Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 38
38 STJÓRNMÁL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 2021 Í sland er frjálst og fullvalda ríki með frelsi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi að hornsteinum, segir í að- faraorðum nýrrar stjórnarskrár samkvæmt frumvarpi Stjórnlagaráðs. Ætla má að flestir landsmenn geti fall- ist á þessi orð hvað svo sem hverjum gæti þótt um drögin að öðru leyti. Mannréttindi minna okkur á það sem skiptir okkur mestu máli í samskiptum og samlífi mannfólksins. Það sem aldrei má gleymast og það sem leiðir til mikilla hörmunga fyrir mannkynið ef virt er að vettugi. Mannréttindi eru algild, óafsalanleg, ódeilanleg og samtvinnuð. Við búum við stórar áskoranir í heiminum í dag: Loftslags- breytingar, heimsfaraldur smitsjúkdóma, vaxandi ójöfnuð, stríðsátök og fólk á flótta undan þeim og örar tæknibreyt- ingar sem bæði fela í sér tækifæri og skapa vandamál sem flestar þjóðir eiga sameiginleg. Þessar áskoranir geta skapað ákveðna ógn við grunngildin okkar og eru tilefni inngripa í frelsi fólks og réttindi. Það er við þessar aðstæður sem við þurfum að halda einna fastast í grunngildin okkar, í mannréttindin, og minna okkur á hvers vegna þau eru tilkomin. Það er við þessar aðstæður sem hættan á því er sem mest, að við föllum í sömu gömlu gildrurnar, gildrur sem hafa leitt slíkar hörmungar yfir mannkynið að í hvert sinn finnum við nýja leið til þess að lofa okkur sjálfum að þetta munum við aldrei láta gerast aftur. Ein stærsta ógnin við grunngildin okkar í dag, sem oftar, eru vaxandi þjóðernishyggja og vinsældir hugmynda um að fólk sé ekki allt fólk. Við vissar aðstæður leiki vafi á um það hvort öll eigi að njóta sama frelsis og sömu réttinda, þótt það sé nú kannski sjaldnast orðað þannig beinlínis. En besta leið- in til þess að standa vörð um grundvallargildin okkar er að efla þau en ekki skerða. Framtíðarlandið þýska Það má með sanni segja að saga Þýskalands feli í sér þung- bæran lærdóm fyrir mannkynið allt. Einn stærsti lærdómur okkar um mikilvægi mannréttinda kemur þaðan. Í ofanálag við þann tilgang mannréttinda að koma í veg fyrir hörmungar og þjáningu fjölda fólks, virðist þýska þjóðin hafa lært mik- ilvægi mannréttinda við að stuðla að friði og velsæld borg- aranna til framtíðar. Að til þess að tryggja grunngildin okkar um jöfn tækifæri, frið og velsæld þurfi að auka og tryggja réttindi fólks, ekki skerða þau. Þýskaland, líkt og mörg önnur Evrópuríki, er innflytjenda- samfélag, þótt það hafi tekið sum langan tíma að venjast þeirri tilhugsun og orða það upphátt, en um fjórðungur þjóð- arinnar á rætur að rekja út fyrir landsteinana. Á síðustu ár- um og misserum hafa stjórnvöld þar í landi tekið mikilvæg skref sem fela í sér viðurkenningu á því að síauknir fólks- flutningar á milli ríkja eru ekki tímabundið ástand heldur veruleiki sem nútímalegt samfélag þarf að laga sig að til að tryggja velsæld og frið fyrir alla sína borgara. Við myndun nýrrar ríkisstjórnar hefur Þýskaland nú tekið stór og mikilvæg skref í átt til framtíðar (eða nútíðar, öllu heldur). Ný stefna í málefnum útlendinga ber titilinn „Þýska- land sem nútímalegt innflytjendaríki“. Á meðal þeirra breyt- inga sem gerðar verða nú eru veruleg stytting biðtíma eftir búsetuleyfi og ríkisborgararétti, auknir möguleikar á tvöföldu ríkisfangi fyrir þau sem það kjósa, liðkaðar reglur um fjöl- skyldusameiningu, löglegar leiðir til landsins fyrir flóttafólk, og fleira. Miða þessar breytingar að því fyrst og fremst að tryggja borgaraleg réttindi fólks sem til landsins leitar, ein- mitt til þess að gera því kleift að verða virkir og gegnir borg- arar, öllu samfélaginu til hagsbóta. Frægt er orðið þegar Angela Merkel, þáverandi kanslari Þýskalands, bauð flóttafólk velkomið árið 2015. Orð hennar leiddu til stóraukins fjölda umsókna um vernd þar í landi, en þrátt fyrir deildar meiningar um þýðingu yfirlýsingarinnar virðist þýska þjóðin ekki hafa horfið af þeirri braut að bjóða fólk velkomið. Spurð í lok ágúst sama ár um stöðuna sagði hún af einstöku öryggi: Við höfum ráðið við svo margt – við ráðum við þetta (þ. „Wir schaffen das“). Staðfærð þýðing á þessum orðum hennar yfir á íslensku væri ef til vill „þetta reddast“, sem það og gerði. Enn er Þýskaland land tækifæra, þar sem mannréttindi eru í hávegum höfð og almenn lífskjör eru með besta móti. Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við Það er sannfæring mín að í orðum Angelu hafi falist áhersla á orðið „við“. Árið 2015 sótti um hálf milljón manna um hæli í Þýskalandi, og um 750 þúsund árið á eftir, en í Þýskalandi búa um 80 milljónir manna. Evrópusambandið allt telur um hálfan milljarð einstaklinga. Til þess að varpa ljósi á fáránleika fullyrðinga um að Evrópa ráði ekki við þann fjölda sem til hennar leitar, þá jafnaðist fjöldi umsækjenda um vernd árið 2015, þegar mest lét, ekki á við hálft prósent íbúa álfunnar. Þó eru þá meðtaldir allir þeir einstaklingar sem sóttu um, en ekki einungis það brotabrot sem á endanum fékk leyfi til að vera. Það er í eðli manneskjunnar að óttast breytingar. Flest viljum við búa við öryggi; líkamlegt, efnislegt og félagslegt. Það er öryggi fólgið í því að hlutirnir séu eins og áður, og það er öryggi fólgið í vitneskjunni um það hvernig hlutirnir virka. Það er öryggi fólgið í því að fá viðbrögð í samræmi við vænt- ingar, í mannlegum samskiptum sem annars staðar. Óvissa, skortur á upplýsingum og skilningi, veldur óöryggi. Veldur ótta. Hið ókunnuga og grunngildin Það er því ekki að undra að fyrirsjáanlegar hugsanlegar breytingar á samfélagsgerð okkar veki upp óöryggi og ótta, jafnvel hjá skynsamasta fólki. Þannig sýnir reynslan okkur að áhyggjur af auknu streymi innflytjenda snýst í raun alls ekki um fólksfjöldann sem slíkan, eins og iðulega er haldið fram, enda eru samfélög byggð upp af fólki, og það oftar en ekki fjölda fólks. Hinn raunverulegi ótti við fjöldann lýtur að samfélagslegum og menningarlegum breytingum sem fylgt gæti í kjölfarið. Óttinn við hið ókunnuga og óöryggið sem honum fylgir. Þessum áskorunum er stundum lýst sem ógn við grunn- gildin okkar. Fólk hræðist samfélagslegar breytingar sem við erum ekki reiðubúin að sætta okkur við. En það eru ekki síst breytingar sem við óttumst að vegið gætu að einmitt því sem skiptir okkur mestu máli: Grunngildum okkar um frelsi, jafn- rétti, lýðræði, og mannréttindi. Í klaufalegum tilraunum til þess að bregðast við vandanum verða okkur hins vegar oftar en ekki á þau mistök að skerða réttindi og takmarka þau, í stað þess að festa þau í sessi. Áskoranir á borð við þær sem við fáumst við í dag, svo sem loftslagsbreytingar, átök og sjúkdómsfaraldrar, eiga stóran þátt í auknum fólksflutningum nú sem fyrr, þótt gera megi ráð fyrir að greiðari samskipti og samgöngur á milli ríkja ýti þar enn frekar undir og muni gera um ókomna tíð. Forspár um síaukna fólksflutninga á næstu áratugum er raunveruleiki sem öll ríki heims þurfa að takast á við og laga sig að. Svara þarf eðlilegum ótta og áhyggjum með skilningi, upplýsingu og stöðugum gagnkvæmum lærdómi. En ef áhyggjur okkar snúa að því að fyrirséðar samfélags- breytingar ógni grunngildum okkar um frelsi, jafnrétti, lýð- ræði og mannréttindi, þá segir það sig sjálft að leiðin til að verja þau er varla sú að setja þeim skorður, heldur þvert á móti að styrkja þau og efla sem víðast, sem oftast og sem mest. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður Pírata Morgunblaðið/Eggert Stöndum vörð um gildin okkar Besta leiðin til þess að standa vörð um grund- vallargildin okkar er að efla þau en ekki skerða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.