bóndi í Borgarfirði hefði eftir að hann las greinina og sá myndina gert hosur sínar grænar fyrir Olgu og dæmið hefði gengið upp. Þau vildu þó ekki koma í viðtal þá – eins og vert hefði verið – en lofuðu að segja mætti frá brúðkaupi þeirra þegar og ef yrði. Þann 19. desember sl. lét Olga svo vita hvað til stæði – og bauð blaðamanni til athafnar. „Það er yndislegt að vera ástfangin og sú kennd get- ur verið upphaf farsællar hamingju,“ sagði sr. Geir Waage í Gilsbakkakirkju í gær. Alls voru þrettán manns við athöfnina. Allir voru sóttvarðir í bak og fyrir, samkvæmt sið tímans. Gerði hosurnar grænar - Viðtal sem hafði mikla eftirmála - Ástin er upphaf far- sællar hamingju - Fólk var sóttvarið í sveitakirkjunni Úrklippa Spjall við Olgu í Morgunblaðinu 30. júní 2013 sem varð upphaf ævintýris sem náði hápunkti í gær. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjölskylda Torfi í Hvammi og Hekla dóttir hans, þá Steinunn Anna Guðmundsdóttir móðir Torfa. Lengst til hægri er Olga, og við hlið hennar dóttirin Sædís Myst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.