Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 14
örugg og að í faðmi Glódísar eru rólegheit. Mér finnst yndislegt að sjá þetta fullkomna traust milli barns og dýrs. Glódís leggur sig oft hjá hundunum okkar en við erum vissulega mjög heppin með geðslag hundanna og við pössum líka að skamma Glódísi ekki þótt hún geri einhverjar gloríur í umgengni við þá. Við leiðbeinum henni frekar og hrós- um henni þegar hún gerir vel og rétt. Mér finnst forréttindi fyrir börn að alast upp í kringum dýr, það er svo gefandi og þannig læra þau að bera virðingu fyrir dýrum. Þótt Glódís tengi mjög vel við dýr þá hefur hún lítinn áhuga á að tala við fólk sem hún þekkir ekki. Hún er lokuð manngerð og það er erfitt að komast að henni fyrir ókunna, en ef hún fer með fólki í fjárhúsið þá er hún á heimavelli og spjallar. Þar er hennar griðastaður.“ Ekki hafa samskipti Glódísar og kindanna þó alveg verið snuðrulaus, því eitt sinn stangaði hyrnd kind hana. ,,Hún var rosalega sár, henni fannst þetta ekki rétt hegðun hjá kindinni. Henni hefur ekki líkað vel við þessa kind síðan.“ Þurftu pláss fyrir hundana Agnes segir að þegar þau Björgólfur hafi keypt Refsmýri að sumri 2020, þá hafi kindurnar eðli málsins samkvæmt verið enn á fjalli. ,,Við vissum því ekki hvernig væntanlegar kindur okkar litu út, en þetta hefur gengið vel og við höfum náð að hækka meðalvigtina aðeins og bæta gæðin. Sextán gimbrar hjá okkur voru með yfir 17,5 fyrir læri og við settum þær á,“ segir Agnes sem sér meira um búskapinn en Björgólfur, því hann er sjómaður og er í burtu tvær vikur í hverjum mánuði. Hún vinn- ur auk þess á hjúkrunarheimili á Egilsstöðum. ,,Við keyptum Refsmýri fyrst og fremst vegna þess að okkur vantaði meira pláss og næði fyrir hundaræktunina okkar, Norður- dals. Ég hef ræktað hunda frá 2009, ég byrjaði með síberíska husky-hunda, en færði mig yfir í samójed-hunda, sem mörgum finnst líkjast litlum ísbjörnum. Við erum líka með tvær tíkur, franska bolabíta og litla smá- hunda, pomeranian. Á Refsmýri vantar því ekkert upp á líf og fjör.“ Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ö ll dýr laðast að Glódísi og hafa gert frá því hún var lítill ungi. Hún var aðeins mánaðargömul þegar fæddust hvolpar hjá okkur, svo hún hefur alist upp með hund- um frá því hún var nýfædd. Hund- arnir lögðu oft kjammann ofan á hana þar sem hún lá á teppi á gólfinu þegar hún var ungabarn,“ segir Agnes Klara Ben Jónsdóttir, móðir Glódísar Teklu Björgólfs- dóttur, þriggja ára stúlku sem er mikill dýrahvíslari. Glódís býr ásamt foreldrum sínum á bænum Refsmýri í Fljótsdalshéraði, rétt utan við Egilsstaði, en þangað flutti fjölskyldan fyrir einu og hálfu ári og tók við um fjögur hundruð kinda sauðfjárbúi. Auk þess eru þau með hundaræktun, hesta og hænur. ,,Af öllum dýrunum er kindin Gæla uppáhalds hjá Glódísi. Hún kyssir hana og knúsar og elskar hana mjög mikið. Hún situr stund- um á bakinu á henni eins og á hesti og Gæla lætur sér vel líka. Gæla var fyrsta kindin sem Glódís heillaðist af og þær urðu strax vin- konur. Þetta er lífsreynd kind, enda ekkert unglamb, hún er orðin sex vetra og kom í heiminn hér hjá Helgu Jónsdóttur, fyrrum eig- anda hennar. Helga tók strax eftir þessum næmleika Glódísar fyrir dýrum og hafði orð á því. Hún kynnti okkur fyrir þessari rólynd- iskind með nafninu sem hún hefur fengið að halda og Gæla er auð- þekkjanleg, því hún er eina kindin hjá okkur sem er með hnífla. Fyr- ir vikið getur Glódís alltaf gengið að henni vísri til að spjalla við hana og klappa henni,“ segir Agnes og bætir við að dóttir henn- ar hafi náð að spekja margar fleiri kindur á þeim stutta tíma sem lið- inn er frá því þau fluttu að Refs- mýri. ,,Glódís vinnur nú hörðum höndum að því að spekja sína eigin kind, hana Grímu, en það hefur verið þó nokkur fyrirhöfn því hún er ung og stygg. Hún þáði loksins hjá henni brauð um daginn og það gladdi Glódísi mikið. Við settum á gimbur undan Grímu í haust, sem Glódís gaf nafnið Stelpa.“ Var skíthrædd við kindur Agnes segir að Glódís hafi ekki verið svona elsk að kindum þegar hún var yngri. ,,Þegar hún var ársgömul fór- um við með hana í fjárhúsin hjá systur minni sem býr á Þverhömr- um í Breiðdal, bæ afa okkar og ömmu, en þá var Glódís skít- hrædd, henni leist ekkert á þessar skepnur. Þegar við svo fluttum hingað að Refsmýri, þá var þetta ekkert mál fyrir hana, hún gekk til kindanna og fór að spjalla,“ segir Agnes og bætir við að nú séu þau líka búin að gera alla hrútana sína gæfa. ,,Glódís klappar stórum full- orðnum hrútum um hornin eins og ekkert sé. Sumir lambhrútarnir elta Glódísi til að fá klapp hjá henni, þeir fara að dilla dindlinum um leið og hún kemur nálægt þeim. Glódís hefur þessi góðu áhrif á dýrin, þau verða róleg í návist hennar. Við vorum ekki fyrr búin að fá hesta en við komum að henni sitjandi í fanginu á einum þeirra sem lá í gerðinu. Ég varð logandi hrædd, en allt fór vel,“ segir Agnes og bætir við að persónuleiki Glódísar hafi eflaust eitthvað að gera með hvað nærvera hennar hafi góð áhrif á skepnurnar. ,,Glódís er rólegt barn og eng- in læti í henni í kringum dýrin. Hún kemur ekki askvaðandi eftir garðanum í fjárhúsinu, heldur klifrar hún í rólegheitum upp í gjafagrindur og spjallar við þessa vini sína og stingur upp í þá hey- tuggu.“ Leitar skjóls í fangi hennar Glódís er langyngst í syst- kinahópnum, systir hennar sem er næst henni í aldri er að verða sex- tán ára. ,,Glódís þekkir því ekkert ann- að en að hafa dýrin ein til að leika við og sækir eðlilega í félagsskap þeirra. Nú bíður hún spennt eftir næsta goti hjá einni tíkinni, sem verður í janúar. Hún hlakkar mik- ið til að fá hvolpa,“ segir Agnes og bætir við að ein tíkin þeirra sé við- kvæm og þegar einhver læti eru í kringum hana þá hlaupi hún í fangið á Glódísi, til að leita skjóls. ,,Hún veit að þar er hún Hvíslað Glódís leggst upp að hrúti úti í gerði og spjallar. Þriggja ára næmur dýrahvíslari „Mér finnst yndislegt að sjá þetta fullkomna traust milli barns og dýrs. Í fjárhúsinu er hún á heimavelli og þar spjall- ar hún. Þar er hennar griðastaður,“ segir móðir Glódísar sem hefur ein- staklega róandi áhrif á dýrin í kringum sig. Jól 2021 Gæla fékk jólahöfuðskraut hjá Glódísi. Saman Glódís með einum af mörgum hundum heimilisins.Ró Glódís tveggja ára sofandi hjá tík og hvolpum. Knús Glódís og Gæla eru bestu vinkonur. Óhrædd Glódís óttast stóru hrútana ekki þótt þeir séu næstum jafn háir og hún. Hún klappar þeim um hornin og stundum gefur hún þeim tuggu. 14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.