Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 Kjarasamningar byrja að losna á síðari hluta nýs árs. Verkefnið verður sem fyrr kunnuglegt, að stuðla að áframhaldandi stöðugleika og auka kaupmátt. En hver ættu nýársheit aðila vinnumarkaðar að vera fyrir árið 2022? Hvern- ig sláum við bjartari tón inn í nýtt ár? Nýársheit verkalýðshreyfingar: Að gleyma ekki bitrum lærdómi sögunnar „Ísland kemst í heimsmetahóp!“ er fyrirsögnin sem prýddi forsíður blað- anna í apríl 1983. Þá hafði verðbólgan rofið 100% múrinn á ársgrundvelli. Mín kynslóð, sem þá tók út ungling- inn og steig sín fyrstu skref á vinnu- markaði, fékk þennan óstöðugleika beint í æð. Verðlag sextánfaldaðist á áratugnum og stór verkföll 1984, 1987 og 1989 settu þjóðfélagið í uppnám. Höfum jafnframt í huga að kaup- máttur lágmarksdagvinnutaxta var meiri í seinni heimsstyrjöldinni en hann var árið 1994. Um 32 ár eru síðan aðilar vinnu- markaðar settu sér það markmið að rjúfa vítahring víxlverkunar gengis- fellinga, verðbólgu og launahækkana. Stuðla skyldi að stöðugri og sjálf- bærri hækkun kaupmáttar, auknum stöðugleika verðlags og lægra vaxta- stigi. Einhverjir eiga það til að tala niður þjóðarsáttarsamningana, en staðreyndin er sú að frá gerð þeirra hefur kaup- máttur launa tvöfaldast. Aukið traust milli verkalýðshreyfingar, stjórnvalda og atvinnu- rekenda – sameig- inlegur skilningur á hagrænum togkröftum og bitur reynsla sög- unnar skiptu öllu máli. Rúmum 30 árum síð- ar eru meðallaun á Ís- landi, leiðrétt fyrir kaupmætti, með þeim hæstu í heimi og kaupmáttur þeirra lægst launuðu hefur mest aukist um tæplega 30% á síðustu tveimur árum, mismikið eftir mörkuðum. Það er stórkostlegur árangur! Þó eru til þau sem leiða hjá sér slíka tölfræði og gefa lítið fyrir lærdóm sögunnar. Þeg- ar hefur verið stigið fram og sagt að aukin verðbólga kalli á auknar launa- kröfur í komandi kjarasamningum. Sumir hafa lýst þeirri skoðun sinni að hagsmunir launafólks og atvinnurek- enda séu einatt ósamrýmanlegir og sögur heyrast af því að verkalýðs- hreyfingin og fulltrúar atvinnulífs tal- ist ekki við. Vofur vantrausts níunda áratugarins virðast komnar á kreik á ný. Nýársheit verkalýðshreyfing- arinnar ætti að vera að gera sitt til að snúa af þessari braut fyrir þau sem við vinnum fyrir – íslenskt launafólk. Nýársheit stjórnvalda og at- vinnurekenda: Að horfast í augu við hið augljósa Sé litið til tímabils nýrrar fjár- málastefnu 2022-2026 er höggið á op- inber fjármál eftir heimsfaraldur aug- ljóst. Gert er ráð fyrir að skuldir hins opinbera hafi vaxið um tvo þriðju þegar áhrif heimsfaraldurs eru geng- in yfir og hafa stjórnvöld boðað við- brögð svo skuldasöfnunin haldi ekki áfram. Núverandi halli á annars veg- ar rætur að rekja til faraldursins og hins vegar til ráðstafana í opinberum fjármálum fyrir faraldur. Tekjuhliðin hafði til að mynda verið veikt til lang- frama fyrir faraldurinn með breyt- ingum á tekjuskattskerfinu og nýlega hefur frítekjumark fjármagns- tekjuskatts verið hækkað sem og skattfrelsismark erfðafjárskatts. Það er þó huggun harmi gegn að rík- issjóður hefur getað fjármagnað sig á hagstæðari kjörum en áður og er- lendar skuldir hafa dregist verulega saman. Stjórnvöld hafa boðað að þau vilji leysa afkomuvandann með því að vaxa til velsældar. Það þýðir að eftir því sem efnahagslífið jafnar sig eftir faraldurinn aukast tekjur með aukn- um umsvifum, en um leið þarf að stilla í hóf aukningu útgjalda. Að vinna bug á hallarekstrinum mun því að óbreyttu kalla á aðhald, hugs- anlega með niðurskurði í almanna- þjónustu. Það verður erfitt verkefni, ekki síst fyrir þá sök að öldrun þjóð- arinnar kallar á aukningu í opinber- um útgjöldum. Stjórnvöld og atvinnu- líf verða að horfast í augu við hið augljósa: fjármagn á Íslandi býr við mun lægri skattlagningu en launafólk og landið er ríkt að auðlindum. Þang- að verður að sækja styrkingu tekju- öflunarinnar því það verður ekki gert með frekari skattlagningu launafólks. Þess vegna er ljóst að verkalýðs- hreyfingin verður að hafa aðkomu að samtalinu um hvernig fjármál hins opinbera verða rétt af með sann- gjörnum hætti. Nýársheit okkar allra: Að sóa ekki tíma og fjármunum Ómarkviss vinnubrögð kosta ís- lenskt launafólk tugi milljarða í hverri kjarasamningslotu. BHM styður heilshugar markmið og ádrep- ur ríkissáttasemjara um að allra leiða verði leitað til að samningar taki við af samningum. Á Norðurlöndunum er almenna reglan sú að nýir kjara- samningar taka gildi áður en eldri samningar renna sitt skeið en á Ís- landi eru aðeins örfá dæmi þess að samningar taki við af samningum. Við eigum að vera stolt af þeim ár- angri sem verkalýðshreyfingin, at- vinnurekendur og stjórnvöld hafa náð í að bæta lífskjör launafólks á Íslandi síðustu áratugi. Á því ber að byggja. Afturhvarf til átakamenningar fyrri tíma væri glapræði. Ég ber þá von að senn renni upp tími aukinnar bjart- sýni og aukins trausts á íslenskum vinnumarkaði. Megi árið 2022 marka upphafið á þeirri vegferð og varða leið að nýrri þjóðarsátt. Gleðilegt nýtt ár 2022. Eftir Friðrik Jónsson » Formaður BHM hvetur til nýrrar þjóðarsáttar á vinnu- markaði. Friðrik Jónsson Höfundur er formaður BHM. Nýársheit verkalýðshreyfingar, atvinnulífs og stjórnvalda Morgunblaðið/RAX Atvinnulífið Friðrik Jónsson: „Ég ber þá von að senn renni upp tími aukinnar bjartsýni og aukins trausts á íslenskum vinnumarkaði.“ Þ að eina sem fullyrða má með vissu um komandi ár er að við vitum ekki hvað bíður. Við vissum það heldur ekki í fyrra, né hitteðfyrra eða þar áður. Aldrei. Aðalpersónan í nýju bókinni hans Hallgríms Helgasonar Sextíu kíló af kjaftshöggum heitir Gestur og ber nafn sitt sem fulltrúi íslenskrar þjóðarsálar því hér í þessu kalda landi hefur í raun aldrei verið var- anleg búseta. Þannig séð. Við höfum alltaf fundið okkur sem gesti í land- inu. Undrandi á veðurfari, birtuskil- yrðum og almennu ástandi hokruðu formæður okkar og -feður um aldir. Gleggsta merki um jákvæðar breytingar í hugarfari okkar hvað þetta varðar eru að líkindum björg- unarsveitirnar í landinu, þar sem samtakamáttur hefur verið virkj- aður og sú tilfinning tekið að skjóta rótum að hugsanlega sé í lagi að vera hérna eftir allt saman. Á sama tíma hafa komið sundlaugar. Sund- laug er staðfesting á að hérað sé byggilegt. Hér viljum við vera segir sundlaugin. Mynd Halldórs Péturssonar af Jesú og vinum hans með bítlahár og Keili í baksýn prýðir gömlu Garða- kirkju. Hún er mörgum kær. Í raun segir þessi altaristafla það sama og björgunarsveitirnar og sundlaug- arnar. Þarna er meistarinn frá Nas- aret í góðu spjalli við sína menn. Lá- dauður sjór og gott skyggni á vinafundi. Hér er heima segir alt- aristaflan og vísar jafnt til rúms og tíma, hitaveitusvæðisins á suðvest- urhorninu og bítlatímans. Hér er heima. Tími yfirráðanna Í Segulvík Hallgríms ríkir gamli tíminn þegar þjóðin var enn að spyrja sig „föst á kúgunarstiginu þar sem virðingarstiginn var kirkja, krambúð, timburhús, torfbær, hund- ur, köttur, mús, lús“. (3. kafli s. 16) Enda er heimilisfólk Gests í Strand- arbænum þungt á fætur þegar tekur að grenja af degi inn um ljórann, sem nú skartar þó gleri í stað líkn- arbelgsins sem tíðkast hafði frá landnámi. Þegar þarna er komið sögu er raflýsingin, síminn og ýmsar samgöngubætur í sjónmáli. Samt er fólk ekki beinlínis gott hvað við ann- að og sagan lýsir kerfisbundinni beitingu alls konar yfirráðavalds. Fjárhagslegs, félagslegs, kynferðis- legs. um engir and- stæðingar. Við erum öll saman í þessu. Þessi fleyga staðhæfing Víðis Reynissonar sem rímar svo vel við vitneskju okkar varð að þjóðareign þegar veir- an kom til skjalanna og sýndi okkur fram á það með náttúruvís- indalegum staðreyndum að við erum saman tengd og hvert öðru háð hvort sem við heitum Boris Johnson eða Jóna Jóns. Við erum öll saman í þessu vitandi ekkert hvað bíður. Svo kom skjálftahrina einmitt á Hundrað árum síðar er komið al- net og heilsu- gæsla, björg- unarsveit og sundlaug í hvert pláss. Rosinn er samur við sig en það sem hefur breyst er tilfinningin fyrir því að eiga raunverulega heima í landinu. Við horfum hvert á annað hér á 21. öld og sjáum heimamenn, samverka- fólk. Og þegar okkur verður sundur- orða svo að þjóðfélagið nötrar stafn- anna milli finnum við til eigin mis- þroska vitandi að sundurlyndið er bara þreyttir varnarhættir. Við er- Kirkjan til fólksins Hér er heima Eftir Jónu Hrönn Bolladóttur og Bjarna Karlsson Jóna Hrönn er sóknarprestur. Bjarni er siðfræðingur. Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir Líkt og björgunarsveitin og sundlaugin vill kirkjan í hverri byggð og hverfi segja hér er heima, við erum öll saman í þessu. svæðinu sem við blasir í myndverki Halldórs uns jarðeldar hófust við Fagradalsfjall. Öll sú atburðarás hefur minnt okkur á þá staðreynd að við erum ekki bara samtengd líf- fræðilega heldur er mannfólkið bæði agnarsmátt og nýtilkomið í jarð- fræðilegu og jarðsögulegu tilliti. Tími samstarfsins Í ljósi þess að veröldin er eins og hún er – óskiljanlega stór, ævaforn, innbyrðis tengd og á sífelldri hreyf- ingu – er hugmyndin um yfirráð manna mjög hlægileg, þótt ekki sé hún fyndin. Stærstu ferlar hnattkúl- unnar eru straumar lofts og vatns, ekki manngerðar leiðslur eða veitur. Hve smá eru mannvirki við hlið fjalla? Trú mannanna á yfirráð og söfnun hefur þó leitt til þess að nú hóta vistkerfi jarðar að hrista okkur af sér nema við skiptum um gír. Við munum verða að iðka samráð í stað yfirráða, samstarf í stað stjórnunar og finna okkur heima í heiminum eins og hann er án þess að beygja allt og sveigja undir okkur. Tími yfirráðanna er liðinn og tími sam- starfsins runninn upp. Nýr stjórnunarstíll ryður sér því til rúms sem leggur áherslu á vald- eflingu og virkan atbeina allra. Í stað tiltals kemur samtal sem miðar að því að allar raddir heyrist svo að net þekkingarinnar þéttist og fram- ganga okkar verði raunhæf og vist- væn. Án ofbeldis og aðgreiningar. Þarna vill og getur kristin kirkja verið þátttakandi með þjóðinni í landinu. Líkt og björgunarsveitin og sundlaugin vill kirkjan í hverri byggð og hverfi segja hér er heima, við erum öll saman í þessu. Þegar kristin kirkja fer að eðli sínu er hún fjöldahreyfing samverkafólks þar sem engin eru útilokuð eða þvinguð en gert ráð fyrir öllum í gleði og raun. Engum er þar skipað að trúa á Guð en flutt sú góða fregn að Guð hefur trú á fólki. Garðakirkja Altaristaflan sýnir Jesú og vini hans með Keili í baksýn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.