Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021
SVIÐSLJÓS
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Í Vestmannaeyjum eru á milli 20 og 30 manns í fjarvinnu
og á hún sér langa hefð. Mikil fjölgun hefur orðið síðustu
misseri, ekki síst eftir að kófið skall á með fullum þunga
á fyrri hluta síðasta árs. Af illri nauðsyn opnuðust augu
allra, fyrirtækja og starfsfólks, fyrir þessum möguleika
sem á sér engin landamæri. Um leið hafa komið fram
samskiptakerfi sem gera fjarvinnu auðveldrari.
Morgunblaðið ræddi við fólk í Vestmannaeyjum sem
flutti af höfuðborgarsvæðinu með fjölskylduna og tók
vinnuna með sér. Nær þetta yfir langt tímabil, frá árinu
1998 til þessa árs. Fjölskyldur allra búa í Eyjum, sem er
helsti segullinn, líka frjálsræðið og hvað lífið er einfald-
ara og skemmtilegra, ekki síst fyrir börnin. Samt ekki
gallalaust en kostirnir miklu fleiri en ókostirnir að þeirra
mati.
Flytja aftur heim með
vinnuna í farteskinu
„Fyrirtækið sem ég vinn hjá heitir
Lucinity, tveggja ára gamalt og
hefur vaxið mikið á þeim tíma.
„Make Money Good“ er slagorðið
en viðfangsefnið er að vinna gegn
peningaþvætti, stoppa fjár-
glæpamenn á þeim vettvangi,“
segir Bergur Páll Gylfason tölv-
unarfræðingur sem unnið hefur í
fjarvinnu í Eyjum í sex ár.
„Þetta er einkafyrirtæki byggt
á íslensku hugviti og við þjón-
ustum banka, íslenska og erlenda,
og banka sem eingöngu starfa á
netinu. Þeir fá kerfi hjá okkur og
láta okkur svo fá upplýsingar sem
fara í gegnum kerfið. Út úr því
koma möguleg fjársvik sem eru
svo yfirfarin af starfsmönnum
viðskiptavina. Þarna erum við
brautryðjendur sem allir horfa
til,“ segir hann.
Hjónin Bergur og Sara Sjöfn
Grettisdóttir eru fædd og uppalin
í Vestmannaeyjum, bjuggu í átta
ár í Reykjavík áður en þau ákváðu
að snúa aftur. Hann útskrifaðist
sem tölvunarfræðingur frá HR og
byrjaði strax að vinna hjá Voda-
fone.
Áttu íbúð og bíl og eldri
sonurinn kominn í heiminn
„Það var komið barn en engin
fjölskylda til að leita til, ekkert
bakland til að stóla á. Ég fæ þessa
flugu í hausinn að flytja heim. Var
mikið ein með peyjann og saknaði
fjölskyldunnar,“ segir Sara Sjöfn
og Bergur var til í slaginn.
Bergur ræddi við Vodafone og
stjórnendur þar voru til í að prófa
og fjölskyldan flutti í janúar 2015.
„Þetta hefur gengið mjög vel og
miklu meiri friður til að vinna. Í
dag er ég með skrifstofuaðstöðu
ásamt öðrum sem vinna fjarvinnu
og þar er gott að vera. Ég þarf að
fara reglulega til Reykjavíkur og
það hefur haldist eftir að ég byrj-
aði hjá Lucinity fyrir ári. Það
truflar að ekki er flogið til Eyja
en það breytist vonandi,“ segir
Bergur.
Vinnan fer fram í gegnum tölvu,
þannig að það skiptir engu máli
hvar hann er staddur. „Ef ég þarf
að spjalla við einhvern þarf ég
bara að ýta á einn takka og er þá
kominn í samband, síma- eða
myndspjall.“
Og fjölskyldan er sátt. Peyj-
arnir með ömmurnar og afana á
kantinum.
„Maður finnur bara hvað börnin
eru frjáls, eldri strákurinn okkar
getur æft allt sem hann langar til;
handbolta, fótbolta, golf og skák.
Hleypur á milli í flestallt og hérna
er öll okkar fjölskylda og flestir
vinir okkar,“ segir Sara Sjöfn,
sem hefur starfað sem blaðamað-
ur, ritstjóri og markaðsstjóri eftir
að þau fluttu til Vestmannaeyja.
Hún rekur í dag verslunina Póley.
Sáttir með ömmur og afa á kantinum
- Bergur Páll Gylfason starfar hjá Lucinity - Brautryðjendur í baráttu gegn peningaþvætti
Ljósmynd/Guðbjörg Guðmannsdóttir
Fjölskyldan Bergur Páll, Atli Dagur, Sara Sjöfn og Emil Aron eru ánægð í
Eyjum. Brúðkaupið, sem þrisvar hafði þurft að fresta, var haldið í sumar.
Lúðvík Jóhannesson, hugbún-
aðarsérfræðingur í Vestmanna-
eyjum, er í hópi þeirra fyrstu sem
nýttu sér þann möguleika hér á
landi að flytja vinnuna í Reykjavík
með sér út á land.
Hann og eiginkona hans, Ingi-
björg Þorsteinsdóttir leikskóla-
kennari, eru borin og barnfædd í
Vestmannaeyjum. Hann útskrif-
aðist sem kerfisfræðingur frá
Tölvuháskóla Verslunarskóla Ís-
lands, forvera HR, árið 1994. Þá
voru ekki mörg atvinnutækifæri
fyrir kerfisfræðinga í Vestmanna-
eyjum en hann fékk fljótt vinnu í
Reykjavík en þegar fyrsta barnið
af fjórum bankaði upp á árið 1998
leitaði hugurinn til Eyja.
„Hugur hét fyrirtækið sem ég
byrjaði hjá, sem síðar sameinaðist
Advania þar sem ég vinn í dag,“
segir Lúðvík þar sem við sitjum á
skrifstofu hans á þriðju hæð í húsi
sem í áratugi hýsti Íslandsbanka
og forvera hans. Þar eru þrír
starfsmenn Advania með aðstöðu.
Hugmyndin kviknaði 1998
Hugmyndin um að flytja til
Eyja og taka vinnuna með sér
varð til árið 1998.
„Um sumarið fórum við að
skoða þennan möguleika og var
það auðsótt mál. Ég var sennilega
með þeim fyrstu hér á landi sem
þetta gerðu en var ótrúlega vel
tekið. Þeir treystu mér og við
komum til Eyja í sömu viku og há-
hyrningurinn Keikó, í september
1998.“
Mikil þróun í flutningi tölvu-
gagna gerir fjarvinnu auðveldari
og nokkur stökkin frá því að flytja
þau í gegnum mótald eða um ljós-
leiðara sem fljótlega verður tengd-
ur á skrifstofu Advania í Eyjum.
„Við erum með ljósnet sem geng-
ur ágætlega en það verður frá-
bært að fá ljósleiðarann.“
Frjálst samfélag
Þegar Lúðvík er spurður hvað
togaði þau helst til Vestmannaeyja
nefnir hann fyrst upprunann.
„Við erum bæði fædd og uppalin
hérna og foreldrarnir bjuggu hér.
Líka það frjálsa samfélag sem hér
er og við þekktum. Nú eru börnin
orðin fjögur, allt svo stutt að fara
og þau miklu frjálsari. Þannig að
við sjáum ekki eftir neinu.“
Reglulegum ferðum til Reykja-
víkur fækkaði með árunum og kóf-
ið hafði áhrif.
„Í dag fer maður sjaldan. Það
gerir kófið og eftir því sem
tækninni fleygir fram minnkar
þörfin. Nú eru bókhaldskerfin sem
við erum að vinna með mikið að
fara í skýin. Það er næsta bylting
og gerir þetta enn auðveldara,“
segir Lúðvík að endingu.
Hjá Advania á Íslandi vinna um
650 manns á mörgum starfs-
stöðvum víða um landið.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Ánægður Lúðvík Jóhannesson hefur verið í fjarvinnu frá 1998 og líkar vel.
Fluttu í sömu
viku og Keikó
- Lúðvík Jóhannesson vinnur hjá AdvaniaSveinn Á. Kristinsson og Tanja D.
Guðjónsdóttir fluttu til Vest-
mannaeyja á síðasta ári eftir fimm
ár í Hafnarfirði og tóku vinnuna
með sér, hún frá Hrafnistu og
hann Marel. Þau segja kófið hafa
opnað augu fyrirtækja fyrir þeim
möguleika sem fjarvinna er. Hug-
urinn stefndi alltaf á endanum
heim og þau létu verða af því síð-
asta sumar. Hæstánægð, en sakna
auðvitað vinnufélaganna, en segja
að allt sé svo miklu auðveldara í
Eyjum með þrjú ung börn og tvo
hunda.
Ræturnar eru í Eyjum og þau
Sveinn og Tanja hafa verið saman
síðan þau voru unglingar. Hann
stundaði sjóinn og hún var í fjar-
námi í sjávarútvegsfræðum. Eftir
alvarlegt bílslys varð Sveinn að
hætta á sjónum og þegar honum
bauðst vinna hjá Marel slógu þau
til og ákváðu að prófa að flytja til
Hafnarfjarðar. Tanja kláraði sitt
nám og fékk vinnu á launadeild
Hrafnistu sem launafulltrúi.
„Það var í maí 2020 að ég fæ
grænt ljós á að flytja til Vest-
mannaeyja og taka með mér vinn-
una hjá Hrafnistu. Ég ýtti á
Svein, hann lét vaða og fékk já í
lok ágúst.“
Þetta átti sér aðdraganda en
niðurstaðan var að þrátt fyrir að
þeim liði vel væru kostirnir mun
fleiri en ókostirnir að flytja heim.
„Þetta er ekki það sama, frjáls-
ræði barnanna miklu meira og
samgangur fólks líka meiri. Hér
er bara bankað upp á og fengum
við fleiri gesti fyrstu fimm dagana
hér en á fimm árum í Hafnar-
firði,“ segir Sveinn.
Börnin þrýstu á
Tanja segir að börnin hafi líka
þrýst á. „Hér áttu þau vini, afa,
ömmur og langömmu og hvað okk-
ur varðar þá búa allir sem eru vin-
ir okkar í dag í Vestmannaeyjum
og sumir farið sömu leið og við.
Það er greinilegt að kórónuveiru-
faraldurinn hefur hefur opnað á
þetta.“
„Það voru allir þvingaðir í þessa
tilraun og þetta er ekkert vesen.
Þetta gengur og mikið að gera í
innkaupunum hjá mér, sem fara
öll fram í gegnum síma og tölvur
hvort sem er. Mest voru þetta er-
lendir birgjar sem ég sá um en nú
er þetta meira innanlands og eru
tvö fyrirtæki í Eyjum, Eyjablikk
og Háin, sem ég hef einnig verslað
við fyrir Marel,“ segir Sveinn, sem
hefur komið sér upp aðstöðu í bíl-
skúrnum.
Tanja byrjaði að vinna heima en
nú stefnir hún á að fara í Þekking-
arsetrið en þar er boðið upp á að-
stöðu til fjarvinnu.
Þvinguð í þessa tilraun
en þetta er ekkert vesen
- Sveinn Ágúst Kristinsson vinnur hjá Marel og Tanja
Dögg Guðjónsdóttir reiknar út launin hjá Hrafnistu
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Alsæl Sveinn og Tanja eru alsæl í Eyjum eins og börnin þrjú og hundarnir.