Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 31.12.2021, Síða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 Það eru almælt sann- indi að fólk á að læra að hlakka ekki til, því það er upphaf þess að taka öllu. Árangur þess verður jafnaðargeð. Á þeim tveimur árum sem pest og padda hafa hrjáð land og þjóð er það umhugsunarvert að efnahagur og samfélag skuli ekki hafa lagst í dvala og drepist í dróma. Það leiðir hugann að því hvers vegna efnahags- líf á Íslandi hefur lagst í kreppur. Fyrir nokkrum áratugum vakti forsíða Morgunblaðsins gjarna at- hygli á því hvert væri verð á þorsk- blokk í Bandaríkjunum. Á baksíðu var greint frá aflabrögðum. Verð og magn á þorski réð afar miklu um gang efnahagsmála á Íslandi. Stoðir, gull og silfur Vissulega eru stoðir fyrir gangi efnahagslífs orðnar fleiri en þorskur. Síld, loðna og makríll hafa bæst í hópinn. Magnbundin stjórn fiskveiða gerir sjómannaverkföll marklaus, í mesta lagi friðunarráð fyrir fiski- stofna. Nú skiptir mun meira máli hver fjöldi ferðamanna er. Hin breyti- stærðin er ígildi fisktegunda í komu- tölum ferðamanna. Það er hvers kon- ar ferðamaður. Er ferðamaðurinn tannréttingasérfræðingur sem býr á hóteli meðan á ráðstefnu stendur? Eða er ferðamaðurinn gestur á al- þjóðaþingi esperantista sem býr á farfuglaheimili og eldar tros á prím- us? Vissulega eru hvorir tveggja þess- ara ferðamanna að flytja með sér verðmæti, eins og þorskur, sem er gull hafsins, og síld, sem er silfur hafsins. Það að nota tækifæri er að efla al- mannahag. Atvinnu- frelsi með hliðarskilum tryggir það. Hví er ekki allt komið fjandans til? Það er kunnara en frá þurfi að segja að næsta efnahagsáfall verður ekki eins og síð- asta efnahagsáfall. Efnahagsáfall áranna 2008 og 2009 kom til vegna glæpavæðingar bankakerfisins. Efnahagsáfall í lok sjöunda áratugarins stafaði af verð- falli og aflabresti á sjávarfangi. Efna- hagslíf sjötta áratugarins mótaðist af innlendri efnahagslegri óstjórn. Efnahagslíf á áttunda áratugnum og framan af þeim níunda tók mið af hækkun olíuverðs, en forystumenn íslenskrar verkalýðshreyfingar, hetjur og mikilmenni þess tíma, héldu að þeir færu með lýðræðislegt umboð án nokkurrar ábyrgðar. Því fór allt til fjandans til með þriggja tölustafa verðbólgu. Glæpavæðing og afturbati Glæpavæðing bankakerfisins árið 2003, eða fyrr, leiddi fyrst og fremst af sér gjaldeyrishöft. Frjálst flæði fjármagns til fjárfestinga erlendis var tímabundið afnumið, og einnig voru eignir þrotabúa bankanna læst- ar inni í gjaldeyrishöftunum. Meðal þeirra eigna voru innlend ríkis- skuldabréf. Gjaldeyrishöftin gagn- vart þrotabúum hinna föllnu banka komu fram með líkum hætti og um greiðslufall ríkisins væri að ræða. Stöðugleikaframlag hinna föllnu banka, það er að innlendar eignir þeirra voru afhentar íslenska ríkinu með óafturkræfum hætti, er for- senda þess að nú eru ekki gjaldeyr- ishöft, vöruskortur og harðæri. Allt annað er úrvinnsla. Úrvinnsla þrotabúa gjaldföllnu bankanna undir harðskeyttri ríkis- stjórn, en ekki síst samningslipurð, er forsenda ágætrar stöðu í ríkisfjár- málum og peningamálum þegar pest og padda héldu innreið. Frelsi og almannahagur Sá er þetta ritar hefur hugleitt frelsið í full fimmtíu ár. Það kann að vitna um barnaskap minn að lýsa því yfir að einföld kennisetning Johns Stuarts Mills um frelsið hefur orðið mér veganesti þessa hálfu öld. Einfaldleiki kennisetningar Mills um frelsið er fegurðin ein. Frelsi ein- staklingsins er algjört, svo fram- arlega sem einstaklingurinn gengur ekki á frelsi annarra. Það hefur vart reynt á frelsishugmyndir Mills í sótt- vörnum hér á landi í heila öld, það er síðan í spænsku veikinni 1918. Vissu- lega hafa gengið yfir farsóttir, frá inflúensu til Akureyrarveiki. Áskor- un um inflúensusprautu kann að vera metin sem frelsisskerðing af frels- ishetjum nútímans. Fyrir mig er inflúensusprauta hluti af frelsiskenn- ingu Mills og frelsis. Með því að þiggja ónæmisaðgerðina kem ég í veg fyrir að skaða aðra, mis- viðkvæma fyrir inflúensu. Eins og Mill býður! Pest nútímans á nokkuð sameig- inlegt með Akureyrarveikinni. Eðli og hegðun veiru sem orsakar sjúk- dómana er ekki að fullu þekkt. Í til- felli Covid-19 er stökkbreyting veir- unnar sennilega meiri en við var búist í upphafi. Í báðum tilfellum var tekist á við útbreiðslu með sóttkví þeirra sem sýkjast. Leikmenn verða vondir ráðunaut- ar í veirufræðum. En vitað er að ver- öldin er samsæri vangetunnar gegn snilldarandanum. Ónæmisfræði Jen- ners er hluti af snilldarandanum. Löglærðir sem landlæknir og sóttvarnalæknir Ef leikmenn eru taldir góðir ráðu- nautar, þá er það ráð mitt að heil- brigðisráðherra leysi landlækni og sóttvarnarlækni frá störfum og ráði Arnar Þór Jónsson lögmann sem landlækni og Vilhjálm Árnason, lög- fræðing og alþingismann, sem sótt- varnalækni. Hvorugur er lækn- islærður, en báðir eru miklar frelsishetjur og góðir skrifstofu- menn. Tekið skal fram að ein mesta frels- isskerðing sem ég verð fyrir er þegar ég er skyldaður til að spenna bílbelti áður en ég ek af stað í bifreið minni, sem ég hef verið skyldaður til að fara með til skoðunar. Frelsisher nútímans Það hefur enginn óskað þess að yfir gangi landfarsótt. Sóttvarnir eru um margt áhugavert viðfangsefni og prófsteinn á kenningar Johns Stu- arts Mills um frelsi. Á sama hátt er hegðun starfsmanna í fjármála- fyrirtækjum, sem hegðuðu sér með glæpsamlegum hætti í regluvæddum fjármálafyrirtækjum, dæmi um reglusniðgöngu með frelsi að leið- arljósi. Viðnámsþol ríkissjóðs á liðnum tveimur árum stafar af frelsisskerð- ingum frá árunum eftir hrun. Þær frelsisskerðingar sköðuðu ekki al- mannahag. Sóttvarnalög eru angi af stjórn- skipulegum neyðarrétti og með- alhófi. Lögfræðilegar æfingar fyrir dómstólum bæta ekki almannahag og dómstólar eru ekki leiksvið. Vera má að ekki sé jafnræði með læknum og lögfræðingum í sam- tölum um sóttvarnir. Læknar vita meira um veirur og minna um lög- fræði, enda þótt lögfræði sé lítið ann- að en heilbrigð skynsemi og álykt- unarhæfni. Lögfræðingar vita lítið um veirur en eiga að hafa heilbrigða skynsemi. Á það skortir stundum. Árangur Það er hægt að mæla árangur af sóttvörnum og hegðun þeirra sem eru þolendur sóttvarna. Með því að bera saman hinn endanlega árangur, sem eru dánartölur, fæst raunhæfur samanburður. Bandaríkin ráðstafa 15% af lands- framleiðslu til heilbrigðismála en Ís- land ráðstafar sem næst 9% til heil- brigðismála. Þar sem Bandaríkja- menn eru 1.000 sinnum fleiri en Íslendingar er hægt að deila með 1.000 í dánartölur í Bandaríkjunum til að fá væntar dánartölur á Íslandi án þess að leiðrétt sé fyrir útgjöldum og aldri. Samkvæmt þeim útreikn- ingum ættu dánartölur á Íslandi vegna Covid-19 að vera sem næst 800 en eru sem næst 40. Það er mælan- legur árangur, langt fyrir utan óvissubil. Það er þakkarvert. Svo geta bubbar talað um hvursu miklir gleðigjafar þeir eru. Sennilega er þetta árangur af frelsisskerðingum án lögfræði- æfinga. Áramót Um áramót er rétt að horfa fram á við. Séra Matthías orti: Hvað boðar nýárs blessuð sól? Hún boðar náttúrunnar jól, hún flytur líf og líknarráð, hún ljómar heit af Drottins náð. Hæfileg tilhlökkun tryggir al- mannageð. Það er von mín að drott- ins náð flytji landsmönnum hagsælt og farsælt ár. Gleðileg ár! Ég óska lands- mönnum farsældar. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Leikmenn verða vondir ráðunautar í veirufræðum. En vitað er að veröldin er sam- særi vangetunnar gegn snilldarandanum. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Efnahagur, almannahagur og frelsi um áramót horfur í íslenskum sjávarútvegi og fisk- eldi var kynnt í vor. Ritstjóri er Sveinn Agnarsson prófessor við Háskóla Íslands. Í henni kemur meðal annars fram að: „Sjávarútvegur hef- ur verið uppspretta helstu tækni- framfara og nýsköp- unar í hinu íslenska hagkerfi og sam- vinna fyrirtækja í sjávarútvegi, vís- indasamfélagsins og yfirvalda hef- ur verið mikil og öflug.“ Þarna er ekkert ofsagt og benda má á, að Nýsköpunarverðlaun Íslands hafa á tímabilinu 2011-2020 sex sinnum komið í hlut fyrirtækja sem með einum eða öðrum hætti tengjast sjávarútvegi. Þetta er fært til bókar hér, því í nýlegum sáttmála um ríkisstjórn- arsamstarf kemur fram að skipa skuli nefnd sem meðal annars er falið að „… kortleggja áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum …“ . Það er gott og blessað að skjóta saman nefnd um eina mikilvægustu efnahags- legu stoð íslensks efnahagslífs. Hvort sú nefnd kemst að einhverri endanlegri niðurstöðu um sjávar- útveginn sem allir geta sætt sig við skal ósagt látið. En á hitt skal bent, að sjávarútvegur er ekki ein- göngu skip á sjó og vinnsla í landi. Hann er margfalt umsvifameiri en svo og það eru svo ótrúlega marg- ir sem reiða sig á sterkan sjávar- útveg sem er í efnum til að fjár- festa. Og einmitt þarna verða til mikil og arðbær tækifæri. Vilji fólk sjá heildarsamhengið, þá ætti að blasa við að hlúa beri að Fyrirtækið Vélfag var stofnað á Ólafs- firði árið 1995. Nú, rúmlega aldarfjórð- ungi síðar, er það enn starfandi og á góðri siglinu. Megin- starfsemi þess snýst um þjónustu við sjáv- arútveg með smíði á margs konar fisk- vinnsluvélum. Vélfag er eitt dæmi af mörg- um fyrirtækjum sem hafa lifibrauð sitt af þjónustu við íslenskan sjáv- arútveg. Ekki nóg með það, því vörur fyrirtækisins, þekking og tækni er flutt út í stórum stíl. Fyrsta flökunarvél fyrirtækisins sem fór um borð í skip var prófuð í frystihúsi Samherja á Dalvík. Og þá byrjaði boltinn að rúlla. Sjávarútvegur er uppspretta nýsköpunar Eitt af því sem talsmenn margra þjónustufyrirtækja sjáv- arútvegsins hafa haft á orði er að samspilið við íslensk útgerðar- fyrirtæki hafi reynst afar gæfu- ríkt. Og í raun hafi það verið for- senda þess að hægt væri að selja framleiðsluna í útlöndum. Fjöl- mörg dæmi má taka af nýjustu tækni um borð í skipum, land- vinnslum og smíði nýrra skipa sem öll byggjast á íslensku hugviti sem náð hefur góðri fótfestu á erlend- um vettvangi. Þessu til viðbótar hafa sprottið upp fjölmörg fyrir- tæki sem flokkast undir líftækni- fyrirtæki og vinna verðmæti úr því sem áður var jafnvel hent. Skýrsla sem gerð var að beiðni sjávarútvegsráðherra um stöðu og þeim sprotum sem vaxa í kringum sjávarútveg á Íslandi. Sumir hafa náð miklum styrk og gert sig gild- andi á erlendum markaði, aðrir eru að skjóta rótum. Hug- og handverki eru engin takmörk sett og nú þegar nemur útflutningur þeirra tugmilljörðum króna á ári og í þessum fyrirtækjum starfar vel menntað fólk í góðum og verð- mætum störfum. Forskoti þarf að viðhalda Í áðurnefndri skýrslu kemur einnig fram að: „Sú tækni og bún- aður sem íslensk tækni- og þekk- ingarfyrirtæki hafa þróað í sam- vinnu við sjávarútvegsfyrirtæki skapar forsendur fyrir því að til verði samkeppnisforskot. Það get- ur þó aldrei verið nema til skamms tíma því slík tækni mun þá ryðja sér fljótlega til rúms hjá fyrirtækjum í samkeppnislöndum. Til þess að viðhalda stöðu í fremstu röð þurfa íslensk fyrir- tæki því sífellt að sýna árvekni og leita nýrra tækifæra til að auka verðmætasköpun.“ Í þessum efnum hafa stjórnvöld ákveðið val. Í mínum huga snýst það einkum um hvort við viljum viðhalda forskoti okkar í veiðum, vinnslu og sölu á sjávarafurðum, með öllum þeim efnahagslega ávinningi sem því fylgir, eða ekki. Ég tel einsýnt að velja fyrri kost- inn, enda hefur sjávarútvegur sýnt það og sannað, að á hann er hægt að treysta þegar í bakseglin slær. Og það er hægt að taka undir orð núverandi seðlabankastjóra þegar hann sagði á sínum tíma um sjáv- arútveginn, að „… óhagkvæmni í þeim geira mun rýra lífskjör þjóð- arinnar allrar svo um munar“. Þörf er á stefnu til framtíðar Til þess að hámarka afrakstur þjóðarinnar af auðlindinni þarf ís- lenskur sjávarútvegur að halda áfram að fjárfesta í nýsköpun og nýrri tækni. Það hefur tryggt samkeppnisstöðuna á undan- förnum árum og af þeirri braut er ekki hægt að víkja án kollsteypu. Til þess að tryggja þessa stöðu verður íslenskur sjávarútvegur að búa við einhverja stefnu til fram- tíðar, en ekki búa reglulega við yfirvofandi hættu á kollsteypu. Hún birtist einna helst í aðdrag- anda kosninga. Það færir okkur aftur að því sem segir í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar um áskoranir og tækifæri. Helstu áskoranir (fyrir utan hinar nátt- úrulegu eins og loðnubrest) eru þær sem birtast á degi hverjum á alþjóðlegum markaði fyrir sjáv- arafurðir. En hafa ber í huga að um 98% af íslensku sjávarfangi eru flutt út og seld þar. Tækifær- um eru engin takmörk sett, eins og sýnt hefur sig í samstarfi sjáv- arútvegsfyrirtækja og þjónustu- fyrirtækja á undanförnum árum. Nefnd sú sem nýr sjávarútvegs- ráðherra mun skipa til þess að gaumgæfa íslenska fiskveiðistjórn- unarkerfið á ærið verk fyrir hönd- um. Því það veltur margt á ís- lenskum sjávarútvegi. Það veltur margt á íslenskum sjávarútvegi Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur » Til þess að hámarka afrakstur þjóðar- innar af auðlindinni þarf íslenskur sjávarútvegur að halda áfram að fjár- festa í nýsköpun og nýrri tækni. Það hefur tryggt samkeppnis- stöðuna á undanförnum árum. Heiðrún Lind Marteinsdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Sam- taka fyrirtækja í sjávarútvegi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Atvinnulífið „Sjávarútvegur er ekki eingöngu skip á sjó og vinnsla í landi.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.