Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 Skipholti 29b • S. 551 4422 Útsalan hefst 3. janúar Gleðilegt nýtt ár kæru landsmenn Þökkum viðskiptin á liðnu ári LAXDAL er í leiðinni • laxdal.is Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Guð blessi ykkur öll Fjölskylduhjálp Íslands hefur aðstoðað 2400 heimili með matvæli og fl. í desember 2021 og er enn að með ómetanlegum stuðningi landsmanna og fyrirtækja í landinu. Stuðningur Kaupfélags Skagfirðinga gerði gæfumuninn annað árið í röð. Við þökkum ykkur af heilum hug fyrir hönd samferðafólks okkar sem minna mega sín í okkar þjóðfélagi. Með kærleikskveðjum, Stjórn og sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálpar Íslands 2400 heimili fengu mataraðstoð í desember 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Útlit er fyrir að innvigtuð mjólk til mjólkursamlaganna í ár verði liðlega tveimur milljónum lítra minni en á síðasta ári. Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að heildargreiðslumark fyrir næsta ár verði 146,5 milljónir lítra. Þótt framleiðsla hafi minnkað og sala mjólkurvara heldur aukist er framleiðslan enn nokkuð yfir sölu á innanlandsmarkaði. Áætlað er að 149 milljónir lítra af mjólk hafi borist til mjólkursamlag- anna áður en árið 2021 er úti. Er það 2,1 milljón lítra meira en árið á und- an. Gangi þessi áætlun eftir hefur framleiðslan ekki verið minni frá árinu 2015. Mest var framleiðslan á árinu 2018, 3,5 milljónum lítra meiri en útlit er fyrir að hún verði í ár. Landbúnaðarráðherra gefur ár- lega út reglugerð um heildar- greiðslumark fyrir næsta ár, heild- arkvóta fyrir mjólkurframleiðsluna. Við ákvörðunina skal byggja á neyslu innlendra mjólkurvara á undanförnu ári, birgðastöðu og áætlun fyrir kom- andi verðlagsár. Framkvæmdanefnd búvörusamninga lagði til við ráð- herra að heildargreiðslumark næsta árs verði 146,5 milljónir lítra, 1,5 milljónum hærra en síðustu ár. Gert er ráð fyrir svipaðri sölu og í ár. Raunar hefur salan heldur aukist frá fyrra ári. Hækkunin stafar af breyttri samsetningu mjólkur á milli fitu og próteins. Nú þarf fleiri lítra til þess að framleiða sama magn mjólk- urvara. Svandís Svavarsdóttir landbún- aðarráðherra féllst á tillöguna og hef- ur reglugerðin verið send til birtingar í Stjórnartíðindum. Beingreiðslur til bænda aukast ekki, þær eru föst krónutala skv. fjárlögum og deilast því á fleiri lítra. Hins vegar þurfa af- urðastöðvar að greiða fullt afurða- stöðvaverð fyrir alla mjólk sem fram- leidd er innan greiðslumarks. Dregur úr framleiðslu - Mjólkurkvóti aukinn vegna breyttrar efnasamsetningar - Framleiðsla er enn umfram sölu á innanlandsmarkaði Framleiðsla mjólkur minnkar Innvegin mjólk og heildargreiðslumark, milljónir lítra *Áætlun fyrir 2021 Heimild: SAM 150 140 130 120 110 100 Innvegin mjólk Greiðslumark 125,1 122,9 133,5 146,0 150,2 151,1 152,5 151,6 151,2 149,0 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 114,5 116 123 140 136 144 145 145 145 145 * 146,5 Fundað var stíft í gær og undan- farna daga hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar. Ellefu mál önn- ur er nú á borði sáttasemjara, þar á meðal kjaradeila fjögurra sjómanna- félaga og Félags skipstjórnarmanna og Sambands fyrirtækja í sjávar- útvegi. Að sögn Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara hafa á þessu ári verið haldnir 111 formlegir samn- ingafundir í kjaradeilum auk 22 óformlegra vinnufunda og funda vegna kjaramála sem ekki hefur ver- ið vísað til ríkissáttasemjara með formlegum hætti. Að auki hafa verið haldnir fjölmargir fundir vegna ým- issa mála þar sem óskað er eftir verkstjórn eða fundastjórn ríkis- sáttasemjara, til dæmis í stýrihópi um betri vinnutíma vaktavinnufólks. Aðalsteinn segir að lokið sé um 325 samningum í þeirri lotu kjara- samninga sem hófst í byrjun árs 2019. Af þeim samningum sem hafa verið gerðir eru aðeins þrjú tilvik þar sem samningur hefur tekið við af samningi, þ.e. nýr samningur náðst áður en sá fyrri rann út. Hlutfall þess að samningur taki við af samn- ingi er því undir 1%. Allir samning- arnir á þessu ári voru undirritaðir eftir að fyrri samningur rann út. Kjaradeilum er vísað til ríkissátta- semjara af einum eða fleiri samn- ingsaðilum eftir að viðræður á milli deiluaðila hafa reynst árangurslaus- ar. Þetta átti við í rúmlega helmingi tilfella í lotunni og um 55% allra kjarasamninga voru undirrituð hjá ríkissáttasemjara eftir að deilunni var vísað þangað. Aðalsteinn segir að lengsti fundur hjá ríkissáttasemjara á árinu hafi verið lokafundur í kjaradeilu flug- umferðarstjóra en sá fundur stóð í 27 klukkustundir með fundarhléi frá 04:00 til 11:00 að morgni. Stíft fundað í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga - Aðeins þrjú dæmi um kjarasamning áður en fyrri rann út Sáttastörf Nóg að gera hjá Aðal- steini Leifssyni ríkissáttasemjara. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Veiruskita í kúm sem geisaði í fjós- um Eyjafjarðar fyrr í vetur hefur verið að stinga sér niður víðar á Norðaustur- og Austurlandi. Nú virðist hún mest vera á ferðinni í Þingeyjarsýslum, samkvæmt upp- lýsingum Matvælastofnunar. Veiruskitu hefur orðið vart öðru hvoru víða um land í þónokkur ár. Ekki hefur verið staðfest um hvaða veiru er að ræða en grunur beinst að kórónuveiru, samkvæmt upplýsing- um Sigurbjargar Ólafar Bergsdótt- ur, sérgreinadýralæknis nautgripa- og sauðfjársjúkdóma hjá Matvæla- stofnun. Skitan kemur yfirleitt upp svæðisbundið en misjafnt hvað hún nær að breiðast mikið út. Veiran er bráðsmitandi, að sögn Sigurbjargar, og þegar hún kemur upp á bæ fer hún eins og eldur í sinu um fjósið og allir móttækilegir gripir smitast. Kýrnar verða slappar, nyt fellur og kemst í sumum tilvikum ekki í fyrra horf fyrr en á nýju mjaltaskeiði. Kýr sem eru nálægt burði eru viðkvæmari fyrir doða og öðrum efnaskiptasjúkdómum og ónæmiskerfi gripanna laskast svo þeir verða viðkvæmari fyrir sýking- um, eins og til dæmis júgurbólgu. Ekki alvarlegar afleiðingar Sigurgeir B. Hreinsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, segir að veiruskitan sé gengin yfir í Eyjafirði og hún hafi ekki haft alvarlegar afleiðingar í þetta skiptið, eftir því sem hann best viti. Hann vitnar í einn bónda sem er með margar kýr. Mjólkin minnkaði um 100 lítra í eina viku en náði sér síðan aftur á strik. Sigurgeir segir að mikill dýralæknakostnaður geti fylgt og hann hafði upplýsingar um að á einum bæ hefði þurft að með- höndla margar kýr. Annars séu áhrifin nokkuð mismunandi á milli bæja. Sigurgeir er alinn upp í sveit og starfaði lengi sem kúabóndi. Hann segist muna óglöggt eftir veiruskitu árið 1963. Hún hafi verið kölluð kól- era. Á árinu 1974 hafi skæð veira geisað og þá hafi margar kýr drepist í Arnarneshreppi hinum forna. Veir- an sem gekk yfir í Eyjafirði í nóv- ember hafi verið miklu vægari. Bændur verji bú sín Matvælastofnun hvetur bændur til að huga vel að sóttvörnum á bú- um sínum og draga eins og hægt er úr umgengni utanaðkomandi fólks um búið sem og flutningi gripa og tækja á milli bæja. Bráðsmitandi veiruskita í kúm geisar - Talið líklegt að kórónuveira valdi skitu sem herjar á kýr á Norðausturlandi og veldur veikindum - Er gengin yfir í Eyjafirði og var ekki eins slæm og stundum - Stingur sér niður í Þingeyjarsýslum Morgunblaðið/Eggert Kýr Veiruskitan er bráðsmitandi og getur lagst þungt á mjólkurkýr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.